Morgunblaðið - 21.05.2008, Blaðsíða 36
… bæði Indiana Jones
og John Fogerty verða
að vona að leikurinn fari
ekki í framlengingu … 37
»
reykjavíkreykjavík
FYRSTA forkeppni Evróvisjón var
haldin í gærkvöldi og á morgun
fáum við svo úr því skorið hvort
Evrópu hugnast framlag okkar Ís-
lendinga til keppninnar í ár.
Evróvisjón-hópurinn tók það ró-
lega í gærdag enda gekk mikið á í
veislu sem hópurinn hélt á mánu-
dag í Magacin Club en þangað voru
mættir meðal annarra konsúll Ís-
lands, Slobodan Micic, og Guð-
mundur Árni Stefánsson sendi-
herra auk söngvara Kýpur og
Danmerkur. Að sögn Dags Gunn-
arssonar blaðamanns, sem staddur
er í Belgrad, mun veislan hafa
reynt töluvert á íslensku keppend-
urna en tekist vel enda troðið út úr
dyrum á klúbbnum og ekki annað
að sjá en að Eurobandið, með þau
Friðrik Ómar og Regínu Ósk í
broddi fylkingar, standi sig vel í
kynningarherferðinni sem öllum
keppendum er uppálagt að sinna.
Hvort sú kynning nær til fólksins
heima í stofu er hins vegar erfitt að
segja og kemur væntanlega í ljós
annað kvöld.
Íslenska atriðið mun vera orðið
tilbúið og þaulæft. Síðustu breyt-
ingarnar sem hópurinn gerði var að
bæta bleikum eyrnalokkum við
búning Regínu Óskar en litirnir í
búningum Eurobandsins eru svart-
ur og bleikur. Ekki beint íslensku
fánalitirnir, en nógu töff samt.
Íslenskir vindar í Belgrad
Morgunblaðið/Dagur
Rokk on! Spurning hvort Friðriki Ómari, söngvara Eurobandsins, sé
yfirleitt heimilt að sýna rokkmerkið á opinberum vettvangi.
Iðnasti kvik-
myndagerð-
armaður landsins,
Ólafur (de Fleur)
Jóhannesson
birtir á vefsíðu
sinni brot úr nýrri
mynd sem hann vinnur að og kall-
ast Hringfarar. Myndin fjallar um
samnefnda engla sem eru stétt-
lægri en við mannfólkið í alheims-
skipulaginu en Ólafur lýsir engl-
unum sem getulausum
karlmönnum (í bókstaflegri merk-
ingu orðsins) sem er stjórnað af
konum. Söguþráðinn „bullaði“
Ólafur upp með félaga sínum Stef-
an Schafer sem einnig kom að
myndunum Queen Raquela og
Stóra planinu. Myndin gerist bæði á
Íslandi og í New York og segir
Ólafur að hann muni ráðast í ís-
lenska hlutann á næstu vikum með
hjálp þeirra Hilmis Snæs Guðna-
sonar, Benedikts Erlingssonar og
Jóhanns Jóhannssonar. Hljómar
spennandi og myndbrotið lofar
góðu.
Ólafur gerir mynd
um engla alheimsins
Írski kalkún-
ninn Dustin
gerði sér lítið
fyrir og kallaði
Jónatan Garð-
arsson, far-
arstjóra íslenska
Evróvisjónhópsins, leiðinlegan, á
blaðamannafundi á mánudag. Til-
efnið var spurning frá íslenskum
blaðamanni sem gat þó ekki lokið
við spurninguna áður en Dustin
hafði lýst þessu yfir við mikla kát-
ínu viðstaddra.
Sagðist hann hafa hitt Jónatan í
lyftu á hótelinu í Belgrad og lyftu-
ferðin hefði liðið eins og heill dag-
ur, svo leiðinlegur væri hann.
Engum sögum fer af viðbrögðum
Jónatans við þessum dómi Dustins
en líklegt þykir að um einka-
húmor hafi verið að ræða enda
Jónatan mikill vinur írska hópsins.
Dustin segir farar-
stjórann leiðinlegan
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞETTA kom mér rosalega á
óvart,“ segir Þorsteinn Einarsson,
betur þekktur sem Steini, en
hljómsveit hans bar sigur úr býtum
í Þorskastríði Cod Music í síðustu
viku.
