Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 15 Félags- og tryggingamálaráðuneytið Málþing um fjölskyldumál á Íslandi "Höfum við hagsmuni barna að leiðarljósi" Mánudaginn 27. október 2008 á Grand Hóteli kl. 12.30-17.00 12.30 Málþing sett Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra. Kynning á starfi nefndar um einstæða og forsjárlausa foreldra. Ágúst Ólafur Ágústsson, formaður nefndar um einstæða og forsjárlausa foreldra og stjúpforeldra. 13.00 Félagsleg staða barna í mismunandi fjölskyldum - líðan barna - að hafa hagsmuni barna að leiðarljósi - "réttur" foreldra vs. "réttur barns" - ráðgjöf og fræðsla Framsögumenn (10 mín. hver) - í lok framsöguerinda verða umræður - Sigrún Júlíusdóttir prófessor í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands - Ársæll Már Arnarsson lektor í sálfræði við Háskólann á Akureyri - Gunnar Hersveinn heimspekingur 14.00 Lagaleg staða barna eftir mismunandi fjölskyldugerðum - sameiginleg forsjá - lögheimili - umgengni - stjúpfjölskyldur - forsjárlausir foreldrar - sáttaleiðir - heimildir dómara Framsögumenn (10 mín. hver) - í lok framsöguerinda verða umræður - Valborg Snævarr lögmaður - Dögg Pálsdóttir lögmaður - Jóhann Loftsson sálfræðingur 15. 00 Kaffi. 15.30 Fjárhagsleg staða barna eftir mismunandi fjölskyldugerðum - fátæk börn - meðlag - barnabætur - fjárhagsaðstoð - sérstakur stuðningur ríkis og sveitarfélaga Framsögumenn (10 mín. hver) - í lok framsöguerinda verða umræður - Guðný Björk Eydal deildarforseti félagsráðgjafardeildar Háskóla Íslands - Ásta S. Helgadóttir forstöðumaður Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna - Laufey Ólafsdóttir formaður Félags einstæðra foreldra 16.30 Barnið í framtíðarfjölskyldunni Ragnhildur Sverrisdóttir blaðamaður, Morgunblaðinu. 16.45 Ráðstefnuslit. Ráðstefnustjóri verður Lára Björnsdóttir skrifstofustjóri í félags- og tryggingamálaráðuneytinu. Málþingið er opið öllum og er aðgangur ókeypis. Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is „ÉG hef alltaf verið ötull stuðnings- maður sparisjóðanna. Þeir eru ekki ein stofnun, heldur samansafn af fjölþættum jurtagarði, sem rekur rætur sínar vítt og breitt í byggð- arlögum landsins. Í ljósi þess að aðr- ar meginfjármálastoðir landsins hafa fallið þá eru sparisjóðirnir í heild sinni það megintré í banka- og fjármálaskógi okkar Íslendinga sem enn stendur.“ Þetta sagði Ólafur Ragnar Gríms- son, forseti Íslands, í heimsókn sinni í Icebank og Samband íslenskra sparisjóða í hádeginu í gær. Forset- inn ávarpaði starfsfólk sparisjóð- anna í útibúum um land allt í gegn- um fjarfundarbúnað og svaraði í framhaldinu fyrirspurnum starfs- manna. Endurreisn kallar á samstarf Að mati Ólafs Ragnars hefur í allri umræðunni að undanförnu gleymst að sparisjóðirnir sem heild hafi verið fjórða megintréð í íslensk- um fjármála- og bankaskógi alla tuttugustu öldina. „Og aldrei brýnna en nú að það tré fái að halda sínum styrk. Ef við ætlum að hafa timbur í uppbygginguna þá verðum við að varðveita þann hluta í skóginum sem enn stendur,“ sagði Ólafur Ragnar og sagðist treysta því að starfsfólk sparisjóðanna myndi taka höndum saman við almenning í landinu um að endurreisa íslenskt fjármálakerfi. „Við þurfum að styrkja og end- urreisa íslenskt fjármálakerfi og þurfum að gera það í sameiningu. Það enginn einstaklingur til í land- inu, hvorki bankamaður, kjörinn for- ystumaður þjóðarinnar né athafna- maður á vettvangi fyrirtækjanna sem er með einhverja töfralausn um það með hvaða hætti á að endurreisa íslenskt fjármálakerfi. Það verður að vera verkefni okkar allra. Óhjá- kvæmilegt er að sparisjóðirnir verði þar mikilvægur burðarás, bæði í ljósi sögunnar og í ljósi nálægðar sparisjóðanna við almenning.