Morgunblaðið - 29.09.2008, Síða 24
24 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Nei! – Dáin ert þú ekki,
þótt okkur horfin sért,
þú frá oss burtu flogin
til fegri heima ert.
Þig sjálfa heyri’ ég segja:
„Nú samgleðjist mér öll,
því ég hefi fengið frelsið
og fluttst í bjarta höll“.
(Ágúst Böðvarsson)
Þín langalangömmubörn,
Ísak, Máni, Einar Örn,
Aþena Sif, Arna Kara
og Hera Sjöfn.
HINSTA KVEÐJA
✝ Kristjana Þor-steinsdóttir
fæddist í Meiri-
Hattadal 8. apríl
1912. Hún andaðist
á heimili sínu,
Hrafnistu í Hafn-
arfirði, föstudaginn
19. september.
Kristjana var dóttir
hjónanna Þorsteins
Mikaels Ásgeirs-
sonar frá Tröð í
Álftafirði, f. 1877, d.
1951 og Rebekku
Bjarnadóttur frá
Nesi í Grunnavík, f. 1885, d. 1981.
Kristjana átti 11 systkini, þau
voru: Bjarney, f. 1907, d. 1907, Ás-
geir Ragnar, f. 1908, d. 1998, Pál-
ína Salóme, f. 1909, d. 1993, Guð-
rún, f. 1913, d. 2008, óskírð, f.
1914, d. 1914, Lárus Sigurvin, f.
1916, d. 1978, Bjarni, f. 1918, d.
2006, Guðjón Kristinn, f. 1921,
Þórir Sveinn, f. 1923, Höskuldur
Andrés, f. 1925, d. 1966 og Sig-
urður, f. 1929, d. 2008.
Í bernsku ólst Kristjana upp á
Ísafirði og bjó þar ásamt for-
eldrum sínum og systkinum. Hún
hafði almenna grunnmenntun en
lauk síðar námi frá Húsmæðra-
skólanum Ósk á Ísafirði. Fjöl-
skylda Kristjönu fluttist til Hafn-
arfjarðar árið 1931.
Kristjana kynntist Ólafi Sig-
urðsyni, sjómanni og síðar verk-
stjóra, f. 3. febrúar 1914, d. 19.
janúar 1989. Hann var sonur Sig-
ríðar Bjarnadóttur, en tekinn í
fóstur til Þorgerðar og Eyjólfs að
Hausastöðum í Garðahverfi
þriggja vikna gamall. Kristjana og
Ólafur ganga í hjónaband 6. októ-
ber 1934 og bjuggu þau fyrstu hjú-
skaparár sín með stórfjölskyldu
Kristjönu í Hafnarfirðinum.
Nokkrum árum síðar fluttust þau
til Reykjavíkur og bjó stór-
elíussyni, f. 1980. Börn þeirra eru
Kristjana Björg, Árelíus Valdi-
mar, Arnoddur William og Magn-
ús Dreki. 3) Björn Sævar, f. 24.
desember 1939, d. 22. janúar 1967.
4) Sigríður, f. 18. mars 1946, gift
Bjarna Þ. Bjarnasyni, f. 7. október
1942. Börn þeirra eru: a) Sig-
urður, f. 1965, kvæntur Ágústu
Árnadóttur, f. 1971. Börn hans eru
Tinna, Daði Hrafn, Auðunn,
Bjarni Maron, Ólafur Valur og
Sigurður Fannar. b) Gísli Jón, f.
1972, í sambúð með Birnu Kjart-
ansdóttur, f. 1972. Börn hans eru
Gísli Jón (látinn), Áslaug Margrét
og Guðmundur Skarphéðinn. c)
Margrét Ína, f. 1975 í sambúð með
Martin Baden, f. 1970. Börn þeirra
eru Michael Thor og Freyja Björk.
d) Kristjana Ruth, f. 1979, í sam-
búð með Þorgils Þorgilssyni, f.
