Morgunblaðið - 21.05.2008, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 33
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30-9.15,
vinnustofa kl. 9-16.30, postulínsmálun
kl. 9-12 og 13-16.30.
Árskógar 4 | Bað kl. 8.15-16, handa-
vinna og smíði/útskurður kl. 9.16.30.
Heilsugæsla kl. 10-11.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðslustofa,
böðun, almenn handavinna, glerlist,
fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, há-
degisverður, spiladagur, kaffi, slök-
unarnudd.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í hand-
mennt opin kl. 9-16, Halldóra leiðbeinir
kl. 13-16, leikfimi með Guðný kl. 10.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Ferða-
kynning FEBK vegna sumar- og haust-
ferða innanlands verður í Félagsheim-
ilinu Gjábakka, 21. maí kl. 16 og í
Gullsmára föstudaginn 23. maí kl. 13.
Bingó í Gullsmára sama dag kl. 14. Listi
yfir allar ferðirnar liggja frammi að
fundum loknum.
Félag eldri borgara Kópavogi, ferða-
nefnd | 22. maí verður ekinn Bláfjalla-
hringur, Hellisheiðarvirkjun skoðuð,
Landbúnaðarháskólinn í Hveragerði
heimsóttur, blómasýning o.fl. Kvöldmat-
ur á Hótel Hlíð í Ölfusi. Brottför frá Gull-
smára kl. 10.45 og Gjábakka kl. 11.
Skráningarlistar eru í félagsmiðstöðv-
unum og á skrifstofu FEBK, sími 554-
1226.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-
Hrólfar ganga frá Ásgarði Stangarhyl 4,
kl. 10, söngfélag FEB æfing kl. 17.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Vor-
vaka verður í Vinabæ Skipholti 33 laug-
ardaginn 24. maí kl. 19, létt máltíð, leik-
þáttur, söngur, upplestur og dans.
Miðasala á skrifstofu FEB uppl. í síma
588-2111.
Félagsheimilið Gjábakki | Handa-
vinnustofan opin, leiðbeinandi við til kl.
17, félagsvist kl. 13, kynning á sum-
arstarfsemi í Gjábakka kl. 15, söngfugl-
arnir syngja og er það síðasti söngur á
þessu vori. Um kl. 16 kynnir ferðanefnd
FEBK fyrirhugaðar ferðir sumarsins.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist
kl. 9, létt ganga kl. 10. Hádegisverður,
kvennabrids kl. 13.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ |
Vatnsleikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9-
10.30, brids og bútasaumahópur kl. 13.
Hægt er að panta hádegismat í Jóns-
húsi með dags fyrirvara eða í síma 512-
1502 fyrir kl. 9, samdægurs.
Félagsstarf Gerðubergs | Leiðsögn í
vinnustofum fellur niður vegna upp-
setningar handavinnu- og listmunasýn-
ingar sem opnuð verður föstud. 23. maí
kl. 10. Sund og leikfimiæfingar í Breið-
holtslaug kl. 9.50. Dansæfing fellur nið-
ur. Frá hádegi er spilasalur opinn. Uppl.
á staðnum og í síma 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Leikfimin og
framhaldssagan í dag. Opið hús –
uppskeruhátíð verður laugardaginn 24.
maí kl. 14-17.
Hraunbær 105 | Handavinna og út-
skurður kl. 9, hádegismatur, brids kl. 13,
kaffi. Ókeypis 6 tíma námskeið í staf-
göngu frá Félagsmiðstöðinni. Kennt er 1
sinni í viku á miðvikudögum kl. 10.30 og
hefst kennsla í dag. Skráning á skrif-
stofu eða í síma 411-2730.
Hraunsel | Línudans kl. 11, handment kl.
13.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl.
9-16 hjá Sigrúnum, keramik, taumálun
o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Sam-
verustund kl. 10.30. Böðun fyrir hádegi,
hádegisverður. Hársnyrting.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu
í Dalsmára kl. 9.30, ringó í Smáranum
kl. 12, línudans í Húnabúð, Skeifunni 11,
kl. 17. Uppl. í síma 564-1490.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr-
unarfræðingur frá heilsugæslunni kl.
10.30, leikfimi kl. 11, handverksstofa op-
in, námskeið í myndlist kl. 13, kaffiveit-
ingar. Hárgreiðslustofa sími 552-2488
og fótaaðgerðastofa fími 552-7522.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnu-
stofa í handmennt kl. 9-16, Halldóra
leiðbeinir kl. 9-12, félagsvist kl. 14.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla, fótaað-
gerðir og handavinna kl. 9-16, aðstoð
við böðun kl. 9-14, sund kl. 10-12, hádeg-
isverður, verslunarferð í Bónus kl. 12.10-
14, tréskurður kl. 13-16, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja,
handavinnustofan opin allan daginn,
morgunstund kl. 10, bókband, versl-
unarferð kl. 12.15, framhaldssaga kl.
