Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 9
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigur 5
• Sími 581 2141
Flísjakkar á 7.900,-
Eftir Sigrúnu Hlín Sigurðardóttur
sigrunhlin@mbl.is
GUNNLAUGUR Júlíusson, 56 ára
fjölskyldufaðir í Rauðagerðinu í
Reykjavík, vann
um helgina það
ofurmannlega af-
rek að hlaupa 246
kílómetra frá
Aþenu til Spörtu
á 34 klukku-
stundum, 12 mín-
útum og 17 sek-
úndum.
Vegalengdin er
svipuð og frá
Reykjavík á
Kirkjubæjarklaustur. Gunnlaugur
var í 74. sæti af 154 sem komust í
mark.
Sigurvegari Spartathlon-
keppninnar, þriðja árið í röð, var
Bandaríkjamaðurinn Scott Jurek,
sem hljóp á tímanum 22:20:07. Þátt-
takendur verða að ljúka hlaupinu
innan 36 klukkustunda, en ekki
nærri öllum tekst að ljúka keppni.
Gunnlaugur hljóp viðstöðulaust og
nam aðeins staðar á þriggja klukku-
stunda fresti til að næra sig. Í hvert
sinn drakk hann hálfan lítra af
Herbalife-próteindrykk.
Allt verður að ganga upp
Gunnlaugur reyndi við þetta sama
hlaup í fyrra en varð að hætta
keppni eftir 150 kílómetra þar sem
hitinn reyndist honum óbærilegur.
Fyrir þessa keppni æfði hann því
dúðaður inni á hlaupabretti. Í þess-
ari keppni var heppnin hins vegar
með Gunnlaugi og hitinn var í kring-
um 26–28 gráður. Allt gekk sem
skyldi, en að sögn Gunnlaugs þurfa
ótal púsluspil að falla á réttan stað
svo að mönnum takist að ljúka
keppni sem þessari. Margt getur
farið úrskeiðis, menn geta fengið
heiftarlega í magann, ofþornað og
fengið blöðrur og sinadrátt.
Söguleg hlaupaleið
Leiðin er á köflum afar erfið, en
meðal annars er hlaupið upp á fjallið
Parthenio, sem er 1200 metrar yfir
sjávarmáli. Leiðin er byggð á lýs-
ingu forngríska sagnaritarans Her-
ódótosar á ferðalagi sendiboða
Aþeninga, Feidippídesar, sem lagði
af stað frá Aþenu til að kalla eftir
hjálp Spartverja í stríði gegn innrás-
armönnum frá Asíu og kom til
Spörtu daginn eftir. Innblásturinn
er því sóttur á svipaðar slóðir og
hugmyndin um maraþonhlaup. Stór-
huga Bretar með hlauparann John
Foden í fararbroddi byrjuðu að þróa
leiðina sem hlaupin er í Spartaþlon-
inu árið 1982.
Gunnlaugur byrjaði markvissan
undirbúning undir keppnina um ára-
mótin. Hlaupið er það lengsta sem
Gunnlaugur gat fundið þar sem
hlaupið er frá einum stað til annars.
Næsta áskorun Gunnlaugs verður
því að finna verðugt markmið til að
keppa að næst.
Sögulegt
hlaupaafrek
Fyrsti Íslendingurinn til að ljúka 246
kílómetra hlaupinu Spartathlon um
sögulegar slóðir í Grikklandi
. /0 . 0. /1/0%2 3
! !"#$%&'!( %&!)*!+ "" %&
!!%*&*
,( !#!-%"
! !" %&*
!!%*&*
%$&%*!.
! !( %&!)*!+ "" %&
!!%*&*
,( ! $$&
!!%*&*
-(
! !"#$%&
)*!" %&
!!%*&*
.+)*%*
!!"#$%& " %&!)*!+ %&
!