1980. Synir þeirra eru Þorgils og
Birnir Valur. e) Birna Sif, f. 1981, í
sambúð með Bjarka Þórarinssyni,
f. 1983.
Kristjana og Ólafur fluttust með
fjölskyldu sína, ásamt móður og
bróður Kristjönu að Laugarteig 26
árið 1946. Þar var griðastaður
stórfjölskyldunnar. Kristjana
gekk í Kvenfélag Laugarneskirkju
og var þar virkur þátttakandi
ásamt því að sitja í stjórn félagsins
um tíma. Hún vann lengst af sem
forstöðukona þvottahúss og
saumastofu Hrafnistu í Reykjvík
eða í 27 ár, þar til hún var 72 ára
gömul. Þegar Rebekka, móðir
Kristjönu, fór á Hrafnistu í
Reykjavík, fluttust Kristjana og
Ólafur ásamt yngstu dóttur þeirra
að Brúnavegi 12. Bjuggu þau hjón-
in þar í 20 ár og átti stór-
fjölskyldan þar góðan samastað.
Árið 1986 fluttust þau á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Útför Kristjönu fer fram frá
Fossvogskirkju í dag og hefst at-
höfnin klukkan 13.
fjölskyldan saman á
Njarðargötu 29.
Kristjana og Ólafur
eignuðust fjögur
börn, þau er: 1) Gerð-
ur Ólafía, f. 7. júlí
1934, gift Ragnari
Bjarnasyni, f. 22.
september 1934, þau
skildu. Börn hennar
eru a) Bjarni Ómar
Ragnarsson, f. 1954,
kvæntur Rögnu
Kristínu Mar-
inósdóttur, f. 1955.
Börn þeirra eru
Ragnar, Sævar (látinn) og Hrönn.
b) Kristjana Ragnarsdóttir, f. 1955
gift Erni Inga Ingvarssyni, f. 1957.
Börn þeirra eru Þorgerður Anna,
Ingvar, Kolbrún, Hjördís og Örn.
Þau eiga sex barnabörn. c) Hösk-
uldur Sverrir Friðriksson, f. 1965.
Dóttir hans er Alexandra Ósk. 2)
Rebekka, f. 7. október 1937, d. 31.
janúar 2004, gift Árna Gunn-
arsyni, þau skildu. Seinni eig-
inmaður er Valdimar W. Sveins-
son, f. 19. október 1941. Börn
hennar eru a) Gunnar Þór Árna-
son, f. 1955. Dætur hans eru
Harpa Mjöll og Olga Jenný. Hann
á fjögur barnabörn. b) Elín Birna
Árnadóttir, f. 1956, gift Ómari
Valgeirssyni, f. 1957. Börn þeirra
eru Valgeir Árni og Aníta. Þau
eiga tvö barnabörn. c) Ólafur Logi
Árnason, f. 1959. Börn hans eru
Rebekka, Björn Sævar, Rakel,
Einar Andri, Arnar Logi og Máni
Snær. Hann á þrjú barnabörn. d)
Hildur Lind Árnadóttir, f. 1960
gift Eiði Erni Árnasyni. Synir
þeirra eru Einir Logi, Valdimar
Ernir, Hjörvar Freyr, Máni Fann-
ar og Bjarmi Steinn. e) Arnoddur
Magnús Danks, f. 1970. Sonur
hans er Onni Aulis Mikael. f) Svan-
hildur S. Valdimarsdóttir, f. 1972 í
sambúð með Dagbjarti Ingvari Ár-
Hið göfugasta’ í lífi okkar er,
ást, er móðir ber til sinna barna.
Hún fórnar, gefur helft af sjálfri sér
og sækir styrk til lífsins dýpstu kjarna.
Hún veitir ljós, sem ljómi bjartra stjarna.
