Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 2
2 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Egill Ólafsson, egol@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björgvin Guðmundsson, fréttastjóri, bjorgvin@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, ben@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Minningar mbl.is/sendagrein, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is Sunnudagur Ragnhildur Sverrisdóttir, ritstjórnarfulltrúi, rsv@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Skagafjörður | Mikið fjölmenni mætti í Lauf- skálarétt í Hjaltadal á laugardaginn þegar þar voru rekin stóðhross til réttar sem gengið höfðu í Kolbeinsdal í sumar. Talið er að þarna hafi komið um 600 hross til réttar, þar af um 150 fol- öld. Mikil stemming fylgir stóðréttinni og í raun réttarhelginni því byrjað er með samkomu í reið- höllinni Svaðastöðum á föstudagskvöldi. Fólk kemur um langan veg, jafnvel frá útlöndum, til að taka þátt í þessari helgi með Skagfirðingum. Það er ekki síst vinsælt að reka hrossin síðasta áfangann og skiptu rekstrarmenn hundruðum. Veður var sæmilegt, kalt en nánast þurrt. Á laugardagskvöldið skemmti fjölmenni sér svo á dansleik í reiðhöllinni á Sauðárkróki. Morgunblaðið/Örn Þórarinsson Fjölmenni sótti Laufskálarétt Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is FERÐAMENN frá Noregi versla mest allra þjóða virðisaukaskatts- laust (e. tax free) hér á landi, sam- kvæmt Global refund á Íslandi. Fast á hæla Norðmanna koma Danir og þá Bandaríkjamenn, sem fram að þessu hafa iðulega skipað efsta sæti listans. Í fyrra var Noregur í 2. sæti. Eins og við má búast eru sex efstu löndin á listanum, Noregur, Danmörk, Bandaríkin, Þýskaland, Svíþjóð og Bretland, jafnframt þau lönd sem flestir ferðamennirnir koma frá en á bilinu 20 til 40 þúsund manns frá hverju þessara landa heimsækja Ísland að jafnaði fyrstu sjö mánuði ársins. Eyða 77% meira en í fyrra Bretar eru langfjölmennastir er- lendra ferðamanna hér á landi en það sem af er ári hafa rúmlega 40 þúsund Bretar heimsótt Ísland. Þrátt fyrir það eru þeir í sjötta sæti yfir þá sem fá hvað mest af virð- isaukaskattinum endurgreiddan. Eyðsla þeirra og Bandaríkjamanna hefur aukist um tæp 13% milli ára en Norðmenn, Danir, Svíar og Þjóð- verjar hafa í ár eytt á bilinu 25-50% meira en í fyrra. Eyðslan breytist þó mest milli ára hjá Rússum, sem eru í 8. sæti á list- anum, en hún er nú tæpum 77% meiri en í fyrra. Athyglisvert er að þeir nái þó svo hátt á listanum því færri en eitt þúsund Rússar heim- sækja Ísland á ári hverju. Meðaltalsávísunin hærri Helgi Hrannarr Jónsson, fram- kvæmdastjóri Global refund á Ís- landi, segir fjölgunina mega rekja til aukins áhuga fólks frá Rússlandi á ferðalögum og betra efnahags- ástands í landinu. Í raun séu Rússar orðnir einn stærsti einstaki mark- hópurinn í Evrópu. Hann segir Rússa eina þeirra þjóða þar sem meðaltalsávísunin, upp á endur- greiðslu virðisaukaskatts, er tölu- vert hærri en gengur og gerist. Það bendi til þess að þeir sækist eftir dýrum merkjavörum og dýrari hlut- um. Norskir ferðamenn eyða mestu  Fast á hæla Norðmanna koma Danir og Bandaríkjamenn  Einn Rússi á við margar eyðsluklær frá öðrum löndum                             !    "##$ !   %             "##&     '( "( )( *( +( ,( $( &( -( '#(             !!  " ! !      Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is BÓKASAFN Böðvars Kvaran hefur verið auglýst til sölu. Að sögn Einars B. Kvaran, sonar Böðvars, gera af- komendur Böðvars sér vonir um að hægt verði að selja safnið sem eina heild. Spurður af hverju verið sé að selja safnið segir Einar þetta skyn- samlegasta kostinn í stöðunni. „Eng- inn einn afkomandi hefur tök á því að taka allt safnið að sér og þá fannst okkur hreinlegast að selja þetta,“ segir Einar. Aðspurður segir Einar safnið inni- halda mörg þúsund titla, en nokkur vinna hafi farið í það að undanförnu að bera saman safnkostinn og skrána sem til var um safnið. Að sögn Einars var það ekki síst gert vegna þjófnaðarmálsins sem upp kom síðla sumars 2007, en þá kærðu afkomendur Böðvars til lögreglu þjófnað á hundruðum bóka og korta úr safninu. Einar segir málið enn til rannsóknar hjá lögreglu eftir því sem hann best viti. Segir virði safnsins hlaupa á tugum milljóna króna Aðspurður segir Einar að vissu- lega hafi meðal þeirra bóka sem stol- ið var reynst miklar gersemar, en tekur fram að ennþá séu fjölmargir gimsteinar eftir í safninu, sem fyllir 200 pappakassa eftir að því var pakkað niður. Spurður hvers virði bókasafnið sé segir Einar ljóst að seljendur vilji fá tilboð í safnið, en tekur fram að ljóst megi vera að virði safnsins hlaupi á tugum milljóna króna. Að sögn Ein- ars hefur hann þegar fengið nokkur viðbrögð við auglýsingu sinni sem birtist í Morgunblaðinu í gær. Spurður hvort nú sé góður tími til að selja í ljósi yfirvofandi efnahags- þrenginga svarar Einar: „Okkur liggur ekkert á. Við bíðum bara þar til við fáum ásættanlegt tilboð.“ Ennþá fjölmargir gim- steinar eftir í bókasafninu  Bókasafn Böðvars Kvaran hefur verið auglýst til sölu  Fyllir 200 pappakassa Í HNOTSKURN »Bókasafn Böðvars Kvaranfyllir um tvö hundruð pappakassa. »Áætlað er að í bókasafniBöðvars séu tugir þúsunda titla og korta. »Síðla sumars 2007 varþjófnaður á hundruðum bóka og korta úr safni Böðv- ars Kvaran kærður til lög- reglu. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is NÝ skýrsla er varðar aðbúnað gesta, öryggismál og hreinlætismál á yl- ströndinni í Nauthólsvík var lögð fram til kynningar á fundi umhverf- is- og samgönguráðs nú í vikunni. Í skýrslunni koma fram ýmsar ábend- ingar, m.a. er lagt til að koma upp varðturni til að bæta öryggiseftirlit með gestum og tækjum, laga gras- bakka og hreinsa lónið oftar. Að sögn Þórólfs Jónssonar, skrif- stofustjóra á skrifstofu náttúru og útivistar á umhverfis- og samgöngu- sviði Reykjavíkurborgar, er yl- ströndin á hendi þriggja aðila, þ.e. umhverfis- og samgöngusviðs, fram- kvæmda- og eignasviðs og íþrótta- og tómstundasviðs borgarinnar. Til að samræma vinnu við ylströndina var stofnaður starfshópur til þess að fara yfir verkferla og leita eftir ábendingum um úrbætur. Spurður um næstu skref segir Þórólfur ljóst að greina þurfi hvað úrbæturnar kosti og ákveða hvaða þættir komist fyrir á fjárhags- áætlun. Ekki hefur verið lagt fram heildarkostnaðarmat á ábending- unum. „Sum atriðin þurfa ekki að vera kostnaðarsöm, en önnur geta reynst býsna dýr,“ sagði Þórólfur. „Það verður sjálfsagt ekki hægt að gera allt strax.“ Varðturn í víkinni Morgunblaðið/Brynjar Gauti Gleði Ylströndin í Nauthólsvík er vinsæl meðal margra á sumrin. SLÖKKVILIÐ var kallað til laust fyrir klukkan fjögur í gærdag þegar starfsmaður Hagkaupa í Garðabæ læstist inni í frystigeymslu í versl- uninni. Samkvæmt upplýsingum frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins gengu björgunaraðgerðir fljótt og vel og að sögn slökkviliðsins varð manninum ekki alvarlega meint af. sigrunhlin@mbl.is Festist í frystiklefa

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.