Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 19

Morgunblaðið - 31.05.2008, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 19 MENNING FAÐIR Jovica, serbneskur listamaður sem er prestur í serbnesku rétttrúnaðarkirkj- unni, verður með sýningu á íkonum í þremur kirkjum í júní, í safnaðarheimili Háteigs- kirkju, Skálholtskirkju og Glerárkirkju á Akureyri. Allir eru boðnir velkomnir á opnun sýningarinnar í Há- teigskirkju í dag, laugardag, klukkan 12. Við það tækifæri verður flutt stutt lof- gjörð á kirkjuslavnesku, ensku og íslensku. Sýn- ingin þar stendur til 8. júní, opnar í Skálholti 9. júní og stendur þar í viku. Fyrir norðan opnar hún um miðjan júní. Kirkjulist Íkonar í þremur kirkjum Einn íkona Jovica SÝNING á verkum Bjarna Hinrikssonar verður opnuð í sal Íslenskrar grafíkur, Graf- íksafni Íslands, í dag laugardag klukkan 14. Sýningin nefnist Atlantik Diving og á henni eru annarsvegar myndir unnar í silkiþrykk og djúpþrykk, og hinsvegar stafrænt prentaðar myndir. Að baki myndverkunum er myndasaga sem enn er í smíðum, ferðasaga frá sólareyjum við Afríku. Bjarni Hinriksson lauk námi í myndasögugerð í Frakklandi árið 1989. Síðan hefur hann fengist við myndasögugerð og grafíska hönnun. Myndlist Myndasaga frá sól- areyjum við Afríku Bjarni Hinriksson Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÞETTA er atburður hins ófyrirséða þannig að ég má ekki láta of mikið uppi,“ segir Hulda Rós Guðnadóttir um kynningu á verkefninu Díónýsíu sem verður á Laugavegi 66 klukkan 18 í dag. Díónýsía er árlegur við- burður þar sem hópar alþjóðlegra lista- og fræðimanna starfa saman í bæjum úti á landi. „Díónýsía er hugsað sem fyr- irbæri miðlunar þar sem skiptast á staðbundin þekking og reynsla, í ýmsum skilningi,“ segir Hulda Rós, sem er forvígismaður Díónýsíu. „Markmiðið er að brjóta niður hefð- bundin mörk sem hafa skapað enn djúpstæðari mörk í hugum okkar. Unnið er í vinnustofum úti á landi, þar sem fólk dvelur í tíu daga í fimm til átta manna hópum. Áhersla er lögð á vinnu með heimamönnum. Við vorum í annað sinn í Borg- arfirði eystra. Íbúarnir eru vanir því að listamenn leiti á staðinn til að fá ró frá skarkala heimsins, og leiti inn- blásturs, en hafa ekki kynnst því áð- ur að svo mikill áhugi sé á þeirra þekkingu, reynslu og listsköpun.“ Í ár fór starf Díónýsíu einnig fram á Hofsósi, í Vogum og Dalvík. Margt líkt með fræði og listum „Margt er líkt með fræði og list- um,“ segir Hulda Rós. „Í hvoru- tveggja er rannsóknaferli þó fram- setningin geti verið mismunandi. Fræði eru þó oft sett fram á mynd- rænan hátt og list sem texti.“ Atburðurinn í dag er hugsaður sem kynning fyrir íslenska lista- menn, fræðimenn og hönnuði. „Þarna verður allskonar skráning á því sem hefur verið að gerast í vik- unni, lifandi gjörningar og fleira. Þátttakendur koma víða að, starfa í ýmsum listgreinum, og það er alltaf nokkuð ófyrirséð hvernig þau ná saman og hvernig þau vinna með heimamönnum á hverjum stað.“ Díónýsía er auglýst erlendis og hér heima og getur fólk sótt um að taka þátt. „Við fengum mjög mikið af umsóknum frá útlöndum. En við viljum fá fleiri umsóknir héðan.