Morgunblaðið - 08.07.2008, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 23
og frá fyrsta degi var mér vel tekið
af fjölskyldunni. Margar góðar
stundir áttum við saman uppi í
Skorradal, þar sem þau hjónin
höfðu byggt fallegan og notalegan
sælureit, og margar ferðir voru
farnar með strákana okkar Bjössa
niður að vatni, bæði til að veiða og
sigla, og mikið var Hilmar stoltur
þegar komið var í land með silung,
og ekki stóð á honum að gera að
fiskinum og smella á grillið.
Efir fráfall Sísíar fyrir 10 árum
breytist margt, Hilmar stóð sig eins
og hetja, þurfti að sjá um heimilið
og allt sem því fylgir. Einnig eru
mér minnisstæðar margar sögur
sem Hilmar sagði mér frá fyrri tíð
úr Hafnarfirði, og oft var hlegið
dátt, og mikið var gaman þegar
Hilmar og foreldrar mínir voru að
rifja upp gamla tíma úr firðinum, en
þar bjó Hilmar fram til ársins 1993
er þau hjónin fluttu að Árskógum í
Reykjavík.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér.
Og það er svo margs að minnast,
svo margt sem um hug minn fer.
Þó þú sért horfinn úr heimi,
ég hitti þig ekki um hríð.
Þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir.)
Kæri Hilmar, nú er komið að
kveðjustund, og kveð ég þig nú með
þakklæti fyrir allt, hvíl þú í friði.
Þín tengdadóttir.
Birna Katrín Ragnarsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Hilm-
ar Þór Björnsson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu á næstu dög-
um.
Fleiri minningargreinar um Hilm-
ar Jóhannesson bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu á næstu dög-
um.
Tékkóslóvakíu og Austur–Þýska-
lands árin 1988 og 1992. Þar voru
á ferð glaðsinna félagar og vinir.
Hilmar var vakinn og sofinn í að
kvikmynda þetta allt og svo ylj-
uðum við okkur við að horfa á og
lifa þessa sæludaga aftur og aftur,
þökk sé natni og ósérhlífni Hilm-
ars.
Með Hilmari Jóhannessyni er
genginn drengur góður, hlýr og
tryggur vinur. Þau Hrafnhildur og
Hilmar voru einstaklega samrýnd,
miklir félagar, ferðuðust víða og
nutu sín afar vel í félagsskap hvort
annars. Við Rúna færum Hrafn-
hildi og öðrum aðstandendum
Hilmars innilegustu samúðar-
kveðjur.
Lárus Jónsson.
Mér var ekki kunnugt um, að
Hilmar væri veikur, og brá þegar
ég heyrði andlátsfrétt hans. Síðast
hitti ég hann í maí á málþingi í
Ólafsfirði sem haldið var um fram-
tíð staðanna við utanverðan Eyja-
fjörð eftir að jarðgöngin um Héð-
insfjörð verða tekin í notkun.
Ég kynntist Hilmari árið 1957
þegar hann var að læra úrvarps-
virkjun hjá Friðrik A. Jónssyni í
Reykjavík. Ég var að kynna mér
ný tæki (sónar) sem Friðrik var
með umboð fyrir og læra viðgerðir
á þeim.
Ég hafði ákveðið að fara til
Siglufjarðar um vorið og setja upp
rafmagnsverkstæði sem gæti einn-
ig þjónað skipum. Árið eftir voru
þessi tæki komin í flest síldveiði-
skip og mikið um bilanir þar sem
þetta voru lampatæki sem þoldu
illa spennusveiflur.
Hilmar kom þetta sumar til að
hjálpa mér í þessum viðgerðum,
bjó hann hjá okkur að Laugavegi
14, þar sem hann kynnist Sigur-
línu fyrri konu sinni, sem var frá
Ólafsfirði, en hún dvaldist sum-
arlangt hjá systur sinni Önnu.
Árið 1971 tekur Hilmar þátt í
því ásamt fleiri að stofna Félag
rafeindavirkja fiskiflotans sem átti
að standa vörð um hagsmuni,
menntun, kynningu og samstöðu
félagsmanna. Félagið starfaði til
ársins 1985, er þá lagt niður og
flestir félagar gengu í Meistara-
félag rafeindavirkja.
Hilmar lifði miklar breytingar í
sjávarútvegi, hann stóð vaktina frá
því að notkun sónartækja hófst við
síldveiðar og síðar loðnuveiðar til
lokadags. Hann upplifði seinna
síldarævintýrið þar sem skipstjór-
ar sem náðu mestum árangri voru
nánast í tölu dýrlinga.
Hann upplifði líka hrun þess og
breytingar á stjórnun fiskveiða,
sem hafði mikil áhrif á stað eins og
Ólafsfjörð.