Hún veitir ljós og leysir hverja þraut,
hún lífið unga styður fyrstu sporin,
er fræðari á framvindunnar braut
og fyrirmynd, sem yljar best á vorin
hinn unga stofn, sem er til þroska borinn.
Er stofninn ungi erfir hennar sið,
ást og virðing geymir sér í hjarta,
við munum eiga gnótt af yndi’ og frið
að efla’ og styðja gleði lífsins bjarta.
Þá hefði enginn yfir neinu’ að kvarta.
Ef móðurástin mótaði’ okkar spor
og mildi hennar gjörðum okkar réði,
þá yrði lífið eins og fagurt vor,
sem okkur færði hamingju og gleði.
Þá lifðum við sem blóm í fögru beði.
Þá kærleikur og tryggðin tækju völd
og trú á lífið veitti sanna gleði.
Þá ríkti fegurð lífsins fram á kvöld,
því fagurt mannlíf stýrði voru geði,
að forsjá hans, er fyrst oss hingað réði.
Já, – móðurást – er yndi sérhvers manns
og allra besta stoð á vegi hálum,
hinn dýrmætasti kjarni kærleikans,
sem kallar fram hið besta’ í vorum sálum.
Hún ætti að ráða’ í öllum okkar málum.
(Ágúst Böðvarsson)
Elsku mamma mín, guð geymi þig
og varðveiti.
Takk fyrir allt, þín
Gerður.
Á kveðjustund sem þessari fer
hugurinn að reika þegar við systk-
inin setjumst niður og horfum til
baka. Amma Kriss eins og við köll-
uðum hana þegar við höfðum náð r-
inu (annars amma Kiss) var amman
með stóru A-i. Amma Kriss hefði ef-
laust getað verið ömmufyrirmynd í
góðri sögu, því hún bjó yfir þvílíkri
þolinmæði gagnvart okkur, æðru-
leysi og umhyggju.
Þegar amma og afi bjuggu á
Brúnó (Brúnaveginum) fengum við
krakkarnir að leika okkur í öllum
krókum og kimum. Ekkert var heil-
agt ef gengið var um hlutina af virð-
ingu. Það var svo í boði að handfjatla
og máta alla skartgripina í skríninu,
máta skó og kjóla eða bara bardúsa í
kjallaranum, í feluleik, búðaleik,
hollinskollinn. Amma var mikill fag-
urkeri og átti marga muni sem
glöddu barnsaugu. Steinasafnið var
mikill fjársjóður og efniviður
skemmtilegra leikja og hafði amma
safnað þeim víðsvegar að. Amma var
líka mikil listakona, málaði, saumaði
og skapaði heil ósköp af fallegum
munum sem hún færði okkur og
skipa í dag ákveðinn sess á okkar
heimilum. Og þrátt fyrir háan aldur
gátu stelpurnar fengið lánuð betri
föt til að fara á dansleiki ef svo bar
undir. Enda var amma Kriss alltaf
vel til höfð og fallega til fara. Henni
þótti mikilvægt að við værum hrein
og snyrtileg, enda féllu rifnu galla-
buxurnar henni ekki í geð.
Amma var ávallt höfðingi heim að
sækja, þegar við komum í heimsókn
var allt til; reiðinnar ósköp af góð-
gæti, m.a. pönnukökur og konfekt.
Maður var varla kominn inn um
dyrnar þegar búið var að draga fram
baukinn góða. Amma hélt áfram að
baka pönnukökur eftir að hún og afi
fluttu t.d. á Hrafnistu. Ömmu þótti
samt einstaklega gott ef henni var
færður veglegur bragðarefur og
skroppið á Kentucky.
Það var alltaf nóg pláss fyrir okk-
ur krakkana hjá ömmu, hvort sem
það var á Brúnó, Hrafnistu eða í bú-
staðnum. Í bústaðnum var oftar en
ekki tekið í spil, skroppið niður að
Höskuldarlæk, kúrt í ömmu holu,
hlustað á útvarpið eða hreinlega
bara spjallað um lífið og tilveruna.
