Morgunblaðið - 31.05.2008, Page 2
FRÉTTASKÝRING
Eftir Sunnu Ósk Logadóttur
sunna@mbl.is
ÓTRYGGÐIR sem urðu fyrir
eignatjóni í jarðskjálftunum á
fimmtudag gætu fengið það bætt,
jafnvel þótt þeir eigi ekki rétt á bót-
um frá Viðlagatryggingu Íslands,
sem bætir aðeins tjón á húseignum
og innbúi af völdum jarðskjálfta,
hafi eigendur tryggt það gegn
bruna. Er upplýsingar sérfræðinga
um umfang tjónsins liggja fyrir mun
ríkisstjórnin ákveða hvernig komið
verður til móts við ótryggða.
Vinna við slíkt mat hófst þegar í
samstarfi Viðlagatryggingar og vá-
tryggingarfélaganna og ber fólki að
tilkynna tjón til þeirra síðarnefndu.
Ekki er hægt að meta að svo stöddu
hvert tjónið er en vegna skjálftanna
í júní árið 2000 hefur Viðlagatrygg-
ing greitt 2,6 milljarða króna í bæt-
ur og enn eru nokkur minni tjóna-
mál óuppgerð. Langmesta tjónið þá
varð í dreifbýli í kringum Hellu og
Selfoss, samtals rúmlega 1,5 millj-
arðar.
Skjálftarnir nú áttu hins vegar
upptök sín vestar og höfðu áhrif á
mun þéttbýlla svæði en árið 2000.
Mikil uppbygging hefur einnig átt
sér stað í Árborg síðustu ár og verð-
mætaaukning sem taka verður með
í reikninginn.
Lært af reynslunni
Valgerður Sverrisdóttir viðskipta-
ráðherra skipaði nefnd eftir skjálft-
ana 2000 til að benda á úrbætur um
tilhögun hamfaratrygginga. Sagði
ráðherrann vandamálin annars veg-
ar tengjast brunabótamati og hins
vegar framkvæmd mats á tjónum og
uppgjöri þeirra. Nefndin skilaði áliti
árið 2002 og eru tillögur hennar í
vinnslu. Breytingar hafa nú þegar
verið gerðar í þá veru að allir tjón-
þolar eiga að standa jafnir hvað
varðar brunabótamat en árið 2000
voru tvenns konar aðferðir við út-
reikning á slíku mati hafðar til hlið-
sjónar, og það gat komið niður á
tjónþolum.
Þá eru verkferlar Viðlagatrygg-
ingar í stöðugri endurskoðun, að
sögn Ásgeirs Ásgeirssonar, fram-
kvæmdastjóra stofnunarinnar.
„Menn læra náttúrlega af reynsl-
unni,“ segir hann og bendir á að
matsvinna hafi farið mun fyrr af
stað á fimmtudag en í skjálftunum
árið 2000.
Tekjulind Viðlagatryggingar er
álag sem lagt er á brunatryggingar
og hefur hún burði til að bregðast
við allt að 38 milljarða króna tjóni.
Mestu greiðslur fyrir tjón sem orðið
höfðu fyrir árið 2000 voru greiddar
vegna snjóflóðanna á Vestfjörðum
og flóðs á Skeiðarársandi, árin 1996
og 1997, samtals um 1,3 milljarðar
króna.
Geta bætt 38 milljarða tjón
Skjálftar árið 2000: 2,6 milljarðar í bætur
Morgunblaðið/Golli
Skemmdir Eitt þeirra húsa, sem fóru mjög illa í skjálftanum 2000.
2 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is
Björn Jóhann Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurð-
ardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson
fréttastjóri gummi@mbl.is
HAFNFIRÐINGAR halda upp á það um þessar mundir, að bærinn þeirra er
orðinn 100 ára og er hátíðardagskráin ákaflega fjölbreytt og forvitnileg.
Meðal annars hefur verið komið á fót efnisveitu fyrir galdramenn á öllum
aldri og þar spreyta þeir sig á því, sem hefur verið hent en getur orðið að
dýrustu djásnum í höndum þeirra, sem þora að gefa ímyndunaraflinu laus-
an tauminn. | 27
Morgunblaðið/Golli
Listagaldur í Hafnarfirði
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
GEIR H. Haarde forsætisráð-
herra og Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra
heimsóttu skjálftasvæðin á
Suðurlandi í gær og funduðu
með sveitarstjórnarmönnum,
fulltrúum almannavarna-
nefndar og sýslumanni Árnes-
sýslu. Að sögn Geirs fengu
þau mjög góða greinargerð
um stöðu mála. Á fundinum var einn-
ig Ragnar Sigurbjörnsson verkfræð-
ingur og forstöðumaður Jarðskjálfta-
stofnunar HÍ.
„Ég fór síðan yfir það sem ríkis-
stjórnin hefur verið að undirbúa,“
segir Geir. „Það er í fyrsta lagi þjón-
ustumiðstöðin sem dómsmálaráð-
herra hefur greint frá [fyrir þá sem
þurfa á aðstoð að halda vegna jarð-
skjálftanna]. Í öðru lagi samstarf við-
skiptaráðuneytisins og Viðlagatrygg-
ingar um að hraða allri vinnu á þeirra
vegum eins og hægt er. Í þriðja lagi
ákvað ríkisstjórnin að útvega Tetra-
fjarskiptatæki fyrir heilbrigðisstofn-
anir. Það kom í ljós brotalöm í fjar-
skiptum vegna þess að á sjúkrahús-
inu á Selfossi var ekki slíkt tæki til
þegar gsm-samband rofnaði.
