Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 23

Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 23 SUMARIÐ 1991 mætti ég í ráðuneyti þitt og kvartaði undan aðferðum við uppsögn á einni af stofnununum sem tilheyra þínu ráðu- neyti. Nánar tiltekið er hér um Vinnueftirlit ríkisins að ræða. Und- irritaður taldi forstjóra ríkisstofnunar ekki fara að venjum eða lögum um frágang starfsloka. Umræður út af starfslokunum áttu sér stað við aðstoðarmann ráðherra, sem á þeim tíma var Bragi Guð- brandsson, þáverandi forstöðumaður Barnaverndarstofu. Braga var ljóst eftir nokkra umfjöllun að ég taldi að brotið hefði verið á mér við þessa upp- sögn og það með grófasta hætti. Ekki varð það neitt tilefni til að- gerða af hálfu ráðuneytis, enda orðaði Bragi þetta svo að viðkomandi for- stjóri væri einn af frammámönnum þjóðarinnar. Skilja mætti af þessum orðum Braga að hann teldi að „frammámaður þjóðarinnar“ hefði leyfi til að brjóta á mér. Ég er ekki sammála því. Það sem ekki var ljóst á þessu stigi málsins var að annað brot átti sér stað við uppsögnina sem ekki var staðfest fyrr en nýverið. En því var þannig háttað að undirritaður gerði skýrslu um brunann í ammoníakskúlu Áburð- arverksmiðjunnar 1990 skömmu fyrir starfslok á stofnuninni. Þennan bruna rannsakaði hann á sínum tíma sjálfur í samvinnu við þáverandi umdæm- isstjóra Vinnueftirlitsins í Reykjavík sem deildarstjóri efnafræðideildar stofnunarinnar Skýrsla þessi var unnin skv. beiðni forstjóra og bar forstjóra Vinnueft- irlits að sjálfsögðu að kynna hana starfsmönnum svo og stjórn Vinnueft- irlitsins, enda er starf að öryggis- málum framvindustarf, rétt eins og störf eftirlitsmanna stofnunarinnar, þar sem málum er fylgt eftir jafnt og þétt og ekki er pláss fyrir neina sér- hagsmuni þeirra sem ekki vilja láta neitt uppi um sína vankunnáttu eða eru að fela einhverar misgjörðir. Allar slíkar misgjörðir ber að leiðrétta strax til að hindra að dýpri veikleikar myndist í öryggisstjórnun viðkom- andi fyrirtækja. Hér er til umræðu langhættulegasta verksmiðja landsins fyrr og síðar. Vinnueftirlitið hefur ekki tilkynnt atburðina 1990 og 2001 er sprenging varð í verksmiðjunni í alþjóðlegan gagnabanka stórslysa- reglugerðarinnar MARS, sem starf- ræktur hefur verið síðan 1984. 1) Það hefði verið góð byrjun að til- kynna brunann þangað 1990. Ekki var það gert. 2) Í stað þess að láta stofnunina vinna sig í gegnum mistökin í sam- ræmi við þroskaða og ábyrga stjórn- sýslu t.d. með sérfræðingateymi á stofnuninni hefur komið í ljós að skýrslu sem undirritaður gerði um brunann var stungið undir stól og nýj- ar upplýsingar benda til að henni hafi verið farg- að inni á stofnuninni. Forstjóri stofnunar- innar, Eyjólfur Sæ- mundsson, er ábyrgur fyrir slíkum athöfnum. Hann fékk 3 ljósrituð eintök afhent af skýrsl- unni á sínum tíma. 3) Til var myndband sem sýndi eldinn á toppi ammoníakskúlunnar og vildi undirritaður gjarn- an fá kópíu af því en hann sá þetta myndband er hann rannsakaði brunann á sínum tíma. Sumir, jafnvel fyrrver- andi starfsmenn verk- smiðjunnar, hafa gefið í skyn að atburðurinn 1990 hafi ekki verið alvarlegur. Slíkar fullyrðingar eru ekki ábyrgar og ekki í samræmi við þann veruleika sem síðar varð sýnilegur í öryggismálum verksmiðj- unnar árið 2001 þegar alvarleg speng- ing varð í ammoníaksverksmiðju verksmiðjunnar sem leiddi til algerr- ar rekstrarstöðvunar. 