Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 34

Morgunblaðið - 29.09.2008, Page 34
34 MÁNUDAGUR 29. SEPTEMBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur gudrung@mbl.is HÚN tekur á móti mér í húsakynn- um rússneska sendiráðsins við Tún- götu. Það er birta yfir andliti hennar og röddin blíðleg, en á bak við þetta yfirbragð býr breitt litróf tilfinning- anna, það hefur hún sýnt í túlkun sinni á fjölmörgum frægum óperu- hlutverkum sem krefjast mikils af flytjendum sínum. Hún segir mér að Massehet í óper- unni Menon hafi verið sitt uppáhalds- hlutverk, en Galína Pisarenko er lýr- ískur sópran, fræg söngkona og snjall kennari, sem fyrir helgi var með meistaranámskeið (Masterclass) í Salnum í Kópavogi að tilhlutan Jón- asar Ingimundarsonar. „Ég er mjög ánægð með að hafa fengið boð um að koma hingað þess- ara erinda og einnig þakklát rúss- neska sendiráðinu hér fyrir aðstoðina við mig af þessu tilefni, sem og ís- lenska sendiráðinu í Moskvu,“ segir Galína. Hún kveður raddir þeirra nem- enda sem hún hefur kennt á Íslandi vera mun ljósari yfirleitt en hinar rússnesku raddir. „Mezzósópran í Rússlandi er dekkri rödd en rödd sem skilgreind er sem mezzó hér á Íslandi en kennslan hér er svipuð og mér finnst þeir íslenskir nemendur sem ég hef leiðbeint hér hafa fengið góða kennslu, syngja bæði afslappað og hafa góðan stuðning,“ segir Galína. Fór að kenna fertug Þetta er í annað sinn sem hún heimsækir Ísland. „Ég kom hingað fyrir tveimur ár- um til að leiðbeina söngnemendum og þá sá ég Geysi og þótti mikið til koma,“ segir hún. Eiginmaður Galínu kinkar kolli, hann er viðstaddur fund okkar í hinum rússnesku húsakynn- um við Túngötuna. „Við höfum verið gift í 22 ár og hann kemur með mér hvert sem ég ferðast og hjálpar mér mikið í starfinu,“ segir Galína um eiginmann sinn, Viktor Malanichev, sem er verkfræðingur, kominn á eft- irlaun og er nú framkvæmdastjóri Mozartfélagsins í Moskvu. Galína Pisarenko var um áratuga skeið ein helsta söngkona Stan- islavsky óperuhússins í Moskvu en þar er hún alin upp. Við lok söngferils Galínu var hún aðalsöngkona Nýju óperunnar í Moskvu og tók þátt í uppbyggingu hennar frá grunni. „Ég fór að kenna fertug að aldri og seinni árin hefur það verið mitt að- alstarf,“ segir Galína. Nemendur hennar eru sumir víðkunnir. Hún nefnir Lubov Petrova sem er söng- kona við Metropolitan í Bandaríkj- unum, sem og Albinu Schagim- uratova sem syngur við Huston Theater í Bandaríkjunum. Einnig hefur Galína verið með Masterclass í fjölmörgum löndum. Ég spyr um uppáhaldsraddir landa hennar. „Rússar elska bassa og mezzó- sópran, hinar dekkri raddir, þær höfða til hinnar tregafullu þjóð- arsálar okkar,“ segir hún og brosir. Um leið og ég kveð þessi sam- rýndu hjón er mér ofarlega í huga hvert lán það er fyrir íslenska söng- nemendur að eiga þess kost að fá leiðsögn hjá svo mikilli listakonu sem Galínu Pisarenko er. Rússar elska dökkar raddir Galína Pisarenko Hefur sungið víða um heim, m.a. á Ítalíu og vestanhafs.  