Morgunblaðið - 08.07.2008, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 8. JÚLÍ 2008 35
Besta kaffihúsið í bænum
BRESKA blús- og djasssöngkonan
Adele segir í viðtali við breska
dagblaðið Sunday Mirror að hún
hafi augastað á
Sindra Eldoni,
syni Bjarkar
Guðmunds-
dóttur. Viðtalið
er í styttra lagi
og ber fyr-
irsögnina „Adele
buys Notting
Hill home and
has eye on
Bjork’s son“ (Adele fjárfestir í
húsi í Notting Hill og hefur auga-
stað á syni Bjarkar). Þar segir
Adele að hún hafi hitt Sindra
vegna þess að hún og Björk séu á
mála hjá sama plötufyrirtæki og
að Sindri sé sætur (e. He’s a buff).
Adele skaut upp á stjörnuhimininn
í janúar 2008 þegar hún sendi frá
sér lagið „Chasing Pavements“ og
sat lagið í öðru sæti breska
smáskífulistans í fjórar vikur.
Plata hennar 19 fór svo beint í
fyrsta sæti breiðskífulistans og
var komin í platínusölu á innan við
mánuði.
Adele kom fram í hinum vinsæla
tónlistarþætti Later with Jools
Holland í desember 2007 og deildi
þá sviði með Björk og Paul
McCartney. Hún hefur verið köll-
uð hin næsta Amy Winehouse.
Með augastað á syni Bjarkar
Reuters
Adele Söngkonan hlaut sérstök verðlaun á síðustu Brit-verðlaunum.
Sindri Eldon
„FLESTAR virkilega góðar hryll-
ingsmyndir voru gerðar með tækni-
brellum sem voru kokkaðar upp í
kjallaranum eða bílskúrnum hjá
okkur,“ segir sjálfur meistari hryll-
ingssagnanna, Stephen King, í
greinarkorni í Rolling Stone nýlega.
Hann segir litlar hryllingsmyndir
sem gerðar eru fyrir slikk yfirleitt
heppnast betur og tekur myndir á
borð við Carnival of Souls, Hallo-
ween, The Texas Chainsaw
Massacre, Night of the Living Dead
og The Blair Witch Project sem
dæmi, en engin mynd hefur ávaxtað
fé sitt jafnvel og sú síðastnefnda,
sem kostaði aðeins 22 þúsund dali í
framleiðslu en skilaði 250 milljón
dölum í kassann. King bendir einnig
á að þegar Hollywood festi klærnar í
þessi hugverk og bjó til framhöld og
endurgerðir varð niðurstaðan oftast
mun slakari myndir.
Bragðlausar Hollywoodlokur
Ástæðuna segir hann vera þá að
óttinn sé einstaklingsbundið fyr-
irbæri sem við höldum oftast fyrir
okkur sjálf og því nái litlar, einlægar
hryllingsmyndir betur að framkalla
þennan ótta. Á meðan segir hann
Hollywood-hrollinn oftast vera eins
og „samlokur fylltar með ein-
kennilega bragðlausri skinku og
osti, kjöti sem fyllir magann en gerir
ekkert fyrir sálina.“
Þá segir hann áráttu Hollywood
til þess að útskýra allt skemmi oft
fyrir, hrollur og ótti eigi heima hand-
an rökhugsunar og of miklar útskýr-
ingar eyði öllum háska. Hann hrósar
sérstaklega nýlegri hryllingsmynd
með Liv Tyler, The Strangers, sem
virðist í raun hafa verið kveikjan að
pistlinum, og nefnir ágætis dæmi um
hvernig hún slær stærri myndum
við. Þegar ofsótt hjón spyrja ásækj-
anda sinn af hverju hann vilji murka
úr þeim líftóruna er svarið einfalt og
ógnvekjandi, án þess þó að útskýra
neitt: „Af því þið voruð heima.“
Þó ber líklega að taka því sem
King segir um hryllingsmyndir með
ákveðnum fyrirvara, þótt vissulega
sé hann sérfróður um efnið. Hann
hefur nefnilega alla tíð hatast mikið
við kvikmyndagerð Stanley Ku-
bricks á sögu sinni The Shining, og
gekk meira að segja svo langt að sjá
til þess að önnur mynd yrði gerð
sem fylgdi bókinni betur. Það þarf
hins vegar ekkert að orðlengja það
að þeim örfáu hræðum sem sáu þá
mynd ber flestum saman um að hún
standist engan veginn samanburð
við meistaraverk Kubricks.
asgeirhi@mbl.is
Kóngurinn Stephen King segir
Hollywood ekki kjörlendi fyrir
hryllingsmyndir.
Hinir ókunnu Liv Tyler berst við
ókunnan innbrotsþjóf í The Stran-
gers, sem er í uppáhaldi hjá King.
Hollywood
nær ekki að
hrella
Stephen King seg-
ir bílskúrshryllana
slá Hollywood við