Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 25 UMRÆÐAN ALÞJÓÐLEGUR dagur hvíta stafsins er 15 október. Hvíti staf- urinn er ekki eingöngu tákn fyrir blinda til að láta samfélagið vita af því að viðkomandi sé blindur. Hvíti stafurinn er mikilvægt örygg- istæki sem blindir jafnt sem sjónskertir ein- staklingar nýta sér og gefur þeim færi á að fara á milli staða sem sjálf- stæðir einstaklingar. Út um allan heim er hvíti stafurinn mest notaða öryggistæki sem blindir og sjón- skertir nota á ferðum sínum um leið og hann er tákn sjálfstæðis. Í hugum margra er hvíti stafurinn fyrst og fremst fyrir þá sem eru blindir. Á Íslandi eru um 1400 manns blindir eða sjónskertir. Að vera sjón- skertur er að vera með 30% sjón eða minna. Af þessum 1400 eru um 100 al- blindir. Sjónskerðing Sjónskerðing getur lýst sér á margvíslegan hátt. Sjónskerpan er það sem flestum dettur í hug þegar sjón er nefnd, enda veigamikill hluti sjónarinnar. Þegar sjónskerpa er komin niður í 10%, 6/60 þýðir það að viðkomandi einstaklingur sér á 6 metra færi það sem fullsjáandi ein- staklingur sér á 60 metra færi. En sjón er meira en það. Hliðarsjón er ekki síður mikilvæg. Hún gerir mönnum kleift að rata um og skynja hreyfingar útundan sér. Þá má nefna ljósnæmi og rökkuraðlögun. Nátt- blinda er vel þekkt einkenni vissra augnsjúkdóma og getur háð mönnum verulega og svo er það litaskynjunin. Einstaklingar sem eru með vissa augnsjúkdóma geta við ákveðnar að- stæður hegðað sér eins og fullsjáandi einstaklingar og orðið svo nánast bjargarlausir við aðrar aðstæður. Þannig getur einstaklingur sem hefur mjög takmarkað sjónsvið, 10° eða minna, haft góða skerpu í þessum 10°, og því verið fær um að lesa. Viðkom- andi einstaklingur getur hinsvegar lent í vandræðum með að rata eða at- hafna sig, sérstaklega í þrengslum og oft verið klaufalegur í hegðun. Einstaklingar sem tapa miðjusjón en halda hliðarsjón geta átt auðvelt með að ferðast um, en geta svo lent í vandræðum með að þekkja fólk og geta virst á stundum aldrei horfa framan í þann sem verið er að tala við. Birtingarmyndir alvar- legrar sjónskerðingar geta verið margar og það er ekki ástæða til að ætla að einstaklingur sem gengur með hvítan staf, sest svo niður og fer að lesa dagblað, sé að villa á sér heimildir. Bætt aðgengi gagnast öllum Eins mikilvægt öryggistæki og hvíti stafurinn getur verið blindum og sjónskertum þá eru eftir sem áður ýmsar slysahættur í umhverfinu sem mikilvægt er að draga úr. Þetta eru slysahættur sem allir hafa hag af því að hugað sé að. Þar má t.d. nefna:  að hljóðmerki á gönguljósum ættu að vera ófrávíkjanleg regla,  að notast verði við upphleypt merki og sterkar andstæður í lita- notkun til að vara við tröppum,  að vanda frágang á aðvörunum vegna framkvæmda á götum og gangstéttum,  að bílstjórar noti ekki gang- stéttar sem bílastæði,  að gangstéttar séu ekki notaðar til að moka snjó af götum á. Þegar fjallað er um aðgengismál þá er mikilvægt að hafa í huga að bætt aðgengi kemur öllum til góða og þá ekki síst eldri borgurum. Mikilvægt er einnig að taka tillit til aðgegn- ismála öllum hönnunarferlum. Víða erlendis eru aðgengismál komin inn í löggjöf þannig að fyrirtæki og stofn- anir geta skapað sér skaðabóta- ábyrgð ef aðgengismál eru ekki í lagi. Að mati sjónskertra og blindra ein- staklinga sem hafa samanburð á bú- setu hérlendis og erlendis