Morgunblaðið - 05.08.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2008 25
Atvinnuauglýsingar
Sölumaður óskast
Traust fasteignamiðlun sem sérhæfir sig í
miðlun atvinnuhúsnæðis bæði til sölu og leigu
leitar að öflugum sölumanni til starfa sem
fyrst. Í boði eru grunnlaun auk árangurs teng-
ingar. Viðkomandi þarf að vera vel skipulagður
og geta unnið sjálfstætt. Reynsla af sölu-
mennsku æskileg. Fullum trúnaði heitið.
Áhugasamir vinsamlega sendið inn umsóknir á
box@mbl.is merkt: ,,Sölumaður - 21690”.
Raðauglýsingar
Atvinnuhúsnæði
Til leigu
snyrtileg skrifstofuherbergi í Ármúla
og við Suðurlandsbraut.
Mismunandi stærðir. Góð aðstaða.
Upplýsingar í síma 899 3760.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Dýrahald
Ferðalög
www.floridahus.is -
Leiga í Orlando Fl.
Glæsileg hús til leigu í Orlando
Flórída. inf@floridahus.is
Heilsa
Léttist um 22 kg á aðeins
6 mánuðum
LR-kúrinn er tær snilld. Aukin orka,
vellíðan, betri svefn og aukakílóin
hreint fjúka. Uppl. Dóra 869-2024,
www.dietkur.is
Húsgögn
Ameríkst hjónarúm
Til sölu hjónarúm 2 x 210. Ca 5 ára.
Verð kr. 20 þ. Uppl. í síma 820 7534.
Húsnæði í boði
Til leigu þriggja herbergja íbúð
101 m² í Tröllakór Kópavogi, á efstu
hæð með sérinngangi, lyfta í sam-
eign, upplýsingar í síma 823 3993.
Glæsiíbúð í miðbænum til leigu
Glæsileg 140 fm íbúð í lyftuhúsi með
útsýni yfir sjóinn og gamla bæinn til
leigu. Íbúðin er 140 fm að stærð með
suðursvölum og bílskýli í kjallara.
Laus strax. Uppl. í síma 892 8308.
Húsnæði óskast
100% leigjandi!
Rólegur, reglusamur og reyklaus
"strákur" í HÍ, óskar eftir lítilli, ódýrri
íbúð/stúdíó, gjarnan í 101 Rvk. 100%
leigjandi. Eyjólfur: ebe5@hi.is eða
865 8704 (eftir 18:00).
Geymslur
Vetrargeymsla f. hjólhýsi o.fl.
Upphitað, hagstæð kjör, fá pláss,
pantið stax. Uppl. 695 0495.
Sumarhús
Sumarhús - orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg og
vönduð sumarhús í ýmsum stærðum.
Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbúin
hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
Rotþrær, heildarlausn (“kit”)
á hagstæðu verði. Sérboruð siturrör,
fráveiturör og tengistykki.
Einangrunarplast og takkamottur.
Borgarplast, Seltjarnarnesi, sími
561 2211. Heimasíða:
www.borgarplast.is
Falleg og vönduð sumarhús frá
Stoðverk ehf. í Ölfusi.
Gott verð. Teiknum eftir óskum kaup-
enda, sýningarhús á staðnum. Einnig
til sölu lóðir á Flúðum.
Símar: 660 8732, 660 8730,
892 8661, 483 5009.
stodverk@simnet.is
Til sölu
Ævintýralega létt stígvél
Aðeins 440 g parið. Stærðir 38-46.
S - XL
Einstaklega þægileg til að hafa í
bílnum, sumarbústaðnum eða í
útileguna. Verð 3.710 kr.
Jón Bergsson ehf.
Kletthálsi 15,
110 Rvk.
Sími. 588 8881.
Íslenskur útifáni
Stór 100x150 cm. 3.950 kr.
Krambúðin,
Skólavörðustíg 42,
Reykjavík, sími 551 0449.
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Ýmislegt
Tískuverslunin Smart,
Grímsbæ/Bústaðavegi
Nýkomið, buxur 100% bómull,
jakki 100% bómull, peysa silki
og bómull.
Opið laugardag 11-15
Sími 588 8050
Nýjar skolplagnir!
Endurnýjum lagnir með nýrri tækni!
Enginn uppgröftur, lágmarks truflanir,
auknir rennslis eiginleikar. Fullkomin
röramyndavél.
Ástandskoðum lagnakerfi.
Allar pípulagnir ehf.
Uppl. í síma 564-2100.
Bílar
Toyota Rav4 VX, nýi - árg. 09.´06
Bíll sem nýr, ekinn 10 þús. km,
sjálfskiptur, leður. 17” álfelgur, sam-
litir listar. Verð 3,900 millj. Nývirði
5,2 millj. Bílalán. Ath. skipti á ódýrari.
Sími: 690 2577.
Þjónustuauglýsingar 5691100
STUNDUM er haft á orði að það
sé kalt á toppnum og það kann jafn-
vel að eiga við um indverska heims-
meistarann Wisvanathan Anand.
Anand hefur um langt skeið verið
einn þekktasti og dáðasti afreksmað-
ur Indverja og þaðan fylgja honum
góðar óskir hvar sem hann gengur.
Mikil stemning skapaðist á dögunum
í þýsku borginni Mainz þar sem fram
fór mikil skákhátíð og meðal dag-
skrárliða var fjögurra manna at–
skákmót með þátttöku Anands,
Magnúsar Carlssonar, Alexanders
Morosevits og Judit Polgar. Tefld
var einföld umferð og tveir efstu átt-
ust síðan við í fjögurra skáka einvígi.