“ Afraksturinn spennandi Hulda Rós segir að ritnefnd vinni nú að undirbúningi bókar um verk- efnið, þar sem listir og fræði mæt- ast. Hún brosir þegar spurt er hvernig gangi að fjármagna þetta viðamikla verkefni. „Sveitarfélögin eru aðal-styrktaraðilarnir, þau bjóða gistingu og vinnuaðstöðu, fyrir utan að tengja bæjarbúa við þá sem eru að heimsækja bæina. Annars hefur gengið erfiðlega að fá styrki hjá menningarsjóðum í Reykjavík. Ég veit ekki af hverju, því mörg hund- ruð manns koma að þessu verkefni. En ég hef mikla trú á þessu verk- efni, afraksturinn er spennandi og við höfum meðbyr frá þátttakendum og bæjunum þar sem þeir dvelja.“ Díónýsía stendur í dag fyrir atburði hins ófyrirséða að Laugavegi 66 Brjóta niður mörk Í hópunum sem hafa tekið þátt í Díónýsíu er fjölbreytilegur bræðingur lista- og fræðimanna, enda ætlunin að skiptast á ólíkri þekkingu og reynslu. Hér leika Frakkar á hljóðfæri við bræðsluna á Borgarfirði eystri. Þekking í ýmsum skilningi FYRIR fimm árum vakti það mikla athygli og vandlætingu þegar bresku listamennirnir Jake og Di- nos Chapman keyptu 80 graf- íkmyndir eftir Goya og teiknuðu hvolpa og trúða inn á þær. Nú hafa þeir endurtekið leikinn en ekki með verk jafn virts listamanns. Bræð- urnir keyptu 13 vatnslitamyndir eftir Adolf Hitler á 115.000 pund, um 18 milljónir króna, og hafa mál- að á þær regnboga, brosandi andlit, litríkar stjörnur og blóm. Verk sitt kalla þeir If Hitler Had Been A Hippie How Happy Would He Be. Myndirnar 13 eru hluti af nýrri sýningu Chapman-bræða í White Cube galleríinu í London. Á sýning- unni er einnig gríðarstórt verk sem þeir kalla Fucking Hell, níu gler- skápar sem raðað er upp þannig að þeir mynda hakakross; í þeim gefur að líta martraðarkenndar stríðs- senur með þúsundum lítill fígúra þar sem meðal annars er vísað til framgöngu Þjóðverja í seinni heim- styrjöldinni. Bræðurnir segja vatnslitamyndir Hitlers afar ómerkilegar; viðvan- ingslegt drasl eins og finna megi í skranbúðum víða um heim. „Þær sýna bara að þetta var ekki góður listamaður, og þær sýna heldur ekki fram á að maðurinn yrði hræðilegur harðstjóri,“ segir Jake Chapman. Bræðurnir segjast hafa gert myndir „betri með því að gera þær verri.“ Máluðu ofan í myndir eftir Hitler Chapmanbræður skapa vítisverk Víti Í verki Chapman-bræðranna má sjá listamanninn Hitler að störfum. NÝR tónleikastaður Fílharmóníu- sveitar Berlínar eftir bruna í húsi hljómsveitarinnar fyrir skömmu, er Flugskýli 2 á Tempelhof flugvelli í Berlín. „Í fína lagi,“ segir stjórn- andinn Simon Rattle, „nema þegar þyrlurnar fyrir utan taka á loft og lenda.“ Fílharmónía í flugskýli Eftir Helga Snæ Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ÞREMUR íslenskum myndlistar- mönnum hefur verið boðið að taka þátt í myndlistartvíæringnum Mani- festa 7 í sumar sem haldinn verður í Trentino-héraði í Suður-Týrol á Ítalíu. Þetta eru Ragnar Kjartans- son, Margrét H. Blöndal og Ólafur Ólafsson (sem sýnir með hinni spænsku Libiu Pérez de Siles de Castro). Þau munu sýna í borginni Rove- reto, í hluta sem ber vinnutitilinn Principle Hope undir sýningarstjórn Adams Budak. Í fyrra komu hingað til lands fulltrúar frá Manifesta, funduðu m.a. með íslensku listafólki og stjórnendum listastofnana, fulltrú- um menntamálaráðuneytis og borg- ar. Budak kom stuttu síðar til lands- ins og kynnti sér verk íslenskra listamanna, hitti nokkra þeirra og ákvað í kjölfarið að bjóða fyrr- nefndum þremur til síns hluta Mani- festa, að sögn