Amma hafði skoðanir á dægurmál-
um og fylgdist vel með líðandi
stundu, var vel lesin og upplýst. Það
er svo kostulegt með hana ömmu að
þrátt fyrir að eiga 75 afkomendur
fylgdist hún vel með okkur öllum.
Hún gladdist yfir góðum áföngum og
sigrum í lífinu, huggaði ef eitthvað
bjátaði á, leiðbeindi og kenndi.
Amma er fyrirmynd okkar allra og í
raun stór partur af því sem við erum
í dag enda ávallt verið til staðar fyrir
okkur. Það eru forréttindi að hafa
fengið að eiga allan þennan tíma með
þér elsku amma og fá að finna fyrir
elskunni þinni og hlýju. Við vitum að
nú ertu komin til afa Óla og þið bros-
ið eflaust til okkar, afi með pípuna og
þú með nælu í barminum, sameinuð
að nýju. Við eigum fjársjóð, minn-
ingar sem við getum yljað okkur við
og deilt með okkar afkomendum.
Guð geymi þig gullið okkar og takk
fyrir allt.
Þorgerður Anna, Ingvar,
Kolbrún, Hjördís og Örn
Arnarbörn.
Elsku besta amma mín.
Nú ert þú komin þangað sem þú
hefur lengi viljað fara, til afa,
barnanna þinna, systkina og for-
eldra.
Það er búið að vera sárt að horfa á
þig þína síðustu daga og mánuði en
ennþá erfiðara að leyfa þér að fara.
Ég hef einhvern veginn alltaf
haldið að þú værir eilíf. Að þú yrðir
alltaf hjá mér.
Þú ert amman mín.
Ég vonaði svo innilega að þú
myndir ná að sjá litla ófædda barnið
mitt, það er svo stutt í það. En ég
veit að þú munt fylgjast með okkur
og barnið mitt mun alltaf vita hver
þú ert. Þú ert amma, engill sem er
kominn til himna.
Ég er einstaklega þakklát fyrir
síðustu orð þín til mín. Þú horfðir til
mín og straukst hendinni að andliti
mínu og sagðir „elsku hjartans stelp-
an mín“ og tókst mig að þér, kysstir
mig á kinnina, straukst yfir magann
minn og sagðir „litla mín“.
Ég er óendanlega þakklát fyrir
allar þær stundir sem við áttum sam-
an og mun ég geyma þær minningar
í hjarta mínu.
Ég elska þig og sakna þín gífur-
lega mikið elsku amma mín.
Þín stelpa,
Birna Sif Bjarnadóttir.
Elsku amma mín, svo kom dag-
urinn sem þú lést. Mikið hef ég kvið-
ið þeim degi sem þú færir.
Með kvíða og mikilli eigingirni
vildi ég ekki horfast í augu við að þú
værir orðin 96 ára. Þú varst alltaf
svo stórglæsileg og dugleg.
Ég óskaði þess að hafa þig lengur,
hafa þig alltaf. Þú og þitt bros, þinn
hlátur, hvernig þú hafðir alltaf húm-
or fyrir sjálfri þér. Það er aðeins ein
amma eins og þú.
Það er með miklum söknuði sem
ég sit hérna og skrifa, allar minning-
arnar koma yfir mig og ég veit alls
ekki hvar ég á að byrja. Þú áttir þinn
stað í hjarta mínu og sá staður verð-
ur alltaf þinn.
Ég mun sakna þín elsku amma
mín.
Þín
Margrét.
Nú er svo komið að hún amma mín
hélt áfram sína leið. Þó tár mín fylgi
henni þá eru það ekki sorgartár
heldur er hvert tár tákn um hverja
góða minningu sem ég á um hana
ömmu. Ég þekki fáa sem höfðu jafn
mikla ást og umhyggju að geyma og
hún amma, hlýjan sem hún gaf frá
sér umvafði mann á erfiðum tímum
svo maður gleymdi daglegu amstri.