12.30. Dans við undirleik hljómsveitar.
Uppl. í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Handavinna kl. 9, sal-
urinn opinn kl. 13, boccia kl. 14, kaffi.
Stafgöngunámskeið, ókeypis 6 tíma
námskeið í stafgöngu hefst í dag kl. 13,
farið verður frá Þórðarsveig 3, skráning
í síma 411-2730.
Kirkjustarf
Áskirkja | Hreyfing og bæn í neðri safn-
aðarsal kl. 11.
Breiðholtskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Tónlist, hugvekja, fyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimili á eftir.
Bústaðakirkja | Lagt verður af stað í
vorferð eldri borgara kl. 12.30 í dag, frá
Bústaðakirkju. Áætluð heimkoma er um
kl. 17. Verð 2.000 kr. Skráning hjá kirkju-
vörðum í sím 553-8500.
Dómkirkjan | Hádegisbænir, bæna-
stundir kl. 12.10-12.30. Léttur hádeg-
isverður á kirkjuloftinu á eftir. Bæn-
arefnum má koma á framfæri í síma
520-9700 eða með tölvupósti til dom-
kirkjan@domkirkjan.is.
Fríkirkjan Kefas | Unglingasamkoma kl.
20. Prédikun, tónlist og samvera.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12.
Altarisganga, fyrirbænir. Boðið upp á
léttan hádegisverð á vægu verði að
stundu lokinni.
Hallgrímskirkja | Árdegismessa kl. 8.
Hugleiðing, altarisganga. Morgunverður
í safnaðarsal eftir messuna. Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um.
Háteigskirkja | Kvöldbænir og fyr-
irbænir kl. 18. Prestar og kirkjuverðir
taka við bænarefnum.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Hádeg-
isbænastund í kaffisalnum kl. 12. Hægt
er að senda inn fyrirbænarefni inná fila-
delfia@gospel.is
Kristniboðssalurinn | Samkoma í kvöld
kl. 20. Frjálsir vitnisburðir. Ræðumaður
er Haraldur Jóhannsson. Kaffi eftir
samkomu.
Laugarneskirkja | Morgunbæn kl. 8,
foreldramorgunn kl. 10, gönguhópurinn
Sólarmegin kl. 10.30. Öllum velkomið að
slást í för.
Neskirkja | Vorferð opna húsins verður
farin í dag að Reykholti í Borgarfirði.
Staðarskoðun og veitingar. Farastjóri
verður Hjörtur Pálsson, skáld og guð-
fræðingur. Lagt verður af stað frá Nes-
kirkju kl. 13 og er áætluð heimkoma milli
kl. 18 og 19. Skráning í síma 511-1560.
75ára afmæli. Í dag 21.maí er Elín Magn-
úsdóttir Flétturima 35, sjötíu
og fimm ára. Elín tekur á móti
gestum á Hallveigarstöðum,
Túngötu 14, sunnudaginn 25.
maí frá kl. 14 til 18.
90ára afmæli. Í dag, 21.maí, er níræð Nanna
Kaaber Þórufelli 8, Reykjavík.
Hún tekur á móti ættingjum og
vinum í dag kl. 17-20 á heimili
sonar síns og tengdadóttur,
Skólabraut 7, Seltjarnarnesi.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 21. maí, 142. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér. (Jh. 12, 50.)
Rannsóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum efnir til fyr-irlestrar á morgun kl. 12 ístofu 101 í Odda.
Þar mun Alda Björk Valdimarsdóttir,
doktorsnemi í bókmenntafræði, flytja
erindið Jane Austen og kvennamenning.
Alda Björk skoðar sérstaklega hina
svokölluðu Jane-ista, sem eru hópur
fólks – einkum kvenna – sem hafa
brennandi áhuga á Jane Austen og öllu
sem henni við kemur: „Þetta eru konur
á öllum aldri sem hafa lítinn áhuga á
fræðilegu hliðinni á bókmenntaverkum
Austen, en hafa þeim mun meira gaman
af að sækja Jane Austen-hátíðir eins og
þá sem haldin er í Bath ár hvert. Þar
klæða þær sig í „regency“-stíl, drekka te
á Jane Austen-böllum og lifa sig inn í
þennan heim sem birtist í bókunum,“
segir Alda Björk. „Jane-istarnir eru
áskrifendur að tímaritinu Jane Austen
Regency World, og kaupa framhalds-
sögur sem skrifaðar hafa verið út frá
sagnaheimi Jane Austen. Þar má nefna
bækur eins og Dagbækur Bridget Jon-
es, sem sækir mikið í Austen, eða glæpa-
sögur sem fjalla um spæjarann Jane
Austen sem leysir glæpi á 19. aldar
Englandi enda glöggskyggn og með fín-
stillta eðlishvöt. Jafnvel hafa verið skrif-
aðar glæpasögur um rannsóknarparið
Darcy og Elisabeth, sögupersónur úr
Hroka og hleypidómum, sem í framhaldi
af atburðum bókar Austen taka til við að
leysa ýmsar ráðgátur.“
Að sögn Öldu Bjarkar vilja oft verða
átök milli fræðimanna og þessara
stærstu aðdáenda höfundarins: „Gaman
er að skoða þennan hóp, sem les bækur
Austen fyrst og fremst sér til afþrey-
ingar. Þetta eru jú ástarsögur í kjarn-
ann, tengjast öllu því sem breskt er og
sýna samskipti kynjanna í mjög fág-
uðum en afmörkuðum heimi efri milli-
stéttar og hástéttar,“ segir Alda Björk.