Þegar þær breytingar gengu
yfir tók hann sig ekki upp og flutti
burt eins og margir, hann hafði
tekið tryggð við Ólafsfjörð. Eftir
1990 skrifaði hann oft á jólakort til
mín: „hvenær verður byrjað að
bora?“ Hann gerði það ekki með
síðustu kveðju, heldur þakkaði
mér fyrir að mæta á fund eldri
skipatækjamanna, en hann ásamt
fleiri stóð fyrir fundi þeirra í októ-
ber 2007.
Þessi fundur var einkar ánægju-
legur fyrir okkur alla en sérstak-
lega fyrir þá sem elstir voru og
höfðu starfað lengst við þessi við-
fangsefni.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Hilmari áralanga vináttu og rækt-
arsemi sem hann sýndi okkur Auði
og sendum við Hrafnhildi og fjöl-
skyldum þeirra innilegar samúðar-
kveðjur.
Sverrir Sveinsson.
Meira: mbl.is/minningar
✝ Jónína Halldórs-dóttir fæddist í
Reykjavík 9. júlí
1926. Hún lést á
hjúkrunarheimilinu
Skjóli laugardaginn
28. júní síðastliðinn.
Jónína átti heima
fyrstu árin á Týs-
götu 4B. Foreldrar
hennar voru Halldór
Magnússon, bóndi á
Vindheimum í Ölfusi
og síðar verkamað-
ur Reykjavík, f. að
Lágum í Ölfusi 23.8.
1893, d. 9.11. 1978 og Sesselja Ein-
arsdóttir, húsfreyja á Vindheimum
í Ölfusi, síðar í Reykjavík, f. á Þór-
oddsstöðum 13.4. 1901, d. 5.2. 1992.
Systkini Jónínu eru Guðrún, f. 1.3.
1928, Laufey, f. 16.6. 1929, d. 14.9.
1946, Magnea, f. 22.8. 1931 og Haf-
steinn Beinteinn, f. 25.6. 1939.
Jónína giftist 13.11. 1947 Hann-
esi Ingibergssyni íþróttakennara, f.
24.10. 1922. Börn þeirra eru: 1)
Georg Kjartan skrifstofumaður, f.
f. 14.6. 1982, er Ingibjörg Ösp, f.
5.4. 2007. 3) Hjördís líffræðingur, f.
5.4. 1955, giftist 9.7. 1982 Hannesi
Gunnari Sigurðssyni hagfræðingi,
f. 24.8. 1955. Börn þeirra eru Daði
viðskiptafræðingur, f. 13.8. 1979,
Pálmi bifvélavirki, f. 1.7. 1983, og
Snorri nemi, f. 11.4. 1990.
Jónína var í barnaskóla í Hvera-
gerði og Héraðsskólanum á Laug-
arvatni. Hún var í fimleikaflokki
hjá Ármanni í nokkur ár. Árum
saman tók Jónína þátt í leikfimi-
hópi Ásthildar Gunnarsdóttur,
Hress. Jónína var húsmóðir og sá
um heimili og barnauppeldi í mörg
ár en fór að vinna utan heimilis upp
úr fertugu. Fyrst vann hún við inn-
heimtustörf fyrir tryggingafélagið
Sjóvá en síðan sem gæslukona í
Hvassaleitisskóla allt til starfsloka.
Þau Hannes bjuggu alla tíð í
Reykjavík, fyrstu árin á Miklubraut
78, síðan á Hjarðarhaga 60, byggðu
sér hús í Fossvogi að Lálandi 2 en
fluttu þaðan fyrir nokkrum árum
að Skúlagötu 40. Síðustu mánuðina
var Jónína til heimilis á hjúkrunar-
heimilinu Skjóli.
Útför Jónínu fer fram frá Bú-
staðakirkju í dag og hefst athöfnin
klukkan 15.
8.4. 1946, d. 19.7. 1969,
kvæntist 16.6. 1968,
Jóhönnu Björk Jóns-
dóttur, f. 18.5. 1947, d.
11.9. 2007. Sonur
þeirra er Þórir Kjart-
ansson fram-
kvæmdastjóri, f. 21.2.
1969, kvæntur Ás-
laugu Pálsdóttur,
framkvæmdastjóra, f.
4.3. 1973. Sonur Þóris
og Drífu Magnúsdótt-
ur er Kjartan, f. 26.11.
1995. 2) Laufey Bryn-
dís vatnaverkfræð-
ingur, f. 21.6. 1949, giftist 20.8. 1977
Gísla Karel Halldórssyni bygging-
arverkfræðingi, f. 3.6. 1950. Börn
þeirra eru: a) Pálína bygging-
arverkfræðingur, f. 18.9. 1975, gift
Jökli Gíslasyni lögreglumanni, f.
20.10. 1970. Börn þeirra eru Laufey,
f. 14.6. 2002 og Kristín, f. 3.4. 2006.
b) Gauti Kjartan iðnaðarverkfræð-
ingur, f. 30.5. 1978. c) Finnur bygg-
ingarverkfræðingur, f. 24.3. 1982.
