Morgunblaðið - 22.08.2008, Síða 44
ÞÓTT sumri halli og senn komi haust eru tækifæri til
heilnæmrar útivistar enn fyrir hendi og eru ýmsir á
þeirri skoðun að besti árstíminn fyrir göngutúra sé
síðsumars. Þessi unga stúlka verst súldinni með regnhlíf-
ina að vopni. Áfram verður veður vott og því þjóðráð að
draga fram regnhlífar í haustrigningunum.
Morgunblaðið/Ómar
Við öllu búin
í vætunni
FÖSTUDAGUR 22. ÁGÚST 235. DAGUR ÁRSINS 2008
»MEST LESIÐ Á mbl.is
»VEÐUR mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 200 ÁSKRIFT 2950 HELGARÁSKRIFT 1800 PDF Á MBL.IS 1700
SPARIÐ MEIRA EN HELMING MEÐ ÁSKRIFT
Morgunblaðið bíður
eftir þér þegar þú
vaknar á morgnana
ÞETTA HELST»
Leiguíbúðafélög í sókn
Ný leiguíbúðafélög eru að spretta
upp og sækja nú fimm til tíu félög
um staðfestingu félagsmálaráðherra
í hverjum mánuði. Dæmi eru um að
leiguíbúðafélög í eigu byggingaverk-
taka hafi tekið íbúðalán hjá Íbúða-
lánasjóði á þessu ári. » 2
Samvinna um björgun
Landhelgisgæslan og bandaríska
strandgæslan æfðu í vikunni við-
brögð við neyðarkalli frá skemmti-
ferðaskipi. Æfingin gekk vel og telja
Gæslumenn nauðsynlegt að eiga
samstarf við aðrar þjóðir á sviði
björgunarmála. » 4
Þrjú „framhjáhlaup“
Stefnt er að því að opna tvöfalda
Reykjanesbraut hinn 16. október.
Þrjú svonefnd framhjáhlaup eru á
veginum þar sem framkvæmdir
standa yfir. Með þeim er umferð á
ákveðnum kafla beint frá venjulegri
akstursleið vegna framkvæmda. » 6
SKOÐANIR»
Staksteinar: Ekkert umboð án …
Forystugrein: Nýr borgarstjóri –
nýr pólitískur tónn
Ljósvaki: Þykistu geta dansað?
UMRÆÐAN»
Íslenskur landbúnaður í fortíð, nútíð
og framtíð
Hverjir eru velkomnir í Kópavog?
Umhverfismat fyrir Bakka ætti …
Vistvæn yfirhalning bensínháka
Vélarbilanir geta verið erfiðar …
Hart barist í sveitum landsins
Loeb vinnur þýska rallið sjöunda …
BÍLAR »
2
2 2
2 2 3$ )4! -(
)
5
2
2
2 2 2 2 2
+6&0 !
2 2 2 2
2 2 7899:;<
!=>;9<?5!@A?7
6:?:7:7899:;<
7B?!66;C?:
?8;!66;C?:
!D?!66;C?:
!1<!!? E;:?6<
F:@:?!6=F>?
!7;
>1;:
5>?5<!1(!<=:9:
Heitast 18°C | Kaldast 11°C
Sunnan og suðvestan
5-13 m/s og skýjað en
ú́rkomulítið fram eftir
degi. Síðdegis rignir
fyrir sunnan og vestan. » 10
Á hvað hlusta hlaup-
arar til að komast í
rétta gírinn? Til
dæmis U2, Toto og
Taio Cruz. Líka Seb-
astian Tellier. » 36
ÍÞRÓTTIR»
Ís, urr og
eldmóður
AÐALSMAÐUR»
Segir íslenska karlmenn
frekar seinþroska. » 39
Stöð 2 býður upp á
nýja íslenska þætti í
vetur, en leikið ís-
lenskt efni er í for-
gangi. Þar á meðal
er Dagvaktin. » 35
SJÓNVARP»
Grín, lög og
rómantík
KVIKMYNDIR»
Draugur í harmleik á
Shorts & Docs. » 38
TÓNLIST»
Lay Low í viðtali í Bill-
board-tímaritinu. » 34
reykjavíkreykjavík
VEÐUR»
1. Skreið út úr brennandi flakinu …
2. Gísli Marteinn fær launahækkun
3. Andlit Iceland gjaldþrota
4. Svik, lygi og pólitísk slátrun
Íslenska krónan styrktist um 0,4%
Margir spara
peninga með því
að búa til heima-
gerðar pitsur.
Kostnaður við
slíka dásemd er
ekki mikill þegar
hráefnið er ein-
falt, en ætli fólk
hins vegar að
splæsa aukalega í sælkeravörur
getur það verið varasamt. Dæmi
um vöru sem getur tvöfaldað hrá-
efniskostnað einfaldrar pitsu eru
kryddlegnir ætiþistlar frá Sacla.
Ein krukka sem inniheldur 285
grömm af kryddlegnum ætiþistlum
frá Sacla kostar 755 kr. í Krónunni
í Jafnaseli, og 794 kr. í Þinni versl-
un við Seljabraut. Sama vara er
dýrust í Nóatúni, en þar kostar
krukkan 859 kr.