4) Félagsmálaráðuneytið er búið að fá sennilega töluvert á annað hundrað tölvupóstsendinga um málið. Búið var að senda fjölmargar ábendingar um skýrsluna, bæði í tölvupóstum og bréfum löngu áður en örlög hennar voru ljós á Vinnueftirlitinu. Þá er búið að leggja hana inn í ráðuneyti fyrir meira en tveim árum. Búið er að halda formlega fundi með ráðherr- unum: Páli Péturssyni, Jóni Krist- jánssyni og Jóhönnu Sigurðardóttur út af málinu. Fjölmargir óformlegir fundir hafa verið haldnir, m.a. með Magnúsi Stefánssyni og aðstoð- armanni hans Guðmundi Páli Jóns- syni. 5) Enginn þessara aðila hefur sýnt stjórnsýsluábyrgð fremur en stjórn Vinnueftirlitsins og forstjóri þess. Rétt eins og að ráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, eða forstjóri Vinnueft- irlitsins, Eyjólfur Sæmundsson, hafi sjálfdæmi í máli, þegar um er að ræða alvarlegustu eigin mistök sem kostað hafa þjóðarbúið gífurlega fjármuni, þegar mistök í kjölfar þessara at- burða eru skoðuð. 6) Undirritaður brást ekki í starfi sem deildarstjóri efnafræðideildar Vinnueftirlitsins við rannsókn brun- ans 1990. Hann brást ekki í starfi á Vinnueftirlitinu eða námi við öryggis- mál með þeim hætti sem þarna gerð- ist. Uppsögn, sem knúin var fram með þvingunum og hótunum, hefur verið metin ólögleg af kunnáttuaðilum í vinnulöggjöfinni. Þó að langt sé um liðið frá því hún átti sér stað breytir það ekki staðreyndum málsins. 7) Er ekki eðlilegt að ráðherra, sem skrifaði sjálf undir mistök við gerð ör- yggisráðstafana um hálffyllingu ammoníakskúlunnar í Áburðarverk- smiðjunni, sem komu frá Vinnueft- irlitinu, bæti starfsmanni tjón og margvísleg persónuleg óþægindi sem hlotist hafa af þessari uppsögn? Bréf til Jóhönnu Sigurðardóttur Stefán Einarsson skrifar ráðherra bréf Stefán Einarsson. »Hver er ábyrgð ráð- herra og emb- ættismanna? Höfundur er efnaverkfræðingur og doktor í áhættugreiningu. FRAMKVÆMDASTJÓRI Samtaka verslunar og þjónustu heldur því fram í grein í Morgunblaðinu að heilbrigðisráðherra hafi í ræðu á opnum fundi með sjálfstæðismönnum nýlega lofað 20% verðlækkun lyfja 1. október nk. Þetta er alrangt hjá fram- kvæmdastjóranum. Heilbrigðisráðherra sagði á fund- inum að Actavis hefði lækkað verð á tilteknum lyfjum í vor. Sú lækkun hefði samtals numið um 120 millj- ónum króna, eða að meðaltali um 20% af þeim lyfjum sem um var rætt. Nú væri útlit fyrir, þ.e.a.s. þann 1. október þegar ný lyfjalög taka að hluta til gildi, að til- tekin lyf myndu aftur lækka um svipaða upphæð. Í samtölum heilbrigðisráðherra við fjölmiðla í kjöl- far fundarins komu nákvæmlega sömu upplýsingar fram. Í sjónvarpsfrétt RÚV gætti misskilnings í túlk- un fréttamanns á orðum ráðherra sem líklega end- urspeglaðist í grein framkvæmdastjóra Samtaka verslunar og þjónustu. Strax var óskað leiðréttingar á umræddri frétt, en einhverra hluta vegna birtist sú leiðrétting ekki. Eftir stendur sú staðreynd að undanfarið ár hefur náðst góður árangur í því að lækka verð á lyfjum á Ís- landi. Enn frekari lækkunar er að vænta. Heilbrigðisráðuneytið. Athugasemd frá heilbrigðisráðuneytinu MJÖG lítið er fjallað um bygginga- og verktakaiðnaðinn á opinberum vettvangi enda enginn heppileg- ur