Dóttir Finns og Soffíu Hauksdóttur,
Elskuleg vinkona okkar hefur nú
kvatt okkur. Margt höfum við átt
sameiginlegt síðastliðna áratugi. Allt
skemmtilegt og gott. Jónína og eig-
inmaður hennar Hannes, eftirminni-
legur leikfimikennari og ökukennari,
komu inn í „Nýársfagnað“ okkar
sundhópsins, eftir að við tíu saman
höfðum blásið til fagnaðar um nýár ár
hvert, á hinum ýmsu flottu nýárs-
dansleikjum.
Seinna upplýsti Ninna okkar, að
hún hefði verið talsvert taugaóstyrk í
fyrsta sinn. Þess þurfti hún alls ekki.
Hún var sannkölluð „drottning“ með
sitt fallega rauða hár. Síðar fórum við
saman í ótal sumarferðir og börnin
okkar með í för. Ógleymanlegt ætíð.
Ástbjörg leikfimikennarinn okkar
og einnig leikfimihópurinn góði, á
þakkir skildar fyrir afar góðar sam-
verustundir og síðast en ekki síst
ógleymanlegar sýningarferðir, bæði
innan lands og utan.Við stóðum allar
mjög þétt saman. Það var, þegar við
vorum að æfa fyrir eina af þessum
sýningarferðum, sem við gerðum
okkur grein fyrir því, að hún þessi
flotta kona, var ekki eins hún átti að
sér að vera. Og nú er hún farin frá
okkur. Við söknum hennar mjög. Eig-
inmanni og fjölskyldunni allri sendum
við okkar samúðarkveðjur og biðjum
henni guðs blessunar.
Sundhópurinn, leikfimihópur Ást-
bjargar.
Edda Sigrún, Helgi
og fjölskylda.
Jónína Halldórsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
KATRÍN ELSA JÓNSDÓTTIR,
Espigerði 8,
Reykjavík,
varð bráðkvödd á heimili sínu föstudaginn 4. júlí.
Bjarni Ragnarsson, Kristbjörg S. Gísladóttir,
Melíssa Katrín, Gísli Ragnar og Sverrir Tómas,
Alma Eydís Ragnarsdóttir,
Brynja Björk Baldursdóttir,
Anna María Sverrisdóttir,
Guðfinna Inga Sverrisdóttir,
Sigurður Sverrir Sigurðsson.
✝
Ástkær móðir okkar og tengdamóðir,
STEINUNN KRISTJÁNSDÓTTIR,
Dalbraut 27,
Reykjavík,
sem andaðist á Landspítalanum Fossvogi sunnu-
daginn 29. júní, verður jarðsungin frá Háteigskirkju
föstudaginn 11. júlí kl. 13.00.
Oddfríður Lilja Harðardóttir, Þórður Guðmannsson,
Guðmundur Þ. Harðarson, Ragna María Ragnarsdóttir,
Kristján Harðarson, Rut Guðbjartsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
ELÍN JÓSEFSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Langholtsvegi 2,
Reykjavík,
andaðist á Hrafnistu í Reykjavík sunnudaginn
6. júlí.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
31. júlí kl. 13.00.
Jóna Guðbrandsdóttir, Ásbjörn Einarsson,
Einar Jón Ásbjörnsson, Elísabet Reykdal Jóhannesdóttir,
Elín Björk Ásbjörnsdóttir, Gísli Jóhann Hallsson
og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og
langalangafi,
INDRIÐI INDRIÐASON
ættfræðingur,
lést á dvalarheimilinu Hvammi, Húsavík,
föstudaginn 4. júlí.
Indriði Indriðason,
Ljótunn Indriðadóttir,
Sólveig Indriðadóttir, Björn Sverrisson,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
KARL BERGMANN GUÐMUNDSSON,
er látinn.
Halla Jóhannsdóttir,
Anna Karlsdóttir, Ómar Hannesson,
Auður Karlsdóttir, Sigurður Þór Hafsteinsson
Jóhann Ármann Karlsson, Maria Jose Juan Valero,
Hildur Ómarsdóttir, Pétur Pétursson,
Rúnar Ómarsson, Aðalheiður Birgisdóttir,
Karl Bergmann Ómarsson, Hye Joung Park,
Ólöf Halla Sigurðardóttir,
Jóhanna Helga Sigurðardóttir,
Carlos Karlsson Juan,
Yasmin Karlsson Juan.
✝
Elskuleg föðursystir okkar,
HELGA GUÐJÓNSDÓTTIR,
Garðvangi,
Garði,
áður til heimilis á Tjarnargötu 18,
Keflavík,
er látin.
Útför fer fram frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn
11. júlí kl. 14.00.
Guðlaugur Eyjólfsson,
Elísabet Ólafsdóttir
og aðrir aðstandendur.
Fleiri minningargreinar um Jónínu
Halldórsdóttur bíða birtingar og
munu birtast í blaðinu á næstu dögum.