Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ GuðmundurGuðni Þorgeirs-
son fæddist í Ön-
undarfirði 17. maí
1924. Hann lést á
líknardeild Landa-
kotsspítala 8. októ-
ber síðastliðinn.
Foreldrar hans voru
Þorgeir Egilsson, f.
29.9. 1884, d. 22.10.
1979, og Hólmfríður
Guðjónsdóttir, f.
21.9. 1894, d. 10.6.
1996. Systkini Guð-
mundar eru Aðal-
steinn, f. 19.1. 1916, d. 26.2. 1987,
Kristján, f. 21.2 1918, og Þórunn,
17.6. 1956. Börn þeirra eru Matt-
hildur B., f. 1975, Þorgerður F., f.
1979, hún á þrjú börn, og Guðrún,
F., f. 1987, hún á eitt barn. 3)
Guðni Þ., dóttir hans og Rutar Sig-
geirsdóttur, f. 1954, er Guðný, f.
1977, hún á fimm börn. Dætur
hans og Ástríðar Kristjánsdóttur,
f. 1959, eru Sara D., f. 1982, hún á
tvö börn, og Berglind, f. 1985, hún
á eitt barn. Sonur hans og Jónu E.
Gunnarsdóttur, f. 1973, er Gunnar
Þ., f. 2000. 4) María, f. 3.6. 1957.
Börn hennar og Jóhanns L. Guð-
mundssonar, f. 1943, eru Dagný, f.
1976, hún á tvö börn, og Jóhann
L., f. 1982. Sambýlismaður hennar
er Jón Vikar Jónsson.
Guðmundur var bóndi í Þor-
móðsdal í Mosfellssveit frá 1960 til
1975 en lengst af var hann stræt-
isvagnabílstjóri.
Útför Guðmundar verður gerð
frá Fossvogskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 15.
f. 10.2. 1930.
Dóttir Guðmundar
og Guðrúnar
Erlendsdóttur, f.
26.10. 1922, er Sig-
rún, f. 16.12. 1947,
gift Ágeiri Axelssyni,
f. 7.5. 1943, þau eiga
tólf börn.
Guðmundur
kvæntist Guðrúnu
Þorsteinsdóttur, f.
27.7. 1929, d. 20.8.
2003. Þau skildu.
Börn þeirra eru: 1)
Þorsteinn, f. 25.6.
1951. 2) Guðmundur, f. 9.3. 1953,
kvæntur Fjólu Ísleifsdóttur, f.
Elsku afi, síðustu mánuðir voru
þér þungbærir og síðustu dagarnir
þínir voru þér og okkur erfiðir. Við
vonum að þú hafir fundið nærveru
okkar. Þú ert núna kominn á betri
stað og hvílist vel. Okkur langar að
minnast þín svolítið með þessum
orðum.
Okkur er það sérstaklega minn-
isstætt er við hugsum aftur í tím-
ann, þegar við systurnar vorum
litlar, við komum til þín í Skipa-
sundið, þá áttirðu alltaf kex, köku
og volga mjólk handa okkur. Ekki
kom það nú á óvart ef hann Jói
frændi var hjá þér, þið voruð góðir
félagar.
Það var nú ekki leiðinlegt að sjá
þig koma akandi á strætisvagnin-
um, þá fékk maður sko að tala við
bílstjórann.
Við höfum alltaf kallað þið hoho
afa en upphaflega byrjuðum við á
því af því að þú áttir hesta. Okkur
þótti svo gaman að koma upp í
hesthús til þín, fá að fara aðeins á
bak, fá heitt kakó og kex og hlaupa
um í móanum. En svo eignuðumst
við okkar eigin hesta og vorum öll
saman í hestunum.
Við munum eftir gamla hvíta
bílnum sem þú áttir, í hanskahólf-
inu lumaðirðu alltaf á perumolum.
