Morgunblaðið - 21.05.2008, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 41
SÝND Í ÁLFABAKKA,KRINGLUNNI, KEFLAVÍK, AKUREYRI OG SELFOSSI
eeee
- V.J.V.,
Topp5.is/FBL
eee
ROLLING STONE
SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRISÝND Í ÁLFABAKKA OG KRINGLUNNI
SÝND Í KEFLAVÍK
„ATH SÉRSTAKT LEYNIATRIÐI ER AÐ MYND LOKINNI (EFTIR LEIKARA/CREDIT LISTANUM)“
SÝND Á SELFOSSI
NIM'S ISLAND kl. 8 LEYFÐ
MADE OF HONOUR kl. 8 LEYFÐ
IRON MAN kl. 10:10 B.i. 12 ára
RUINS kl. 10:10 B.i. 16 ára
NIM'S ISLAND kl. 8 LEYFÐ
IRON MAN kl. 10 B.i. 12 ára
OVER HER DEAD BODY kl. 8 B.i. 7 ára
STREET KINGS kl. 10 B.i. 16 ára
SÝND Í KEFLAVÍKSÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í KRINGLUNNI
/ SELFOSSI/ KEFLAVÍK/ AKUREYRI
NEVER BACK DOWN kl. 8 B.i. 14 ára
IRON MAN kl. 8 B.i. 12 ára
Evróvisjón er að sjálfsögðufrábært menningarfyr-irbæri. Við fyrstu sýn kann
það að virðast innantóm og yf-
irborðskennd skemmtun þar sem
„hressið“ hefur yfirhöndina en
þegar kafað er aðeins dýpra ofan í
froðuna kemur í ljós að keppnin
hefur á sinn hógværa hátt verið
vettvangur sameiningar Evrópu-
landa allt frá því að vopnin voru
kvödd eftir tvær heimsstyrjaldir.
Nú, eftir að múrinn féll og vopna-
skaki lauk hér á Balkanskaganum,
er keppnin sniðug leið fyrir okkur
í Vestrinu til að kynnast Austur-
Evrópu og bjóða henni upp í gleði-
dans til að gleyma hörmungum í
smástund og ekki sakar að hafa ör-
litla keppni í léttum ungmenna-
félagsanda með í dæminu.
Hér er ástandið viðkvæmt,keppendur jafnt sem skipu-
leggjendur í Belgrad einbeita sér
að sjálfsögðu að sýningunni og
glamúrnum en undir niðri kraum-
ar einhver spenna sem hefur ekk-
ert með popptónlist að gera. Það
minnir örlítið á þátt í hinni sígildu
bresku gamanþáttaröð Hótel
Tindastóli þar sem John Cleese lék
taugaveiklaðan hótelstjóra að
nafni Basil Fawlty. Í þættinum sem
nefnist Þjóðverjarnir þarf hann
stöðugt að minna sjálfan sig á að
nefna ekki stríðið og í taugaveikl-
uninni gerir hann ekki annað en að
blaðra um stríðið og afleiðingar
þess.
Þátttakendur í Evróvisjón í Bel-
grad sem og allir fjölmiðlamenn
fengu afhent sérlegt dreifirit þar
sem fjallað var um öryggismál af
nokkurri alvöru og fyrir utan að
minna fólk á að fara yfir á gang-
braut og passa sig á vasaþjófum og
nota öryggisbelti í leigubílum (af
þeim skrilljón leigubílum sem ég
hef tekið var einungis einn með
nothæft belti) þá eru gestir hér
minntir á að kosningar eru nýaf-
staðnar og að Evróvisjón sé ekki
heppilegur vettvangur fyrir stjórn-
málaumræðu. Fólk er varað við því
að ræða stríðið og stjórnmál yfir
höfuð og tekið fram að það gæti
verið hættulegt að sýna fólki af
sama kyni atlot á almannafæri eða
yfir höfuð að sýna af sér augljósa
samkynhneigða hegðun á meðal al-
mennings.