eru að- gengismál hér á landi í mörgum tilvikum töluvert langt á eftir því sem gerist meðal frændþjóða okkar. Að- gengismál eru hinsvegar eilífðarverk- efni sem sífellt þarf að vinna í og þar er kynning á því sem betur má fara mjög mikilvæg. Öryggi og sjálfstæði Kristinn Halldór Einarsson skrifar um sjónskerðingu og hvíta stafinn » ...hvíti stafurinn er mest notaða örygg- istæki blindra og sjón- skertra og um leið er hann tákn sjálfstæðis. Kristinn Halldór Einarsson Höfundur er formaður Blindrafélagsins, samtaka blindra og sjónskertra á Íslandi Í SÍÐUSTU viku sendi Emanuel Tommy, fram- kvæmdastjóri Rauða krossins í Síerra Leóne, Rauða kross- inum á Íslandi sam- úðar- og bar- áttukveðju vegna þeirra þrenginga sem við Íslendingar erum að ganga í gegnum. Emanuel er ungur maður sem býr í einu fátækasta landi heims. Hann hefur upplifað hræðilegt stríð og misst marga af sínum nánustu. Ég hef oft dáðst að æðru- leysi hans og hve já- kvæður hann er í hjálparstarfi sem er mjög krefjandi við þær aðstæður sem hans fólk býr við. Þrátt fyrir að búa sjálfur í landi sem er að takast á við mikla erfiðleika tók hann sér tíma til að hugsa til okkar á Ís- landi. Ég verð að viðurkenna að ég vissi ekki alveg hvernig ég átti að bregðast við kveðjunni. Fyrst skammaðist ég mín þar sem ég veit að þrátt fyrir þá kreppu sem við erum að sigla inn í erum við langt frá því að búa við þrengingar í lík- ingu við þær sem fólkið í Síerra Leóne þarf að takast á við. Síðan gladdist ég yfir að eiga Emanuel Tommy að. Rauði kross Íslands hefur verið til staðar fyrir hann undanfarin ár og nú er hann til staðar fyrir okkur. Þegar erf- iðleikar steðja að er gott að finna að maður er ekki einn í heiminum. Ég hef undanfarna daga þakkað fyrir að hafa fengið að starfa með og fyrir fólk í fátækustu löndum heims og á svæðum þar sem vopn- uð átök ríkja. Það fólk sem ég hef unnið með og fyrir hefur kennt mér margt um samstöðu, listina að lifa af litlu og hvað það er sem skiptir mestu máli í lífinu. Einnig hef ég lært að eignir og peningar eru ekki það sem skiptir öllu máli þegar spurningin er að lifa af á erf- iðum tímum – þá er betra að eiga góða að sem eru tilbúnir að deila með öðrum og sýna samstöðu. Í starfinu hef ég upplifað það að vera í lífsháska. Þetta var þegar átök brutust út þar sem ég var við störf í Líberíu. Á þeirri stundu var mér sama um þó að ég missti allt nema mína nánustu. Ég var meira að segja komin í samningaviðræður við guð um að ég gæti sætt mig við að fá skot í vinstri handlegg eða fótlegg bara ef ég kæmist lifandi heim. Þetta gerðist þegar ráðist var á bílalest okkar útlendinganna sem vorum á flótta frá átökum. Það að við lögðum á flótta þýddi einnig að við skildum eftir í Líberíu innlenda samstarfsmenn og vini okkar auk almennra borgara. Þeg- ar fólk áttaði sig á að við vorum að yfirgefa svæðið braust út mikill ótti. Það að yfirgefa fólk í lífsháska var það erfiðasta sem ég hef upp- lifað sem hjálparstarfsmaður. Ég reyndi að gefa allan gjaldeyr- inn sem ég var með og lyklana að vöruhúsinu sem var fullt af mat- vælum en enginn vildi taka við þessum verð- mætum. Skýringin var að á þessari stundu skipti það eitt máli að leggja á flótta til þess að lifa af og þá voru peningar og mat- arbirgðir íþyngjandi. Sem betur fer náði ég að hitta flesta sam- starfsmenn mína eftir að við komumst úr landi. Þá voru þeir