Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ALEXANDER Morosevits held- ur naumri forystu á minningar- mótinu um Mikhail Tal sem nú stendur yfir í Moskvu. Moro hefur hlotið 4½ vinning úr sex skákum en Vasilí Ivantsjúk kemur fast á hæla hans með 4 vinninga. Ivantsjúk lagði Peter Leko að velli með svörtu í 5. umferð. Þessir tveir efstu eru óneitanlega litríkustu skákmennirn- ir í mótinu og enginn annar hefur gert sig líklegan til að blanda sér í baráttuna um efsta sætið. Staðan þegar þrjár umferðir eru eftir: 1. Alexander Morozevich (Rússland) 4½ v. 2. Vasilí Ivantsjúk (Úkraína) 4 v. 3. Boris Gelfand (Ísrael) 3½ v. 4.-6. Shakriyar Mamedyarov (Aserbadsjan), Ruslan Ponomariov (Úkraína), Vladimir Kramnik (Rússland) 7.-9. Evgení Alekseev (Rússland), Peter Leko (Ungverjaland), Gata Kamsky (Bandaríkin) 2½ v. 10. Alexei Shirov (Spánn) 1½ v. Þeir sem efast eitthvað um þá hæfileika Morosevits að skapa óvenjulegar stöður ættu að kynna sér eftirfarandi skák sem tefld var á sjöttu umferð. Peðsleikir Moro, 6. c6 og 12. g4 og jafnvel 14. b4 eru stór- kemmtilegir og hann virðist alltaf halda taktísku jafnvægi þrátt fyrir að alls kyns brellur felist í stöðunni. Ponomariov verður að láta mann af hendi en úrvinnslan vefst ekki fyrir Morosevits sem þarna tryggði stöðu sína á toppnum: Minningarmót um Tal; 6. umferð: Alexander Morosevits – Ruslan Ponomariov Nimzoindverk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 0–0 5. Rf3 c5 6. dxc5 Ra6 7. c6 dxc6 8. a3 Bxc3+ 9. Dxc3 Rc5 10. Be3 Rce4 11. De5 b5 Sjá stöðumynd. 12. g4 c5 13. g5 Da5+ 14. b4 cxb4 15. gxf6 Bb7 16. Bd2 Hfc8 17. Bxb4. Db6 18. c5 Dd8 19. Hg1 g6 20. Hd1 Dxf6 21. c6 Bxc6 22. Hg4 Dxe5 23. Rxe5 f5 24. Rxc6 Hxc6 25. Bg2 a5 26. Bxe4 fxe4 27. Bd2 Hc4 28. Hg5 Ha4 29. Hxb5 Hxa3 30. Hb7 a4 31. Bf4 Hb3 32. Hxb3 axb3 33. Hb1 e3 34. Bxe3 Hb8 35. Kd2 Hb4 36. f3 e5 37. Bf2 – og svartur gafst upp. Skákþing Íslands hefst í dag Guðmundur Kjartansson tekur sæti Héðins Steingrímssonar, Ís- landsmeistara frá árinu 1990, í landsliðsflokki á Skákþingi Íslands sem hefst í dag. Samhliða keppni í landsliðsflokki fer einnig fram keppni í áskorendaflokki. Hannes Hlífar Stefánsson hefur haldið Ís- landsmeistaratitilinum nærri óslitið síðan 1998 en sá sá eini í hópnum sem einnig hefur orðið Íslands- meistari er Jón Viktor Gunnarsson sem sigraði árið 2000. Hannes hefur samtals orðið Íslandsmeistari níu sinnum oftar en nokkur annar. Sumir eru búnir að bíða ansi lengi eftir fyrsta titlinum; Þröstur Þór- hallsson hefur tekið þátt í næstum hverri einustu landsliðskeppni síðan 1986. Keppendalistinn í stigaröð er þessi: Hannes Hlífar Stefánsson, Henrik Danielssen, Stefán Kristjánsson, Þröstur Þórhallsson, Jón Viktor Gunnarsson, Björn Þorfinnsson, Magnús Örn Úlfarsson, Bragi Þorfinnsson, Róbert Harðarson, Guðmundur Kjartansson, Þorvarður F. Ólafsson, Jón Árni Halldórsson. Í áskorendaflokkki er Sigurbjörn Björnsson stigahæstur keppenda en aðrir sigurstranglegir keppendur eru Lenka Ptacnikova, Sævar Bjarnason, Omar Salama, Sverrir Þorgeirsson og Daði Ómarsson. Ef að líkum lætur getur þetta mót orð- ið afar skemmtilegt og má búast við harðri baráttu um efsta