Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 11
FRÉTTIR
Eftir Alfons Finnsson
Ólafsvík | Byggingarfyrirtækið Nes-
byggð ehf. var stofnað 2002 og hefur
byggt margar íbúðir síðan í Reykja-
nesbæ, Grund-
arfirði og í Ólafs-
vík. Páll
Harðarson, eig-
andi Nesbyggðar,
segir að stefnan
hafi verið að
byggja sem svar-
ar einni fullbúinni
íbúð á viku eða 50
íbúðir á ári. Sú sé
einnig raunin á
þessu ári og gott betur því sjötíu
íbúðir verði fullkláraðar. Lykillinn á
bak við gott gengi telur Páll ekki síst
gamaldags aðferðir í eignarhaldi
tækja og góðan aðbúnað starfs-
manna.
Auglýsing sem birtist í bæj-
arblaðinu Jökli í Snæfellsbæ vakti
mikla athygli lesenda en þar stóð: „ Í
byrjun október sýnum við fullbúnar
íbúðir að Fossabrekku 21 í Ólafsvík.
Í óveðrinu síðustu daga reyndi mikið
á gæði hússins. Í stuttu máli stóðst
byggingin álagið með sóma og hvergi
komst vatn inn. Þetta er hægt að fá
staðfest hjá byggingarfulltrúa Snæ-
fellsbæjar.“
Það var fyrirtækið Nesbyggð ehf.
sem svo auglýsti. Páll Harðarson er
eigandi fyrirtækisins. Hann var
spurður út í þessa óvenjulegu auglýs-
ingu en fyrirtækið hefur verið að
leggja lokahönd á 10 íbúðir í Ólafs-
vík. „Það hefur verið mikið um það að
nýjar íbúðir hafi lekið. Með þessari
auglýsingu vildum við sýna fram á
vandaðan frágang okkar. Það kom
ekki dropi inn hjá okkur, sama hvar á
var litið. Þak, gluggar og hurðir,
þetta stóðst sunnanrokið og rign-
inguna með glæsibrag. Á sama tíma
vissi ég um fólk sem var að drukkna
með flöt, míglek þök yfir höfðinu. Því
bauð ég byggingafulltrúanum í heim-
sókn sem hann tók vel í.“
Hafa efni á flottum bílum
Nesbyggð ehf. var stofnað árið
2002 og hefur einkum verið með
starfsemi í Reykjanesbæ og á Snæ-
fellsnesi eins og nafn fyrirtækisins
ber með sér. Í Ólafsvík er Nesbyggð
að leggja lokahönd á 10 íbúðir, eins
og áður segir, sem eru 70 til 105 fer-
metrar að stærð, auk þess eru fjórir
bílskúrar í húsinu. Páll Harðarson
segir að byrjað hafi verið á íbúðunum
fyrir einu og hálfu ári en þær hafi
ekki verið settar í forgang vegna
anna í Reykjanesbæ. Aðspurður
hvers vegna Nesbyggð hafi ákveðið
að byggja í Ólafsvík segir Páll að þar
hafi ekki verið byggt lengi. „Ólsarar
hafa efni á að aka um á flottum bílum
og því ættu þeir að eiga kost á að fá
flottar íbúðir líka,“ svarar hann kím-
inn og bætir við að þeir hafi byggt
svipaðar íbúðir í Grundarfirði og þær
séu allar seldar. „Þar voru byggðar
fjórar íbúðir auk frystihótels sem ber
nafnið Snæfrost og núna erum við í
viðræðum við björgunarsveitina Lífs-
björg í Snæfellsbæ um byggingu á
nýju húsnæði fyrir sveitina í Rifi. Við
höfum ekki selt neina íbúð enn í
Ólafsvík en höfum ekki auglýst held-
ur. Fyrst og fremst vegna þess að við
leggjum áherslu á að fullklára íbúð-
irnar áður en þær fara í sölu. Ég er
bjartsýnn á að ná að selja 50% fyrir
áramót og restina fyrir næsta vor en í
Reykjanesbæ eru allar íbúðirnar
seldar fyrirfram.“ Hann bætir jafn-
framt við að Íbúðalánasjóður láni
80% af söluverðmæti íbúðar og Nes-
byggð láni 10% með 6% vöxtum sem
þyki hagstætt í dag. Þetta sé mögu-
legt þar sem fyrirtækið standi vel
fjárhagslega með töluvert eigið fé og
góða lausafjárstöðu.