vettvangur fyrir slíka umfjöllun í land- inu. Helst er þessi bransi sakaður um mikla galla í framleiðslu mann- virkja eða þá að kostnaður fari langt fram úr áætlun og birst hef- ur fjöldi blaðagreina um þetta tvennt á undanförnum áratugum. Undanfarið hefur mest borið á umæðunni um gallana og auknum fjölda útlendinga og auknum hraða kennt um. Lítið er um ráðstefnur og nám- skeið sem gætu upplýst verktak- ana eða iðnaðinn um það sem er að gerast í bransanum og gæti hjálp- að þeim á ýmsan hátt. Aukin fram- leiðni og betri og vandaðri en ódýrar framkvæmdir gætu til dæmis verið áhugavert efni fyrir marga, enda mundu tekjur aukast í samræmi við það. Miðvikudaginn 17. september sl. kom þó sérstakt verktakablað með Viðskiptablaðinu. Þar er talað við Guðjónu Björk Sigurðardóttur við- skiptafræðing en hún lauk nýlega mastersritgerð frá Bifröst um gæðastjórnun verktaka í mann- virkjagerð. Hingað til hafa konur ekki haft mikinn áhuga á mann- virkjagerð og því síður tjáð sig um einstaka þætti verklegra fram- kvæmda á opinberum vettvangi. Helsta kveikjan að mastersverk- efni Guðjónu var: a) Að verktakar nýttu sér almennt ekki gæða- stjórnun þar sem verkkaupar fylgdu ekki eftir kröfum sínum um gæðastjórnun í verkfram- kvæmdum, b) Að verktakar hefðu almennt ekki næga þekkingu á gæðastjórnun. Á heimasíðu Samtaka iðnaðarins er stutt kynning á gæðastjórnun: „Það að taka upp gæðastjórnun og byggja upp gæðakerfi er fyrst og fremst fólgið í að skrá og lýsa á skipulegan hátt þeim vinnuaðferð- um sem starfsmenn fyrirtækisins hafa tileinkað sér og geta haft áhrif á framgang og gæði verksins eða framleiðslunnar. Þá er ekki eingöngu átt við það sem snýr að sjálfri framleiðslunni heldur einnig og ekki síður varðandi skipulag, innkaup, breytingar, aukaverk, reikningsgerð, innheimtu, starfs- lýsingar … Einhverra hluta vegna hefur gæðastjórnun fengið nei- kvæða ímynd og sá misskilningur verið allsráðandi að gæðastjórnun sé flókin og dýr og eingöngu til þess fallin að þóknast verkkaup- anum … gæðastjórnun fækkar mistökum, álag á stjórnendur minnkar, nýting á mannafla, hrá- efni og tækjum eykst og þar með hagnaður og samkeppnishæfni.“ Gæðastjórnun hefur ekki náð út- breiðslu í verktakaiðn- aðinum þrátt fyrir þann glæsilega árang- ur sem er lofað ef menn taka upp kerfið sem byggist á skrán- ingu gagna og stað- festingu á að ákveðnum verkferlum sé fylgt. Það er ágætis mál að háskólinn á Bifröst beini nemendum í við- skiptafræði inn á þessa braut enda þurfa sérfræðingar í gæðastjórnun ekki endilega að vera sérfræðingar á því fagsviði þar sem innleiða á gæðastjórnun eða reka gæðakerfi og gætu því átt fullt erindi í verk- takaiðnaðinn. Í viðtalinu í Viðskiptablaðinu var rætt um gæðamálin en virtist þó einnig fjallað talsvert um allskonar meint vandamál í verktakaiðn- aðinum þrátt fyrir að á Bifröst fari ekki fram nein kennsla um verk- takaiðnaðinn eða fræðigreinar hans. Námið er væntanlega byggt á viðskiptafræðilegum fræðigrein- um. Þessi hluti viðtalsins kom því frekar á óvart í þessu samhengi. Umfjöllun um galla eða van- þekkingu í verktakiðnaðinum, vandamál tengd hraða verk- framkvæmda eða verktíma, út- boðsmál og fleira sem kom fram í viðtalinu virðast ekki við- skiptafræðilegs eðlis og var því varla marktæk umræða þó gæða- kerfi geti