Christian Schoen, for- stöðumanns Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, CIA. „Hann starfar í Vín og er þekktur alþjóðlega sem sýningarstjóri,“ seg- ir Schoen um Budak. Hann sé afar ánægður með að Íslendingarnir sýni undir hans stjórn. Milljón til verkefnisins Miðstöðin veitti fyrir einum þrem- ur vikum einnar milljónar króna styrk til listamannanna þriggja (og Libiu þar sem þau Ólafur starfa saman að myndlist) vegna Mani- festa. Tvíæringurinn hefst 19. júlí og stendur til 2. nóvember. Listamennirnir verða með þrjú verk sérstaklega gerð með sýning- arstaðinn í huga, „site-specific“ upp á enskuna. Á vefsíðu Manifesta 7 er hugmyndinni að baki sýningu Budak í Rovereto lýst í löngu og býsna tor- skildu máli. Í stuttu máli virðist hún ganga út á að rannsaka mörk al- menningsrýmis og einkarýmis og losa um spennu milli nútímans og hefðarinnar. Almenningsrými skoð- að út frá kraftinum sem í því býr en jafnframt veikleikanum sem fylgir því að tilheyra hverjum sem er. Ragnar Kjartansson var staddur í leigubíl í Berlín í gær og sagðist vera þessa dagana að æfa gjörninga- innsetningarverk með Davíð Þór Jónssyni tónlistarmanni sem þeir unnu upp úr verkinu Dichterliebe eftir Schumann. „Þýskur ljóða- söngur, bara mjög elegant,“ út- skýrir Ragnar. Verkið verði hálf- gerð „Schumann-vél“. Fyrst Guð, nú Schumann Ragnar og Davíð Þór hafa áður starfað saman, Davíð útsetti tónlist- ina fyrir verkið „Guð“ sem Ragnar er tilnefndur til Sjónlistaverð- launanna fyrir. Ragnar segir Budak hafa lagt einhverjar línur fyrir sýninguna eins og gengur og gerist og hann svo spunnið út frá því. „Hann er dúndurkúrator þessi gæi,“ segir Ragnar eldhress, borgar leigu- bílstjóranum og slær um sig á þýskri tungu um leið. Enda ætlar hann að kyrja ljóð á því fagra tungu- máli. Ragnar Kjartansson, Margrét Blöndal og Ólafur Ólafsson taka þátt í Manifesta 7 á Ítalíu „Dúndur-kúrator þessi gæi“ Guð Ragnar Kjartansson í myndbandsinnsetningunni Guð. Vinnur nú að verki fyrir Manifesta með Davíð Þór Jónssyni tónlistarmanni. Vefsíða Manifesta 7: www.manifesta7.it. Í HNOTSKURN » Díónýsía er árlegur við-burður þar sem alþjóð- legur hópur lista- og fræði- manna vinnur í völdum bæjum. » Síðustu vikuna hafa hóparunnið í vinnustofum í Vog- um, á Dalvík, á Hofsósi og á Borgarfirði eystra. » Meðal þátttakenda erudómarar úr myndlista- keppni, sýningastjórar, nemar, galleríeigendur, gjörninga- listamenn og tónlistarmenn. » Á „atburði hins ófyr-irséða“ að Laugavegi 66 klukkan 18 í dag verða sýndar heimildir, gjörningar og fleira frá starfi hópanna síðustu daga. » Markmiðið með Díónýsíuer að brjóta niður hefð- bundin mörk lista og fræða. ♦♦♦ SKOVBO, ljósmyndasýning dansk-bandaríska listamanns- ins Viggos Mortensen, verður opnuð í Ljósmyndasafni Reykjavíkur í Grófarhúsinu í dag klukkan 14. Heiti sýning- arinnar vísar í efni myndanna, tré og skóga. Mortensen hefur ákveðið að stilla verði myndverkanna mjög í hóf og rennur andvirði seldra verka til Náttúruverndarsamtaka íslands. Viggo Mortensen kemur víða við í listinni; sem- ur ljóð, málar, tekur ljósmyndir og semur tónlist. Kunnastur er hann þó sem kvikmyndaleikari og var hann tilnefndur til Óskarsverðlauna í fyrra. Ljósmyndun Skógarmyndir Viggos Mortensen Viggo Mortensen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.