Sópransöngkonan Galína Pisarenko kenndi masterclass í Salnum í Kópavogi  Segir að raddir íslenskra nemenda sinna séu ljósari en þeirra rússnesku Í VETUR mun UNIMA (alþjóðleg samtök brúðuleik- húsfólks) standa fyrir svoköll- uðum kúlukvöldum í lok hvers mánaðar í Kúlunni í Þjóðleik- húsinu. Þar verða gestir leiddir inn í töfrandi heim brúðuleik- hússins með lifandi og fjöl- breyttri dagskrá. Fyrsta kúlu- kvöld vetrarins verður kl. 20 í kvöld og er það brúðumeist- arinn Bernd Ogrodnik sem stígur fyrstur á svið. Hann mun deila með gestum hugleiðingum sínum og innsýn úr lífi sínu sem brúðuleikari og gefa við- stöddum færi á að prófa. Aðgangur er ókeypis, nánari uppl. á unima.is. Leiklist Ókeypis í brúðu- leikhús í kvöld Bernd Ogrodnik HRAFNHILDUR Arn- ardóttir myndlistarmaður fjallar um eigin verk í hádeg- isfyrirlestri í húsnæði mynd- listardeildar Listaháskóla Ís- lands, Laugarnesvegi 91, kl. 12.30 í dag. Hrafnhildur, sem er einnig þekkt undir nafninu Shoplifter, býr og starfar í New York. Hún lauk námi við Myndlista- og handíðaskóla Ís- lands árið 1993 og stundaði framhaldsnámi við School of Visual Arts í New York 1994-1996. Hún hefur átt verk á sýningum víða um heim, til dæmis vann hún verk fyrir MOMA í New York í vor. Nánar á shoplifter.us. Myndlist Hrafnhildur fjallar um eigin verk Hrafnhildur Arnardóttir MENNTAVÍSINDASVIÐ HÍ fær tvo gesti frá Noregi nú í vikunni, þær Evu Maagerø og Grethu Holtan Folkestad. Þær munu taka þátt í námskeiðum íslenskukennara, heimsækja grunnskóla og auk þess flytja hvor sinn fyrirlesturinn. Fyr- irlestrarnir verða haldnir á morgun í stofu H-101 í að- albyggingu menntavís- indasviðs við Stakkahlíð. Fyr- irlestur Grethu hefst kl. 15 og Evu kl. 16. Gretha fjallar um leikritaskáldið Henrik Ibsen en Eva fjallar um lestur fjölhátta texta í skóla. Fyrri fyr- irlesturinn er á norsku, en sá síðari á ensku. Fyrirlestrar Henrik Ibsen og fjölhátta texti Henrik Ibsen NORSKI danshöfundurinn Ina Christel Johannessen hlaut á fimmtudaginn norsku gagnrýn- endaverðlaunin fyrir verk sitt Ambra. Ina samdi verkið fyrir Ís- lenska dansflokkinn og Carte Blanche í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík og Listahátíðina í Berg- en. Ambra er eitt stærsta verkefni sem Íslenski dansflokkurinn hefur ráðist í, en í því sameinuðust tveir helstu nútímadansflokkar Norð- urlanda. Verkið var frumsýnt á Listahátíð í Reykjavík í maí, sýnt á Listahátíðinni í Bergen í júní og svo nú síðast í september í Bærum Kult- urhus í Ósló. Johannessen fékk til liðs við sig þær Kiru Kiru og Hildi Ingveldardóttur Guðnadóttur sem sömdu tónlistina fyrir verkið ásamt þýskum samverkamanni sínum, Dirk Desselhaus. Eftirfarandi kemur fram um verk- ið á vefsíðu norsku gagnrýn- endaverðlaunanna: „Það sem gerir þetta verk ein- stakt er stærðin á því. Formbundnar en á sama tíma tilfinningaríkar hreyfingar dansaranna skapa sin- fónískt verk sem mun lifa lengi. Með því að ljá Inu Christel Johannessen tuttugu dansara var henni gefið ein- stakt tækifæri til að skapa stórsýn- ingu. Að sjá sýninguna aftur fyrir aðeins nokkrum dögum í Bærum Kulturhus staðfesti þá trú okkar að Ambra er tímamótaverk fyrir dans-, tónlistar- og sjónræna sköpun.