Morgunblaðið - 01.08.2008, Side 1
F Ö S T U D A G U R 1. Á G Ú S T 2 0 0 8
STOFNAÐ 1913
209. tölublað
96. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
Ómissandi
með grillmatnum!
Nýjung
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/S
ÍA
–
0
8
-0
7
2
6
Leikhús
í sumar >> 33
DAGLEGTLÍF
ULLIN HEFUR ALDREI
VERIÐ HEITARI
SPENNANDIUPPSKRIFTIR
Makríll að hætti
Sveins í Fylgifiskum
HUGMYNDIR eru uppi þess efnis að heppilegt væri að
setja útgjaldareglu sem myndi veita hagstjórninni
ákveðið aðhald. Slík regla kæmi í veg fyrir að ríkisút-
gjöld gætu elt skammvinnar góðæristekjur. Nokkur sátt
virðist vera um það meðal hagfræðinga að hið opinbera
eigi að draga úr framkvæmdum í góðæri og halda að sér
höndum en leggjast í framkvæmdir á krepputímum.
„Það hefur samt þótt góð aðferðafræði að halda aftur
af framkvæmdum þegar umsvifastigið er hátt. Margir
bentu einmitt á það þegar teknar voru ákvarðanir um
virkjanaframkvæmdir. Þær voru illa tímasettar með til-
liti til hagsveiflna,“ segir Þórólfur Matthíasson, prófess-
or í hagfræði við Háskóla Íslands.
„Hið opinbera á að standa í framkvæmdum í niður-
sveiflu en spara í
uppsveiflu,“ segir
Ásgeir Jónsson,
forstöðumaður
greiningardeildar
Kaupþings. Hann
segir einnig
miklu ódýrara
fyrir hið opinbera
að fá til sín vinnu-
afl í efnahags-
lægð í stað þess að keppa við einkaframtakið í upp-
sveiflu. „Það eru því bæði hagkvæmnisrök og
hagstjórnarrök sem mæla með því.“ | 6
Er þörf á reglufestingu ríkisútgjalda?
Ríkisútgjöld eltu góðærið
Þórólfur
Matthíasson
Ásgeir
Jónsson
BIFREIÐUM sem ekið er með eftirvagna, s.s. fellhýsi og hjólhýsi, án
þess að réttur útbúnaður sé viðhafður verður kippt úr umferðinni og
þær kyrrsettar þar til úrbætur hafa verið gerðar, að sögn Guðbrands
Sigurðssonar, aðalvarðstjóra hjá umferðardeild lögreglu höfuðborgar-
svæðisins. Hann segir notkun á framlengdum hliðarspeglum mjög
ábótavant en einnig sé nokkuð um að menn dragi stór hjólhýsi á of
litlum bílum. Lögreglan verður með sérstakt umferðareftirlit fyrir og
um verslunarmannahelgina, þá sérstaklega á Suðurlandsvegi og Vest-
urlandsvegi, og er ætlunin að fylgja ökumönnum út úr höfuðborginni.
Auk þess að fylgjast með útbúnaði verður að venju fylgst með ástandi
ökumanna og ökuhraða. Þyrla Landhelgisgæslunnar verður einnig not-
uð um helgina og nýtt hvar sem umferðin er mest. andri@mbl.is
Morgunblaðið/Júlíus
Bifreiðar kyrrsettar sé útbúnaður ekki í lagi
Eftir Önund Pál Ragnarsson
onundur@mbl.is
ÞÓRUNN Sveinbjarnardóttir um-
hverfisráðherra skar í gær úr um að
meta skuli umhverfisáhrif álvers Al-
coa við Húsavík og tengdra virkjana í
sameiningu. Með því sneri hún
ákvörðun Skipulagsstofnunar um að
nýta ekki heimild til þess í lögum um
mat á umhverfisáhrifum. Landvernd
kærði þá ákvörðun.
Þetta getur seinkað undirbúningi
framkvæmdanna eitthvað, að sögn
framkvæmdaraðila, sem segja flestir
að ákvörðunin hafi komið sér mjög á
óvart. Friðrik Sophusson, forstjóri
Landsvirkjunar, er þar á meðal og
Erna Indriðadóttir, upplýsinga-
fulltrúi Alcoa, tekur í sama streng.
