Morgunblaðið - 21.05.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 21.05.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 21. MAÍ 2008 43 Leikstjórinn Clint Eastwoodbyggir nýjustu mynd sína ásannsögulegum atburðum sem gerðust í Los Angeles árið 1928. Þá varð ung kona fyrir þeirri hræðilegu reynslu að barninu henn- ar var rænt. Vegna spillingar innan lögreglunnar í Los Angeles og ótta þeirra við neikvæða fjölmiðlaum- fjöllun koma yfirvöld í hendur hennar barni sem hún er sannfærð um að sé ekki sonur sinn. Barátta konunnar við að fá réttlætinu fram- gengt og leit hennar að sannleik- anum er svo rauði þráðurinn í myndinni en þar koma við sögu við- bjóðslegur fjöldamorðingi, gjör- spilltar löggur og prestur sem sker upp herör gegn spillingunni. Sá síð- astnefndi er leikinn af John Malko- vich.    Títtnefnd kona er í myndinnileikin af Angelinu Jolie sem er einhver sú indælasta á blaðamanna- fundum. Hún þakkar oft fyrir spurningar, þýðir óskiljanlegar spurningar fyrir sessunauta sína og er öll hin kurteisasta. Hún sagði hlutverkið hafa haft sérstaka merkingu fyrir sig. „Mamma mín var nýlátin þegar við gerðum myndina og hlutverkið minnti mig á hana á margan hátt. Þetta var hógvær og prúð kona sem er þó óhrædd við að sýna klærnar ef vegið er að afkvæmunum, alveg eins og mamma mín var. Þetta var eins konar tækifæri fyrir mig að eyða smá aukatíma með móður minni.“    Og hvað heitir svo myndin? Þaðvirðist ekki vera alveg frá- gengið hvaða titil hún muni bera á alheimsmarkaði en hún er nú köll- uð L’ Echange. Hún var stórgóð, fallega útlítandi og á örugglega eft- ir að sópa að sér einhverjum verð- launum á komandi misserum. Hver veit nema hún byrji á Gullpálm- anum.    Eastwood mætti að sjálfsögðueinnig til blaðamannafund- arins í gær og var mikið spurður út í meinta vantrú hans á yfirvöldum, eins og í myndinni, sem og í Dirty Harry á sínum tíma. „Það koma alltaf reglulega upp spillingarmál innan lögreglunnar, sem og annars staðar og það var raunin einmitt á þessum tíma þegar sagan gerist,“ sagði Eastwood. Ofbeldi gegn börnum er eitt við- fangsefna myndarinnar sem og í Mystic River. „Það er einfaldlega til að auka á dramatíkina. Það er ekki til neitt hræðilegra í heiminum en hvers konar ofbeldi gegn börnum og það viðgengst því miður allt of víða. Það er því nauðsynlegt að fjalla um það.“ Aðspurður hvers vegna hann hafi ekki sjálfur tekið sér hlutverk í myndinni svaraði hann einfaldlega: „Ég er of ungur til að taka að mér hlutverk barnanna í myndinni.“ Og aldurinn er einnig ástæða þess að hann ætlar ekki að munda byssuna sem Dirty Harry á nýjan leik. „Maður verður að vera raun- sær. Maður á mínum aldri væri kominn á eftirlaun hjá lögregl- unni.“    Bandaríski leikstjórinn JamesGray er þess heiðurs aðnjót- andi að eiga mynd í aðalkeppni há- tíðarinnar í ár, annað árið í röð. Og þakklátur er hann að eigin sögn. Það var meðal þess sem hann tjáði sig um í geysilega löngum orðræð- um á blaðamannafundi til kynn- ingar á nýjustu mynd hans, Two Lovers. Gray lét vaða á súðum í margar mínútur þegar hann svar- aði hverri spurningu, svo mikill var orðaflaumurinn að stjórnandi fund- arins varð að minna hann á að anda.    Með honum á fundinum voruGwyneth Paltrow og Vinessa Shaw (3:10 To Yuma) sem leika að- alhlutverkin í myndinni ásamt Joa- quin Phoenix, sem komst ekki til Cannes í ár vegna heiftarlegrar magapestar. Í upphafi fundar var þó lesin frá honum kveðja þar sem hann harmaði fjarveru sína. Það gerði ég nú líka. Auk leikaranna þriggja leikur Isabella Rossellini í myndinni en Gray grínaðist með það að það hefði í raun verið afar truflandi að hafa hana á tökustað þar sem Gray langaði sífellt að vera að heyra frá henni sögur af föður hennar, Roberto Rossellini.    Það er svo ekki bara Tyson semfær um sig heimildarmynd. Í kvöld verður frumsýnd mynd um knattspyrnugoðið Maradona eftir leikstjórann Emir Kusturica. Barnsrán og blaðamannafundir » „Það er ekki til neitthræðilegra í heim- inum en hvers konar ofbeldi gegn börnum og það viðgengst því miður allt of víða. Það er því nauðsynlegt að fjalla um það.“ Ljósmynd/ Halldór Kolbeins Eastwood Clint Eastwood með eiginkonu sinni Dinu, leikkonunni Angelinu Jolie og eiginmanni hennar, leik- aranum Brad Pitt, fyrir frumsýningu á nýjustu kvikmynd hans í Cannes, The Exchange eða Skiptunum. birta@mbl.is FRÁ CANNES Birta Björnsdóttir F ít o n /S ÍA Eftir Inu Christel Johannessen AÐEINS 3 SÝNINGAR Á LISTAHÁTÍÐ Í REYKJAVÍK 23.05.08 / 24.05.08 / 25.05.08 MIÐAR 568 8000 / www.id.is SÝNINGAR Á LISTAHÁTÍÐINNI Í BERGEN 01.06.08 / 02.06.08 HEIMSFRUMSÝNING ÍSLENSKI DANSFLOKKURINN OG CARTE BLANCHE, BERGEN KYNNA BREYTTUR SÝNINGARTÍMI LAUGARDAGSKVÖLDIÐ 24.MAÍ SÝNING NÚ KL 17.00 Styrkur til framhaldsnáms Blikastaðasjóður Blikastaðasjóður auglýsir lausa til umsókna styrki til framhaldsnáms á skólaárinu 2008-2009. Hlutverk Blikastaðasjóðsins er að styrkja nemendur sem lokið hafa háskólanámi frá Landbúnaðarháskóla Íslands til framhaldsnáms eða til rannsókna í landbúnaðarvísindum eftir því sem stjórn sjóðsins ákveður. Umsóknarfrestur er til 2. júní n.k. Umsóknaeyðublað er að finna inn á heimasíðu Landbúnaðarháskóla Íslands www. lbhi.is og skal umsókn, ásamt ferilskrá, upplýsingum um námsárangur og fyrirhugað framhaldsnám send til: Blikastaðasjóður b/t Þorbjargar V. Kristjánsdóttur, Landbúnaðarháskóla Íslands, Hvanneyri, 311 Borgarnes. Reiknað er með að styrkveitingar fari fram um miðjan júní. Frekari upplýsingar gefur Þorbjörg Valdís Kristjánsdóttir, tvk@lbhi.is, og í síma 433 5019.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.