Á jólunum fengum við alltaf 10
happaþrennur í umslagi og gátum
ekki beðið eftir því að skafa þær,
það skipti engu máli hvort það var
vinningur eða ekki, það var bara
svo gaman að skafa. Ef við fengum
ekki vinning þá skófum við meira
að segja „má ekki skafa“ reitinn.
Það situr okkur fast í minni að í
öllum afmælis- og jólakortum skrif-
aðir þú, „þess óskar Guðmundur
afi.“ Börnin okkar fengu að kynn-
ast þér sem hoho afa, það var alltaf
svo gaman að koma til þín með
börnin, þú varst svo hrifinn af þeim
og stoltur langafi.
Elsku hoho afi, við söknum þín
sárt. Megir þú hvíla í friði.
Þess óska
Sara Dögg og Berglind
Guðnadætur.
Guðmundur Guðni
Þorgeirsson
Elsku Hrafnhildur
Lilja, fallega systir
mín.
Þú sem elskaðir lífið og lifðir því
til fulls ert nú látin langt fyrir aldur
fram.
Ég er enn að átta mig á því sem
gerst hefur og skil ekki hvernig
Hrafnhildur Lilja
Georgsdóttir
✝ HrafnhildurLilja Georgs-
dóttir fæddist í
Reykjavík 28. mars
1979, en ólst upp á
Ólafsfirði. Hún lést í
Dóminíska lýðveld-
inu 21. september
síðastliðinn og var
jarðsungin frá
Ólafsfjarðarkirkju
4. október.
nokkur maður gat
tekið lífið frá þér á
þennan hræðilega
hátt.
Ég er reið og sár og
hjarta mitt yfirfullt af
sorg. Tveimur vikum
fyrir andlát þitt sátum
við hvor sínum megin
í heiminum með tölv-
urnar okkar í fanginu,
spjölluðum á Skype
og horfðum hvor á
aðra. Þú sagðir mér
frá lífi þínu í útlöndum
og þú brostir þínu fal-
lega brosi og varst svo ánægð. Ég
sagði þér fréttir að heiman og við
enduðum samtalið með því að segja
hvor annarri hversu vænt okkur
þætti hvorri um aðra.
Mikið þykir mér vænt um þetta
samtal og ég mun varðveita þessa
minningu í hjarta mínu þar til við
hittumst á ný.
Við vorum orðnar nánar og góðar
vinkonur, gátum talað um allt. Þú
varst hreinskilin þegar ég þurfti á
því að halda, sparaðir ekki hrósið
þegar þér fannst ég gera góða hluti
og sagðir mér óspart hvað þér þótti
vænt um mig og Líneyju Mist, litlu
frænku þína.
Við áttum svo góðar stundir sam-
an áður en þú lagðir af stað út í hinn
stóra heim.
Þið Líney Mist skemmtuð ykkur
konunglega og hún horfði á þig
aðdáunaraugum.
Það var erfitt fyrir þig að kveðja
hana og ófá tárin sem runnu niður
kinnar okkar þegar við kvöddumst.
Mér fannst einhvern veginn eins og
ég ætti aldrei eftir að sjá þig framar,
en reyndi að trúa því að við myndum
hittast einhvers staðar á sólarströnd
í lok þessa árs eða byrjun þess
næsta.
Þú skildir margt gott eftir þig
elsku Hrafnhildur, þú kenndir mér
að trúa á sjálfa mig og þú kenndir
mér svo margt sem ég mun nýta
mér í lífinu.
Ég mun ylja mér við allar góðu
minningarnar þegar sorgin er að
yfirbuga mig.
Líney Mist man vel eftir þér og ég
sagði henni að núna værir þú fal-
legur engill sem vekti yfir okkur.
Hún veit að þú lifir í hjörtum okk-
ar og nú er bangsinn sem þú bjóst til
handa henni í sérstöku uppáhaldi
hjá henni.
