Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 23
SUÐURNES
Viðskiptavinir í Stofni fá fjölbreytt úrval
af hjólahjálmum á 30% afslætti í Markinu,
Ármúla 40, 108 Reykjavík.
ENN EINN KOSTUR ÞESS AÐ VERA Í STOFNI
30% AFSLÁTTUR AF HJÁLMUM
Allir undir 15 ára aldri eru skyldugir til að vera með
hjálm á hjóli, hlaupahjóli, hjólabretti eða línuskautum
og skiptir öllu máli a› velja réttan hjálm.
Stórhöfða 31, 110 Reykjavík.
Sími: 580 5200. Fax: 580 5220.
rsi@rafis.is
Eftir Svanhildi Eiríksdóttur
Reykjanesbær | „Vildarvinir er hóp-
ur áhugafólks um sögu sem vill
skyggnast bak við tjöldin og grúska.
Byggðasafnið hefur ekki sinnt þessu
fólki en nú verður breyting þar á.
Þeim verður skapaður vettvangur til
að sinna sínum áhugamálum um leið
og samfélagið nýtur góðs af,“ sagði
Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu-
maður Byggðasafns Reykjanesbæj-
ar, um Vildarvini í samtali við Morg-
unblaðið, en það er hópur
sjálfboðaliða sem ætla sér að safna
munnlegum heimildum um sögu
Suðurnesja.
Sigrún Ásta Jónsdóttir sagðist
hafa um nokkurt skeið gengið með
þennan draum í maganum, að hefja
söfnun á heimildum sem hvergi ann-
ars staðar væri hægt að fá nema í
gegnum frásagnir fólks. Hún sagðist
hafa kallað til aðila sem hún vissi að
hefði áhuga og var bent á aðra.
„Mikið af þessari vinnu er falin.
Fólk er jafnvel að geyma svona
vinnu heima hjá sér og efninu aldrei
komið á framfæri. Fyrsta skrefið
væri því að hefja söfnun á söguleg-
um gögnum og búa til úr því fram-
bærilegt efni,“ sagði Sigrún Ásta í
samtali við blaðamann. Hún sagði
einnig mikilvægt að reyna að nálgast
efni sem fræðimenn hafa verið að
vinna um svæðið og fá að varðveita
það innan safnsins. Bókasafn
Reykjanesbæjar er samstarfsaðili
Byggðasafnsins í þessu verkefni.
Mikilvægur heimildabanki
Um þessar mundir er að fara af
stað kynningarátak á Vildarvinum
til að höfða til áhugafólks. Þetta er
ekki formlegt félag heldur opinn
vettvangur fyrir áhugafólk.
„Við viljum ekki byrja á einhverj-
um ströngum ákvörðunum sem við
getum svo kannski ekki staðið við
heldur byrja þar sem auðveldast er
að byrja og fikra okkur svo áfram
eftir því sem reynslan sýnir. Mið-
punkturinn er alltaf Byggðasafnið
og sameiginlegt markmið allra er að
safna efni um svæðið og miðla.“ Sig-
rún Ásta nefndi í þessu sambandi
heimildaöflun um helstu atvinnuvegi
svæðisins, svo sem sjávarútveg,
verslun og Völlinn, félagsstörf ýmiss
konar en ekki síður einstaklinga sem
fólki finnst mikilvægt að heyra frá.
„Með þessum hætti verður til
mjög mikilvægur heimildabanki. Við
leggjum mikla áherslu á að varð-
veita efni en miðlun efnisins skiptir
miklu máli, t.d. í formi sýninga. Ég
sé líka fyrir mér að hægt verði að
þróa miðlunaraðferðir til að gefa
kennurum og leiðsögumönnum
tækifæri til að auðga sitt starf, svo
dæmi sé tekið.“
Sest í sófa Íslandsbersa
Vildarvinir hafa setið námskeið í
viðtalstækni með heimsókn frá
starfsmanni Miðstöðvar munnlegrar
sögu til þess að koma sér af stað og
tæki eru til staðar til þess að byrja
þó að koma þurfi upp góðum tækja-
lager. Fyrsti opinberi atburður Vild-
arvina verður í Bíósal Duushúsa á
sjómannadag, 1. júní n.k.