“ „Ina og samstarfsfólk hennar sem og dansarar flokkanna beggja eru vel að þessum verðlaunum komin og erum við stolt af þessu vel heppnaða norræna samstarfi,“ segir Katrín Hall, listrænn stjórnandi Íslenska dansflokksins. Morgunblaðið/Valdís Thor Verðlaunahafinn Johannessen. Dansverkið Ambra vann í Noregi Samið fyrir Íslenska dansflokkinn Galína Pisarenk fæddist í Len- ingrad en flutti með foreldrum sínum til Moskvu tveggja ára. „Þar vorum við stríðsárin. Þau voru erfið, enda mörkuð dauða og hörmungum, eftir stríð var líka erfitt ástand í Moskvu eins og víðar þar sem styrjöldin hafði geisað,“ segir Galína. „Foreldrar mínir dóu þegar ég var barn að aldri og ég ólst upp hjá frænku minni,“ segir Galína. Hún kveðst hafa farið að læra söng 16 ára gömul. Kennari hennar var Nina Dorliak, fræg söngkona. Galína hefur ekki aðeins sýnt sig sem afburða listamann á óperusviðinu, hún var einnig rómuð fyrir ljóða- og órator- íusöng bæði í sínu heimalandi og einnig víða um heim þar sem hún hefur sungið, m.a. á Ítalíu, í Bandaríkjunum, Þýskalandi og í fjölda annarra landa. Missti foreldra sína ung HAFLIÐI Hallgrímsson var sennilega mað- urinn á tónleikum Cammerarctica á mánu- dagskvöldið. Kammerhópurinn flutti m.a. kafla úr þremur verkum eftir hann, Offerto fyrir einleiksfiðlu, Solitair fyrir einleiksselló og Sjö spökur fyrir selló og fiðlu. Ég er ekki frá því að það hafi verið toppurinn á dag- skránni. Afhverju? Jú, það er eitthvað einstaklega magnað við þessi litlu verk. „Allt að því sálmur“ er t.d. mergjuð tónsmíð, íhugul og innhverf, myrk og með undiröldu sem ekki er hægt að skilgreina í orðum. Og þögul þjáning svífur yfir vötnunum í hinum tón- smíðunum, þjáning sem nístir mann inn að beini. Þau Hildigunnur og Sigurður Halldórsbörn léku og gerðu það af innlifun og nákvæmni. Túlkun þeirra var svo grípandi að mann langaði til að heyra verkin strax aftur. Andi tónlistarinnar komst fullkomlega til skila í vönduðum flutningi þeirra. Tvö einleiksverk fyrir klarinettu, Blik eftir Áskel Másson og Stef og tilbrigði eftir Jörg- en Bentzon, voru líka prýðilega útfærð af Ár- manni Helgasyni. Þar var leikið af festu, ör- yggi og djúpri tilfinningu. En svo syrti í álinn. Þrjár etýður eftir Jo- hann Helmich Roman í meðförum Hildigunn- ar glönsuðu ekki nægilega. Etýða er nokk- urskonar fingraæfing, og fingraæfingar eiga yfirleitt að vera glæsilegar. Það voru þær ekki hér. Kvartett op. 7 eftir Bernhard Cru- sell með þremenningunum og Svövu Bern- harðsdóttur víóluleikara, kom sömuleiðis ekki nægilega vel út. Vissulega var margt ágæt- lega gert, en einstaka raddir voru ekki alltaf hreinar og skemmdi það heildarsvipinn. Ég er ekki vanur að tala um aðsókn í greinum mínum, en ætla nú að gera und- antekningu. Aðeins um tíu manns voru meðal áheyrenda, sem bendir til að eitthvað sé að kynningarstarfseminni, annaðhvort hjá Nor- ræna húsinu, hjá Cammerarctica, eða báðum. Að vísu var hópi fólks smalað inn eftir hlé, sem hafði fram að því setið að snæðingi í kaffiteríunni, um fimmtán manns sýndist mér. Það breytti ekki miklu. Tónleikar þar sem ekkert kostar inn og eru haldnir af þekktum kammerhópi hérlendis, með vand- aðri dagskrá, ættu að vekja áhuga EIN- HVERRA. Hér þarf auðsjáanlega að laga til! Þjáning í tómarúmi TÓNLIST Norræna húsið Cammerarctica flutti norræna tónlist. Mánudagur 22. september. Kammertónleikar bbmnn Morgunblaðið/Golli Maður kvöldsins Flutt voru þrjú verk eftir tónskáldið Hafliða Hallgrímsson. Jónas Sen Er fyrirsjáanlegt að það muni verða þrætuepli nörda um langt skeið … 41 >> Morgunblaðið/Árni Sæberg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.