Þótt kostnaður við heimagerða
pitsu með sælkerahráefnum slagi
hátt upp í heimsenda böku, er upp-
lifunin sennilega ekki sambærileg.
liljath@mbl.is
Auratal
Íslenska lands-
liðið í hand-
knattleik fær
ekki keppnisrétt
á heimsmeist-
aramótinu í
greininni og
gildir einu hvernig fer á Ól-
ympíuleikunum. Hefur borið
á því að margir telji svo vera
en það er ekki rétt. Ekkert
sæti á ÓL gefur sæti á HM
sem fram fer í Króatíu í byrj-
un næsta árs. Voru umspils-
leikir Íslands gegn Makedón-
íu í byrjun sumars eina
tækifærið til að komast þang-
að.
Veronica Campbell Brown
vann 200 metra
spretthlaupið á leik-
unum í gær en sá ár-
angur þýddi að
keppendur frá Ja-
maíku unnu allar spretthlaups-
keppnisgreinar Ólympíu-
leikanna að þessu sinni. Áður
hafði hinn magnaði Usain Bolt
unnið 100 og 200 metra sprett-
hlaup karla og Shelly-Ann Fra-
ser vann 100 metra sprett-
hlaupið í kvennaflokki.
Rohullah Nikpai frá Afgan-
istan fer vænt-
anlega afar sáttur
frá Kína. Þessi
fyrsti gull-
verðlaunahafi
lands síns á ÓL, í taek-
wondo, nældi sér ekki aðeins
í gullverðlaun heldur fékk
hús og bíl í kaupbæti. Húsið
að gjöf frá Hamid Karzai
forseta landsins og bílinn frá
afgönsku fjárfestingarfyr-
irtæki. » íþróttir
INN á borð mannanafnanefndar hafa borist 35 nöfn síð-
an í mars. Þar af voru 22 samþykkt, 11 var hafnað en
ákvörðun um tvö nöfn var frestað. Meðal annarra voru
samþykkt kvennanöfnin Asírí, Elsí og Bassí. Karlmanns-
nöfnin Sporði, Skær, Rúbar og Öxar hlutu náð fyrir aug-
um nefndarinnar sem og millinöfnin Vattar og Þor.
Skilyrði þess að nöfn fáist samþykkt eru að þau taki
eignarfallsendingu eða hafi unnið sér sess í íslensku
máli. Nafn skal samræmast íslensku málkerfi og ritað
samkvæmt íslenskum ritreglum nema hefð sé fyrir öðru.
Þá má nafn ekki vera þeim sem það ber til ama.
Þóttu kvennmannsnöfnin Veronica, Franzisca, Dórat-
hea og Josefine ekki uppfylla þessi skilyrði. Jósefín var
þó samþykkt en úrskurðarbeiðandi sótti um það til vara
yrði Josefine ekki talið uppfylla skilyrði laga.
Karlmannsnöfnin Theo, Damian, Carlos og Styrr voru
ekki talin uppfylla skilyrði laga um mannanöfn. Þrjú
fyrstnefndu nöfnin þóttu ekki falla að íslensku máli.
Styrr var hafnað þar sem ekki var talin hefð fyrir rit-
hættinum þó það komi fram í fornum heimildum. Í úr-
skurðinum segir að saga þess til forna sé stutt og því sé
það ekki samþykkt. skulias@mbl.is
Rúbar samþykkt, Styrr hafnað
UM ÞESSAR mundir hefja um
fjögur þúsund börn skólagöngu
fyrsta sinni og upphaf skólagöng-
unnar eru mikil tímamót í lífi for-
eldra og barna.
„Þær rannsóknir sem ég hef gert
benda til þess að flest börn hlakki
til að byrja í grunnskólanum en
beri jafnframt nokkurn kvíða í
brjósti og eftirsjá eftir leikskólan-
um,“ segir dr. Jóhanna Einarsdótt-
ir.
Hún hefur gert nokkrar rann-
sóknir á upplifun barna og foreldra
við upphaf skólagöngunnar. Jó-
hanna veitir forstöðu RannUng,
sem er rannsóknarstofa í mennt-
unarfræðum ungra barna við
menntavísindasvið Háskóla Ís-
lands.
Áhrif foreldra á skólagöngu
barna hafa verið könnuð í fjölda
rannsókna og ljóst er að þeir gegna
lykilhlutverki á þeim mikilvægu
tímamótum í lífi barna sem upphaf
skólagöngunnar er.
Jóhanna segir að niðurstöðurnar
bendi til þess að jákvæð sameig-
inleg þátttaka þeirra í skólastarf-
inu og jákvæð samskipti við skól-
ann hafi áhrif á velgengni barna og
vellíðan í skólanum. | 22
Ögurstund foreldra
Ingibjörg Helga Baldursdóttir ritar
grein um afleiðingar eineltis. Sonur
hennar varð fyrir slæmu einelti í
grunnskóla og barðist við afleiðing-
arnar allt sitt líf. Hann fyrirfór sér
fyrir stuttu. „… hann hafði ekki leng-
ur bolmagn til að takast á við lífið –
svo brotinn var hann eftir áralangar
misþyrmingar,“ skrifar Ingibjörg.
Hún bendir jafnframt foreldrum á
leiðir til að fylgjast með líðan barna
sinna í skólanum. | Miðopna
Afleiðingar eineltis
4.000 börn hefja skólagöngu fyrsta sinni Flest börn
hlakka til en kvíða jafnframt fyrir Foreldrar mikilvægastir