%*
!!"#$%& " %&!)*!+ %&
"#
/"
! !"#$%&
)*!" %&
$%&
,01 "
! !"#$%& ( %&!)*!+ "" %&
2 ) %$&%*
!!%*&*
!
%*
!!"#$%& " %&!)*!+ "" %&
!!%*&!)*!%$$%&
3 %$&%
! !( %& )*!+ "" %&
'(
45 $* "
!
!"#$%&!)*!" %&
!!%*&*
)
**+
%$&%*! $$
! !"#$%&!)*!" %&
!!!!%*&*
'
/5 $&
! !( %&!)*!+ "" %&
!!%$$%&*
'
4 %%*
! !"#$%&! !+ "" %&
!!+ %&*
!!%*&*
!!%$$%&*
'
%*&%*
!!%$$%&
,
6" !%$& !
# %$!#!+5 %
!!%$$%&*
Gunnlaugur
Júlíusson
Langhlaup njóta sívaxandi vinsælda meðal almennings.
Þótt slík hlaup séu í eðli sínu einstaklingsíþrótt er ekki
þar með sagt að það þurfi að vera einmanalegt að æfa
hlaup – raunar þvert á móti. Á vefsíðunni hlaup.is eru
skráðir 27 hlaupahópar, þar af 17 sem starfræktir eru á
höfuðborgarsvæðinu.
Hlaupahóparnir eru opnir öllum sem vilja spretta úr
spori í góðum félagsskap. Í sumum tilvikum stjórna
þjálfarar æfingum með misharðri hendi en í öðrum
hópum eru það einungis hlaupafélagarnir sem veita að-
haldið. Aðhaldið og félagsskapurinn sem fæst í góðum
hlaupahópi eru flestum ef ekki öllum hvatning til að
leggja harðar að sér en ella.
Einnig eru starfræktir hlaupahópar víðs vegar um
landsbyggðina. Á Akureyri eru tveir, einn á Dalvík og
einn á Sauðárkróki. Tveir hópar eru á Austfjörðum, þ.e.
einn á Vopnafirði og annar í Neskaupstað. Þá er hlaupið
í hóp frá Úthlíð í Biskupstungum, Selfossi, Grindavík og
Ísafirði. Þeir sem ekki finna hlaupahóp í sínum bæ eða
hverfi geta safnað saman kunningjum og stofnað sinn
eigin. Á hlaupadagbókinni www.hlaup.com má sjá að 41
hlaupahópur færir þar til bókar æfingar sínar, en fé-
lagafjöldi hópanna er allt frá tveimur upp í 27. Alls
halda 644 Íslendingar skrá yfir hlaup sín á síðunni.
Æfingar hlaupahópanna eru flestar í hádeginu og
síðdegis svo vinnandi fólk ætti ekki að vera í vandræð-
um með að bregða sér í hlaupaskóna í matartímum eða
eftir vinnu.
Nánari upplýsingar um hlaupahópa á landinu má fá á
vefsvæðinu www.hlaup.is.
Þeir sem vilja æfa hlaup geta valið úr fjölda hlaupahópa
FIMM verslanir opna dyr sínar
fyrir viðskiptavinum í versl-
unarmiðstöðinni Korputorgi við
Vesturlandsveg um næstu helgi.
Nota þessi fyrirtæki liðlega helm-
ing húsnæðisins en fleiri fyrirtæki
opna síðar þar sem búið er að leigja
alls um þrjá fjórðu húsnæðisins.
Fasteignafélagið SMI byggir
verslunarmiðstöðina Korputorg í
Stekkjarbrekkum við Vesturlands-
veg. Húsnæðið er alls um 38 þús-
und fermetrar að gólfflatarmáli.
Fyrstu verslanirnar verða opnaðar
um helgina. Það eru Rúmfatalager-
inn, leikfangaverslunin Toys’R’Us,
húsgagnaverslunin Ilva, Europris
og húsgagnaverslunin Pier. Af
þessu tilefni verður hátíð á Korp-
utorgi um helgina og verslanirnar
með opnunartilboð.