Amma mín sýndi mér, eins og öllum,
ávallt mikinn áhuga. Hún tók þátt í
öllu sem maður tók sér fyrir hendur
hvort sem það var smávægilegt eða
mikilvægt. Amma sýndi líka öllum
mikla umhyggju og mátti ekkert
aumt sjá, hún skipti aldrei skapi og
var mjög sanngjörn kona. Ég og
yngri systir mín eyddum miklum
tíma með henni ömmu, hún spilaði
mikið við okkur og spiluðum við oft
tímunum saman, mikið var hlegið og
ég er þess viss að henni hafi þótt það
jafnskemmtilegt og okkur, sér í lagi
þegar litið er til þess að hún var ofsa-
lega heppinn og vann okkur mjög
oft.
Þegar ég lít til baka þá finn ég
hvað ég var heppinn að hafa átt hana
að. Allt sem hún gerði fyrir mig,
hversu falleg hún var og það að ég
fann hvað hún elskaði mig hverja
einustu stund sem ég eyddi með
henni. Ég bara bið og vona að hún
hafi ávallt vitað hversu mikið ég
elskaði hana og fundið hversu mikils
virði hún var mér. Ég man þegar ég
sagði við hana að ég elskaði hana, í
fyrsta sinn á efri árum, það grætti
hana. Ég vildi bara óska að ég hefði
sagt það oftar. Tíminn læknar öll sár
og minningin lifir, ömmu minni og
því sem hún gaf mér á lífsleiðinni
mun ég aldrei gleyma. Ég get ekki
annað en beðið þess að börnin mín
fái að upplifa það sama og ég gerði
og ég vona að ég muni geta veitt
þeim sem mér þykir vænt um það
sama og amma veitti mér.
Ég elska þig, amma, og ég mun
sakna þín en ég er þess fullviss að ég
mun sjá þig aftur og mun geta vafið
örmum mínum utan um þig og hvísl-
að í eyrað þitt að ég elski þig.
Tár þessir taumlausu dropar.
Tignarlegir í útliti og sýn.
Minning sem hver dropi geymir.
Gimsteinn sem úr augunum skín.
Ég geymi þig í huga. Ég geymi þig
í hjarta.
Þín
Kristjana Ruth Bjarnadóttir.
Elsku amma.
Stærsta og fallegasta Perlan okk-
ar, amma Kriss, var alltaf reiðubúin
til að hjálpa og ráðleggja okkur, hlý
og staðföst sama á hverju gekk.
Amma var svo falleg og nett, alltaf
glöð og mikil dama. Það eru ómet-
anleg forréttindi að eiga ömmu sína í
meira en hálfa öld og hreint ekki
sjálfsagt. Heimilið hjá ömmu og afa
var fallegasta heimili í heimi með öll-
um listaverkunum hennar ömmu og
alltaf voru allir velkomnir þangað.
Fyrsta vinnan mín var í þvotta-
húsinu á Hrafnistu undir stjórn
ömmu sem var forstöðukona þvotta-
hússins. Þar lærði ég að vinna því
amma leið manni ekkert slór né hálf-
kák í vinnubrögðum. Hún kenndi
mér að gera hlutina vel og af vand-
virkni.
Amma hafði ótrúlega þolinmæði
við að kenna mér að sauma sem kom
sér oft mjög vel fyrir mig. Amma
taldi ekki eftir sér að vinna allan
daginn og koma svo heim og passa
tvö elstu börnin okkar fram á kvöld,
hún var bara glöð með barnavagninn
í hjónaherberginu og leikgrindina í
stofunni. Vinir ömmu og afa gerðu
létt grín að þessu og spurðu hvort
þau væru byrjuð á barneignum að
nýju.
