Morgunblaðið - 31.05.2008, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 31.05.2008, Qupperneq 22
22 LAUGARDAGUR 31. MAÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI ÁRBORGARSVÆÐIÐ Selfoss | „Mér hefur alltaf þótt lögreglu- starfið áhugavert. Ég fór í stutta starfskynn- ingu hjá Lögreglunni í Reykjavík þegar ég var í grunnskóla og þegar ég var í menntaskóla komu lögreglumenn í skólann og kynntu Lög- regluskólann, sem mér fannst virkilega spenn- andi. Ég hugsaði þó ekki af fullri alvöru um að gerast lögreglumaður fyrr en um ári eftir að ég lauk menntaskóla,“ segir Tinna Jóhönnu- dóttir, lögreglumaður í lögreglunni í Árnes- sýslu. Hún hefur nýlokið námi í forgangsakstri lögreglubifreiða og er einnig formaður Lög- reglufélags Suðurlands. „Ég byrjaði í verkfræðinámi í Háskóla Ís- lands en fann að það var ekki fag sem ég vildi leggja fyrir mig, svo ég hætti því námi og þurfti þá taka til endurskoðunar hvaða starf ég vildi leggja fyrir mig. Eftir nokkra umhugsun varð lögreglustarfið ofan á,“ segir Tinna. Eftir útskrift úr Lögregluskólanum hóf Tinna störf hjá Lögreglunni í Hafnarfirði. Hún flutti síðan á Selfoss, hóf störf hjá Lögreglunni í Árnessýslu í ágúst 2005 og hefur starfað þar síðan. Í starfi Tinnu sem lögreglumaður kvikn- aði áhugi hennar á sálfræði og byrjaði hún haustið 2006 í BA-námi í sálfræði við HÍ, með- fram því að vera í fullu starfi. Starfið hentar líka konum „Lögreglustarfið er rosalega fjölbreytt, sem er einmitt það sem mér líkar best við starfið. Í upphafi vaktar veit maður aldrei hvaða verk- efni geta komið upp þann daginn. Meðal þeirra fjölmörgu verkefna sem lögreglan sinnir er allt frá því að hafa eftirlit með umferð, sinna forvörnum og ýmiskonar aðstoð við borg- arann, upp í að eiga við hættulega af- brotamenn, veita lífsbjargandi aðstoð, t.d. vegna slysa, og sinna rannsóknum,“ sagði Tinna þegar hún var spurð hvað væri svona áhugavert við lögreglustarfið. Og hún bætir við. „Mér líkar mjög vel að starfa í Lögreglunni í Árnessýslu, hér vinnur fólk sem er mjög fært á sínu sviði og starfs- andinn er góður. Ég finn ekkert sérstaklega fyrir því þó að konur séu í minnihluta í liðinu, við erum öll lögreglumenn, sinnum sama starfi og mér finnst ég fá sama viðmót og sömu tæki- færi í starfinu og karlkyns vinnufélagar mínir. Í Lögreglunni í Árnessýslu starfa fimm konur, sem er hærra hlutfall en í lögreglunni í heild sinni, en starfið hentar jafnt konum sem körl- um og því ættu áhugasamar og hæfar konur alls ekkert að hika við að sækja um í lögregl- unni, frekar en karlar.“ Tinna er ein af 12 lögreglumönnum sem luku nýlega námskeiði í forgangsakstri lög- reglubifreiða. „Já, þetta var námskeið fyrir þjálfara í akstri lögreglubifreiða. Lög- reglustjórum var gefinn kostur á því að senda menn á þetta námskeið og ég var send frá mínu embætti. Núna er í gangi undirbúningur að nám- skeiðum í forgangsakstri fyrir lögreglumenn og við sem kláruðum þetta námskeið munum koma til með að sjá um bóklega kennslu og verklega þjálfun á þeim námskeiðum. Í for- gangsakstri þarf fyrst og fremst að huga að því að komast á vettvang án þess að skapa hættu með akstrinum, fyrir lögreglumenn og aðra vegfarendur. Þessi menntun á klárlega eftir að nýtast mér mikið í starfinu, þar sem ég tel mig mun betur en áður í stakk búna til að takast á við það krefjandi verkefni að aka í for- gangsakstri. Einnig hlakka ég til að byrja að miðla þessari þekkingu til annarra lögreglu- manna, en það er hagur allra að lögreglumenn séu þrautþjálfaðir í akstri,“ sagði Tinna þegar hún var beðin um að lýsa námskeiðinu og segja