Morgunblaðið - 31.05.2008, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Meira úrval, takk
ÞANN 29. maí birtist í Velvakanda
grein frá Sveini Indriðasyni um inn-
flutt grænmeti. Þar segir hann að
varasamt sé að flytja inn grænmeti
því fátt grænmeti sé eins hreint og
gott og frá okkar eigin landi. Ég er
ekkert hrifinn af erlendu grænmeti
og kaupi það íslenska frekar sé það í
boði, en ef ég þarf að velja á milli vis-
ins lambhagasalats og óskemmds
innflutts salats þá vel ég þetta inn-
flutta.
Þó íslenska grænmetið sé gott þá
er það oft bara ekki til. Í því sam-
bandi get ég bent á t.d. radísur sem
eru innfluttar frá Hollandi hingað, af-
hverju er ekki hægt að hafa bara ís-
lenskar radísur? Kannski vantar bara
meira úrval.
Í því samhengi langar mig líka að
gagnrýna það að allar þessar nýju
verslanamiðstöðvar sem er sífellt
verið að opna eru alltaf sömu versl-
anirnar. Það væri nú gaman ef nýjar
verslanir sem maður þekkir ekki
væru opnaðar, sem væri þá spenn-
andi að kíkja í og þær væru kannski
með meiri úrval af grænmeti.
Neytandi.
Tóbakslausi dagurinn
Í tilefni af Tóbakslausa deginum mun
reyksíminn, sem er símaþjónusta fyr-
ir þá sem vilja hætta að reykja, hafa
opið frá kl. 10 til 22. Reykingafólki er
bent á að nota tækifærið og stíga
skrefið í átt að betra lífi án tóbaks.
VIÐ Rauðavatn sást til glæsilegrar skrúðgöngu en þar var á ferðinni leik-
skólinn Rauðaborg sem hélt sína árlegu sumarhátíð. Hátíðin fer fram í
Rauðavatnsskógi þar sem farið er í leiki við hátíðlegar skreytingar, borðað
og náttúrunnar notið.
Morgunblaðið/Arnór
Skrúðganga við Rauðavatn
FRÉTTIR
SLYSAVARNADEILD kvenna í
Reykjavík varð 78 ára þann 28. apríl
sl. Af því tilefni afhenti formaður
deildarinnar, Fríður Birna Stefáns-
dóttir, Björgunarsveitinni Ársæli
2.000.000 kr. til kaupa á nýjum harð-
botna báti sem staðsetja á norðan-
megin í Reykjavík. Sæunn Ósk Kjart-
ansdóttir tók við gjöfinni fyrir hönd
Björgunarsveitarinnar. Verður nafn
bátsins, Halla Jónsdóttir, til minning-
ar um fyrrverandi félagskonu
kvennadeildarinnar í Reykjavík.
Einnig var afhent gjöf til Unglinga-
deildarinnar Storms á Kjalarnesi,
námskeiðsgjöld í Útivistarskólann á
Gufuskálum fyrir 10 félaga, en þessi
gjöf er að verðmæti um 200.000 krón-
ur.
Á Sjómannadaginn verður kaffi-
hlaðborð deildarinnar í Gróubúð,
Grandagarði 1. Verðinu er stillt í hóf,
1.500 kr. fyrir 14 ára og eldri en ekki
er greitt fyrir yngri.
Síðustu tæpa tvo áratugina hafa fé-
lagskonur einnig bakað vöfflur í tjaldi
á Miðbakka og um borð í Sæbjörgu,
slysavarnaskóla sjómanna.
Afraksturinn fer óskiptur til björg-
unar- og slysavarnamála.
Vefur kvennadeildarinnar er
www.kvennadeild.is
Afmælisstyrkir afhentir
Grettir
Smáfólk
Kalvin & Hobbes
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
VINIR
MÍNIR
KOMA
REGLULEGA
Í HEIM-
SÓKN
HOBBES, ÉG GET
EKKI SOFIÐ. ÉG
ER BÚINN AÐ
VERA AÐ HUGSA
UM
HVAÐ?
