Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 29.09.2008, Qupperneq 18
18 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Ólafur Þ. Stephensen. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Útlitsritstjóri: Árni Jörgensen. Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/ Spennan í ís-lenskuefnahagslífi vex jafnt og þétt. Í Morgunblaðinu á laugardag kemur fram að í stétt- arfélögum gæti nú vaxandi óþreyju vegna kjaramála og verðhækkana undanfarnar vikur. Sigurður Bessason, for- maður Eflingar, segir í frétt- inni að öll umræða um þjóð- arsátt sé út í hött: „Bak við þessa umræðu er nákvæm- lega ekki neitt.“ Hann segir engin áhrifaöfl í þjóðfélaginu verja stöðugleikann. Tal for- svarsmanna ríkisstjórn- arinnar um að halda þurfi niðri verðlagi séu innantóm orð því hvorki einkafyrirtæki né opinber fari eftir því. Aðalsteinn Á. Baldursson, formaður Framsýnar- stéttarfélags, átti fyrir helgina fundi með fé- lagsmönnum í Þingeyj- arsýslum vegna viðræðna við sveitarfélögin um endurnýjun samninga. „Það er þungt hljóð í fólki og krafa um há laun og stuttan samning,“ segir hann. Verkalýðsfélag Akraness hefur sent frá sér frétt þar sem segir að ekki verði leng- ur horft upp á það hvernig farið er með verkafólk. Það ætlar að krefjast þess að laun verði hækkuð í samræmi við hækkanirnar í samningi ljós- mæðra. Á næstu vikum og mánuðum losn- ar fjöldi samn- inga. Það er skilj- anlegt að urgur sé í launþegum. Ef nú verður farið fram með kröfur um gríð- arlegar hækkanir á launum gæti það hins vegar hrint af stað skriðu víxlverkana, sem erfitt verður að stöðva. Af- leiðingar hækkandi verðbólgu eru þegar farnar að koma harkalega niður á almenningi og allar launahækkanir yrðu fljótar að hverfa ef kynt yrði undir báli verðbólgu. Gagnrýni Sigurðar Bessa- sonar á áhrifaöflin í þjóð- félaginu á hins vegar fullan rétt á sér. Hvernig stendur á hækkunum á gjaldskrá Orku- veitunnar? Iðnaðarráðherra staðfestir hana og borgar- fulltrúar lyfta ekki fingri. Af hverju samþykkja stjórn- málamenn þessar hækkanir? Undir hverju er Síminn að kynda með því að hækka gjaldskrá sína? Svo má ekki gleyma hækkunum á matvöru og svimandi háu eldsneyt- isverði. Menn verða að átta sig á því að ýmislegt annað en launahækkanir veldur verð- bólgu. Það er ekki hægt að tala um þjóðarsátt í sömu andránni og allt hækkar nema launin. Ef aðeins laun- þegar eiga að herða sult- arólina verður engin þjóð- arsátt. Ef aðeins launþegar eiga að herða sultar- ólina verður engin þjóðarsátt} Þungt hljóð Neysla ung-linga á ólög- legum vímuefnum dróst mikið saman á milli áranna 2004 og 2007 og það er mikið fagnaðarefni. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu, sem rannsókn- armiðstöðin Rannsóknir og greining vann með stuðningi frá menntamálaráðuneyti. Áfengisneysla breyttist hins vegar lítið á þessum tíma og hefur reyndar sama sem ekk- ert breyst frá árinu 2000. Sérstakt áhyggjuefni er að drykkja eykst verulega frá vori síðasta bekkjar í grunn- skóla og fram á haust fyrsta bekkjar í framhaldsskóla. Samkvæmt rannsókninni höfðu 19,9% nemenda í 10. bekk vorið 2007 orðið drukk- in síðustu 30 daga, en það höfðu 47,7% nemenda 16 ára og yngri í framhaldsskóla haustið 2007 gert. Hlutfallið hækkar um rúmlega helming og vert er að hafa í huga að könnunin er gerð í sama ár- gangi. Eini munurinn er sá að liðið er eitt sumar. Við það að fara úr grunnskóla í framhaldsskóla verður hugarfars- breyting hjá ís- lenskum unglingum. Margar þessara breytinga eru ein- faldlega hluti af því að full- orðnast og þroskast – að upp- götva lífið. Áfengi og vímuefni koma því þroskaferli hins vegar ekkert við, hvað sem líður þrýstingi jafningja, umhverfisins og jafnvel lífs- stíl hinna fullorðnu. Ein rótin að þessari aukningu, sem verður á áfengisneyslu við