frá því hvernig það muni nýtast henni. Tinna er formaður Lögreglufélags Suður- lands en það er stéttarfélag lögreglumanna. Tilgangur þess er að vinna að kjara- og menn- ingarmálum lögreglumanna og gæta réttar þeirra í starfi. Félagið er svæðisdeild innan Landssambands lögreglumanna og félags- svæði þess er Árnessýsla, Rangárvallasýsla, Vestur-Skaftafellssýsla og Austur-Skaftafells- sýsla. Lögregluveisla í undirbúningi „Hjá Lögreglufélagi Suðurlands erum við helst að vinna að kjaramálum og réttindum fé- lagsmanna. Félagsmenn geta leitað til okkar vegna kjaramála og annarra mála og við reyn- um að leysa fljótt og vel úr þeim erindum sem okkur berast. Í haust verða kjarasamningar lausir hjá lögreglumönnum og þá mun stjórn félagsins að sjálfsögðu fylgjast náið með stöðu mála og leggja sitt af mörkum eins og kostur er. Lögreglufélag Suðurlands verður 40 ára þann 28. nóvember nk. Það stendur til að halda veislu í tilefni afmælisins í haust og er und- irbúningur hennar í fullum gangi. Einnig stendur til að gefa út afmælisrit sem dreift verður á félagssvæðinu,“ sagði Tinna. Tinna Jóhönnudóttir, lögreglumaður á Sel- fossi, er formaður Lög- reglufélags Suðurlands Veit aldrei hvaða verkefni koma upp Í forgangi Tinna Jóhönnudóttur er formaður Lögreglufélags Suðurlands og stundar auk þess nám í sálfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur nýlokið námskeiði í forgangsakstri. Í HNOTSKURN »Tinna Jóhönnudóttir er fædd 9. janúar1980 og er næstelst af sjö systkinum. Hún er gift Gunnari Jökli Karlssyni og eiga þau þriggja ára son, Darra Jökul. »Tinna er alin upp í Grundarfirði enflutti í lok grunnskóla með fjölskyldu sinn til Þorlákshafnar og bjó þar í tæpt ár eða þangað til hún fór í menntaskóla. Hún var tvö ár í Menntaskólanum að Laug- arvatni, en þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún lauk stúdentsprófi af eðl- isfræðibraut frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti vorið 2000. »Tinna byrjaði í Lögregluskóla ríkisins íbyrjun árs 2002 og útskrifaðist þaðan í desember sama ár. Eftir Skapta Hallgrímsson skapti@mbl.is LISTAKONAN Aðalheiður S. Eysteinsdóttir hélt eftirminnilega sýningaröð þegar hún varð fertug; opnaði 40 sýningar á jafn mörgum dög- um víða um heim. Nú er annað og stærra verk- efni komið í gang sem nær hámarki þegar hún verður fimmtudag, eftir fimm ár. Réttardagur skal það heita, nýja verkefnið, og fyrsta sýningin verður haldin í Reist- arárrétt, fáeina metra frá Freyjulundi í Arn- arneshreppi, þar sem Aðalheiður er búsett. Hún er þekkt fyrir tréskúlptúra sína og und- anfarið hefur staðið yfir „sauðburður“ í Freyjulundi þar sem hún hefur smíðað tugi kinda með aðstoð góðra manna. Auk þess vinn- ur hún að smíði ýmissa bænda og búaliðs úr sveitinni, barna og gamalmenna og fólks annar staðar að sem mæta gjarnan í réttir. Sauðkindin heldur velli Sýningar verða settar upp bæði hér heima og í útlandinu, m.a. í Hollandi og í Afríku í haust. Hún kallar verkefnið Fundamentals er- lendis – Undirstaða. „Öll okkar menning bygg- ist á sauðkindinni ef grannt er skoðað. Mér fannst þó ekki beinlíns rétt að einskorða sýn- inguna við réttina eina erlendis því í öðrum löndum er undirstaðan önnur og ég vil að fólk geti samsamað sig nafninu,“ sagði Aðalheiður þegar blaðamaður leit í heimsókn til hennar í Freyjulund í vikunni. Aðalheiður er fædd og uppalin á Siglufirði þar sem afasystir listakonunnar og eiginmaður hennar stunduðu fjárbúskap. „Síðan þá hafði ég hvorki hugsað sérstaklega um kindur né búskap fyrr en ég flutti hingað í Freyjulund, nánast í réttina. Þá fann ég hvað æskuminn- ingarnar sóttu á mig og ég upplifði réttirnar og sveitalífið á alveg nýjan máta. Merkilegt hvað fjárbúskapurinn á sér sterkar rætur í þjóð- arsál Íslendinga. Innan um alla nýsköpun heldur sauðkindin velli.