allslaust flóttafólk í ná- grannalandi – en þakk- látt fyrir að hafa haldið lífi í þeim hremm- ingum sem þau gengu í gegnum. Við það að starfa við mannúðarstörf erlendis og nema friðar- og átakafræði er mér það mjög ljóst að við Ís- lendingar búum við velferð sem fáum íbú- um þessa heims hefur staðið til boða. Ég er þakklát fyrir þau for- réttindi að hafa fæðst á Íslandi og þrátt fyrir kreppu og þá uppstokkun sem á sér nú stað er ég á þeirri skoðun að það verði áfram mjög eftirsókn- arvert að tilheyra íslensku sam- félagi og búa á Íslandi. Ég hlakka til að takast á við það endurmat og nýsköpun sem bíður okkar og ég gleðst yfir að eiga marga góða að um allan heim sem munu vera með okkur í því starfi. Takk, Emanuel, fyrir að minna mig á að við tilheyrum hvort öðru í því samfélagi sem deilir með sér gæðum jarðarinnar. Takk fyrir að minna mig á þau forréttindi sem fylgja því að tilheyra íslensku vel- ferðarsamfélagi og búa á Íslandi og takk fyrir að minna mig á að njóta lífsins. Það er gott að eiga þig að. Stuðningur úr óvæntri átt Helga Þórólfsdóttir segir frá bar- áttukveðju til okk- ar frá Síerra Leóne einu fátækasta landi heims Helga Þórólfsdóttir » Í síðustu viku fékk Rauði kross Ís- lands stuðnings- yfirlýsingu frá framkvæmda- stjóra Rauða krossins í Síerra Leóne vegna fjármálahruns- ins hér á landi. Höfundur er með framhaldsmenntun í friðar- og átakafræðum og hefur starfað sem sviðsstjóri alþjóðasviðs Rauða kross Íslands og við hjálp- arstörf á vegum Rauða krossins. MORGUNBLAÐIÐ slæst í för með utanríkisráðherra í leiðara blaðsins í gær og heldur því að les- endum sínum að annaðhvort verði Íslendingar að ganga í Evrópusam- bandið eða að hverfa aftur til for- tíðar. Annaðhvort sæki landsmenn fram með frjálsum viðskiptum eða pakki í vörn í ástandi sem var fyrir daga EES-samningsins. Þetta er röng lýsing á stöðunni og val- kostum þjóðarinnar. Eðlileg við- brögð við fjármálakreppunni og gjaldþroti viðskiptabankanna eru að setja frekari reglur um frjáls viðskipti og fjárfestingar og taka fyrir þann leka á löggjöf Íslands sem gerði fjárglæframönnum kleift að velta eigin skuldbindingum á herðar þjóðarinnar. Það þarf að taka upp frelsi með ábyrgð. Slíkt skref er áfram en ekki aftur á bak. Það er hins vegar í mínum huga afturhvarf til fortíðar að opna fisk- veiðilögsögu landsins fyrir erlend- um fiskiskipum, svo sem breskum og fela Evrópusambandinu meira og minna yfirráð og stjórnun fisk- veiðiauðlindar íslensku þjóð- arinnar. Aðild að Evrópusamband- inu felur þetta í sér, stórt skref til fortíðar. Við skulum halda áfram á eigin forsendum fyrir land og þjóð. Kristinn H. Gunnarsson Áfram fyrir land og þjóð Höfundur er þingmaður fyrir Fjálslynda flokkinn. HEFUR þú einhvern tíma gúglað eitthvað á netinu og fundið fræði- grein um nákvæmlega það sem þú varst að leita að – en því miður er fræðigreinin læst og þú getur ekki lesið hana nema þú sért með áskrift eða borgir fyrir hana? Því miður hafa margir lent í þessu en tímarnir eru smám saman að breytast og lokaður að- gangur verður sjaldgæfari með degi hverjum. Á netinu er opinn aðgangur að æ fleiri tímaritum og greinar þeirra öllum aðgengilegar án endur- gjalds. Öflug alþjóðleg hreyfing fræðimanna og bókasafnsfræðinga hefur breytt útgáfulandslaginu grið- arlega á síðustu fimm til tíu árum (sjá www.earlham.edu/̃peters/fos) og í dag, þriðjudaginn 