það að komast á nýtt skóla- stig, er hin sterka tenging menntaskólaskemmtana við áfengi og drykkjuskap. Eftir því sem fólk er yngra þegar það byrjar að neyta áfengis og vímuefna, þeim mun meiri verður skaðinn. Það verður að efla forvarnir gegn áfengi og vímuefnum og hluti af því er að kanna leiðir til að draga úr áfengisneyslu í tengslum við framhalds- skólaskemmtanir. Nýtt skólastig og drykkjan eykst um helming} Unglingar og vímuefni E kki þarf að dvelja lengi í Ríga í Lettlandi til að átta sig á að þjóðin glímir enn við arfleifð Sovéttímans. Hernámssafn í miðri borg- inni rekur sögu hersetinnar þjóðar, fyrst undir Sovétmönnum og nasistum í seinna stríði og síðan sem leppríkis Sovétríkjanna austan járntjalds. Þar er ekki dregin upp falleg mynd af Sovétmönnum. Staðsetning og vægi safnsins í miðborginni er pólitísk yf- irlýsing í sjálfu sér. Ekki síst þegar horft er til þess að tæpur þriðjungur íbúa Lettlands á uppruna sinn í öðrum fyrrum Sovétríkjum. Margir þeirra eru án vegabréfs og tala jafn- vel ekki lettnesku – og mega ekki ferðast frá Lettlandi, ekki einu sinni austur fyrir. Það er eins og tvær þjóðir búi í sama landi. Og kannski þarf ekki að koma á óvart að tvær stúlkur, sem eru Lettar af rússneskum uppruna, hafi aldrei komið á hernámssafnið. „Ha, hvaða safn,“ segir önnur og bætir við. „Það var aldrei neitt hernám.“ Nú er mikil spenna í samskiptum Eystrasaltsríkjanna og Rússlands vegna innrásar Rússa í Georgíu. Skiljanlega bregðast smáríkin Eistland, Lettland og Litháen við af hörku þegar stórveldið kemur fram á þennan hátt gagnvart nágrannaríkjum sínum. Þau gætu orðið næst. Þess vegna er rætt um það að sniðganga Eurovision-söngvakeppnina í Moskvu árið 2009 og jafnvel vetrarólympíuleikana í Sotsí árið 2014, sem verða rétt við landamærin að Georgíu. Menntamálaráðherra Eistlands vill snið- ganga Eurovision og nýtur það stuðnings meirihluta þjóðarinnar, ef marka má skoð- anakönnun dagblaðsins Postimees. En ekki eru allir á einu máli um fram- komu Rússa í Georgíu. Þegar Lettar lögðu blóm við georgíska sendiráðið, þá lögðu Lettar af rússneskum uppruna blóm við rússneska sendiráðið. Og sumir þeirra vilja gjarnan aftur undir rússnesk yfirráð. Dmítrí Medvedev, forseti Rússlands, kynti undir bálið með því að lýsa yfir að hann ætli að greiða fyrir ferðalögum fólks af rúss- neskum uppruna til heimalandsins, jafnvel þó að það hafi ekki vegabréf. Hann vill styrkja böndin við minnihlutahópa í ná- grannaríkjunum. Hvað vakir fyrir honum, spyrja sumir, með slíku inngripi. Það kraumar undir mikil togstreita í Lettlandi eftir styrjaldir og hernám síðustu aldar. Ekkert ríki fór verr út úr heimsstyrjöldinni fyrri, þar sem 40% þjóð- arinnar missti lífið. Og Lettland var grátt leikið í heimsstyrjöldinni síðari, gekk frá henni með sam- viskubit gagnvart gyðingum, þar sem Lettar tóku þátt í hreinsunum. Svo tók við Sovétttíminn, þar sem Lett- ar léku líka hlutverk. Það er greinilegt að þjóðin á eftir að gera upp við fortíðina. Og ekki bætir ógnin úr austri ástandið. Þetta eru viðsjárverðir tímar. p.blondal@gmail.com Pétur Blöndal Pistill Viðsjárverðir tímar Konan sem „hegðar sér eins og Rambó“ FRÉTTASKÝRING Eftir Elvu Björk Sverrisdóttur elva@mbl.is J ay, ég er femínisti, en ég verð því miður að segja, að þessi kona er biluð. Hún er í senn snarklikkuð og ógn- vekjandi.