Morgunblaðið - 27.05.2008, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ALÞINGI
6
$ '/0%
"
'/9
!
/
2
% 7 '/0%
"
'/9
!
2
% 8 '/0%
"
'/9
!
2
% 9$ '/0%
"
'/9
!
2
% )
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
)
/:
! ! !
! ! !
! ! !
! ! !
-
;
<
=
$ :& "
2
#
!) >
$ %?
/#
'
#%#
@A
///
! ! !
! ! !
6<
$ &%
;
2
#
!) >
%?
/#
'
#%#
@A
///
<
=
-
05
0
0(
)
)
)
)
)
)
B /:
44,
/01
.,0
.51
/01
/3-
-
;
C
)
)
)
/.2
.4,
/04
B /:
"
"
"
#
"
VEIÐAR á úthafskarfa á Reykja-
neshryggnum hafa staðið í nokk-
urn tíma og hafa aflabrögðin verið
frekar treg að sögn Rúnars Þórs
Stefánssonar, útgerðarstjóra HB
Granda. Fjögur skip HB Granda
eru á miðunum en um 40 skip frá
ýmsum þjóðlöndum stunda veið-
arnar um þessar mundir.
,,Þetta er búið að vera frekar ró-
legt. Aflinn er um 1 til 1,5 tonn á
togtímann sem þykir ekki mikið,“
segir Rúnar Þór en að hans sögn
eru skipin öll að veiðum í nágrenni
200 mílna lögsögumarkanna. Þar
er því stiginn ,,línudans“ líkt og
mörg undanfarin ár en erlendu
skipin mega ekki fara inn í ís-
lenzku lögsöguna til veiða.
Skip HB Granda, sem nú taka
þátt í úthafskarfaveiðunum, eru
Helga María AK, Venus HF,
Þerney RE og Örfirisey RE. Alls
eru 11 íslenzk skip farin til úthafs-
karfaveiða.
Samkvæmt reglugerð 322/2008
um veiðar úr úthafskarfastofnum
2008, var íslenzkum skipum, sem
leyfi fá til veiða á úthafskarfa með
flotvörpu, heimilt að veiða 6.325
tonn af úthafskarfa fram til 11.
maí innan tiltekins svæðis. Eftir
þann dag skyldi það magn aukið
um 7.379 tonn fyrir sama svæði.
Veiðar á úthafskarfa innan línu
eru heimilar til 15. júlí 2008. Auk
þess eru íslenzku skipin með heim-
ildir utan línu, sem nema 7.554
tonnum.
Víðir EA með mestan kvóta
Fimm skip eru með meira en
þúsund tonna kvóta á úthafskarfa
innan línu samkvæmt úthlutun
Fiskistofu. Víðir EA er með 1.620
tonn, Helga María AK með 1.477,
Málmey SK með 1.198, Mánaberg
ÓF með 1.057 og Venus HF með
1.012 tonn. Kvóti marga skipa er
það lítill að gera má ráð fyrir að
töluvert verði um flutning afla-
heimilda milli skipa.
26 skip fengu úthlutað en líklega
heldur aðeins um helmingur þeirra
til veiða á Reykjaneshryggnum.
Ekkert íslenzku skipanna hefur
enn landað afla, svo ekki liggur
fyrir hve mikið er búið að veiða.
Skipin verða hins vegar að koma í
land fyrir sjómannadag, sem er
sunnudaginn fyrsta júní. Þá kemur
í ljós hve mikill aflinn verður þá
orðinn.
Frekar dræm aflabrögð
á Reykjaneshryggnum
Skipin eru að fá eitt til eitt og hálft tonn á togtímann
Í HNOTSKURN
»Fimm skip eru með meira enþúsund tonna kvóta á úthafs-
karfa innan línu. Víðir EA er
með 1.620 tonn, Helga María AK
með 1.477, Málmey SK með
1.198, Mánaberg ÓF með 1.057
og Venus HF með 1.012 tonn
»Skip HB Granda, sem nú takaþátt í úthafskarfaveiðunum,
eru Helga María AK, Venus HF,
Þerney RE og Örfirisey RE
ÚR VERINU
Eftir Höllu Gunnarsdóttur
halla@mbl.is
ORKUFRUMVARP iðnaðarráð-
herra opnar á stórfellda sölu á al-
mannaeigum og sáir þannig fræjum
einkavæðingar til framtíðar. Þetta
er mat Álfheiðar Ingadóttur, þing-
manns Vinstri grænna, en önnur
umræða um frumvarpið fór fram á
Alþingi í gær.
Meirihluti iðnaðarnefndar, undir
forystu Katrínar Júlíusdóttur, hefur
lagt til ákveðnar breytingar á frum-
varpinu, m.a. þess efnis að opinber-
um aðilum verði áfram heimilt að
framselja hver öðrum orkuauðlindir
og að bann við varanlegu framsali
vatnsréttinda til einkaaðila nái ekki
til auðlinda með virkjanlegt afl sem
er innan við 10 megavött, en í frum-
varpinu er miðað við 7 MW.
Vinstri græn leggjast gegn þess-
ari breytingartillögu en Álfheiður
benti á að með því verði heimilt að
einkavæða bæði Mjólkárvirkjun og
Andakílsvirkjun sem annars hefði
ekki verið leyfilegt. Hún gagnrýndi
einnig harðlega að ekki verið verið
haft samráð við Samband íslenskra
sveitarfélaga við vinnslu frumvarps-
ins. Þá leggjast Vinstri græn gegn
fyrirhugaðri uppskiptingu orkufyr-
irtækja, þannig að sérleyfisrekstur
og samkeppnisrekstur sé ekki í sama
fyrirtæki. Þetta þýði aðeins tvöfalda
yfirbyggingu og að engin rök séu
fyrir því.
