Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 27.08.2008, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. ÁGÚST 2008 37 Eftir Arnar Eggert Thoroddsen arnart@mbl.is JAZZHÁTÍÐ Reykjavíkur hófst í gær með dynjandi sveiflu. Hver við- burðurinn rekur annan næstu daga en slit hátíðar verða nú á laugardag- inn. Á meðal þeirra sveita sem kem- ur fram er sveit saxófónleikarans Hauks Gröndals, Lester Young Tri- bute Band, en hljómdiskur með henni, Nevertheless, kom út fyrir stuttu. Sveitt og tryllingslegt Haukur segist hafa komið sveit- inni á legg í janúar 2007, stuttu eftir að hann var alfluttur hingað frá Kaupmannahöfn. „Ég er að skoða þetta sveiflu- tímabil á þriðja og fjórða áratugnum. Ég varð fyrir nokkrum áhrifum af djasssenu Kaupmannahafnar en þar er djassinn ekkert endilega alltaf í þessu gjarnan stífa tónleikaformi. Þetta eru sveittar kvöldstundir sem ná stundum langt fram á nótt og bandið er ofan í gestunum í tryllings- legri sveiflu. Útgangspunkturinn er að skemmta.“ Haukur segir Lester Young hafa verið fyrstu ástina sína ef svo má segja, tónlist hans hafi kveikt í sér og með þessari plötu sé hann að vonast til að koma fagnaðarerindinu á fram- færi. Á tónleikum sínum á Jazzhátíð mun sveitin ennfremur fást við ís- lenskt efni frá sama tíma. „Þegar bandið fór í gang byrjaði ég líka að hugsa um viðlíka íslenska tónlist. Þannig að við ætlum jafn- framt að endurvekja og skírskota í hljóm KK-bandsins og fáum því Ragnar Bjarnason og víbrafónleik- arann Reyni Sigurðsson til liðs við okkur. Þetta er ekki ólíkt því sem Siggi Hjálmur og Memfísmafían er að gera: þessi leit að gömlum, hlýjum hljóm og rannsókn á gömlu og gildu íslensku efni. Ég veit ekki hvað það er nákvæmlega sem er að stýra manni í þessar áttir, en það er klárt að það var margt gott og gegnt unnið hér á landi og margt af því stefnir beinustu leið í glatkistuna. KK lést þá í ár og við erum því að heiðra minningu hans um leið.“ Söngvarinn Haukur Haukur gerir nokkuð af því að syngja á plötunni og segir hann að slíkt hafi tíðkast á þessum árum, það er að hljómsveitarstjórinn syngi nokkur lög. „Þetta er svona minni úr gömlum sjóbisness. Það er gaman að brjóta þetta upp með svona innslögum. Ég hef alltaf haft sterka þörf fyrir að syngja og læri t.a.m. lög með því að læra að syngja þau fyrst. En þetta er ekkert háalvarlegt mál, þetta passar bara vel þarna inn.“ Haukur hefur verið í fjölda ann- arra sveita, má þar nefna Rodent, Schpilkas, Bardukha, Rayon- kvartett og Krummafót. „Ég sinni þessu í bylgjum, það er skorpuvinna í einhvern tíma og svo liggur sveitin niðri þess á milli. Fólk verður ekki þreytt á manni ef maður er með nægilega mismunandi verk- efni í gangi. Þanþol manna gagnvart svona vinnu er auðvitað mismunandi en þetta hentar mér afskaplega vel í augnablikinu. Ég veit hins vegar ekkert hvernig þetta verður er fram líða stundir, þá henta færri verkefni kannski betur. En þetta er líka sá veruleiki sem við búum við hér á landi, það þarf að hafa alla öngla úti.“ Morgunblaðið/Valdís Thor Gamalt og nýtt Lester Young Tribute Band ásamt víbrafónleikaranum Reyni Sigurðssyni og söngstjörnunni Ragga Bjarna. Ungliðar og reynsluboltar taka hér höndum saman í að dýrka upp gamla og gegna sveiflu. Gamalt, gott og gegnt  Haukur Gröndal skoðar djassstemm- ur horfinna áratuga með Lester Young Tribute Band  Plata nýkomin út og tónleikar á Jazzhátíð Reykjavíkur Gröndal og co. verða á Iðnó í dag kl. 15.00 og á sama stað, sama tíma á morgun. Sjá nánar á www.jazz.is HINN fjölhæfi og vel launaði Charl- ie Sheen á von á barni með eig- inkonu sinni Brooke Mueller. Leik- arinn sendi frá sér yfirlýsingu fyrr í vikunni þessa efnis. Sheen gekk að eiga Brooke, sem er fasteignamiðl- ari að aðalstarfi, í maímánuði en hann hafði árið 2006 skilið við leik- konuna Denise Richards. Sheen á fyrir tvær dætur með Denise og 25 ára dóttur úr fyrra sambandi. Sheen, sem er 42 ára og því rösk- lega 10 árum eldri en eiginkonan, kveðst vera í skýjunum og segir all- ar líkur á að hann eignist son í þetta skiptið. Stendur Sheen um þessar mundir í harðri forræð- isdeilu við eiginkonu sína fyrrver- andi um dætur þeirra tvær sem eru þriggja og tveggja ára. Nýja barnið á væntanlega ekki eftir að skorta neitt í lífinu því Sheen er samkvæmt heimildum vestanhafs hæstlaunaðasti leikar- inn í bandarísku sjónvarpi. Hann fer með aðalhlutverkið í gaman- þáttunum Two and a Half Man. Fleiri Sheenar Reuters Lukkulegur Charlie Sheen brosir framan í áhorfendur í sjónvarpssal. MIÐVIKUDAGUR 27.