Vandaðar íbúðir seljast
Lykilinn að velgengninni telur
vera í gamaldags stefnu í rekstri fyr-
irtækisins. „Mikil áhersla er lögð á að
eiga öll tæki en leigja þau ekki. Því
eru starfsmenn Nesbyggðar sjald-
séðir á tækjaleigum og við fjármögn-
unarleigur hefur fyrirtækið aldrei
skipt. Sú stefna þykir gamaldags, en
hefur skilað góðum árangri. Lögð er
áhersla á góðan tækjakost og fyrsta
flokks aðbúnað starfsmanna. Engir
undirverktakar vinna hjá fyrirtæk-
inu heldur eru allir starfsmenn laun-
þegar.“ Starfsmenn fyrirtækisins
hafa verið um sjötíu undanfarið ár en
fækkar nú um mánaðamótin um átta.
Þar sem vel gengur að selja í Reykja-
nesbæ er ekki útlit fyrir meiri sam-
drátt, a.m.k. ekki næsta hálfa árið.
Margir í byggingargeiranum finna
fyrir þrengingum í augnablikinu og
Páll telur að svo verði næstu tvö árin
en svo birti til á ný. „Ég tel hins veg-
ar að vandaðar íbúðir komi alltaf til
með að seljast og erum við að selja
vel út á ánægða kaupendur. Gott orð-
spor skiptir miklu máli.“
Páll segir að bygging vatnsverk-
smiðjunnar á Rifi hafi ekki haft áhrif
á ákvörðun um að ráðast í þessar
framkvæmdir í Ólafsvík. „Ég held að
það hljóti að hjálpa okkur að fá þessa
vatnsverksmiðju. Verksmiðjan þarf á
starfsfólki á að halda og ekki er mikið
framboð á leiguhúnæði í Snæ-
fellsbæ,“ segir Páll Harðarson að
lokum.
Gamaldags aðferðir tryggja velgengni
Nesbyggð byggir sem svarar einni fullbúinni íbúð á viku 70 íbúðir eiga verða fullkláraðar á árinu
Auglýstu að þak, gluggar og hurðir hefðu staðið af sér sunnanrokið og rigninguna og ekkert lekið inn
Páll Harðarson
Í HNOTSKURN
»Nesbyggð stefndi að því aðbyggja eina íbúð á viku
eða 50 íbúðir á ári. Þær verða
hins vegar sjötíu talsins.
»Eigandi rekur gott gengitil gamaldags aðferða í
eignarhaldi tækja og góðs að-
búnaðar starfsmanna.
KARLMAÐUR á fertugsaldri hefur
viðurkennt að hafa ekið bifreið sem
rakst aftan á annan bíl á Akrafjalls-
vegi og stungið af laust eftir mið-
nætti í fyrrinótt. Bifreiðin sem ekið
var á valt. Fjórir voru í bílnum sem
ekið var á brott og voru allir hand-
teknir skömmu síðar.
Enginn fjórmenninganna vildi í
fyrstu viðurkenna að hafa ekið bif-
reiðinni. Allir mennirnir voru undir
áhrifum áfengis. Einn þeirra við-
urkenndi loks sök.
Báðir bílarnir skemmdust mikið í
árekstrinum sem var mjög harður.
Enginn slasaðist alvarlega, en öku-
maðurinn sem stakk af hlaut
áverka á rifbeini. Hann má að sögn
lögreglu búast við að þurfa að
greiða háa sekt. kjon@mbl.is
Ók aftan á bíl
og stakk af
TURNINN hái við Höfðatorg rís nú á ógnarhraða til
himins en í góðri tíð tekst að steypa eina hæð á um sex
dögum, samkvæmt upplýsingum frá fasteignafélaginu
Höfðatorgi. Þegar vindurinn blæs af krafti gengur hæg-
ar, eins og við er að búast þegar unnið er í svo mikilli hæð
og suma vindsama daga hefur ekkert verið hægt að
steypa.
Alls verður turninn 19 hæðir og ríflega 70 metrar. Gert
er ráð fyrir að lokið verði við að steypa gólfplötu 19. hæð-
arinnar um miðjan nóvember. Ofan á þá hæð kemur síð-
an lítil bygging fyrir lyftuhús og fleira.
Háhýsastefna enn í mótun
Töluverð umræða varð um turnbyggingar í fyrra, m.a.
eftir að áform um Höfðatorgsturninn voru kynnt. Í við-
tali við Morgunblaðið í maí 2007 sagði Ólöf Örvarsdóttir,
þá aðstoðarskipulagsstjóri en nú skipulagsstjóri, að verið
væri að móta háhýsastefnu í tengslum við nýtt aðalskipu-
lag Reykjavíkur. Hún gerði þá ráð fyrir að þeirri vinnu
lyki í ársbyrjun 2008. Í samtali við Morgunblaðið í liðinni
viku sagði Ólöf að ekki væri lokið við að móta háhýsa-
stefnu en verið væri að vinna í málinu. Unnið væri að
stefnumótuninni í tengslum við aðalskipulag Reykjavík-
ur og hún vonaði að bæði stefnan og tillaga að skipulagi
yrði kynnt um mitt næsta ár. Byrjað hefði verið að tala
um þörf á háhýsastefnu fyrir nokkrum árum en kraftur
hefði verið settur í starfið í fyrra. Við þetta starf væri
m.a. litið til reynslunnar í Kaupmannahöfn en þar hefði
t.d. verið ákveðið að innan tiltekins svæðis mætti ekki
reisa hús sem væru hærri en fimm hæðir.