“ Svona svaraði bandaríski grínistinn Wanda Sykes þáttastjórnandanum Jay Leno í vik- unni, þegar Leno spurði hana kank- víslega hvort hún væri ekki ánægð með varaforsetaefni repúblikana, Söruh Palin, sem nú á möguleika á að verða fyrsti kvenvaraforseti Banda- ríkjanna. Eftir að tilkynnt var um útnefn- ingu Palin sem varaforsetaefnis repúblikana hefur mikið verið rætt í bandarískum fjölmiðlum um hvernig hún falli í kramið hjá kvenkyns kjós- endum. Í gegnum tíðina hafa varafor- setaefni venjulega ekki gegnt lykil- hlutverki þegar Bandaríkjamenn gera upp hug sinn í kjörklefanum. Barátta Hillary Clinton fyrir útnefn- ingu sem forsetaefni Demókrata- flokksins hleypti hins vegar eldmóði í konur og vakti vonir. Það sveið sárt undan tapi Clintons gegn Barack Obama. Því má spyrja hvort konur finni huggun í því að greiða Palin og Repúblikanaflokknum atkvæði sitt í nóvember? Ef marka má fyrrnefnda Sykes, virðist það ekki líklegt. Í spjalli sínu við Jay Leno minnti hún á stuðning Palin við byssueign og þá staðreynd að Palin væri lítt sigld, hún hefði ekki sótt um vegabréf fyrr en í fyrra. Palin er jafnframt andsnúin fóstureyðingum og hefur horn í síðu kynfræðslu, svo dæmi séu tekin. Aftur til 19. aldar? Það er ekki furða að margar bandarískar konar eigi í ákveðinni innri baráttu þessa dagana. Þær vilja konu í Hvíta húsið en hins vegar eru viðhorf Söruh Palin í algerri and- stöðu við framsæknar hugmyndir ýmissa femínista. Fyrr í vikunni velti rithöfundurinn Marianne Schnall þessum stað- reyndum fyrir sér á vefnum Huff- ington Post. Hún spurði valinkunnar konur um afstöðu þeirra til Palin. Meðal þeirra sem svöruðu voru rit- höfundarnir Isabel Allende og Eve Ensler. „Sarah Palin stendur ekki vörð um hagsmuni nútímakvenna. Viljum við snúa aftur til 19. ald- arinnar? Eða jafnvel miðalda? Ég vona að engin hugsandi kona, hvorki gömul né ung, falli í kynjagildruna. Það kann að vera að Palin sé kona, en hún hegðar sér svo sannarlega eins og Rambó og hugsar eins og Chen- ey,“ sagði Allende m.a. Ensler sagði í svari til Schnall að sér líkaði ekki að skammast út í kon- ur. „Ég er femínisti og hef allt mitt líf unnið að því að byggja upp samfélag kvenna, efla konur og koma í veg fyr- ir ofbeldi gegn þeim,“ segir Ensler. Hún segir að þeir sem hafi ákveðið að tefla Palin fram virðist hafa treyst á góðvilja og samstöðu femínista. „Þau viðhorf sem Sarah Palin aðhyllist og sú stefna sem hún fylgir virðist mér hins vegar vera í algjörri andstöðu við femínisma.“ Það er ólíklegt að frjálslyndar kon- ur vestanhafs flykkist að kjörborðinu í nóvember til þess að greiða Söruh Palin atkvæði sitt. Þó er hugsanlegt að framboð Palin höfði til ýmissa annarra kvenna í Bandaríkjunum. Palin er ung kona og móðir. Sú ímynd forseta- og varaforsetaframbjóðanda er óneitanlega ný í bandarískum stjórnmálum. Þá er Palin „smábæj- arkona“. Í slíkum byggðarlögum nýt- ur hún vinsælda. Á dögunum hafði AP-fréttastofan það eftir Bill Clinton, fyrrum Bandaríkjaforseta, að hann skildi vinsældir hennar á þessum slóðum. „Ég er sjálfur frá Arkansas. Ég næ því alveg hvers vegna hún er svona vinsæl í þessum bæjum,“ sagði Clinton. Reuters Fjölskyldukona Palin ásamt yngsta syni sínum, tveimur dætrum og kær- asta elstu dótturinnar, en unga parið er á tvítugsaldri og á von á barni. Sarah Palin er ekki fyrsta konan sem er útnefnd varaforsetaefni annars stóru flokkanna í Banda- ríkjunum. Það hefur áður gerst, ár- ið 1984, en þá var lögmaðurinn Geraldine Ferraro varaforsetaefni Walters Mondale. Þau biðu lægri hlut fyrir Ronald Reagan og George H.W. Bush. Í samtali sem Ferraro átti við breska blaðið Times fyrr í þessum mánuði, sakaði hún fjölmiðla um að ráðast að Palin vegna kynferðis hennar. Ferraro sagði umfjöllun um Pal- in minna á þá meðferð sem hún hefði á sínum tíma fengið. „Fólk vissi ekki hvernig það átti að bregð- ast við framboði mínu, sú leið var farin að horfa til bakgrunns míns ... menn eltust við eiginmann minn og fjölskyldu.“ Ferraro sagðist telja að væri Pal- in karlmaður hefði enginn spurt hana spurninga um nýfætt barn hennar eða hvernig hún hygðist takast á við þá staðreynd að ung- lingsdóttir hennar er barnshafandi. FERRARO OG PALIN ››

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.