Ég mun halda minningu þinni lif-
andi og segja henni reglulega frá
þér, hún mun alltaf vita hversu ynd-
islega móðursystur hún átti. Ég
vona og trúi að nú sértu hjá Ödda
frænda, afa Krumma, ömmu Hönnu
Stellu og öllum þeim sem við höfum
misst frá okkur. Þú saknaðir þeirra
svo sárt og ég trúi að þið séuð nú öll
saman og eigið góðar stundir.
Lífið verður aldrei eins án þín og
ég mun aldrei sætta mig við þetta,
en ég mun gera mitt besta til að
vera hamingjusöm og gera góða
hluti í lífinu … því að ég veit að þú
hefðir viljað það.
Ég trúi því að sál þín lifi og að ég
eigi eftir að hitta þig aftur.
Elsku systir mín, þúsund þakkir
fyrir allt.
Ég elska þig og mun alltaf sakna
þín.
Þín systir,
Hanna Stella Georgsdóttir.
Útfararþjónustan ehf.
Stofnað 1990
Símar: 567 9110 & 893 8638
www.utfarir.is • runar@utfarir.is
Alhliða útfararþjónusta
Rúnar
Geirmundsson
Sigurður
Rúnarsson
Elís
Rúnarsson
Þorbergur
Þórðarson
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVANHVÍT FRIÐRIKSDÓTTIR,
Fannborg 8,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð þriðjudaginn
7. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu miðvikudaginn
15. október kl. 15.00.
Friðrik Sveinn Kristinsson, Þóra Jakobsdóttir,
Flóki Kristinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
SIGRÍÐUR E. G. BIERING,
Árskógum 2,
Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugardaginn
4. október.
Útförin fer fram frá Seljakirkju fimmtudaginn
16. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á minningarsjóð
Skógarbæjar.
Helga E. Biering, Sveinn B. Pedersen,
Moritz W. Biering, Sidsel Eriksen,
Guðrún Biering, Hrafn Björnsson,
Bertha Biering,
Louise Biering,
ömmubörn, langömmubörn og
langalangömmubörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
INGIBJÖRG PÁLSDÓTTIR,
Garðvangi,
Garði,
áður Faxabraut 5,
Keflavík,
er látin.
Útför fer fram frá Útskálakirkju laugardaginn
18. október kl. 11.00.
Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vildu
minnast Ingibjargar er bent á Styrktarsjóð dvalarheimila
aldraðra á Suðurnesjum.
Ragnhildur Helgadóttir, Bolli Thoroddsen,
Rannveig Lárusdóttir Reumert,
Þráinn Andersen, Jytte F. Jakobsen,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi
og langafi,
GUNNAR ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
Kársnesbraut 67,
Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð laugardaginn
11. október.
Útför hans verður gerð frá Kópavogskirkju
mánudaginn 20. október kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu
minnast hans er bent á Minningargjafasjóð Sunnuhlíðar, sími
560 4100 eða reikningur 1135-26-700 kt. 681295-3569.
Ásta Sigurrós Sigmundsdóttir,
Sigrún Björk Gunnarsdóttir, Ásgeir Indriðason,
Júlíana Signý Gunnarsdóttir, Örn Jónsson,
Óðinn Gunnsteinn Gunnarsson, Auður Hallgrímsdóttir,
Anna Margrét Gunnarsdóttir, Guðmundur Jóelsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Okkar ástkæra
SIGURRÓS JÚLÍUSDÓTTIR
lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund laugar-
daginn 11. október.
Útförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn
17. október kl. 13.00.
Margrét Júlía Rafnsdóttir,
Sigríður Rafnsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi,
ÞORKELL SIGURÐSSON,
Barkarstöðum,
Svartárdal,
sem lést þriðjudaginn 7. október, verður
jarðsunginn frá Bergstaðarkirkju laugardaginn
18. október kl. 14.00.
Birna María Sigvaldadóttir,
Sigurður Þorkelsson,
Halldór Þorkelsson, Margrét Sigurðardóttir,
Sigríður Þóra Halldórsdóttir,
Þórkatla María Halldórsdóttir,
Freyja Hrönn Halldórsdóttir
og aðrir aðstandendur.