Maður skyldi ætla að hin stoltaserbneska þjóð hefði aðeins
mildað viðhorf sitt til kynhneigðar
fólks með tilliti til þess að konan
sem færði þeim evróvisjónsigurinn
heim frá Helsinki í fyrra er sam-
kynhneigð. Marija Serifovic mun
reyndar aldrei hafa komið op-
inberlega út úr skápnum en þegar
hún var spurð í fjölmiðlum sagði
hún heldur aldrei að hún væri það
ekki. Trúlegast má kenna bæði
óöruggri sjálfsímynd þjóðarinnar
að loknu stríði og íhaldssamri þjóð-
erniskennd í sambland við sterk
ítök rétttrúnaðarkirkjunnar um
þessa spennu. Því kom mér á óvart
að rekast á hið frábæra skilti sem
augljóslega er að benda fólki á að
þarna sé að finna sérstakt almenn-
ingssalerni fyrir samkynhneigða.
Hvað sem því líður þá hefurmér að mestu tekist að sneiða
hjá öllu stríðstali og ég held að ég
hvíli það vel í gagnkynhneigðri
karlmennsku minni að ég hafi ekki
sært fólk á götum úti með tilgerð-
arlegu valhoppi eða klisjukenndum
linleika í úlnliðnum. Auðvitað vita
allir að það tekur tíma fyrir þjóðfé-
lagið hér að tileinka sér frjálslegri
hætti eftir fall kommúnisma og
enginn ætlast til þess að hér
blómstri allt í einu ofurfrjálslynt
og umburðarlynt samfélag sem
væri á einhvern hátt slitið úr sam-
hengi við fortíð sína. Hlýlegt við-
mót fólks af báðum kynjum er það
sem fyrst og fremst hefur mætt
mér hér í Belgrad og góður matur.
Ég hef reyndar ekki haft tíma til
að skoða mig mikið um en ég datt
niður á hefðbundinn serbneskan
stað sem heitir ?. Nei, ég er ekki
búinn að gleyma nafninu, það er
spurningarmerkið.
Ég sat úti og fylgdist með kaót-ískri umferðinni sem er hröð
og snurðulaus að hætti Miðjarð-
arhafsbúa. Ég fylgdist með af að-
dáun þegar hver bílstjórinn á fæt-
ur öðrum iðkaði þá listgrein sem
er mér kærust, að bakka í stæði.
Bílstjórarnir smurðu bílunum sín-
um af öllum stærðum og gerðum
afturábak í stæði í miklum halla, í
báðar akstursstefnur hratt og
örugglega og tel ég að landar mín-
ir sem klessa jeppunum sínum
þversum uppi á gangstéttunum í
Þingholtunum líkt og þeir væru að
tjóðra hross fyrir utan kaupfélagið
gætu lært ýmislegt af serbneskum
lagningakúnstnerum.
Að lokum er rétt að geta þess að
Friðrik Ómar og Regína Ósk hafa
það gott og standa sig vel í kynn-
ingarherferðinni.
Hommapæling og -bæling í Belgrad
»Enginn ætlast til þess að hér blómstri allt íeinu ofurfrjálslynt og umburðarlynt sam-
félag sem væri á einhvern hátt slitið úr sam-
hengi við fortíð sína.
Hommar í Belgrad Boban Stojanovic og Predrag Azdejkovic fara fyrir
samtökum samkynhneigðra í Serbíu. Í Balkanlöndunum er enn víða litið
svo á að samkynhneigð sé sálsýki sem hægt sé að lækna fólk af.
dagur@mbl.is
DAGUR Í EVRÓVISJÓN
Dagur Gunnarsson
Englakroppar Azerar kepptu í Evróvisjón í fyrsta sinn í gærkvöldi.
Karla- og karlasnyrting Blaðamað-
ur rakst á sérstakt almenningssal-
erni fyrir samkynhneigða í Belgrad.
Reuters
Charlotte Perrelli Evróvisjónspekingar spá sænsku þokkadísinni sigrinum í ár.