“ Í ávarpi sínu til starfsmanna sparisjóðanna gerði forsetinn áhlaup Breta á Íslendinga sérstaklega að umtalsefni. „Það er afar leitt að ábyrgir stjórnmálamenn, eins og forsætisráðherra og fjármálaherra Bretlands, skuli stíga fram á völlinn með þeim hætti sem þeir gerðu,“ sagði Ólafur Ragnar og sagðist þeirrar skoðunar að engir aðrir er- lendir menn hefðu skaðað Ísland jafnmikið og fyrrnefndir ráðherrar. „Að nota hryðjuverkalögin sem voru samþykkt eftir 11. september [2001] í Bretlandi gegn friðsælasta lýðræð- isríki í veröldinni, smæsta aðild- arríki NATO og langtíma banda- manni Bretlands er náttúrlega svo fáránlegt eða ósvífið eða heimsku- legt, eftir því hver er raunin, að er- lendir menn sem hlusta á þá frásögn eru gapandi af undrun,“ sagði Ólafur Ragnar og tók fram að hann væri eftir samtöl sín við erlenda áhrifa- menn á síðustu dögum bjartsýnni en áður um að hægt yrði að koma at- burðarásinni, eins og hún horfði við Íslendingum, til skila og endurvinna traust landsins. Morgunblaðið/Ómar Samræður mikilvægar Forseti Íslands snæddi hádegisverð með starfsmönnum Icebanks og Sambands íslenskra sparisjóða áður en hann ávarpaði þá. Fundurinn var liður í vettvangsheimsókn forsetans á vinnustaði í landinu. Síðasta uppistandandi tréð Forsetinn gagn- rýnir árásir Breta á Íslendinga ÍSLENSKIR námsmenn erlendis eiga enn í erfiðleikum með að milli- færa fé af hérlendum bankareikn- ingum yfir á reikninga í námsland- inu. Best gengur með millifærslur af reikningum Nýja Landsbankans en þó fer eftir löndum hvort afgreiðslan gengur eftir, að sögn formanns SÍNE. Síðastliðinn föstudag funduðu fulltrúar Sambands íslenskra náms- manna erlendis með fulltrúum frá LÍN, menntamálaráðuneytinu, utan- ríkisráðuneytinu og félagsmálaráðu- neytinu. Þar kom fram að fyrir milli- göngu Seðlabanka Íslands hefði verið opnað fyrir millifærslur af reikningum viðskiptavina Nýja Landsbankans til banka erlendis og var stefnt að sömu þjónustu fyrir Kaupþing og Glitni eftir að nýjar stofnanir hefðu tekið formlega við starfsemi þeirra. Tíminn naumur Að sögn Garðars Stefánssonar, formanns SÍNE, berast félaginu enn kvartanir frá námsmönnum erlendis um að þeir fái ekki að millifæra fé milli landa. Þótt millifærslur séu farnar að ganga í tilfelli Nýja Lands- bankans sé það ekki algilt. „Það gengur hjá sumum, t.d. í Danmörku. Hins vegar höfum við heyrt að í Eng- landi sé eitthvert skrifræði í kring- um þetta – menn þurfi að fylla út beiðni sem svo er send heim. Þetta er ennþá svolítið óljóst.“ Hann segir að millifærslur gangi hins vegar ekki þar sem Glitnir og Kaupþing eiga í hlut en beðið sé eftir að nýjar stofnanir þeirra líti dagsins ljós . „Við erum búin að fá mörg skilaboð um að þetta gangi ekki upp og tíminn er naumur því þetta ástand er búið að vara í fimm, sex daga.“ Í fréttatilkynningu menntamála- ráðuneytisins frá því fyrir helgi segir að þess sé vænst að greiðslumiðlun fyrir viðskiptamenn Glitnis og Kaup- þings verði virk um leið og nýjar stofnanir hafa formlega tekið við starfsemi þeirra banka og um svipað leyti fyrir aðrar fjármálastofnanir, eða í fyrri hluta þessarar viku. ben@mbl.is Námsmenn enn í erfiðleikum með millifærslur Í HNOTSKURN »Íslendingar erlendis geta íneyðartilfellum leitað til borgaraþjónustu utanrík- isráðuneytisins í síma + 354 545 9900. »Yfirfærslur eru háðartímabundnum fjárhæðar- takmörkunum Seðlabanka Ís- lands. »Um 3.300 Íslendingar eruvið nám erlendis.  Hægt að færa fé frá Nýja Lands- bankanum  Skrifræði í Bretlandi Eftir Bergþóru Njálu Guðmundsdóttur ben@mbl.is BERGUR Hauksson, framkvæmda- stjóri Eignarhaldsfélagsins Fast- eignar, segir að framkvæmdir við byggingu Háskólans í Reykjavík í Vatnsmýrinni séu á áætlun og hann viti ekki betur en að fjármögnun- arsamningurinn, sem gerður hafi verið við Glitni, gildi áfram hjá nýj- um banka. Eignarhaldsfélagið Fasteign er dótturfyrirtæki Glitnis. Gert er ráð fyrir að háskólabyggingarnar verði afhentar annars vegar í ágúst á næsta ári og hins vegar í ágúst 2010. Bergur segir að í samræmi við yfirlýsingar stjórnvalda um að halda innanlandsstarfsemi bankans áfram í fyrri rekstri sé ekki ástæða til að halda annað en að fram- kvæmdir við HR verði óbreyttar. Mikið í húfi „Ef þetta stoppar og allt annað stoppar er þjóðfélagið stopp,“ segir Bergur og vísar til þess að hjól at- vinnulífsins verði að halda áfram að snúast. Eins megi ekki gleyma því að þegar herði að þurfi helst að styrkja uppbyggingu menntunar. Hann segir að nú starfi um 170 manns við framkvæmdirnar og bú- ast megi við að þeim fjölgi upp í allt að 300 manns næsta sumar. steinthor@mbl.is Byggingar HR í Vatns- mýri á áætlun Morgunblaðið/RAX Háskólasvæði Nýtt húsnæði HR er í byggingu við rætur Öskjuhlíðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.