HVAÐ EF ÞAÐ ER EKKERT
LÍF EFTIR DAUÐANN? ÞAÐ
MUNDI ÞÝÐA AÐ ÞETTA LÍF
ER ALLT SEM VIÐ FÁUM
OG ÞAÐ ÞÝÐIR LÍKA AÐ Á
MEÐAN ÉG SIT HÉRNA Í
RÚMINU MÍNU ÞÁ ER SÁ
LITLI TÍMI SEM ÉG HEF Á
ÞESSUM HNETTI AÐ RENNA
ÚT HÆGT OG RÓLEGA
ELSKAN, VAKNAÐU!
ÉG HELD AÐ ÞAÐ
SÉ KVEIKT Á
SJÓNVARPINU
EN FRÁBÆRT! SITTU BARA ÞARNA
OG GERÐU EKKI NEITT Á MEÐAN
ÉG BURÐAST MEÐ ÖLL ÞUNGU
HÚSGÖGNIN OKKAR!
TAKK,
HELGA!
MIKIÐ ER HÚN FRÁBÆR!
HÚN VILL EKKI AÐ ÉG
MEIÐI MIG Í BAKINU
SEGÐU MÉR...
AF HVERJU
FINNST
ÞÉR ÞÚ
VERA MINNI
MAÐUR EN
AÐRIR?
VÁ! SARA ER AÐ
KOMA Í BÆINN OG
HANA LANGAR AÐ
GISTA HJÁ OKKUR Í
NOKKRA DAGA
VINKONA ÞÍN ÚR
HÁSKÓLANUM?
EIN AF BESTU VINKONUM
MÍNUM! ÉG HEF SJALDAN Á
ÆVINNI HITT MANNESKJU
SEM ÉG HEF TENGST EINS
STERKUM BÖNDUM
HVENÆR TALAÐIR ÞÚ
VIÐ HANA SÍÐAST?
FYRIR
FIMM ÁRUM
MÉR TÓKST AÐ LOSA
EINN AF ÖRMUNUM MÍNUM
NÚNA GET ÉG KRAMIÐ
KÓNGULÓARMANNINN!
ÞÚ
MISSTIR
UPPTÖKU-
VÉLINA!
NEI,
ÞÚ!
PETER!
dagbók|velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
UNDIRRITAÐUR hefur verið
samningur um stofnun rannsóknar-
stofu í barna- og æskulýðsfræðum
(BÆR) við Kennaraháskóla Íslands.
Hlutverk rannsóknarstofunnar er að
hafa frumkvæði að og sinna rann-
sóknum á lífi og lífsskilyrðum barna,
unglinga og ungmenna þar sem
menntun og uppeldi eru séð í heild-
rænu samhengi einstaklings og sam-
félags.
Hópur einstaklinga með bakgrunn
í mörgum greinum félagsvísinda-,
uppeldis- og menntunarfræða og hug-
vísinda sameinast um rannsóknir á
sviði stofunnar. Að undirbúningi
unnu Gestur Guðmundsson, prófess-
or í félagsfræði, Guðrún Kristinsdótt-
ir, prófessor í uppeldisgreinum og
velferð barna, og Halldóra Vanda Sig-
urgeirsdóttir, lektor og umsjónar-
maður námsleiðar í tómstundafræði.
Rannsóknir stofunnar hverfast um
hnattræna og staðbundna bernsku-
og æskulýðsmenningu, félagsleg ferli
og þátttöku barna og unglinga í mót-
un eigin lífs og hinna ýmsu samfélags-
sviða. Þær lúta einnig að þróun og
störfum fagstétta á þessu sviði.
Menntarannsóknir hvíla á breiðum
grunni þekkingar og sækja hana m.a.
til hug- og félagsvísinda, einkum
þeirra alþjóðlegu vettvanga sem orðið
hafa til undir merkjum bernskurann-
sókna og æskulýðsrannsókna. Megin-
sjónarhorn stofunnar eru slíkar þver-
faglegar nálganir, segir í
fréttatilkynningu.
Ný rannsóknarstofa
Samkomulag Gretar L. Marinósson, aðstoðarrektor rannsókna, og Guðrún
Kristinsdóttir, prófessor og forsvarsmaður rannsóknarstofunnar, undirrita.