Morgunblaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2008 13 VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÍS L E N S K A S IA .I S T O Y 43 18 1 08 .2 00 8 www.toyota.is BETRI NOTAÐIR BÍLAR ÚRVALSBÍLL GÆÐABÍLL Toyota Kópavogi Nýbýlavegi 4 Kópavogur Sími: 570-5070 Volvo S40 T5 Leður, álfelgur o.fl. 2500 Bensín Turbo sjálfsk. Á götuna: 05.04 Ekinn: 80.000 km Verð: 2.550.000 kr. Skr.nr. VN-343 Chrysler 300C Hemi 5700 Bensín sjálfsk. Á götuna: 01.05 Ekinn: 94.000 km Verð: 3.490.000 kr. Skr.nr. UAV-45 Tilboð: 2.990.000 kr. Lexus LS-430 4300 Bensín sjálfsk. Á götuna: 03.04 Ekinn: 50.000 km Verð: 6.500.000 kr. Skr.nr. KI-222 BNB-sölugreining Bílarnir ganga í gegnum strangt gæðamat sem tekur mið af aldri, akstri og viðhaldssögu bílsins. Þeir sem standast kröfurnar lenda annað hvort í flokknum Úrvalsbílar eða Gæðabílar. Ef bíllinn stenst ekki kröfur okkar bjóðum við þér hann ekki. Núna bjóðum við 6 betri notaða bíla með 12 mánaða viðbótarábyrgð. Hyundai Santa Fe II Sóllúga, leður, 7 sæti, loftkæling, dökkar rúður, dráttarbeisli 2200 Dísel sjálfsk. Á götuna: 03.08 Ekinn: 9.000 km Verð: 5.350.000 kr. Skr.nr. DJG-48 Toyota Prius Bakkskynjarar 1500 Bensín/rafmagn sjálfsk. Á götuna: 01.07 Ekinn: 36.000 km Verð: 3.100.000 kr. Skr.nr. EF-888 SUMIR NOTAÐIR BÍLAR ERU EINFALDLEGA BETRI EN AÐRIR Toyota Land Cruiser 100 Leður, sóllúga, Tems dráttarbeisli 4700 Bensín sjálfsk. Á götuna: 05.05 Ekinn: 78.000 km Verð: 5.990.000 kr. Skr.nr. ZR-843 FRÉTTASKÝRING Eftir Bjarna Ólafsson bjarni@mbl.is UPPGJÖR íslensku bankanna bera þess skýr merki að starfsumhverfi þeirra hefur versnað töluvert í takt við áframhaldandi niðursveiflu á al- þjóðlegum fjármálamörkuðum. Þeir hafa hins vegar nýtt undanfarin misseri til að draga úr skuldsetn- ingu, auka hlutfall innlána í fjár- mögnun sinni og ná fram dreifðari tekjugrunni. Bönkunum hefur tekist að verja sig gagnvart lækkandi gengi krón- unnar og hækkandi verðbólgu. Hreinar vaxtatekjur þeirra allra jukust umtalsvert á fyrri helmingi ársins samanborið við sama tímabil í fyrra og má hækkunina að hluta til rekja til hækkandi verðbólgu. Þannig jukust hreinar vaxtatekjur Glitnis um 79,4% og voru 31,6 millj- arðar á fyrri helmingi árs, hjá Kaupþingi jukust þær um 33,4% í 48,2 milljarða og hjá Landsbanka jukust hreinar vaxtatekjur um 48% og voru 36,2 milljarðar. Virðisrýrnun útlána Gjaldeyrisjöfnuður bankanna jókst einnig á tímabilinu, m.a. vegna gengislækkunar krónu, en jafnframt vegna kaupa á erlendum eignum og gjaldeyri. Þannig jókst gjaldeyrisjöfnuður Glitnis um 110,8 milljarða á fyrstu sex mánuðum ársins, gjaldeyrisjöfnuður Kaup- þings jókst um 122,3 milljarða og gjaldeyrisjöfnuðurLandsbankans um 85,3 milljarða. Efnahagsástandið hefur einnig haft áhrif á lánasöfn bankanna, en niðurfærslur á lánum hjá bönkun- um öllum jukust til muna á fyrri helmingi ársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Þannig námu