ÁGÚST Eymundsson kynnir dagskrána í dag • KL 12.15 Ingólfsnaust – Hádegisjazz í Ingólfsnausti Frítt Tilvalið að koma við í Ingólfsnausti og heyra góðan jazz í hádeginu. • KL 15 Iðnó -Svingtónleikarestrasjón – Sextett Hauks Gröndal með Ragga Bjarna Kr2200 Haukur Gröndal endurvekur restrasjónina og hljóm KK Sextett. Haukur leiðir hljómsveit sína í prógrammi frá gullöld jazzins. Ef þú manst eftir því þegar jazzinn var dægurtónlistin, þá er þetta fyrir þig. Gestir á tónleikunum eru víbrafónleikarinn Reynir Sigurðsson og söngvarinn góðkunni Ragnar Bjarnason, sem starfaði í KK sextettinum um árabil. • KL 20 - Iðnó – Steintryggur - BMX frá Noregi ásamt Hilmari Jenssyni Kr2200 Trommarar og slagverksmenn sameinast í rafmögnuðum galdri. Sigtryggur Baldursson og Steingrímur Guðmundsson skipa Steintrygg. Kippi Kanínus leggur til rafvædda sveiflujöfnun. Norska tríóið BMX er hér statt til að hljóðrita með Hilmari Jenssyni gítarleikara. Einstakt tækifæri til að heyra splunku- nýja og spennandi spunatónlist af bestu gerð. Hér er hvert lag þróað í rauntíma á tónleikum. Alltaf ferskt, alltaf nýtt. Njål Ölnes á saxófón, ThomasT. Dahl á gítar og Öyvind Skarbo á trommur. • Kl 22 Iðnó /uppi – Ameríska söngbókin-Stofuhljóðritun. Siggi Flosa, Lennart Ginman, Jón Páll Bjarnason Kr2000 Altósaxófónleikarinn Sigurður Flosason hefur komið víðar við en flestir kollegar hans á íslenska jazzsviðinu. Undanfarið hefur blúsinn skotið sér í svínginu í tónlist hans, en nú ætlar hann að taka til handargagns amerísku söngbókina. Danski bassaleikarinn Lennart Ginman hefur áður komið við sögu á plötum Sigurðar og ætlar að ganga botninn í þessari stofuhljóðritun, sem verður gefin út á plötu. Jón Páll Bjarnason leikur á gítarinn, enda fáir sem kunna fleiri lög úr amerísku söngbókinni. • Kl 22 Organ – Tepokinn, M blues Project, Skver Kr1500 Þrjár spennandi hljómsveitir saman á einum tónleikum. Tepokinn og Skver hafa þrætt öll húsasund og almennings- garða Reykjavíkur á vegum Hins Hússins, en Matti Sax og blúsprójektið hans hefur aðallega verið innandyra. • Kl 23 Bítbox á Glaumbar Autoreverse – jazz/funk Frítt Steinar Sigurðarson: Saxófónn, Sigurður Rögnvaldsson: Gítar, Pétur Sigurðsson: Bassi, Kristinn Snær Agnarsson: Trommur, Ívar Guðmundsson:Trompet. Hljómsveitin Autoreverse hóf starfsemi árið 2004 þegar hún var valin sem fulltrúi lands elds og ísa í ungliðadjasskeppninni Nordic Jazz Comets í Stokkhólmi það ár. Hljómsveitin sækir prógram sitt til þeirra allra hrynþéttustu úr djass- geiranum auk þess sem meðlimir þykja skrifa undursam- lega lagstúfa. N O R R Æ N A H Ú S I Ð V O N A R S A L U R F R ÍK IR K J A N H Á S K Ó L A B ÍÓ N A S A F R ÍK IR K J A N N O R R Æ N A H Ú S IÐ H Á S K Ó L A B ÍÓ F R ÍK IR K J A N G L A U M B A R V O N A R S A L U R IN G Ó L F S N A U S T H Á S K Ó L A B ÍÓ IÐ N Ó REYKJAVÍK w w w .m id i.i s G L A U M B A R PO RT hö nn un Milljónaútdráttur Þar sem eingöngu er dregið úr seldum miðum þarf miðaeigandi bæði að hafa rétt númer og bókstaf til að hljóta vinning í þessum útdrætti. Birt með fyrirvara um prentvillur. 8. flokkur, 26. ágúst 2008 Kr. 1.000.000,- 4395 G 13915 E 17556 B 18541 H 20280 B 22668 G 30469 B 33110 B 46025 B 58188 F VINNINGSHAFAR! TIL HAMINGJU EINN af aukaleikurunum í kvikmyndinni Valkyre ætlar að fara í mál við Tom Cruise vegna óhapps sem varð við tökur. Verið er að taka myndina upp í Berlín en Cruise er eigandi fyrirtækisins sem framleiðir myndina og fer að auki með aðalhlutverkið, en hann túlkar Claus von Stauffenberg sem mistókst á sínum tíma að ráða Adolf Hitler af dögum. Aukaleikarinn heldur því fram að aðbúnaður á tökustað hafi verið óviðunandi og hafi það orðið til þess að nokkrir aukaleikarar slösuðust. Áætlað er að lögfræðingurinn, sem fer með mál- ið, muni fara fram á nokkrar milljónir dala í bætur. Í mál við Tom Cruise Ekki skemmt Cruise hristir þetta örugglega af sér. Hér er hann í hlutverki sínu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.