„En verk Austen sýna ekki nein stétta-
átök, heldur aðeins lokaðan kvenna-
heim. Bækurnar eru skrifaðar út frá
sjónarhorni kvenna, sem á þessum tíma
höfðu þá einu leið til að komast áfram í
samfélaginu að finna sér sem bestan
eiginmann.“ Sumir halda því fram að
ólmustu aðdáendur Austen séu í raun
orðnir hættulegir verkum hennar: „Vin-
sældir hennar, og þeirra bóka og kvik-
mynda sem verða til í kringum hin upp-
runalegu verk, eru kannski að verða til
þess að rithöfundurinn Jane Austen fer
að fá minni akademíska vigt,“ segir Alda
Björk.
Bókmenntir | Fyrirlestur á morgun um merkilegt bókmenntafyrirbæri
Ákafir aðdáendur Austen
Alda Björk
Valdimarsdóttir
fæddist í Reykja-
vík 1973. Hún lauk
stúdentsprófi frá
VÍ 1994, BA-gráðu
í bókmenntafræði
frá HÍ 1999, meist-
araprófi 2004 frá
sama skóla og
leggur nú stund á doktorsnám. Alda
Björk hefur starfað við rannsóknir,
þýðingar og skrif, og hefur verið
stundakennari við HÍ um nokkurt
skeið. Hún er gift Guðna Elíssyni dós-
ent við HÍ og eiga þau eina dóttur.
Tónlist
Fjölbrautaskóli Suðurlands | 25 ára af-
mælistónleikar Kórs Fjölbrautaskóla Suður-
lands. Magni syngur lög Queen og einnig
syngur sópransöngkonan Gyða Björgvins-
dóttir. Stjórnandi er Stefán Þorleifsson.
Iða, íþróttahús | Magni vs. Queen. Öll bestu
og vinsælustu lög Queen verða flutt á tón-
leikum á Suðurlandi. Flutt verða lög eins og
Killer Queen, Don’t stop me now, I want it
all og Bohemian Rhapsody.
Næsti bar | Lady D and the Softtones
verða með tónleika frá kl 21 í kvöld. Á dag-
skrá er þekkt popp, rokk, funk, soul, blues
lög og einnig frumflytja þeir eitthvað af eig-
in lögum. 500 kr. innkv. The Softtones
Myndlist
Sjónarhóll | Myndlistasýning Hafsteins
Reykjalíns stendur yfir fram til mán-
aðamóta. Þar sýnir hann hluta verka sinna.
Söfn
Grasagarður Reykjavíkur | Leiðsögn um
lyngrósasafn Grasagarðsins í Laugardal
verður í kvöld. Lyngrósir eru blómfagrar og
eru af lyngætt og blómgast snemma vors.
Skógarlyngrós hefur verið í ræktun í Grasa-
garðinum frá 1977. Mæting við Laugatungu
kl. 20.
Fyrirlestrar og fundir
Umhverfisráðuneytið | Umhverfisráðu-
neytið og Landgræðslan efna til morg-
unverðarfundar á Grand Hótel í Reykjavík,
fimmtudaginn 22. maí, kl. 8-10. Fjallað verð-
ur um mikilvægi líffræðilegrar fjölbreytni
fyrir landbúnað, næringu og matvælaöryggi.
Einnig verður ný stefnumörkun Íslands um
líffræðilega fjölbreytni kynnt.
Félag einstæðra foreldra | Aðalfundur Fé-
lags einstæðra foreldra verður haldinn laug-
ardaginn 31. maí n.k. á skrifstofu félagsins í
Aðalstræti 9, 2. hæð, kl. 16. Á dagskrá
verða aðalfundarstörf. Nánar á www.fef.is
Friðarhúsið | Eygló Bjarnardóttir talar um
Malaví og sýnir myndir frá ferð sinni um
landið. Húsið opnar kl. 18.30 en léttur
kvöldverður verður seldur í upphafi fundar
kl. 19.