Láta ekki stranda á kostnaði
Loks hefur ríkisstjórnin ákveðið að
gera ráð fyrir allt að 100 milljóna
króna aukafjárveitingu vegna ófyrir-
séðs kostnaðar sem stofnanir ríkisins
kunna að lenda í vegna þessa. Það er
alveg ljóst að ýmis embætti og stofn-
anir verða fyrir ýmsum ófyrirséðum
kostnaði vegna þessa máls og við lát-
um ekki stranda á slíku við þessar að-
stæður.“
Geir kom inn á heimili í Hveragerði
og heimsótti fjöldahjálparmiðstöð
þar í bæ og á Selfossi.
Gengu til verks
af mikilli alvöru
„Það sem mér finnst áberandi er að
starf allra hefur gengið mjög vel og
fumlaust. Menn gengu til verks af
mikilli alvöru. Reynslan frá fyrri at-
burðum hefur nýst vel, ef svo mætti
að orði komast. Þau kerfi sem hafa
verið byggð upp í kringum almanna-
varnir virka mjög vel.
En mér fannst ljótt að sjá það
mikla tjón sem orðið hefur.“
Geir segir að þótt fólk beri sig
nokkuð vel sé það samt staðreynd að
ýmsir hafi orðið fyrir miklu áfalli og
eigi af þeim sökum erfitt.
„Starf allra hefur
gengið mjög vel“
Morgunblaðið/Frikki
Staðan rædd Á fundi með Ólafi
Helga Kjartanssyni sýslumanni.
ÞETTA er frekar að ágerast og
þetta er nú orðið gott,“ sagði Jak-
ob Arnarson Hvergerðingur eftir
hina snörpu eftirskjálfta sem urðu
í gærkvöldi. Sagði hann eftir-
skjálfta fyrr um daginn hafa skap-
að óþægilega tilfinningu og ekki
bætti úr skák skjálftahrinan í gær-
kvöldi. Fyrsti skjálftinn í þeirri
hrinu varð kl. 22:05 og næsti
tveimur mínútum síðar, báðir um 4
á Richter. Kl. 22:51 kom svo enn
einn skjálfti upp á 3,5 stig og loks
sá fjórði kl. 23:04 og var hann 4,2–
4,3 stig.
Skjálftarnir urðu til þess að um
tugur manna á Selfossi yfirgaf
heimili sín og færði sig yfir í
fjöldahjálparstöðina í bænum en
þar var nánast tómt hús fyrir.
Ólafur Helgi Kjartansson sýslu-
maður á Selfossi var í vinnunni
þegar skjálftarnir urðu og fann
hann fyrir þeim. „Þetta er í sam-
ræmi við spá sérfræðinga sem
telja afar ólíklegt að sterkir
skjálftar komi á þessu svæði,“
sagði hann. „En auðvitað er
ástæða til að hafa alltaf varann á,
þótt ekki sé ástæða fyrir fólk til að
verða mjög óttaslegið.“
Sagði hann að á meðan ástandið
versnaði ekki stæði óbreytt sú
ákvörðun almannavarnanefndar að
aflétta hættuástandi.
Öflugir eft-
irskjálftar
♦♦♦
ÁRNI Jörgensen, sem verið hefur
fulltrúi ritstjóra á Morgunblaðinu,
hefur verið ráðinn útlitsritstjóri
blaðsins frá og með 2. júní. Ráðning
útlitsritstjóra er í samræmi við þá
áherzlu í nýrri útgáfustefnu blaðsins,
sem kynnt verður í næstu viku, að
leggja sérstakan metnað í útlit, stíl
og framsetningu Morgunblaðsins.
Árni verður ásamt nýjum ritstjóra,
Ólafi Stephensen, og Karli Blöndal
aðstoðarritstjóra leiðandi í ritstjórn-
arlegum ákvörðunum á blaðinu.
Árni Jörgensen hóf störf á Morg-
unblaðinu 16. júní 1973 og varð
fulltrúi ritstjóra
1. maí 1984. Hann
hefur alla tíð haft
forystu um
breytingar á út-
liti og framsetn-
ingu blaðsins og
tekið að sér
margvísleg störf
á ritstjórninni.
Eiginkona
Árna er Margrét Þóra Þorláksdótt-
ir. Þau eiga tvö börn, Þórunni og
Þorra, og fyrir átti Árni dótturina
Freyju.
Ráðinn útlitsritstjóri
Morgunblaðsins
Árni Jörgensen
TVEIR snarpir eftirskjálftar upp á
4 stig á Richter urðu í gærkvöldi
um tíuleytið 3 km norður af Hvera-
gerði og náðu áhrif þeirra allt til
höfuðborgarsvæðisins. Tæpri
klukkustund síðar komu tveir
skjálftar enn, sá síðari allt að 4,3 á
Richter. Að sögn Ólafs Helga
Kjartanssonar sýslumanns á Sel-
fossi stendur enn óhögguð ákvörð-
un um að aflétta hættuástandi.
Áfallahjálparteymi Rauða kross-
ins aðstoðuðu fjölmargt fólk í gær
á skjálftasvæðunum vegna áfalls af
völdum meginskjálftanna á
fimmtudag og voru sumir einstak-
lingar í miklu áfalli. Eftirskjálftar
gærdagsins voru allnokkrir og
reyndu mikið á taugarnar í fólki.
Til dæmis um það varð einn öfl-
ugur eftirskjálfti á miðjum
fræðslufundi um áfallahjálp í
grunnskólanum í Hveragerði og
flúði helmingur fundargesta út
undir bert loft, jafnvel þótt skóla-
byggingin hefði verið metin örugg.
Reyna mjög á
taugar fólks