sætið. Tafl- mennskan hefst kl. 17 í landsliðs- flokki en kl. 18 í áskorendaflokki. teflt er í Skákhöllinni við Faxafen. Yfirburðir „Æskunnar“ Kínverski stórmeistarinn Yue Wang, sem var einn sigurvegara á síðasta Reykjavíkurmóti vann allar fimm skákir sínar í keppni „Æsk- unnar“ gegn „Reynslunni“ sem lauk í Amsterdam um helgina. „Reynsl- an“ fékk háðulega útreið, tapaði 6:19 og Victor gamli Kortsnoj var sá eini sem vann skák þar á bæ en það gerðist í síðustu umferð. Ekki seinna vænna því þarna komst Kortnsnoj á blað en hann hlaut 1 vinning úr fimm skákum sem var þó ekki lakasti árangur „Reynslunnar“ því Artur Jusupov náði aðeins einu jafntefli. „Æskuliðið“ var skipað til- tölulega lítt þekktum skákkmönn- um: Yue Wang, Ivan Cheprainov frá Búlgaríu, Daniel Stellwagen frá Hollandi, Fabiano Caruna frá Ítalíu og Erwin LÁmi frá Frakklandi sem var með lakasta árangurinn, 50% vinningshlutfall en Simen Agdestein náði bestum árangri „Reynslunnar“ og hlaut 2 vinninga úr fimm skák- um. Líklega verða gerðar einhverja breytingar á þessu liðið þegar og ef þessi keppni fer aftur fram. Morosevits og Ivantsjúk berjast um efsta sætið Morgunblaðið/Ómar Titilvörn Hannes Hlífar hefur orðið Íslandsmeistari níu sinnum á árun- um 1998 – 2007. SKÁK Moskva, Rússland Minningarmótið um Tal 17.-31. september 2008 Helgi Ólafsson | helol@simnet.is Elsku amma. Þú lifðir löngu lífi og ég fékk þann heið- ur að kynnast þér þegar þú varst að ganga inn í ellina ásamt manni þínum og afa mínum, Aðalsteini Eggertssyni. Ég man sérstaklega vel eftir öllum matar- boðunum sem haldin voru í Skerja- firðinum og þá aðallega jólaboðun- um þar sem ávallt var góð stemning og notalegt. Það var líka oft gaman hjá okkur þegar ég fékk að gista á Bauganesinu með ykkur hjónunum og pössuðuð þið vel upp á mig. Síðan féll afi frá fyrir tæpum áratug og skiptunum fækkaði sem ég gisti á Bauganesinu en næstu árin kom ég þó stundum við í heimsókn, bæði á Bauganesinu og á Grandaveginum, Jónína S. Snorradóttir ✝ Jónína SesseljaSnorradóttir fæddist á Eskifirði 26. júní 1921. Hún lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 9. ágúst síð- astliðinn og fór út- för hennar fram frá Fossvogskirkju 19. ágúst. þar sem þú hafðir oft gaman af því að segja mér sögur og senda mig niður í sjoppu til að kaupa eitthvert smáræði. Þegar þú veiktist fyrir nokkrum árum og fórst að búa á Grund fækkaði sam- verustundunum þó- nokkuð og hittumst við þá aðallega í kring- um hátíðarnar en þú hafðir alltaf þægilega nærveru hvar sem þú komst og fannst okkur bræðrunum ávallt gaman að hitta þig. Við bræðurnir munum aldrei gleyma þér og öllu sem þú kenndir okkur. Takk fyrir okkur. Aðalsteinn Eggertsson, Daníel Eggertsson og Stefán Eggertsson. Fyrstu bernskuminningar mínar tengjast margar Diddu frænku, Adda og strákunum í Skerjó. Allar þær minningar eru ljúfar og góðar. Eins og þegar mamma og pabbi voru á leið í veiði og ég fór í pössun hjá þeim. Fyrstu mínúturnar voru alltaf erfiðar, ég stóð við glugga á efri hæðinni og horfði tárvotum aug- um á eftir bíl foreldra minna. Didda var vön að gefa mér næði í nokkrar mínútur en svo kom hún, tók utan um mig, brosti sínu