Fréttir og tilkynningar
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar-
og fataúthlutun kl. 14-17 í Hátúni 12b. Tekið
við hreinum fatnaði og öðrum varningi á
þriðjudögum kl. 10-15. Sími 551-4349, net-
fang maedur@simnet.is
70ára afmæli. Í dag 21.maí er Lóa Guðjóns-
dóttir sjötug. Hún er með opið
hús á Kaffi Reykjavík milli kl.
17 og 20.
SAMTÖK ferðaþjónustunnar
mótmæla harðlega fyrirhuguð-
um hrefnuveiðum sem sjávarút-
vegsráðherra hefur nú heimilað.
Í ályktun frá samtökunum
segir m.a.:
„Ljóst er að hvalveiðar skaða
ímynd Íslands í flestum við-
skiptalöndum okkar víða um
heim auk þess sem veiðarnar
hafa fram að þessu verið við
ströndina, samkvæmt veiðikort-
um Hafrannsóknastofnunar, og
hafa haft mjög slæm áhrif á
hvalaskoðun sem er orðin mjög
mikilvæg afþreying í íslenskri
ferðaþjónustu.
Á síðastliðnu ári fóru 104 þús-
und ferðamenn í hvalaskoðun
með hinum ýmsu fyrirtækjum
sem bjóða upp á slíkar ferðir og
hefur eftirspurnin farið hratt
vaxandi á undanförnum árum.
Það hafa hins vegar komið fram
miklar áhyggjur hjá erlendum
ferðasöluaðilum með fyrirhugað-
ar hvalveiðar í atvinnuskyni, auk
þess sem einstök hvalaskoðunar-
fyrirtæki hafa fundið fyrir mikl-
um breytingum í skoðun á
hrefnu en þær sjást nú mun
sjaldnar en áður. Hér er því um
ákaflega viðkvæma atvinnugrein
að ræða sem byggir algjörlega á
því að hvalir geti óáreittir komið
að ströndum landsins.
Þar sem ekki hefur tekist að
selja hvalkjöt til annarra landa
og eftirspurn takmörkuð við ís-
lenska markaðinn er ljóst að með
veiðunum er verið að fórna meiri
hagsmunum fyrir minni eins og
samtökin hafa bent á í áraraðir.
Samtök ferðaþjónustunnar
hvetja ríkisstjórnina til að stöðva
þessar tilgangslausu hvalveiðar
áður en þær skaða aðrar at-
vinnugreinar.“
Ferðaþjónustan mót-
mælir hrefnuveiðum
OPIÐ hús verður hjá Flug-
stoðum á Reykjavíkurflugvelli í
dag kl. 17-19. Boðið verður upp
á leiðsögn í Flugstjórn-
armiðstöðinni og turnhermi sem
notaður er við þjálfun flug-
umferðarstjóra. Auk þess verð-
ur verkstæði og slökkvilið opið
gestum og gangandi.
Klukkan 20 hefjast fyr-
irlestrar um þróunar- og rann-
sóknarstarf Íslendinga á sviði
flugsins, í skýli 25 í Fluggörðum
hjá Flugfélaginu Geirfugli á
Reykjavíkurflugvelli. Fyrirles-
arar koma frá flugskólum, há-
skólum og fleiri aðilum. M.a.
verður fjallað um nýlega keypt-
an flughermi, micro-flugvélar
og eldflaugasmíði. Kennsluflug-
vélar frá flugskólunum verða til
sýnis og flugkennarar svara fyr-
irspurnum. Fundarstjóri verður
Matthías Sveinbjörnsson.
Opið hús hjá
Flugstoðum
Morgunblaðið/ÞÖK
BRESKA landsdeild Al-
þjóðaþingmannasambandsins
(IPU) heimsækir Alþingi dag-
ana 20. - 22. maí. Í sendi-
nefndinni eru fimm þingmenn
auk starfsmanns landsdeild-
arinnar.
Tilgangur heimsóknar
þingmannanna er að styrkja
samskipti þinganna, eiga við-
ræður við íslenska þingmenn
um margvísleg mál og kynna
sér starfsemi Alþingis.
Þingmennirnir munu m.a.
kynna sér utanríkismál, orku-
mál, auðlindanýtingu, sjáv-
arútvegsmál og efnahagsmál.
Meðan á heimsókninni stend-
ur eiga þeir fundi með for-
seta Alþingis, Íslandsdeild
IPU og fulltrúum utanrík-
ismálanefndar, umhverf-
isnefndar, efnahags- og
skattanefndar og viðskipta-
nefndar.
Þeir hitta einnig iðn-
aðarráðherra og sjávar-
útvegs- og landbúnaðar-
ráðherra, auk þess sem þeir
eiga fund með fulltrúum ASÍ,
Samtökum atvinnulífsins og
Viðskiptaráðs Íslands.
Breskir
þingmenn í
heimsókn