Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 47
framleiða Airwaves. Ef sú starf-
semi hefði ekki verið keyrð und-
anfarin ár væri þessi hátíð löngu
komin undir græna torfu.
Reykjavíkurborg og ríkið eiga
annars bæði mikilla hagsmuna að
gæta hvað þessa hátíð varðar. Það
var til dæmis úttekt í Morg-
unblaðinu og Viðskiptablaðinu um
fjárhagslegar afleiðingar þessarar
hátíðar og þar kom meðal annars
fram að hún skilar um 300 millj-
ónum í hið svokallaða miðborg-
arhagkerfi, en á sama tíma fáum
við fimm milljónir frá borginni. Það
er ekkert vit í því, og ef við erum að
horfa fram á minni hátíð núna þýð-
ir það auðvitað ekkert annað en
Ekki er betra að ráða
söngvara, sem vitað
er að hefur ekki sterka rödd,
til að halda uppi heilli dag-
skrá. … 49
»
reykjavíkreykjavík
LJÓST er að fari svo að stjórnendur Iceland Airwaves dragi úr umfangi há-
tíðarinnar, mun áhrifanna gæta víða.
Samkvæmt úttekt Morgunblaðsins í oktober sl, má ætla að neysluáhrifin
frá gestum síðustu hátíðarar hafi legið á bilinu 400-500 milljónir króna. Það
þýðir að hver gestur eyddi hátt í 100 þúsund krónum hér á landi yfir hátíð-
arhelgina. Samkvæmt könnun sem Reykjavíkurborg stóð fyrir árið 2005
voru áhrifin af hátíðinni það árið rúmlega 300 milljónir króna. Sú tala felur í
sér hótel, veitingastaði, verslun söfn og fleira í þeim dúr, en ekki flug. Ice-
landair er bakhjarl hátíðarinnar og nemur fjárfesting þess í hátíðinni um 25-
30 milljónum króna, í styrkjum og með flutningum listafólks og fjölmiðla-
fólks til landsins. Í fyrra flutti félagið 150 erlenda listamenn hingað og á
þriðja hundrað blaðamanna.
Stór þáttur í kynningu
Haft var eftir Gunnari Má Sigurfinnssyni, framkvæmdastjóra sölu- og
markaðssviðs hjá Icelandair, að hátíðin væri orðinn stór þáttur í að kynna Ís-
land sem áfangastað og hefði töluverð margföldunaráhrif. Fullyrti hann að
Iceland Airwaves væri ein ástæðan fyrir því að ferðamönnum hafi fjölgað úr
100 þúsund í 460 þúsund á síðustu 15 árum.
Dýrmæt tónlistarhátíð
Neysluáhrif hátíðarinnar 400 - 500 milljónir kr. á síðasta ári
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„HÁTÍÐIN í ár verður líklega
minni að umfangi en hún hefur ver-
ið,“ segir Þorsteinn Stephensen,
eigandi Hr. Örlygs sem á og rekur
tónlistarhátíðina Iceland Airwaves.
Hátíðin hefur farið vaxandi með
hverju árinu sem liðið hefur, en að
sögn Þorsteins þarf líklega að
draga saman seglin í fyrsta skipti
nú í ár.
„Við sjáum ekki fram á að hafa
hærri tekjur en venjulega, en á
sama tíma er allur kostnaður meiri
og gengið óhagstætt. Þannig að við
þurfum að bregðast við því í ein-
hvern tíma, og svo tekur við nýtt
uppbyggingartímabil,“ segir Þor-
steinn, en líklegt er að bæði tón-
leikastaðir og flytjendur verði
færri en venjulega, auk þess sem
hátíðin mun líklega aðeins standa
frá föstudegi til sunnudags, en ekki
frá miðvikudegi eins og verið hef-
ur. „Við erum að taka ákvarðanir
þessa dagana og reyna að sjá
hvernig sé best að draga úr kostn-
aði svo hægt sé að halda þessu
verkefni áfram. Við verðum samt
sem áður með mjög sterk nöfn að
utan, en við munum kannski ekki
hleypa eins mörgum óþekktum
sveitum að.“
Vinnur launalaust
Aðspurður segir Þorsteinn að
rekstur Airwaves hafi farið harðn-
andi undanfarin tvö ár.
„Kostnaður hefur aukist og við
höfum verið að veita meiri þjónustu
í tengslum við hátíðina. Þar af leið-
andi hefur starfsfólk verið fleira,
en það er það sem er verið að skera
niður núna. Við höfum verið með
starfsfólk á launaskrá allt árið, sem
er í raun alveg nauðsynlegt, en við
höfum bara ekki efni á því lengur.
Þannig að ég þarf að vinna þetta
launalaust, eins og ég hef að mestu
leyti gert undanfarin tíu ár,“ segir
Þorsteinn.
