Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 17 ERLENT Fjölbrautaskólinn í Breiðholti Austurbergi 5 111 Reykjavík Sími 570 5600 Símbréf 567 0389 Tölvupóstur: fb@fb.is www.fb.is Fjölbrautaskólinn í Breiðholti býður mjög fjölbreytt nám: bóknám, listnám, iðnnám/starfsnám. Bóknám leiðir til stúdentsprófs og er undirbúningur fyrir háskólanám. Listnám er undirbúningur fyrir frekara listnám, arkitektúr og annað framhaldsnám. Markmið iðnnáms/starfsnáms er að undirbúa nemendur fyrir störf í ýmsum greinum atvinnulífsins, veita sérhæfð starfsréttindi og/eða undirbúning fyrir frekara nám. Bóknám til stúdentsprófs Félagsfræðabraut Málabraut Náttúrufræðibraut Viðskipta- og hagfræðibraut Þriggja ára náttúrufræðibraut Listnámsbrautir Myndlistarkjörsvið Textíl- og hönnunarkjörsvið Löggilt iðnnám Húsasmiðabraut Rafvirkjabraut Snyrtibraut Löggilt starfsnám Sjúkraliðabraut Sjúkraliðabrúin Eins til tveggja ára starfsnám Grunnnám rafiðna Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina Handíðabraut Íþróttabraut Afreksíþróttir Viðskiptabraut Almenn námsbraut Starfsbraut Með viðbótarnámi er hægt að ljúka stúdentsprófi af öllum brautum. Innritun í Fjölbrautaskólann í Breiðholti er á netinu eða á skrifstofu skólans frá 09:00 til 15:00 og lýkur 11. júní. Námsráðgjafar verða til viðtals þriðjudaginn 10. júní og miðvikudaginn 11. júní frá 12:00 - 16:00. Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is NOKKRUM dögum eftir að breskir vöruflutningabílstjórar mótmæltu himinháu olíuverði á götum landsins tóku spænskir og portúgalskir fiski- menn sig til og létu í ljós óánægju sína með stöðugar olíuhækkanir. Portúgalskir verkalýðsleiðtogar segja allan fiskiskipaflotann hafa verið bundinn í höfn í gær, á sama tíma og sjö þúsund spænskir sjó- menn efndu til mótmæla í spænska landbúnaðarráðuneytinu í Madríd. Að sögn breska ríkisútvarpsins, BBC, hafa sjómenn einnig látið í sér heyra í Frakklandi, Belgíu og á Ítal- íu, ásamt því sem hollenskir vöru- flutningabílstjórar létu gremju sína í ljós á götum landsins í vikunni. Verð á dísilolíu hefur hækkað um 300% á síðustu fimm árum og elds- neytiskostnaðurinn því farinn að hafa veruleg áhrif á afkomu útgerða. „Himinhátt dísilverð og lágt fisk- verð jafngilda hruni fyrir sjómenn,“ sagði á skilti mótmælanda í Madrid. „Þú ert að senda okkur í kirkjugarð- inn,“ sagði á öðru skilti sem beint var gegn José Luis Zapatero, forsætis- ráðherra Spánar. Endurskoða niðurgreiðslurnar Mörg olíuvinnsluríki, á borð við Ír- an, Venesúela og Sádi-Arabíu, nið- urgreiða olíuverðið fyrir neytendur og nýlega benti Stephen Jen, sér- fræðingur hjá Morgan Stanley bank- anum á að helmingur mannkyns nyti niðurgreiðslna á olíuverðinu í ein- hverri mynd. Nú eru hins vegar vís- bendingar um að ýmis ríki séu komin að þolmörkum hvað svigrúm til slíkra niðurgreiðslna snertir. Þannig hafa stjórnvöld í Indónesíu þegar dregið úr niðurgreiðslum og er óttast að reiði langþreytts almenn- ings muni senn brjótast út í ólgu og félagslegum óstöðugleika. Þannig hefur verð á bensíni þar í landi hækkað um að meðaltali 28% að undanförnu, skref sem Susilo Bambang Yudhoyono forseti sagði nauðsynlegt. Talið er að breytingin muni lækka niðurgreiðslur til orku- kaupa um fjórðung, en þær nema þegar um fimmtungi þjóðarfram- leiðslunnar. Indónesía varð aðildarríki OPEC, samtaka helstu olíuvinnsluríkja heims, þegar árið 1962, og er stjórnin sögð undirbúa úrsögn úr þeim. Það er af sem áður var og flytur Indó- nesía nú inn meiri olíu en sem nemur