Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 7

Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 7 FRÉTTIR SIGRÍÐUR Dúna Kristmundsdóttir, sendiherra Íslands í Suður-Afríku, afhenti nýverið fjárframlög til Makeba Centre for Girls í Midrand, Suður-Afríku. Stúlknaheimilið, sem söngkonan Miriam Makeba fer fyrir, fékk 50.000 bandaríkjadollara framlag frá utanríkisráðuneytinu, eina milljón króna frá Landsbanka Íslands, hálfa milljón króna frá Landsvirkjun og 200.000 króna frá Rótarýklúbbi Reykjavíkur. Afhendingin fór fram á heimilinu að Miriam Makeba við- staddri ásamt stjórn heimilisins, starfsfólki og viststúlkum. Var Íslandi margþakkaður stuðningurinn við heimilið og þegar er hafinn undirbúningur að stækkun heimilisins fyrir framlög Íslands. Einnig er ljóst að stuðningur Íslands mun auðvelda heimilinu að sækja framlög til annarra aðila. Íslenskt framlag til Suður-Afríku Gjöf Sigríður Dúna afhenti Miriam Makeba framlagið. RAFRÆN kosning um nýgerða kjarasamninga fjölda aðildarfélaga BHM og ríkisins hófst í gær á heimasíðu bandalagsins, bhm.is. Opið verður fyrir atkvæðagreiðslu fram á miðnætti næstkomandi föstudag. Að sögn Ragnheiðar Ei- ríksdóttur, nýsköpunar- og þróun- arstjóra BHM, eiga niðurstöður að liggja fyrir mánudaginn 14. júlí. Þau félög sem greiða atkvæði um samningana eru Dýralæknafélag Ís- lands, Félag geislafræðinga, Félag háskólakennara á Akureyri, Félag háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðsins, Félag íslenskra fé- lagsvísindamanna, Félag íslenskra náttúrufræðinga, Félag lífeinda- fræðinga, Félagsráðgjafafélag Ís- lands, Iðjuþjálfafélag Íslands, Kjarafélag viðskiptafræðinga og hagfræðinga, Stéttarfélag bóka- safns- og upplýsingafræðinga, Stéttarfélag háskólamanna á mat- væla- og næringarsviði, Stéttarfélag lögfræðinga, Sálfræðingafélag Ís- lands, Stéttarfélag sjúkraþjálfara, Þroskaþjálfafélag Íslands og Fræðagarður. Félagar í Félagi fréttamanna greiða atkvæði um samning sinn við Ríkisútvarpið. Fé- lag háskólakennara og Kennara- félag KHÍ hafa ekki ákveðið hve- nær atkvæðagreiðsla um kjarasamning þeirra hefst. Kjósa um samning á netinu Niðurstöður eiga að liggja fyrir 14. júlí UNDIR handleiðslu Auðar I. Otte- sen, framkvæmdastjóra Sumarhúss- ins og garðsins og ritstjóra sam- nefnds tímarits, hefur verið hrundið af stað söfnun fyrir gróðurhúsi fyrir fanga á Litla-Hrauni. Undanfarið hefur Auður liðsinnt föngum á Litla- Hrauni við matjurtarækt sem er ný- lunda þar. Nú stendur hún fyrir söfnun til kaupa á gróðurhúsi sem sett yrði upp á Litla-Hrauni. Með aðstöðu í gróðurhúsi geta fangarnir haldið ræktun áfram yfir vetrartímann og einnig ræktað þar matjurtir sem ekki þrífast úti við. Leitað er eftir framlögum í söfn- unina svo föngum verði gert fært að njóta áfram þeirrar betrunar sem felst í ræktun, segir í tilkynningu. Reikningsnúmer: 101-26-171717. Kennitala: 481203-3330. Safnað fyrir gróðurhúsi á Litla-Hrauni Morgunblaðið/Ómar BORGARSTJÓRI, Ólafur F. Magn- ússon, afhjúpaði í gær útsýnisskilti sem stendur á mótum Breiðholts- brautar og Selásbrautar. Reykja- víkurborg hefur látið setja upp út- sýnisskilti víðs vegar um borgina. Fjallasýnin er einstök, frá þess- um útsýnisstað í Árbænum má meðal annars sjá Esjuna, Úlfars- fellið, Bláfjöllin og Húsfell, segir í tilkynningu. Skiltin hannaði Árni Tryggvason auglýsingateiknari. Útsýnisskilti í Árbæjarhverfi LÍÐAN konu sem lenti í bif- hjólaslysi á Snæfellsnesi á föstudag er stöðug og eftir atvikum, að sögn læknis á gjörgæsludeild Landspít- alans í Fossvogi. Hún er enn í önd- unarvél en er ekki talin í lífshættu. Ekki fengust upplýsingar um líðan mannsins, sem lenti í sama slysi, hjá starfsfólki Landspítalans í gær- kvöldi. Fólkið var flutt með þyrlu til Reykjavíkur á föstudag eftir að ökumaðurinn missti stjórn á hjólinu svo það lenti utan vegar. Slysið varð við Langholt í Staðarsveit. onundur@mbl.is Líðan eftir slys stöðug H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 0 8 -1 3 1 8 Eignarhaldsfélagið Stoðir er öflugur kjölfestufjárfestir með skýra fjárfestingarstefnu sem styður og eflir kjarnafjárfestingar sínar í Glitni, Baugi Group, Landic Property og TM. EIGNARHALDSFÉLAGIÐ STOÐIR www.stodir.is GLITNIR Glitnir er norrænn banki með höfuðstöðvar á Íslandi og starfsemi í 10 löndum.Glitnir veitir víðtæka fjármálaþjónustu á borð við fyrirtækjalánastarfsemi og ráðgjöf, markaðsviðskipti, eignastýringu og viðskipta- bankaþjónustu á helstu mörkuðum sínum. LANDIC PROPERTY Landic Property er eitt stærsta fasteignafélag Norðurlanda. Félagið á um 500 fasteignir í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og á Íslandi og leigir út um 2,6 milljónir fermetra til yfir 3.400 leigutaka. TM TM er eitt stærsta tryggingafélag á Íslandi og býður alhliða vátryggingaþjónustu og víðtæka fjármögnunarþjónustu. Dótturfélag TM í Noregi er Nemi Forsikring. BAUGUR GROUP Baugur á eignarhluti í fjölmörgum fyrirtækjum í smásöluverslun í Bretlandi, Bandaríkjunum og á Norðurlöndum. Meðal helstu fjárfestinga Baugs eru Iceland, House of Fraser, Mosaic Fashions, Hamley´s, Magasin du Nord, Illum og Saks.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.