„Við vonum að þegar landslagið
á Íslandi breytist getum við fengið
meiri fjármuni inn í hátíðina því við
erum strangt til tekið ekki nógu vel
fjármögnuð. Við erum með styrk
frá Icelandair sem hefur haldist
óbreyttur í mörg ár, og hefur verið
að rýrna með verðlagsþróun. Hið
sama má segja með styrk frá
Reykjavíkurborg. Þannig að við er-
um bara háð miðasölu, það er alltaf
uppselt þannig að við vitum alltaf
úr hverju við höfum að moða. Við
munum því bara smíða okkur hátíð
þar sem allir fara ánægðir heim, en
samt þannig að þetta gangi fjár-
hagslega.“
Fimm milljónir
frá Reykjavíkurborg
Þorsteinn segir að Airwaves sé
stærsta árlega menningarverkefni
sem rekið er af einkaaðilum á Ís-
landi, en hátíðin er alfarið í hans
eigu og því leggur hann mikið und-
ir í hvert skipti. En telur hann
koma til greina að gera hátíðina op-
inbera líkt og Listahátíð, þar sem
hann yrði á launum hjá Reykjavík-
urborg eða ríkinu við framkvæmd
hátíðarinnar?
„Þetta er allt spurning um pen-
inga, og ef það kæmi góð hugmynd
upp á borðið væri ég alveg til í að
skoða hana. Stundum er sagt að
best væri að aðskilja Hr. Örlyg og
Airwaves, en það er ekki svo ein-
falt. Hr. Örlygur hefur borgað með
þessari hátíð í mörg ár með öðrum
verkefnum, til dæmis með tón-
leikum White Stripes í Höllinni. Þar
erum við að búa til peninga til að
lækkun á þessari 300 milljóna
króna tölu.“
Þorsteinn hefur þó átt í við-
ræðum við Reykjavíkurborg, og
segir hann viðmótið gott.
„Það eru allir mjög áhugasamir
um verkefnið, en það er eitt að hafa
áhuga á því og annað að vera með
fjármuni á lausu til að setja í það,“
segir hann og bætir því við að verið
sé að setja upp Airwaves-hátíð í
Lundúnum í september. „Þegar ég
hef verið að segja samstarfsaðilum
okkar og bakhjörlum þar hvað um
er að ræða hér trúir því enginn að
það sé hægt að reka hátíð af þessari
stærðargráðu með þessum fjár-
munum. Tónlistin hefur minnstan
stuðning allra listgreina á Íslandi,
við erum með hundruð milljóna í
kvikmyndasjóði, leikhúsin eru
styrkt upp á fleiri milljarða.“
Á fyrir salti í grautinn
Undanfarin ár hefur nokkuð bor-
ið á því að tónlistarmenn hafi kvart-
að yfir því að fá ekki borgað fyrir
að koma fram á Airwaves. Ljóst er
að engin breyting verður á því fyr-
irkomulagi að þessu sinni.
„Við erum bara heppnir ef við
náum að klóra okkur fram úr þessu
núna. Ég yrði fegnastur allra ef
hægt væri að borga listamönnunum
fyrir þetta. Best væri auðvitað ef
menntamálaráðuneytið myndi til
dæmis setja upp sjóð sem þeir lista-
menn sem spila á hátíðinni gætu
fengið af. Við höfum ekki efni á að
borga einni krónu meira en við ger-
um. Ég get ekki einu sinni borgað
sjálfum mér laun og er að missa
starfsfólk af því að ég get ekki boð-
ið því nógu góð laun,“ segir Þor-
steinn sem borgar fyrir saltið í
grautinn með öðrum aðferðum.
„Við eigum Kaffibarinn, sem
gengur mjög vel, og svo er ég að
vinna að ráðgjafarverkefnum þann-
ig að ég fæ pening annars staðar
frá.“
Eldar Ástþórsson hefur sagt
starfi sínu hjá Hr. Örlygi lausu.
Þorsteinn segir það vissulega leitt.
„Eldar hefur unnið mjög gott starf,
hann er náttúrlega búinn að vera
framkvæmdastjóri í tvö ár. En það
var gott fólk á undan honum og það
mun gott fólk koma í hans stað.“
Iceland Airwaves mun fara fram
í Reykjavík þriðju helgina í októ-
ber. Í næstu viku verður tilkynnt
hvaða sveitir koma fram á hátíðinni
að þessu sinni.
Iceland Airwaves lækkar flugið
Tónleikastöðum og flytjendum fækkað Hátíðin skilar um 300 milljónum í kassa borgarinnar en
fær aðeins fimm á móti „Ekkert vit,“ segir eigandinn Eldar Ástþórsson segir skilið við hátíðina
Morgunblaðið/ÞÖK
Á Airwaves Grasrótin fékk í einu vetfangi frjósaman jarðveg og gríðarlega hvatningu með tilkomu Iceland Airwavs-hátíðarinnar.
Bláa lónið Jagúar skemmtir gest-
um Iceland Airwaves í Bláa lóninu.