niðurfærslur hjá Kaupþingi vegna slæmra lána 5,6 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins, en voru 1,1 milljarður á sama tíma í fyrra. Hjá Landsbankanum námu niðurfærsl- ur 10,9 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum þessa árs, en voru rúmir þrír milljarðar á sama tíma í fyrra. Niðurfærslur hjá Glitni voru 8,6 milljarðar í ár, en 1,5 milljarðar á fyrri helmingi síðasta árs. Gengi bréfa fjármálafyrirtækja hefur lækkað mikið undanfarið ár og eru íslensku bankarnir þar ekki undanskildir. Ein aðferða sem not- uð er til að meta fýsileika hluta- bréfa sem fjárfestingu er svokallað V/H hlutfall, eða hlutfall markaðs- virðis á móti hagnaði á ári. Í töfl- unni sem fylgir þessari grein er greint frá hlutfalli markaðsvirðis bankanna þann 30. júní á móti hagnaði á sex mánaða tímabili. Er þetta gert til að bera bankana sam- an að þessu leyti, en hafa ber í huga að í þessu tilfelli er aðeins um að ræða hagnað á fyrstu sex mánuðum ársins, eins og áður segir. Sé þetta haft í huga, er samt sem áður at- hyglisvert að sjá hve Landsbankinn sker sig frá hinum bönkunum tveimur að þessu leyti, en lágt V/H hlutfall getur annað hvort þýtt að umrætt félag sé vanmetið á mark- aði, eða að markaðurinn hafi ekki trú á að það muni skila jafnmiklum hagnaði áfram. Slær á áhyggjur Landsbankinn sker sig jafnframt frá hinum bönkunum tveimur hvað varðar arðsemi eigin fjár, sem var 35%, samanborið við 17% hjá Glitni og 19,8% hjá Kaupþingi. Þá var kostnaðarhlutfall Landsbankans, þ.e. hlutfall kostnaðar á móti tekjum, umtalsvert lægra en hjá hinum bönkunum. Í heildina verður ekki annað séð en að uppgjör bankanna hafi verið góð og ættu því að slá á áhyggjur erlendra aðila, sem sumir hafa vilj- að spá hruni íslenska fjármálakerf- isins. Hafa ber þó í huga að vegna gjaldeyrisjafnaðarins sem áður hef- ur verið getið gæti gengishagnaður bankanna dregist saman styrkist gengi krónunnar á næstunni. Þá er útlit fyrir að þóknunartekjur bank- anna dragist eitthvað saman á næstu mánuðum eftir því sem líður á niðursveifluna á fjármálamörk- uðum. Á móti kemur að Landsbankinn og Kaupþing hafa lagt hart að sér við að stækka umfang innlánsreikn- inga sinna erlendis með ágætum árangri og er fjármögnunarstaða bankanna sterk. Góður árangur í erfiðu árferði                    !   "   #$ ./01 2034 .502% /101% .104 ..06% 710. 1505 .403% /601% .808 ..06% 640/ 605 7/02% 1802% 401 .207%  Hagnaður bankanna þriggja dróst saman á fyrri helmingi ársins, en virðisrýrnun útlána jókst  Hreinar vaxtatekjur jukust umtalsvert vegna aukinnar verðbólgu og gjaldeyrismunur jókst einnig Morgunblaðið/G. Rúnar Lán Innlán Kaupþings jukust um 400 milljarða króna á öðrum ársfjórðungi og segir Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri bankans, að markmiðið sé að innlán verði 50% af heildarútlánum til viðskiptavina Kaupþings fyrir árslok.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.