“ Sem barn fékk hún að hjálpa til við þau störf sem fylgja búskapnum, bæði við heyskap og auðvitað í réttunum á haustin. „Ég var mjög ung þegar ég hafði þann starfa að svíða hausa; 7 eða 8 ára krökkum fyndist það líklega ógeðs- legt í dag ...“ Gestalistamenn verða með Aðalheiður hafði gríðarlega gaman af því að setja upp sýningarnar 40 á sínum tíma, en seg- ir það hafa útheimt mikla vinnu. Sums staðar sýndi hún teikningar, annars staðar málverk og tréskúlptúra víða. Sýningarnar voru sem sagt mjög mismunandi. Nú ætlar hún með réttardaginn út um allt – þó vissulega verði sýningin að ákveðnu leyti mismunandi frá ein- um stað til annars. Ekki síst vegna þess að hún hyggst bjóða gestalistamönnum frá viðkom- andi svæði að taka þátt hverju sinni og gefa þeim frjálsar hendur; ætlar að stefna saman á réttardaginn skapandi fólki úr ýmsum grein- um sem sameinast undir þessu þjóðlega merki, eins og hún orðar það. Aðalheiður segist vera áhugamanneskja um náttúruvæna og þjóðlega atvinnuvegi eins og búskap. „Sjálf hef ég hagað lífi mínu þannig að ég lifi í sátt við náttúruverndarsamvisku mína. Ég flokka sorpið mitt og nýti til listsköpunar margt af því sem fellur til á heimilinu. Ég nota hvorki eiturefni í listsköpun né þrifum.“ Hluti af heild „Þegar ég hóf að vinna þrívíð verk lagði ég leið mína á gámasvæðið á Akureyri til að leita að hráefni. Það kom til af peningaleysi en ekki síður endurvinnsluhugmyndum. Mér blöskraði að í fimmtán þúsund manna samfélagi fylltust margir gámar af húsgögnum, heimilistækjum og timbri á hverjum degi. Af hverju? Mér líkar tilhugsunin um að vera hluti af heild. Að setja saman skúlptúra úr timbri sem einhverjir smiðir hafa sagað niður og jafnvel málað er skemmtilegur leikur, og gefur verkunum að mínu mati aukna vídd. Ýmsar myndir mannlífs hafa verið viðfangsefni mitt alla tíð.“ Hún hyggst smíða nokkur hundruð kindur, hesta, hunda og menn inn í réttina sem stend- ur við húshornið hjá henni í Freyjulundi. „Síð- ar mun sú sýning skiptast í minni einingar eða, eftir því sem árin líða, stærri í samræmi við þá sýningarstaði sem hýsa verkin mín. Ég mun halda áfram að smíða skúlptúra eða vinna ann- arskonar verk inn í verkefnið á næstu fimm ár- um. Þannig bætist nýtt við hverja sýningu sem vonandi þróast og leiðir mig í óvæntar áttir.“ Ferðalaginu lýkur svo á fimmtudagsafmæl- inu í Gilinu á Akureyri, svokölluðu Listagili. „Þá ætla ég að leggja undir mig hús og götuna sjálfa. Sýningin verður þá vonandi búin að þróast á þessum árum – og vonandi búin að fara um allan heim,“ segir Aðalheiður S. Ey- steinsdóttir „fjárbóndi“ og listamaður. Undirbýr réttardag víða um heim Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sauðburður Aðalheiður S. Eysteinsdóttir með hluta bústofnsins heima við Freyjulund. Í HNOTSKURN »Í tilefni fertugsafmælis síns fyrir fimmárum opnaði Aðalheiður S. Eysteins- dóttir 40 sýningar á 40 dögum bæði hér heima og erlendis. »Hún er farin að undirbúa fimmtugs-afmælið sitt og hyggst af því tilefni setja upp 50 sýningar á næstu fimm árum, þá síðustu þegar hún verður fimmtug, en þá ætlar Aðalheiður að leggja allt Listagil- ið á Akureyri undir sig. »Fyrsta sýningin í nýju sýningarröðinni,Réttardegi, hefst í Reistarárrétt í Arn- arneshreppi laugardaginn 21. júní nk. Líflegur „sauðburður“ hjá fólkinu í Freyjulundi

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.