vinnslunni í landinu, sem er nú sú minnsta í 30 ár, um milljón tunnur. Þá eru indversku ríkisolíufyrirtækin nú rekin með tapi sökum þess að þeim er gert að selja olíuna á föstu verði, jafnframt því sem stjórnvöld í Malasíu eru sögð íhuga að leyfa verð- hækkanir, í því skyni að slá á fjár- lagahalla landsins. Að lokum kemur fram í úttekt The Economist að verð í eldsneyti í Taívan hafi í síðustu viku hækkað um 13%, á sama tíma og verðið hækkaði um 24% á Srí Lanka. Olíuverðsmótmælin breiðast um Evrópu  Portúgalskir sjómenn í verkfall  Ýmis ríki íhuga að draga úr niðurgreiðslum  Þróunin farin að valda ólgu í Indónesíu Reuters Bundin í höfn Sjómenn ganga á bryggjunni í bænum Aveiro á norður- strönd Portúgals í gær, en þá stóð yfir dagsverkfall stéttarinnar í landinu. ÞEIR HORFÐU til himins með- limir frumbyggjaættbálksins sem búið hefur á svæði í Amazon- frumskóginum á landamærum Bras- ilíu og Perú án samskipta við um- heiminn. Frumbyggjarnir voru skreyttir rauðri málningu og lyftu bogum og örvum þegar flugvélin leið yfir him- inhvolfið. Tilgátur voru uppi um til- vist ættbálksins sem hefur nú verið staðfest með ljósmyndum úr lofti. Talið er að um helming þeirra eitt hundrað ættbálkahópa heimsins sem ekki eiga í samskiptum við um- heiminn sé að finna í Brasilíu eða Perú, að því er breska ríkisútvarpið, BBC, hafði eftir samtökunum Survi- val International. Er það skoðun Stephens Corry, formanns samtak- anna, að menning slíkra hópa kunni að líða undir lok ef ekki eru gerðar ráðstafanir til að vernda landsvæði þeirra fyrir ágangi utanaðkomandi aðila. Eins og sjá má á myndinni býr fólkið í stráhýsum í þéttum frum- skóginum og ef grannt er skoðað má sjá mynd af svartmálaðri konu, sem fylgist með þegar karlarnir gera til- raun til að hrekja gestina frá. Meðal þess sem getur ógnað slík- um hópum er varnarleysi gegn sjúk- dómum á borð við hlaupabólu og venjulega kvefpest. Staðfestu tilvist ættbálks í Amazon Reuters Úr lofti Ættbálkurinn sá fljúgandi furðuhlut líða yfir himinhvolfið. Brasilísk stjórnvöld hyggjast verja svæði fólksins fyrir ágangi FYRIR Íslending á ferðalagi í Venesúela er það ekki úrslitaatriði hversu eyðslufrekur bílaleigubíll- inn er, nema ef vera skyldi frá sjón- arhóli umhverfisins. Bensínið er þannig þar um 43 sinnum ódýrara en hér á landi (miðað er við verð hjá Atlantsolíu gær) og með því allra ódýrasta sem þekkist. Bensínlítrinn í Venesúela kostar rétt aðeins sem svarar um 3,73 krónum, eða rétt rúmlega 5 krón- um minna en í Sádi-Arabíu. Olíuvinnsluríkin tvö er í fámenn- um hópi ríkja hvað þetta varðar og má nefna að í Nígeríu, helsta olíu- vinnsluríki Afríku, kostar bensín- lítrinn sem svarar 46,63 krónum. Til samanburðar kostar lítrinn 58,91 krónu í Kína, 66,39 krónur í Bandaríkjunum, 164,9 krónur í Þýskalandi, 161,07 krónur í Bret- landi, 55,18 krónur í Indónesíu, 106,39 krónur í Ástralíu, 86,49 krónur í Kanada og 83,38 krónur á Jamaíka, svo nokkur ríki séu nefnd. Eins og gefur að skilja ber að taka þessum tölum með nokkrum fyrirvara, en þær eru m.a. fengnar úr The Economist, The Age, The New York Times og af vef Energy Bulletin. Bæði eru verð víða svæð- isbundin og svo sveiflast ýmsar breytur ört, en hér er gengi Banda- ríkjadals reiknað á 74,57 krónur. Bensínið um 43 sinnum dýrara á Íslandi en úr dælunni í Venesúela ) !  ! ' ! <= # ! >& ! * @   3  ! A 2 # > ! #  3 !B&   & !   "&& & *+   !,! 58+.9 585.5 58C.- 5C8.+ 78., 7/.+ 88.+ ,7.9 ,,.6 +8.8 9.C /.-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.