fækkað mistökum en við- mælandinn er væntanlega ekki fróður um verklegar framkvæmdir. Ýmis ummæli í viðtalinu voru því talsvert villandi og byggð á tak- markaðri þekkingu. Verkþekking og þekking á verk- framkvæmdum, byggingaraðferð- um og framkvæmdum á verkstað er nokkuð sem kemur frá tækni- mönnum sem margir eru með lög- gilt 4-6 ára verk- eða tæknifræ- ðiháskólanám. Verklegar framkvæmdir eru oftast unnar undir yfirumsjón þessara sérfræð- inga eða byggingastjóra í samræmi við byggingareglugerð. Forskrift verklegra fram- kvæmda, svo sem teikningar og verklýsingar, er oftast unnin á lög- giltum verkfræðistofum sem að loknum útboðum ganga frá verk- samningum og öðrum nauðsyn- legum gögnum fyrir verkkaupa auk eftirlits með framkvæmd- unum. Að setja upp gæðakerfi til að tryggja að öll fyrirmæli hönnuða og stjórnenda verksins komist tryggilega til skila getur verið ágætis mál þó verktakar virðist ennþá kjósa frekar að vinna á grundvelli þeirra hefða sem þeir hafa skapað í áratugi. Að setja upp nýtt, flókið og viðamikið papp- írskerfi sem er óvíst að skili þeim miklum arði virðist standa í þeim. Pappírinn mundi hrannast upp og hver á svo að lesa allan papp- írsstaflann? Í hefðbundinni iðnaðarfram- leiðslu þar sem notaðir eru staðl- aðir verkferlar er málið allt annað og auðvelt að koma við gæðakerf- um auk rauntímaskráningar verk- ferla. Í verklegum framkvæmdum sem glíma við síbreytilega verk- ferla og síbreytilegar aðstæður þá er málið allt annað og á því strand- ar innleiðing gæðakerfa í verk- takaiðnaðinum en ekki á fáfræði. Enginn rökstuðningur kom fram í viðtali Viðskiptablaðsins um það hvernig unnt væri að spara millj- arða með því einu að innleiða gæðakerfi eins og kom fram í fyr- irsögn. Er hagkvæmt að innleiða gæða- kerfi í verklegum framkvæmdum? Sigurður Sigurðs- son skrifar um gæðakerfi í verk- legum fram- kvæmdum »Enginn rökstuðn- ingur kom fram í viðtalinu um það hvern- ig unnt væri að spara milljarða með því einu að innleiða gæðakerfi Sigurður Sigurðsson Höfundur er cand. phil., byggingaverkfræðingur. MORGUNBLAÐIÐ birtir alla útgáfudaga aðsendar um- ræðugreinar frá lesendum. Blaðið áskilur sér rétt til að hafna greinum, stytta texta í samráði við höfunda og ákveða hvort grein birtist í umræðunni, í bréfum til blaðsins eða á vefn- um mbl.is. Blaðið birtir ekki greinar, sem eru skrifaðar fyrst og fremst til að kynna starfsemi einstakra stofnana, fyrirtækja eða samtaka eða til að kynna viðburði, svo sem fundi og ráð- stefnur. Innsendikerfið Þeir sem þurfa að senda Morgunblaðinu greinar eru vin- samlega beðnir að nota inn- sendikerfi blaðsins. Formið er undir liðnum „Senda inn efni“ ofarlega á forsíðu mbl.is. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Ekki er lengur tekið við greinum sem sendar eru í tölvu- pósti. Í fyrsta skipti sem formið er notað þarf notandinn að nýskrá sig inn í kerfið, en næst þegar kerfið er notað er nóg að slá inn netfang og lykilorð og er þá notandasvæðið virkt. Ekki er hægt að senda inn lengri grein en sem nemur þeirri hámarkslengd sem gefin er upp fyrir hvern efnisþátt en boðið er upp á birtingu lengri greina á vefnum. Nánari upplýsingar gefur starfsfólk greinadeildar. Móttaka aðsendra greina                     

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.