Aðspurð sagði Ólöf að enginn hefði nýlega sótt um leyfi
til að reisa háhýsi í Reykjavík. „En hluti af stefnunni er
að skilgreina hvað sé háhýsi. Er það átta hæða bygging,
tíu hæða eða tólf?“ runarp@mbl.is
Steypa hæð á viku
Gólf 19. hæðar væntanlega steypt um miðjan nóvember
Verið er að móta háhýsastefnu fyrir Reykjavíkurborg
Morgunblaðið/Golli
NÆSTU sex þriðjudagskvöld verða
haldin fræðsluerindi í safn-
aðarheimili Laugarneskirkju undir
yfirskriftinni
hagkvæmur
rekstur og
heimasæla.
Í tilkynningu
segir að við
breyttar að-
stæður í efnahag
þurfi mörg heim-
ili að breyta
göngulagi sínu
og finna leiðir til
sparnaðar. „Margrét Sigfúsdóttir
hússtjórnarkennari hefur ráð undir
rifi hverju er kemur að góðum
heimilismat og meðferð hráefna.
Snorri Halldórsson kerfisfræð-
ingur og bankamaður mun sýna og
kenna einfalt heimilisbókhald og
benda á einfaldar leiðir sem
tryggja að við hendum ekki pen-
ingum. Þá mun Bjarni Karlsson
sóknarprestur greina frá þeirri
fornu visku sem býr að baki þegar
við biðjum „gef oss í dag vort dag-
legt brauð“ auk þess sem hann
svarar spurningunni hvað sé heil-
agt við heimili?“
Fyrsta fræðslukvöldið er 30.
september kl. 20.40-22. Aðgangur
er ókeypis og óháður fjöl-
skyldugerð, aldri og trúarskoð-
unum. Nánari upplýsingar má finna
á vefnum www.laugarneskirkja.is.
Hagkvæmur
rekstur
Bjarni Karlsson
RAFIÐNAÐARSAMBAND Ís-
lands sendi frá sér eftirfarandi
yfirlýsingu í tilefni af fundi sín-
um á föstudag:
„Á fundi miðstjórnar Rafiðn-
aðarsambandsins 26. september
sl. var fjallað ítarlega um stöð-
una í efnahagsmálum. Nið-
urstaða miðstjórnar varð eft-
irfarandi. Ljóst er að mikil
þensla á undanförnum árum hef-
ur sett stöðu krónunnar í allt
annað samhengi. Stjórnendur
efnahags- og peningamála hafa
ekki brugðist við þessu með
réttum hætti og valdið með því
miklum skaða hjá íslenskum
heimilum og fyrirtækjum.
Stjórnvöld hafa hafnað til-
mælum aðila vinnumarkaðs um
samráð og samstarf um að setja
langtímamarkmið um hvernig
vinna eigi á yfirstandandi vanda.
Í stað þess hafa landsmenn mátt
sitja undir einkennilegum og
innistæðulausum yfirlýsingum
m.a. um að botninum sé náð og
stjórnvöld séu að vinna mikla
sigra á lausn vandans,“ segir í
yfirlýsingunni.
Ráðherrar og stjórn-
arþingmenn hafi beitt öllum ráð-
um til þess að komast hjá mál-
efnalegri umræðu. Skoðun á
einhliða upptöku evru hafi átt að
taka fimm ár samkvæmt um-
mælum forsætisráðherra fyrir
nokkru.
„Verði það dregið lengur að
sett verði langtímamarkmið og
ákvarðanir teknar í efnahags- og
gjaldmiðilsmálum er það mat
miðstjórnar Rafiðnaðarsam-
bandsins að það muni leiða enn
alvarlegri og langvinnari efn-
hagsófarir yfir Ísland. Það inni-
felur að taka verði afstöðu til
inngöngu í Evrópska efnahags-
bandalagið.“ Miðstjórnin mun
standa fyrir umræðum um þetta
á Trúnaðarmannaráðstefnu sam-
bandsins 13. og 14. október nk.,
segir þar ennfremur. Miðstjórn
RSÍ telur að þetta eigi að vera
aðalmál ársfundar ASÍ í lok
mánaðarins. sigrunhlin@mbl.is
ASÍ hafi
ESB sem
aðalmál
Brýnt að ræða um evru