Margir vonuðust eftir að Anand og
Magnús hrepptu efstu sætin og sú
varð raunin.
Lokastaðan varð þessi:
1. Wisvanathan Anand 4 v. (af 6).
2. Magnús Carlsson 3½ v.
3. Alexander Morosevits 3 v.
4. Judit Polgar 1½ v.
Þegar þessu var lokið settust An-
and og Magnús niður og tefldu fjórar
atskákir, 25 5 um fyrstu verðlaun.
Anand virðist vera í frábæru formi
um þessar mndir og vann öruggan
sigur, 3:1. Hann lagði Magnús í
fyrstu tveim skákunum og síðan
gerði hann jafntefli í tveim þeim
næstu. Kannski hefur Norðmaður-
inn verið þreyttur eftir mótið í Biel á
dögunum þar sem hann missti naum-
lega af sigri og jafnvel þó svo atskák-
ir séu ekki jafnmarktækar og skákir
með fullum umhugsunartíma þá er
sigurinn ótvíræð vísbending um að
Indverjinn eigi góða möguleika á að
verja titil sinn þegar hann mætir
Kramnik í Bonn í haust. Sigur hans í
fyrstu skákinni fer hér á eftir. Magn-
ús hefur verið að tefla dreka–af-
brigði sikileyjarvarnar með góðum
árangri en þarna hitti skrattinn
ömmu sína, Anand er einfaldlega
frábær gegn sikileyjarvörn og þekk-
ir þar alla krákustíga út og inn. Hér
koma fyrir nokkur klassísk atriði,
peðasókn á kóngsvæng og skipta-
munarfórn á c3. Magnús reynir að
lokum að verja stöðu með hrók gegn
drottningu en lendir ávallt í leik-
þröng og hlýtur að tapa:
1. einvígisskák:
Wisvanathan Anand – Magnús
Carlsen
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 g6 6. Be3 Bg7 7. f3
Rc6 8. Dd2 0-0 9. Bc4 Bd7 10. Bb3
Hc8 11. 0-0-0 Re5 12. Kb1 a6 13. h4
h5 14. g4 hxg4 15. h5 Rxh5 16. Hdg1
Da5 17. Bh6 Hxc3 18. Bxg7 Kxg7
Sjá stöðumynd
19. Hxh5 Hxb3 20. Dxa5 Hxb2+
21. Ka1 gxh5 22. f4 Be6 23. Rxe6+
fxe6 24. fxe5 Hb5 25. Dc7 Hxe5 26.
Dxe7+ Hf7 27. Dxd6 Hxe4 28. Hh1
Hf5 29. De7+ Kg6 30. De8+ Kg7 31.
Hd1 Hd5 32. Hxd5 exd5 33. Dxh5 b5
34. Dg5+ Kh7 35. Dxd5 Ha4 36. Dg5
Hc4 37. Kb2 Hb4+ 38. Kc1 Ha4 39.
a3 Hc4 40. Kd2 Hd4+ 41. Ke1 Ha4
42. Kf1 Hc4 43. Kg1 Hc6 44. Dd5
Hg6 45. a4 bxa4 46. Dd7+ Kh6 47.
Dxa4 Kg5 48. c4 Kf5 49. c5 Ke5 50.
Dd7
– og svartur gafst upp.
Öflugur keppendalisti
á Skákþingi Íslands
Keppni í landsliðsflokki á Skák-
þingi Íslands hefst 29. ágúst nk. Alls
hafa 12 skákmenn skráð sig til leiks
og lítur keppendalistinn þannig út:
Hannes Hlífar Stefánsson, Héðinn
Steingrímsson, Henrik Danielssen,
Stefán Kristjansson, Þröstur Þór-
hallsson, Jón Viktor Gunnarsson,
Björn Þorfinnsson, Magnús Örn Úlf-
arsson, Bragi Þorfinnsson, Róbert
Harðarson, Þorvarður F. Ólafsson
og Jón Árni Halldórsson.
Hannes Hlífar Stefánsson er
Skákmeistari Íslands en hann hefur
unnið mótið nær óslitið frá árinu
1998 að árinu 2000 undanskildu þeg-
ar Jón Viktor Gunnarsson sigraði.
Þessir tveir ásamt Héðni Stein-
grímssyni, sem vann eftirminnilegan
sigur árið 1990, eru þeir einu í hópi
keppenda sem orðið hafa Íslands-
meistarar.
Guðmundur teflir á HM
unglinga 20 ára og yngri
108 skákmenn taka þátt í heims-
meistaramóti unglinga 20 ára og
yngri í Gaziantep í Tyrklandi. Guð-
mundur Kjartansson er fulltúi Ís-
lands á mótinu. Guðmundur tapaði
fyrir kínverska skákmanninum
Liem Le Quang í fyrstu umferð en
Kínverjinn er talinn einn af sigur-
stranglegustu skákmönnum móts-
ins.
Anand er verðugur heimsmeistari
Bestur í dag Wisvanathan Anand teflir við Magnús Carlsson í Mainz í Þýskalandi.
SKÁK
Mainz, Þýskalandi
Vann úrslitaeinvíg-
ið við Magnús
Carlsen á skák-
hátíðinni í Mainz
1.-3. ágúst 2008
Helgi Ólafsson | helol@simnet.is