Alls barst tónlist frá 102 flytj-
endum í keppnina, en í verðlaun
var plötusamningur við útgáfuna.
„Ég er ennþá að átta mig á
þessu. Ég var líka að útskrifast úr
Kvikmyndaskólanum hinn 17. maí,
og daginn áður fékk ég að vita að
ég hefði fengið þennan plötusamn-
ing. Þannig að þetta voru ansi stór-
ir dagar,“ segir Steini sem sendi
frá sér sína fyrstu plötu, Behold, í
fyrra.
Aðspurður segir hann það
kannski svolítið sjálfhverft að
nefna hljómsveit í höfuðið á sjálf-
um sér, en það eigi þó sína skýr-
ingu. „Ég gaf nefnilega fyrst út
demó árið 2006 og þar var ég bara
einn, ég gerði sem sagt allt sjálfur.
En svo fékk ég bróður minn með
mér í þetta, og líka hann Erik
Qvick sem er einn færasti djass-
trommari Svía. Svo fékk ég líka
Kristin Árnason gítarleikara,
þannig að þetta er orðið að hljóm-
sveit.“
Pabbi ánægður með lýsið
Hvað tónlistina varðar segir
Steini að um ljóðrænt popp sé að
ræða. „Við erum samt svolítið í
anda Kiss og Alice Cooper. Ég og
bróðir minn málum okkur og ég
fer í búning, set á mig grifflur og
mála mig í kringum augun eins og
pandabjörn. Þannig að ég er
ákveðin persóna uppi á sviði, og ég
gerði einmitt heimildarmynd um
þessa persónu sem lokaverkefni í
skólanum. Þessi hljómsveit er ann-
ars með mjög bókmenntalegar til-
vísanir, þetta er svolítið í anda
Sturm und Drang-tímabilsins.“
Steini er með nýja plötu í und-
irbúningi, en hann á um það bil 40
lög á lager. Stefnt er að því að
sveitin fari í hljóðver í júní, og
platan komi svo út í haust.
Skrifað verður undir útgáfu-
samning milli Steina og Cod Music
í vikunni, en þar mun sveitin einnig
fá kassa af þorskalýsi og 10 kíló af
þorski.
„Ég hef lengi ætlað mér að byrja
að taka lýsi, og var meira að segja
að hugsa um það í síðustu viku. Ég
held að pabbi minn hafi verið
ánægðari með að ég hafi unnið lýsi
heldur en að ég hafi fengið útgáfu-
samning,“ segir Steini og hlær.
„En ætli ég gefi svo ekki bara
ömmu og afa þorskinn...“
Í anda Kiss og Cooper
Hljómsveitin Steini bar sigur úr býtum í Þorskastríði Cod Music í síðustu viku
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Steini „Ég og bróðir minn málum okkur og ég fer í búning, set á mig grifflur og mála mig í kringum augun eins og
pandabjörn,“ segir Steini sem sést hér með bróður sínum sem kallar sig Golden Boy.
www.steinientertainment.com
www.cod.is
■ Á morgun kl. 19.30
Tveir básúnuguðir
Þegar tveir virtúósar eins og Christian Lindberg og Charlie Vernon
leiða saman hesta sína verður útkoman göldrum líkust. Fluttur
verður básúnukonsert sem Lindberg samdi fyrir Vernon og gerði allt
vitlaust við frumflutninginn á heimavelli þess síðarnefnda í Chicago.
Fyrsta sinfónía Tsjajkovsíj verður líka flutt. Ómissandi fyrir áhuga-
menn um flugeldasýningar.
Hljómsveitarstjóri: Christian Lindberg. Einleikari: Charlie Vernon
■ Fim. 5. júní kl. 19.30
Lady and Bird – tónleikar á Listahátíð í Reykjavík Þegar
Barði Jóhansson er ekki einhamur maður í tónsköpun sinni. Hér
verður samstarf hans við Keren Ann Zeidel í forgrunni.
■ Fös. 20. júní kl. 19.30
20 horn - og einn sólisti Sinfóníuhljómsveitin lýkur starfsárinu
með stæl og flytur hina risavöxnu Alpasinfóníu Richard Stauss, og
fleiri verk þessa meistara litbrigðanna.
Miðasala
S. 545 2500
www.sinfonia.is