Morgunblaðið - 31.05.2008, Page 1
STOFNAÐ 1913 147. TBL. 96. ÁRG. LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 LANDSPRENT EHF. mbl.is
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
BJÖRK Guðmundsdóttir, hljóm-
sveitin Sigur Rós, Ólöf Arnalds og
erlendir gestir munu koma fram á
útitónleikum í Reykjavík laugar-
daginn 28. júní næstkomandi. Ná-
kvæm staðsetning tónleikanna
verður kynnt síðar, en þeir verða
haldnir til að vekja fólk til vitundar
um umhverfismál á Íslandi.
„Þótt hvorki ég né Sigur Rósar-
menn séum einhverjir sérfræðing-
ar um náttúruna, og engir stjórn-
málamenn heldur, þá ferðumst við
rosalega mikið og vitum mikið um
ímynd Íslands erlendis, og hvað við
erum aftarlega á merinni í þessum
grænu málum,“ segir Björk um til-
urð tónleikanna. „Ég fór til dæmis
til Suður-Ameríku í tvo mánuði og
þar sá maður fátæklinga í endur-
vinnslu. Við megum ekki vera 30
árum á eftir, við verðum að vera
samtaka í þessu, og helst ættum
við auðvitað að vera fremst.“
Björk segir að verið sé að eyði-
leggja ímynd Íslands með stöðugri
fjölgun álvera hér á landi. „Ef það
á að byggja álver í Helguvík verður
það það fyrsta sem fólk sér þegar
það kemur til Íslands, og svo keyr-
ir það framhjá Straumsvík. Það er
bara verið að skjóta sig í fótinn og
þetta er rosalega mótsagnakennt.
Þetta er bæði slæmt fyrir framtíð
okkar sem grænt land, en einnig
upp á ferðamannaþjónustuna.
Þetta er meira að segja slæmt fyrir
okkur listamennina sem erum að
ná árangri erlendis, það gengur
mikið út á að við séum hrein, tengd
náttúrunni og fleira í þeim dúr.“
Þurfum að hugsa grænt
Björk segist hafa gengið með þá
hugmynd í maganum nokkuð lengi
að halda tónleika sem þessa á Ís-
landi. „Ég hef verið að fylgjast með
náttúrumálum milli landa, enda hef
ég verið að túra að undanförnu. Ég
hef viljað bíða þangað til ég gæti
komið með eitthvert stærra inn-
legg, en á einhvern annan hátt því
mér hefur fundist fólk hérna heima
hafa verið með svo fallega baráttu.
Ég er kannski ekki eins fróð og
þau, en ég get kannski komið með
annað innlegg, og kynnt þetta svo-
lítið erlendis. Ég ætla að fá Sigur
Rós með mér í samstarf og við ætl-
um líka að stofna vefsíðu þar sem
við verðum með fræðslu frá bestu
fræðimönnum sem við þekkjum,
bæði erlendum og íslenskum, þar
sem þeir kynna aðra kosti en álver.
Við erum ekki á móti virkjunum,
en það eru bara til svo margir aðrir
góðir grænir kostir, eitthvað sem
er uppbyggjandi í 100 eða 200 ár,
en ekki eitthvað sem dugar bara í
20 eða 30 ár – og svo er ballið bú-
ið.“
Björk segir mikilvægt að hafa já-
kvæðnina að leiðarljósi í baráttu
sem þessari.
„Margir bardagar fyrir nátt-
úrunni enda á því að verða mjög
neikvæðir og fara út í skítkast. Við
ætlum ekki út í það, við erum ekki
að segja að þetta og hitt sé bannað,
heldur frekar að spyrja „hvað með
alla þessa þarna möguleika?“. 21.
öldin verður ekki olíuöld heldur öld
þegar við þurfum að endurvinna,
hugsa grænt og hanna bæði virkj-
anir og umhverfi okkar í samvinnu
við náttúruna.“
Nánar verður sagt frá tónleik-
unum þegar nær dregur.
Björk og Sigur Rós með
útitónleika í Reykjavík
Haldnir til að vekja fólk til vitundar um umhverfismál „Erum að eyðileggja
ímynd Íslands með stöðugri fjölgun álvera hér á landi“ segir Björk
Morgunblaðið/Ómar
Umhverfisvæn „Við megum ekki vera 30 árum á eftir,“ segir Björk.
ÍBÚAR á svæðinu næst upptökum
Suðurlandsskjálftans byrjuðu í gær
að laga það sem hægt var að laga
eftir hamfarir fimmtudagsins.
Sum heimili sluppu mjög vel, á
meðan allt fór á annan endann á öðr-
um. Mörg hús eru talin ónýt.
Á heimili Björns Sigurðssonar á
Selfossi hafði nánast allt brotnað
sem brotnað gat. Björn prísar sig
samt sælan því dóttir hans og dótt-
ursonur sluppu naumlega undan
brakinu. Ættingjar, nágrannar og
vinir hjálpast nú að við að koma öllu
aftur í samt horf og samstaða og yf-
irvegun einkennir andrúmsloftið í
bæjarfélögunum á svæðinu.
Margar sögur eru af fólki sem
slapp naumlega frá stórslysi þegar
skjálftinn reið yfir. Blaðamaður og
ljósmyndari Morgunblaðsins fylgd-
ust með því þegar uppbyggingin
hófst í gær.
Mörg
hús eru
talin ónýt
Morgunblaðið/Golli Miðopna, 2, 8 og 11
ÁHYGGJUR
AF RÚSSUM
VIÐTAL VIÐ
CONDOLEEZZU RICE
FRÉTTIR >> 6
GLUNDROÐINN ER
STUNDUM STÍLL
DAGLEGT LÍF >> 24
LÍFIÐ ER
LITAGLEÐI
Sólarferð >> 48
Allir í leikhús
Leikhúsin í landinu
KARLMAÐUR á sjötugsaldri og
tveggja og hálfs árs gamall drengur
brenndust talsvert þegar eldur
blossaði upp í húsbíl í Grindavík um
kl. 22.00 í gærkvöldi. Þeir voru fluttir
með sjúkrabifreið á Landspítalann.
Barnið reyndist vera með meiri
brunasár en maðurinn. Það var með
nokkuð umfangsmikinn bruna, eink-
um á höfði og höndum, og var lagt á
gjörgæsludeild til frekari meðferðar.
Maðurinn var við skikkanlega líðan,
að sögn læknis.
Að sögn lögreglunnar á Suður-
nesjum virðist sem sprenging hafi
orðið í húsbílnum þegar maðurinn og
barnið voru að fara inn í hann.
Björgunarsveitarmenn úr Grindavík
komu fyrstir á vettvang og tókst
þeim að slökkva eldinn áður en
slökkvilið kom. Þrír björgunarsveit-
armenn voru fluttir á sjúkrahús með
snert af reykeitrun.
Málið er í rannsókn.
Brenndust í
sprengingu