„Þannig var að Árni Johnsen
færði Byggðasafninu að gjöf sófasett
Óskars Halldórssonar Íslandsbersa,
sem m.a. kostaði byggingu hafnar-
innar í Keflavík. Sófanum verður
komið fyrir í salnum og gefst gestum
og gangandi kostur á að setjast í sóf-
ann milli kl. 14 og 16 og spjalla. Við
verðum með tæki á staðnum og
spyrla en auðvitað má fólk einnig
prófa sófann þó að það vilji ekki
spjalla. Þeir sem vilja gerast Vild-
arvinir geta einnig skráð sig á staðn-
um, skráð sig sem hugsanlegan við-
mælanda eða bent á aðra,“ sagði
Sigrún Ásta Jónsdóttir, forstöðu-
maður Byggðasafns Reykjanesbæj-
ar, að lokum og áréttaði að þó að
hugmyndin væri að gera efnið að-
gengilegt fyrir almenning verði
einnig mögulegt að takmarka að-
gang að því, sé þess óskað.
Vildarvinir Byggðasafns Reykjanesbæjar safna munnlegum heimildum
Heimildir í frásögnum fólks
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Hannyrðir Sigrún Ásta Jónsdóttir við veggteppi í eigu safnsins. Hún segir
Byggðasafnið hafa sérstakan áhuga á hannyrðum kvenna.
Í HNOTSKURN
»Vildarvinir ByggðasafnsReykjanesbæjar er hópur
sjálfboðaliða sem hefur mikinn
áhuga á sögu og menningu
byggðarlagsins og er nú að hefja
söfnun á munnlegum heimildum
til varðveislu á safninu.
»Byggðasafn Reykjanesbæjarhét Byggðasafn Suðurnesja
allt til ársins 2002. Frá stofnun
var vilji til að safnið þjónaði öll-
um Suðurnesjum en áhugi hinna
sveitarfélaganna var ekki nægur
til að það gengi eftir.
»Vildarvinir Byggðasafnsinsmunu ekki einskorða sig við
munnlegur heimildir úr Reykja-
nesbæ heldur leita fanga um öll
Suðurnes.
Sandgerði | Ferðamálasamtök Suð-
urnesja eru um þessar mundir að
afhenda bæjarstjórum á svæðinu
fyrstu eintökin af gönguleiðabækl-
ingum um Reykjanesið. Myndin var
tekin þegar Sigurður Valur Ás-
bjarnarson, bæjarstjóri í Sand-
gerði, fékk sína bæklinga. Áður
höfðu bæklingar verið afhentir
Árna Sigfússyni, bæjarstjóra
Reykjanesbæjar.
Kristján Pálsson, formaður
Ferðamálasamtakanna, Reynir
Sveinsson, forstöðumaður Fræða-
setursins í Sandgerði, og Ásgeir
Hjálmarsson, forstöðumaður
Byggðasafnsins á Garðskaga, af-
hentu bæklingana.
Verkefnið hlaut 500 þúsund kr.
styrk úr Menningarsjóði Suð-
urnesja en stefnt er að því að gefa
út alls 15 bæklinga um gönguleiðir.
Að útgáfunni er unnið í samvinnu
við verkefnið „Af stað á Reykjanes-
ið“ sem staðið hefur fyrir göngu-
ferðum um gamlar þjóðleiðir á
Reykjanesi. Sigrún Franklín Jóns-
dóttir sá um texta og myndir.
Fyrstu tveir bæklingarnir sem nú
koma út eru um Garðsstíg og Sand-
gerðisveg. Hægt verður að kaupa
bæklingana á Upplýsingamiðstöð
Reykjaness. Ferðamálasamtökin
hafa látið stika og merkja margar
af þessum gömlu þjóðleiðum á
Reykjanesi.
