Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 6

Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 6
6 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR METÞÁTTTAKA var að þessu sinni í Nýsköp- unarkeppni grunnskólanemenda. Lokahóf keppninnar var í gær og þá afhenti Ólafur Ragn- ar Grímsson, forseti Íslands, verðlaunin fyrir þær hugmyndir sem þóttu skara fram úr og opn- aði sýningu. Markmið Nýsköpunarkeppni grunnskóla er að virkja sköpunarkraft barna og unglinga. Sigurvegari í almennum flokki var Eygló Lilja Haraldsdóttir í Digranesskóla. Lovísa Hrund Svavarsdóttir í Grundaskóla sigraði í flokki með hugmyndum um orku og umhverfi, Rakel Björk Björnsdóttir í Hofsstaðaskóla í flokki slysavarna og Unnur Björnsdóttir í Hvaleyrarskóla í flokkn- um tölvuleikir og hugbúnaður. Þjórsárskóli í Skeiða- og Gnúpverjahreppi fékk farandbikar fyrir bestu þátttöku. Umsóknir úr skólanum voru fleiri en börnin 56 sem þar nema. Metþátttaka var í Nýsköpunarkeppni grunnskólanna í ár Morgunblaðið/Eggert Bestu hugmyndirnar verðlaunaðar ÖKUMAÐUR fjórhjóls missti stjórn á hjóli sínu á vegslóða skammt frá fjallinu Sköflungi í Folaldadölum á Heng- ilssvæðinu með þeim afleiðingum að það endaði ofan í gili. Tvær konur voru á hjólinu. Annarri þeirra tókst að kasta sér af hjólinu við fallið og slapp nær ómeidd. Hin konan féll þrjá metra niður á nærliggjandi syllu, en mikil mildi þykir að hún féll ekki áfram niður í 10-15 metra gil þar fyrir neð- an. Hún slapp með minniháttar meiðsl, en var flutt á slysa- deild Landspítalans til eftirlits og aðhlynningar. Tilkynning um slysið barst Slökkviliðinu á höfuðborg- arsvæðinu laust upp úr hádeginu í gær og fór það á vett- vang á fjallabíl og sexhjóli. Björgunarsveitin Ársæll var við æfingar á svæðinu og aðstoðaði hún slökkviliðið. „Hún er mjög heppin að hjólið fór ekki ofan á hana við fallið. Hún er heppin að vera á lífi,“ segir Borgþór Hjörvarsson hjá björgunarsveitinni Ársæli. Segir hann svæðið mjög erfitt yfirferðar þó ekið sé á vegslóðanum sem þar er. silja@mbl.is „Heppin að vera á lífi“  Tvær konur meiddust er þær féllu af fjórhjóli á vegslóða á Hengilssvæðinu  Önnur þeirra slapp með minniháttar meiðsl eftir þriggja metra fall niður á syllu                                                  !         "   !    #             Agnar Gústafsson, hæstaréttarlögmaður, lést í Reykjavík föstu- daginn 26. september síðastliðinn, 81 árs að aldri. Agnar fæddist í Reykjavík 28. október 1926. Foreldrar hans voru Gústaf Kristjáns- son kaupmaður í Reykjavík og Ólafía Guðmundsdóttir. Agn- ar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1946 og cand. juris frá Háskóla Íslands 1952. Agnar starfaði sem fulltrúi hjá Ólafi Þorgrímssyni 1952 til 1958. Síð- an rak Agnar málflutningsskrifstofu, fyrst með Sigurði Reyni Péturssyni, hrl. og Gísla G. Ísleifssyni, hrl. en síðar einn, frá 1962. Agnar varð hér- aðsdómslögmaður 1953 og hæsta- réttarlögmaður 1962. Agnar rak einnig fasteignasölu og varð um síðir og var lengi vel elsti starfandi fast- eignasali á landinu og með elstu starfandi lögmönnum. Agnari voru falin ýmis trúnaðarstörf. Hann starfaði lengi í sam- skiptanefnd Félags fasteignasala. Frá 1998 til 2003 tók hann þátt í störfum Yfirfasteigna- matsnefndar. Hann starfaði sem lögmaður til æviloka. Agnar var mikill áhugamaður um hesta og hestamennsku og ferðaðist víða á hest- baki með eiginkonu sinni og félögum. Þau voru meðal fárra sem riðu yfir Skeiðará síðla á 20. öld, áður en áin var brúuð. Agnar kvæntist Ingu Dóru Hertervig 22. september 1951, en hún lifir hann. Þau eignuðust tvo syni, Gústaf Agnarsson, f. 