Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 8

Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 8
8 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR JARÐHRÆRINGARNAR í fyrradag ollu því að stór spilda við veginn um Grafning skreið fram í Þingvallavatn. Skarðið náði inn í veginn og var veginum lokað fyrir umferð um tíma. Nokkrar skemmdir urðu á vegum í jarðskjálft- unum, samkvæmt upplýsingum Vegagerð- arinnar. Víða eru ójöfnur á vegum og eru veg- farendur því beðnir að gæta fyllstu varúðar á jarðskjálftasvæðinu. Ljósmynd/Ragnar Eldon Haraldsson Stór spilda skreið fram í Grafningi Á ANNAÐ hundrað manns hafa leit- að eftir aðstoð áfallateymis Rauða kross Íslands eftir Suðurlandsskjálft- ann á fimmtudag. Að sögn sviðsstjóra hjá RKÍ þarf fólk að vera vakandi fyr- ir einkennum næstu daga, jafnvel vik- ur, þar sem áfallið getur komið síðar. Viðbrögð við áföllum og alvarlegum atburðum eru afar einstaklingsbund- in. Frá því að skjálftinn varð hefur meirihluti þeirra sem leita eftir að- stoð verið börn og ungmenni en þar með er ekki öll sagan sögð. „Í byrjun eru það börnin sem koma og eru mjög hrædd um að fleiri jarðskjálftar verði, að einhver meiðist eða deyi og að skiljast við foreldra sína. En oftar en ekki þarf fullorðna fólkið að huga að efnislegum hlutum, láta meta tjónið, sjá um tryggingar o.s.frv. Þannig að áfallið kemur kannski mörgum dög- um eða vikum síðar, þegar um fer að hægjast,“ segir Sólveig Ólafsdóttir, sviðstjóri útbreiðslusviðs RKÍ. Skipu- lögð áfallahjálp verður veitt næstu daga á skjálftasvæðinu. Einstaklingsbundin viðbrögð Sólveig segir mikilvægt að fólk sé vakandi fyrir einkennum. Erfitt er að tilgreina einkenni þar sem þau eru einstaklingsbundin. Áfallastreituvið- brögð geta t.d. verið eðlileg, líkamleg, hugræn og tilfinningaleg viðbrögð við óeðlilegum kringumstæðum. Sólveig bendir á frekari upplýsingar um áfallahjálp á vefsvæði Rauða kross- ins, redcross.is. En einnig er hjálp- arsíminn 1717 opinn og hvetur Sól- veig fólk til að nýta sér þá þjónustu. Meðal þess sem fram kemur í upp- lýsingabæklingi RKÍ um sálrænan stuðning er að réttast sé að leita ráð- gjafar sérfræðinga ef viðkomandi er í tilfinningalegu ójafnvægi, upplifir spennu, tómleika og örmögnun. Einn- ig ef viðkomandi sefur illa, er fram- takslaus og þarf að hafa mikið fyrir stafni til að forðast að hugsa um at- burðinn. Einnig er fólki ráðlagt að halda sig frá áfengi og lyfjum og það ætti ekki að taka meiriháttar ákvarðanir á þessum tímapunkti. Áfallið getur komið síðar TRYGGINGAFÉLÖG verða með opnar afgreiðslur í Hveragerði og á Selfossi um helgina til þess að lið- sinna viðskiptavinum sem urðu fyrir tjóni í jarðhræringunum á fimmtu- daginn var. Skrifstofur félaganna, VÍS, Sjóvár og Tryggingamiðstöðv- arinnar verða opnar yfir daginn. Þá munu tryggingafélögin einnig lið- sinna og leiðbeina fólki við að til- kynna tjón til Viðlagatryggingar. Opið vegna skjálftans STÖÐUG skjálftavirkni hefur verið á Suðurlandi eftir að stóri skjálftinn reið yfir á fimmtudag. Virknin jókst töluvert í gærmorgun og þá vestar í Ölfusi, við Bjarnastaði og undir Geitafelli. Flestir skjálftarnir voru um og yfir einn á Richter en nokkrir náðu yfir tvo. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands má búast við áframhald- andi skjálftavirkni á svæðinu næstu daga. Þó er við því búist að úr henni dragi eftir því sem líður á. Óverulegar líkur eru taldar á að stórir skjálftar á borð þann sem varð um miðjan dag á fimmtudag ríði yfir. En í þessum vísindum er þó aldrei hægt að útiloka neitt. Stöðug virkni en dregur úr Morgunblaðið/Golli Daginn eftir Fjöldi fólks sótti fund áfallateymis RKÍ í Hveragerði í gærdag. VIRKNI hvera- svæðisins í Haukadal jókst í kjölfar jarðhrær- inganna á fimmtudag, að mati Más Sig- urðssonar á Geysi. „Þetta var vítamínsprauta,“ sagði Már. Hann sagði að hinn eini og sanni Geysir hefði lifnað við, mun meira ryki nú úr hvernum en áður og hann hefði hitnað. Geysir hafði aðeins skvett úr sér í gær en Már kvaðst ekki geta sagt til um hvort vænta mætti stórs goss úr hvernum. „Strokkur hefur aukið við sig og hverirnir neðar á hverasvæðinu eru vatnsmeiri en þeir voru,“ sagði Már. Hann sagði að virkni hverasvæð- isins nú hefði aukist meira en eftir Suðurlandsskjálftana sumarið 2000. Jarðhræringarnar á fimmtudaginn var fundust enda betur í Haukadal en Suðurlandsskjálftarnir 2000. Geysir lifnaði við

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.