Orkufrumvarp opn-
ar á einkavæðingu
Í HNOTSKURN
» Orkufrumvarpi iðn-aðarráðherra er ætlað að
tryggja opinbert eignarhald á
orkuauðlindum.
» Aðskilja á sérleyfis- og sam-keppnisþætti þannig að allir
raforkuframleiðendur sitji við
sama borð þegar kemur að sam-
skiptum við fyrirtæki sem dreifa
raforku.
DAGINN er tekið að lengja á Alþingi, í orðsins fyllstu
merkingu. Þingfundir hefjast nú fyrr og halda áfram
inn í nóttina enda þingfrestun áætluð á fimmtudag.
Talsvert hefur verið deilt um þingsköp en stjórnarand-
stöðuþingmönnum þykja næturfundir á skjön við anda
nýrra þingskapalaga. Það var því ekki úr vegi fyrir
Bjarna Benediktsson að renna aðeins yfir reglurnar og
fá þannig úr því skorið hver hefur rétt fyrir sér.
Morgunblaðið/Frikki
Blaðað í þingsköpum
Löng atkvæðagreiðsla
Á þriðja klukkutíma tók að greiða at-
kvæði um fjögur viðamikil frumvörp
menntamálaráðherra um leikskóla,
grunnskóla, framhaldsskóla og
menntun og ráðningu kennara og
skólastjórnenda sem eru nú komin
til 3. umræðu.Vinstri græn og Fram-
sókn fóru fram á að framhaldsskóla-
frumvarpinu yrði vísað frá. Það væri
illa undirbúið auk þess sem mikillar
andstöðu hefði orðið vart hjá fram-
haldsskólum landsins. Óhæft væri
að afgreiða málið frá Alþingi í ósátt.
Kristin arfleifð inni –
mannréttindi úti
Kolbrún Halldórsdóttir flutti fjölda
breytingartillagna við skóla-
frumvörpin en ein þeirra laut að því
að skólastarf í leik- og grunnskólum
ætti einnig að
mótast af virð-
ingu fyrir mann-
réttindum. Í frum-
varpinu var
kveðið á um að
skólastarf mótist
af umburðarlyndi,
jafnrétti, lýðræð-
islegu samstarfi,
ábyrgð, um-
hyggju, sáttfýsi og
virðingu fyrir
manngildi.
Meirihluti
mennta-
málanefndar
lagði til að „krist-
inni arfleifð ís-
lenskrar menn-
ingar“ yrði bætt
við þessa upp-
talningu.
Mannréttinda-
tillaga Kolbrúnar náði hins vegar ekki
fram að ganga og átöldu þingmenn
VG aðra þingmenn fyrir að greiða
henni ekki leið. Katrín Júlíusdóttir,
Samfylkingu, sagði breytingartillögur
Kolbrúnar hins vegar margar bera
þess merki að hafa verið unnar í flýti.
Þingmenn VG voru mjög ósáttir við
þessi orð og Kolbrún sagðist hafa
lagt mikla vinnu í sínar breyting-
artillögur.
Dagskrá þingsins
Þingfundur hefst kl. 10 í dag og
stendur til 14. Í kvöld eru eldhús-
dagsumræður en þeim er sjón-
varpað beint í Ríkissjónvarpinu og
hefst útsendingin kl. 19.40.
Kolbrún
Halldórsdóttir
Katrín
Júlíusdóttir
ÞETTA HELST …
ALMANNAVARNIR munu lúta
miðstýrðri lóðréttri stjórnun í stað
láréttrar valddreifingarstjórnunar,
ef almannavarnafrumvarp dóms-
málaráðherra verður að lögum.
Þetta er mat Atla Gíslasonar, þing-
manns Vinstri grænna, en hann skil-
aði séráliti á frumvarpinu sem
nefndarmaður í allsherjarnefnd.
Aðrir nefndarmenn skrifuðu undir
meirihlutaálitið en í því eru lagðar til
nokkrar breytingar, s.s. að útvíkkun
á markmiðum frumvarpsins þannig
að það nái líka til líkams- og heilsu-
tjóns almennings, umhverfis og
eigna og að dómsmálaráðherra skuli
hafa samráð við almannavarna- og
öryggisráð þegar hann gefur út regl-
ur um almannavarnastig.
Atli telur bagalegt að ekki hafi
verið haft nægjanlegt samráð við
slökkviliðið, Brunamálastofnun og
sveitarfélögin í landinu og að
óásættanlegt sé að afgreiða frum-
varpið sem lög í andstöðu við Samtök
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Miðstýrð
lóðrétt
stjórnun
♦♦♦
FINNA þarf
lausn á húsnæð-
isvanda Fjöl-
smiðjunnar, að
því er fram kom
í svari Jóhönnu
Sigurðardóttur
félagsmálaráð-
herra við fyrir-
spurn Birkis J.
Jónssonar, þing-
manns Fram-
sóknarflokks, á Alþingi í gær.
Birkir og Jóhanna voru sammála
um mikilvægi starfsemi Fjölsmiðj-
unnar en núverandi húsnæði er á
undanþágu vegna brunavarna. „Ef
ekki næst samstaða um það að
finna frambúðarhúsnæði fyrir
Fjölsmiðjuna þá verður bara að
fara í mjög víðtækar endurbætur á
þessu húsnæði sem ég held nú að
svari ekki kostnaði,“ sagði Jó-
hanna.
Fjölsmiðjan
fái nýtt hús
Jóhanna
Sigurðardóttir