21. maí 1952, látinn 21. nóvember 2007, og Snorra Agnarsson, f. 30. desember 1955. Börn Snorra eru Margrét Hlín, f. 20. mars 1987, og Agnar Óli, f. 3. maí 1990. Andlát Agnar Gústafsson FIMM voru fluttir á slysadeild á fjórða tímanum aðfaranótt sunnu- dags eftir bílslys á Hringbraut, við mislægu gatnamótin þar sem Hring- braut og Bústaðavegur mætast. Beita þurfti klippum til þess að ná einum farþega úr bifreiðinni. Einn þeirra fimm sem lentu í bílslysinu liggur alvarlega slasaður á gjör- gæslu Landspítalans. Um hádegisbil í gær var honum enn haldið sofandi í öndunarvél. Málið er enn í rannsókn og ekki er ljóst að svo stöddu hver tildrög slyssins voru. Bílnum hafði verið ek- ið í gegnum stálgirðingu sem skilur að umferðina um Hringbraut í gagn- stæðar áttir. sigrunhlin@mbl.is Á gjörgæslu eftir slys á Hringbraut Bílnum ekið gegn- um stálgirðingu KAUPÞING hefur ákveðið að lækka vexti á nýjum íbúðalánum um 0,15% og verða lægstu vextir bankans á nýjum íbúðalánum 5,90%. Breytingin tekur gildi í dag, mánudaginn 29. september. Útboði Kaupþings á skuldabréf- um til fagfjárfesta, vegna fjár- mögnunar á nýjum íbúðalánum, lauk síðastliðinn föstudag, 26. september, en alls bárust tilboð að fjárhæð 1,5 milljarðar króna. Fram kemur á vef Kaupþings að tilboðum var tekið fyrir 1 milljarð. Meðalávöxtunarkrafa sam- þykktra tilboða, í þeim flokki sem íbúðalán bankans byggjast á, var 5%. Að teknu tilliti til vaxtaálags bankans verða vextir á nýjum íbúðalánum því lækkaðir um 0,15%. Kaupþing lækkar vexti á íbúðalánum VIGDÍS Finnbogadóttur, fyrrum forseti Íslands og leikhússtjóri Leik- félags Reykjavíkur, var á laugardag sæmd titlinum Sendiherra leiklistar í heiminum á þingi Alþjóðaleiklist- arstofnunarinnar, ITI, í Madrid á Spáni. „Við erum valin til að vekja hvenær sem er og hvar sem er athygli á leik- listinni og gildi hennar í veröldinni,“ sagði Vigdís. Sex aðrir voru sæmdir titlinum auk Vigdísar, þau Vaclav Havel leikskáld og fyrrum forseti Tékklands, breska leikskáldið Arnold Wesker, nóbelsverðlaunahafinn Wole Soyinka frá Nígeríu, Ellen Stewart, bandarískur leikstjóri og stofnandi La Mama leikhússins í New York, rússneski leikstjórinn Anatoli Vassil- iev, og indverska leikskáldið Girish Karnad. Vigdís hefur starfað með Arn- old Wesker og Wole Soyinka að verkefnum tengd- um störfum Vig- dísar við varð- veislu tungumála sem velgjörð- arsendiherra Menningar- málastofnunar Sameinuðu þjóðanna. Alþjóðaleiklistarstofnunin, sem starfar undir verndarvæng Menning- armálastofnunar Sameinuðu þjóð- anna, UNESCO, heldur nú 32. al- heimsþing sitt í Madrid. Hátíð var haldin við þinglok á laug- ardagskvöld í tilefni 60 ára afmælis stofnunarinnar á þessu ári. Við þau hátíðarhöld var Vigdís sæmd titl- inum, fyrst allra. Vigdís sagði að sér hefði þótt ákaflega vænt um að hafa verið trúað fyrir þessu verkefni. „Við erum mjög glöð að hafa verið kosin til þessa verkefnis og munum hafa gott samband okkar í millum um hvernig við getum best lagt leik- húsinu lið í veröldinni. Því leikhúsið er mjög mikilvægt, það er túlkun á mannlífinu og vekur til umhugsunar. Leiklistin getur eflt skilning milli þjóða, og því er hún friðarberi.“ Viðar Eggertsson leikstjóri, for- maður LSÍ, hefur undanfarin sex ár setið í stjórn Alþjóðaleiklistarstofn- unarinnar en lét af störfum á þinginu um helgina. Leiklistar- samband Íslands (LSÍ) er Íslands- deild Alþjóðaleiklistarstofnunar- innar. sigrunhlin@mbl.is „Leiklistin getur eflt skilning milli þjóða“ Alþjóðaleiklistarstofnunin útnefndi sjö sendiherra leiklistar Vigdís Finnbogadóttir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.