Bæklingar um
gönguleiðir
LANDIÐ
Eftir Björn Björnsson
Skagafjörður | Mikið var um
dýrðir á Hólastað þegar skólinn
brautskráði nemendur af tveim
brautum, ferðamála- og hesta-
fræði. Athöfnin hófst á reiðvelli
skólans þar sem fram fór Skeifu-
keppni verðandi hestfræðinga og
reiðsýning nemenda og kennara,
en útskriftarathöfnin sjálf fór síð-
an fram í Þráarhöll, að viðstöddum
nemendum, starfsfólki og fjölda
góðra gesta, þar á meðal nokkurra
nemenda hins gamla Hólaskóla,
sem útskrifuðust fyrir sextíu ár-
um.
Í ræðu sinni við brautskrán-
inguna sagði Skúli Skúlason rektor
meðal annars að dagurinn væri
uppskerudagur nemenda: „Mennt-
un er hluti af þroskaferli hvers
einstaklings en einnig þess sam-
félags sem hann er hluti af. Nú
mun samfélagið njóta þeirrar
þekkingar sem þið hafið öðlast
hér. Ég veit að það er mikil þörf
fyrir hana.“
Síðan vék rektor að skólastarf-
inu og nefndi í því tilviki færslu
skólans frá ráðuneyti landbúnaðar
til menntamála og þakkaði hann
ánægjulegt samstarf við fyrri yf-
irboðara en lýsti einnig mikilli
ánægju með samskipti við hið nýja
ráðuneyti og benti á að þegar í
stað hefði menntamálaráðherra
sett á stofn nefnd sem hefði það
hlutverk að efla Háskólann á Hól-
um og Hólastað sem mennta- og
menningarsetur til framtíðar.
„Nefndin hefur haft náið samráð
við skólann og við bindum miklar
vonir við tillögur hennar. Það er
mikið að gerast í íslensku háskóla-
samfélagi og algjört grundvallar-
atriði að Háskólinn á Hólum taki
af krafti þátt í að móta íslenskt
þekkingarsamfélag á 21. öldinni.
Uppbygging Hólaskóla sem há-
skóla hefur krafist mikillar vand-
virkni, en ekki síður áræðis,
dirfsku og óbilandi sjálfstrausts.
Það hefur oft gefið á bátinn í
þessu ferli, en nú er margt sem
bendir til að framundan sé öllu
lygnari sjór.“
Morgunblaðsskeifan afhent
Við brautskráningu voru veittar
viðurkenningar á lokaáfanga.
Sandra Björg Stefánsdóttir fékk
bókaverðlaun iðnaðarráðuneytis
fyrir hæstu einkunn á BA-prófi í
ferðamálafræði. Ævar Örn Guð-
jónsson fékk reiðmennskuverð-
launin Ástundarhestinn. Randi
Holaker fékk LH-styttuna meðal
annars fyrir reiðmennsku. Ævar
Örn Guðmundsson fékk Morgun-
blaðsskeifuna sem viðurkenningu
fyrir hæsta einkunn á lokaprófi.
Samfélagið mun nú
njóta þekkingar ykkar
Morgunblaðið/Björn Björnsson
Skeifuhafi Ævar Örn Guðjónsson fékk Morgunblaðsskeifuna 2008 afhenta
við brautskráningu nemenda á Hólum fyrir hæstu einkunn á lokaprófi.
62 nemendur
brautskráðir á
Hólum og Skeifu-
dagurinn haldinn
hátíðlegur
Ísafjörður | Háskólasetur Vest-
fjarða býður í annað sinn upp á há-
skólanám fyrir ungt fólk. Háskóli
unga fólksins verður dagana 9. til
13. júní næstkomandi.
Unglingum fæddum 1992-96
býðst að sækja fjölda stuttra nám-
skeiða þar sem kennarar á háskóla-
stigi fjalla um heima og geima. Með-
al námskeiða í ár eru
dýrafræði/þróunarvistfræði, læknis-
fræði, frumkvöðlar – nýsköpun,
mannfræði og verkfræði. Nánari
upplýsingar má finna á www.hsvest-
.is.
Háskóli unga
fólksins hefst