Davíð Freyr Albertsson, fram-
kvæmdastjóri SMI, segir að þessar
fimm verslanir leigi liðlega helming
verslunarplássins í Korputorgi.
Fleiri verslanir bætist við fyrir jól
enda sé búið að leigja út um 75% af
húsnæðinu. Þá verður N1 með
bensínstöð á svæðinu.
„Þetta er góð byrjun, öflugir að-
ilar sem opna núna. Þeir selja ódýr-
ari vörur sem henta vel á mark-
aðinn eins og hann er núna,“ segir
Davíð Freys spurður um áhrif sam-
dráttar í efnahagslífinu á uppbygg-
inguna.
Á Íslandi og við Eystrasalt
SMI er fasteignafélag með sömu
eigendur og Rúmfatalagerinn þar
sem Jakup Jakobsen fer fremstur í
flokki. Auk Korputorgs á félagið
verslunarmiðstöðina Smáratorg í
Kópavogi og skrifstofuturninn við
Smáratorg, verslunarmiðstöðina
Glerártorg á Akureyri og verslun-
arhúsnæði við Skeifuna í Reykja-
vík. Þá á fyrirtækið húsnæði í
Lettlandi og Litháen. Heildar-
flatarmál fasteigna félagsins er um
230 þúsund ferm., að sögn Davíðs.
helgi@mbl.is
Fimm nýjar versl-
anir í Korputorgi
75% verslunarplássins eru leigð út
Eftir Ólafur Bernódusson
Skagaströnd | Níu listamenn hafa
dvalist í Nes-listamiðstöðinni nú í
september. Allir eru þeir erlendir
og koma frá Frakklandi, Banda-
ríkjunum og Rússlandi. Á opnum
degi sýndu listamennirnir hluta
af afrakstri dvalar sinnar á
Skagaströnd. Ben Kinsley frá
Bandaríkjunum fékk síðan Skag-
strendinga í lið með sér með því
að taka þátt í margmiðlunarverk-
efni sem hann er að gera. Hlut-
verk Skagstrendinga og annarra
gesta, sem komu á opinn dag
listamiðstöðvarinnar, var að
koma saman og hrópa í kór, eins
hátt og unnt var, hið þekkta hróp
„Yee-Haw“ (JÍÍ- HA). Ben tók
hrópið upp á myndband sem hann
mun síðan tengja við Skaga-
strönd á Google–Earth forritinu.
Eftir að hrópið hafði verið filmað
í bak og fyrir var boðið upp á
upplestur í Kántrýbæ. Þar las
rússneski rithöfundurinn Ivetta
Gerasimchuk úr verkum sínum á
ensku. Meðal annars las hún upp
texta, The Liquid Island, sem
birtist eftir hana í nýjasta tölu-
blaði tímaritsins Grapewine.
Sagði Ivetta og að þetta væri óð-
ur sinn til Skagastrandar og Ís-
lands enda hefði hún skrifað
þetta á Skagaströnd. Einnig las
Ivetta úr verðlaunaverki sínu:
„Dictionary of Winds“ og sýndi
myndir á meðan hún las. Almenn
ánægja er á Skagaströnd með
starfsemi listamiðstöðvarinnar og
eru áhrif hennar á menningarlíf
staðarins ótvíræð. Þá er gaman
að segja frá því að allir þeir lista-
menn sem dvalið hafa í lista-
miðstöðinni eru ánægðir með
dvölina og margir þeirra hyggj-
ast koma aftur í náinni framtíð.
Opið hús hjá Nes-listamiðstöð
Morgunblaðið/Ólafur Bernódusson
„Yee-Ha“ Allir voru samtaka og enginn dró af sér í hrópinu fyrir Ben Kinsley.
List Mikil sköpun kallar á marga
liti. Hluti vinnuborðs eins lista-
mannsins í Nes-listamiðstöðinni.