glettna brosi, sagði nokkur huggunarorð og leiddi mig niður í eldhús þar sem hún gaukaði að mér einhverju góðgæti. Eftir skamma stund hafði ég tekið gleði mína, var komin í bílaleik með strákunum sem áttu mikið af falleg- um Matchboxbílum og ég fékk jafn- vel að vera á löggubílnum. Eða þá að það var farið í eltingaleik þar sem allt húsið var leikvöllurinn. Úr her- bergi á efri hæðinni var taurenna niður í þvottahús. Það var hreint ævintýri fyrir litla kroppa að renna sér þar niður og lenda á mjúku tauinu í taukörfu, hlaupa síðan sem fætur toguðu í gegnum allt húsið upp á efri hæð og endurtaka leikinn – aftur og aftur. Didda hafði ótrú- lega þolinmæði með þessum ærsla- belgjum en oft var hópurinn stór því gjarna voru fleiri systkinabörn þeirra Adda þar í pössun. Húsið í Bauganesinu var ekki bara ævintýraheimur fyrir ærsla- fulla krakka heldur líka sérlega smekklega innréttað af þeim hjón- um og þrátt fyrir allan hamaganginn tókst Diddu ætíð að halda því snyrti- legu. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN LÁRUS GUÐNASON, Jökulgrunni 14, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Áskirkju fimmtudaginn 28. ágúst kl. 11.00. Sigþóra Scheving Kristinsdóttir, Guðrún Linda Jónsdóttir, Pálmi Bergmann Vilhjálmsson, Íris Björk Jónsdóttir, Kristmundur Carter, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför bróður okkar, mágs og frænda, GUNNARS MAGNÚSSONAR SALÓMESONAR, Kópavogsbraut 5-7, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á deild 18 og 19 á Landspítala við Kópavogsbraut. Þorsteinn Magnússon, Halla Bachmann Ólafsdóttir, Salóme McInnis, Melvin McInnis, Guðmundur Magnússon, Vaka Hrund Hjaltalín og frændsystkini. ✝ Innilegar þakkir eru færðar þeim sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, PÁLS H. PÁLSSONAR, Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík. Sérstakar þakkir viljum við færa Kiwanishreyfing- unni og Frímúrarareglunni fyrir veittan stuðning. Einnig viljum við þakka starfsfólki Landspítalans við Hringbraut deild 13-G og gjörgæsludeild fyrir góða umönnun. Guð blessi ykkur öll. Bryndís Guðmundsdóttir, Hildur Pálsdóttir, Hafsteinn Garðarsson, Gísli Pálsson, Katrín Pálsdóttir, Ingibjörg Pálsdóttir, Steinar Berg Ísleifsson, Birna Pálsdóttir, Helgi Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum innilega allar samúðarkveðjur vegna andláts móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, UNNAR GUÐJÓNSDÓTTUR. Einnig viljum við þakka starfsfólki Seljahlíðar og heimilisfólki fyrir alla umhyggju og kærleika sem það veitti henni. Sjöfn Guðmundsdóttir, Guðni Þórðarson, Heba Guðmundsdóttir, Orri Hjaltason, Ágústína Guðmundsdóttir, Pétur Gunnlaugsson, Guðjón Guðmundsson, Sigríður Káradóttir, ömmubörn, langömmu- og langalangömmubörn. ✝ Okkar ástkæri MAGNÚS PÉTUR KRISTJÁN SUMARLIÐASON, Dvalarheimilinu Hlíð, Akureyri, lést sunnudaginn 17. ágúst. Útför hans hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Við viljum senda sérstakar þakkir til starfsfólksins í Hlíð fyrir góða umönnun. Maríanna Ragnarsdóttir, Sigurbjörg Ármannsdóttir, systkini og aðrir aðstandendur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.