Hún segir fyrirtækið í framhaldinu
ætla að skoða hver áhrif úrskurðarins
séu nákvæmlega.
Segir átök í Samfylkingu slæm
Kristján Þór Júlíusson, fyrsti þing-
maður Norðausturkjördæmis, Sjálf-
stæðisflokki, segist mjög hissa. Hann
hafi talið að fyrst álverið í Helguvík
hafi ekki farið í slíkt ferli hlyti Bakki
sömu örlög. „Núna á veröldin að snú-
ast um það að nýta auðlindir landsins
til verðmætasköpunar. En stóra mál-
ið er viðhorf Samfylkingarinnar til
nýtingar á auðlindum landsins. Það er
mjög einkennilegt hvernig þessu
verkefni hefur reitt af í samskiptum
við iðnaðar- og umhverfisráðuneyti,“
segir Kristján. Ekki sé samstaða inn-
an þingflokks Samfylkingar um
hvernig eigi að fara að þessum mál-
um. „Það er greinilegt að þar eru átök
innanborðs. Á meðan þetta skýrist
ekki er það verulega slæmt að mínu
mati.“ | 6
Leiðir til vandaðra matsferlis, segir umhverfisráðherra Ákvörðun sem
endurspeglar átök í Samfylkingu, segir þingmaður Sjálfstæðisflokksins
Í HNOTSKURN
»Umhverfisráðherra segirákvörðun sína í mesta lagi
seinka undirbúningsferlinu
um nokkrar vikur. Á endanum
skili ákvörðunin vandaðra
matsferli og betri ákvörðun.
»Ákvörðun um Helguvíkféll öðruvísi, því þar var
undirbúningur lengra kominn
og gæta þurfti meðalhófs.
Vill heildarmat á Bakka
Annríki er nú hjá flutningabíl-
stjórum á Austurlandi. Verktakar
eru að flytja búnað sinn af virkj-
anasvæðinu við Kárahnjúka og
hreinsa þar til. Búnaðurinn er flutt-
ur til Reyðarfjarðar þar sem hann
bíður flutnings til annarra landa þar
sem Impregilo er með verkefni.
Eimskip og undirverktakar eru
með marga dráttarbíla í stöðugum
ferðum frá Kárahnjúkum til Reyð-
arfjarðar. Áætlað er fara 600 ferðir í
sumar. Hringrás flytur brotajárnið
sömu leið en áætlað er að til falli um
5.000 tonn af járni sem flutt verður
úr landi til endurvinnslu. » 22
Allt flutt til Reyðarfjarðar
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Það var árið
1801 sem Bretinn
Thomas Rudd
var fluttur sjó-
leiðina til Ástr-
alíu til að afplána
sjö ára dóm fyrir
að hafa tekið
poka af sykri
ófrjálsri hendi.
Öllu grimmari
örlög virtust bíða betlarans Mary
Wade sem var dæmd til hengingar
fyrir að stela fatnaði. Hún komst þó
hjá gálganum en var þess í stað
flutt til Nýju-Suður-Wales í Ástralíu
með fangaskipi.
Kevin Rudd, forsætisráðherra
Ástralíu, á líf sitt að launa því að
dómurinn yfir Wade var mildaður.
Það vill svo til að hún er formóðir
hans í fimmta lið en Thomas Rudd,
sem ættarnafn hans er komið frá,
var langalangafi hans, þ.e. í fjórða
lið.
Forsætisráðherranum var skýrt
frá þessu í vikunni og andstætt því
sem einhverjir kynnu að ætla í
fyrstu er uppljóstrunin ekki talin
munu verða honum til trafala.
Þvert á móti er talið að hún muni
styrkja ímynd hans enda vensl við
þjófa álitin heiður í gömlu fanga-
nýlendunni þar sem stéttahroki er
talinn mikill löstur. baldura@mbl.is
Dýrmæt vensl við þjófa
Kevin Rudd