Við gætum fyllt Morgunblaðið
mörgum sinnum af minningum um
þig, elsku amma, en við erum svo
lánsöm að eiga minningarnar hjá
okkur sjálfum og munum njóta
þeirra um ókomna tíð. Nú sjáum við
fyrir okkur ömmu og afa sigla burt, á
fallegasta bátnum, út fjörðinn á
spegilsléttum sjónum í haustsólinni,
sæl að vera sameinuð að nýju. Við
vitum að núna er amma komin í hóp
þeirra sem vaka yfir okkur, falleg-
asta Perlan.
Takk fyrir allt, elsku amma Kriss
okkar, Guð geymi þig.
Kristjana og Örn.
Það er mikill söknuður að sjá á eft-
ir henni ömmu Kriss, en ég veit að
hún var tilbúin að hitta afa Óla aftur
eftir langan aðskilnað og mikið held
ég að hann verði ánægður að fá hana
ömmu til sín. Afi og amma voru alltaf
svo náin, maður upplifði þau nánast
sem eina heild. Þannig fóru þau líka
saman í gegnum lífið sem ekki var
alltaf dans á rósum.
Amma var mikil sómakona, hug-
ljúf og næm. Hún var skemmtileg,
húmoristi sem gat hlegið og oft hló
hún mikið og innilega. Hún var líka
leiðtogi. Allir gátu leitað til hennar
því hún gaf svo mikið af sér. Allt sem
hún gerði var svo myndarlegt, hún
var svo dugleg og rausnarleg. Og
margir fengu að njóta þessara hæfi-
leika hennar.
Fyrir mér voru amma Kriss og afi
Óli alltaf sem afar nánir vinir og
heimili þeirra var alltaf sem mitt
annað heimili. Ég var fyrsta barna-
barn þeirra og fæddist reyndar í
húsi þeirra á Laugateigi 26. Fyrstu
minningarnar um ömmu tengjast
líka Laugateignum en foreldrar mín-
ir bjuggu þar í kjallaranum fyrstu
árin í sínum búskap. Það var frábært
að geta skotist upp til ömmu og afa
og fengið að njóta hlýju þeirra og
umhyggju. Og ekki var lakara að
hitta þar líka langömmu Rebekku og
fá hjá henni eitthvað gott í gogginn
eða fá hana til að lesa fyrir sig góða
sögu.
Afi og amma voru í raun svo mikill
og eðlilegur þáttur í mínu lífi að ég
var svo sem ekkert að velta því fyrir
mér. Þau bara voru þarna, tilbúin að
leyfa manni að njóta nærveru sinnar
eða til að hjálpa manni og styrkja.
Margir þættir koma upp í hugann
þegar ég hugsa til baka. Ég man til
dæmis að þegar ég var að lesa undir
landsprófið á sínum tíma þá flutti ég
til þeirra á Brúnaveginn og var þar í
marga daga til að njóta þar næðis og
hvatningar. Það var líka gaman að
koma í þvottahúsið á Hrafnistu og
sjá hvernig amma stjórnaði þessum
stóra vinnustað af röggsemi og naut
jafnframt virðingar bæði starfs-
manna og stjórnenda. Það bjó líka
mikill listamaður í henni ömmu enda
bar fallega heimilið þeirra þess
ávallt merki. Þau eru ófá listaverkin
sem liggja eftir hana ömmu. Þá var
líka frábært að heimsækja afa og
ömmu í sumarbústaðinn í Grímsnes-
inu en þar áttu þau margar dýrð-
arstundir, í þægilegri nálægð við
Siggu og Banna.
Ég man líka að það þótti sérstakt
þegar afi og amma fluttu á Hrafnistu
í Hafnarfirði, þá bæði aðeins liðlega
sjötug. En þarna kom skipulag og
innsæi ömmu berlega í ljós því þetta
reyndist bæði skynsamleg og
ánægjuleg ráðstöfun. Þau áttu þarna
Kristjana Þorsteinsdóttir