14. október, er al- þjóðlegur dagur opins aðgangs (sjá openaccessday.org). Á Íslandi eru nú þegar mörg dæmi um opin tímarit. Landsbókasafn Ís- lands – háskólabókasafn hefur tekið saman lista yfir blöð og tímarit í opn- um aðgangi (sjá landsbokasafn.is/ id/1011480), en meðal fræðirita má nefna Stjórnmál og stjórnsýslu (stjornmalogstjornsysla.is, gefið út af stjórnmálafræðistofnun Háskóla Ís- lands), Tímarit um félagsvísindi (bjss.bifrost.is, gefið út af Háskól- anum á Bifröst), og Nordicum- Mediterraneum (nome.unak.is, gefið út áf Háskólanum á Ak- ureyri). Bókasafn Landspítalans hefur stofnað geymslusafn, Hirsluna, sem hýsir vísindalegar greinar eftir starfsmenn spít- alans (sjá hirsla.lsh.is). Opinn aðgangur að vísindalegu efni er sérstaklega mik- ilvægur fyrir Íslend- inga vegna legu og stærðar landsins. Bókasöfn okkar eru takmörkuð, landsaðgangur nær bara til ákveðinna tímarita, og litlir háskólar hafa ekki efni á mörgum tímaritsáskriftum, hvorki papp- írsáskriftum né rafrænum. Reyndar er tímaritaútgáfa að miklu leyti að breytast í rafræna út- gáfu. Æ sjaldnar er ástæða til að birta fræðigreinar á pappír og reyna að selja þær. Með því að birta á net- inu detta margir kostnaðarliðir út (svo sem prentun, áskriftarstjórn, dreifing, og póstur) – það sem stend- ur eftir er ritstjórn. Þar sem eru engir áskrifendur þarf grunnfjármagn tímaritsins vita- skuld að koma annars staðar frá – en vegna þess að um frekar lágar upp- hæðir er að ræða ráða flestir háskól- ar eða deildir innan þeirra við að gefa út rafræn tímarit og greiða fyrir rit- stjórn þess. Mörg opin rafræn tíma- rit hafa sprottið upp á síðustu fimm ár (sjá www.doaj.org). Nýju tímaritin hafa byggt upp ritstjórnar- og ritrýn- ingarkerfi og mörg þeirra hafa þegar getið sér góðan orðstír. Sum eldri tímarit hafa kosið að taka upp hið nýja fyrirkomulag og birta greinar endurgjaldslaust á net- inu. Önnur kjósa að halda áfram að selja aðgang og það gengur oftast vel ef þau hafa verið búin að festa sig í sessi. Hvað varðar höfundarétt er al- gengast að stuðst sé við hið svokall- aða Creative Commons Attribution License (sjá creativecommons.org) sem þýðir að öllum er heimilt að nota efnið, og jafnvel dreifa því og end- urbirta það en að sjálfsögðu þarf allt- af að geta höfundarins og uppruna greinarinnar. Slíkt efni mættu kenn- arar t.d. setja á vefsíður námskeiða sinna án þess að hafa áhyggjur af því að þeir væru að brjóta lög. Til er ókeypis hugbúnaður fyrir þá sem vilja stofna ritrýnd tímarit í opn- um aðgangi með innbyggðum leið- beiningum um útgáfuferilinn (sjá pkp.sfu.ca/ojs). Opinn aðgangur nær ekki bara til tímarita. Á næstu árum munu fleiri og fleiri bækur (sérstaklega fræði- bækur sem seljast ekki í nógu mörg- um eintökum til að útgáfan borgi sig) verða aðgengilegar á netinu í ritrýnd- um söfnum. Þessi þróun er reyndar þegar hafin fyrir allnokkru eins og sjá má af verkefnum eins og Project Gutenberg (gutenberg.org) sem hóf að gera rafrænar bækur utan höf- undaréttar aðgengilegar fyrir meira en þrjátíu arum. Auk þess hafa marg- ir höfundar sjálfir birt bækur sínar á eigin heimasíðum. Við sjáum svo fyr- ir okkur að þær munu í auknum mæli færast inn í rafræn söfn þar sem þær verða varðveittar eftir andlát höfund- anna. Töluvert magn námsbóka hef- ur einnig nú þegar verið sett á netið, sjá t.d. textbookrevolution.org. Á Ís- landi má nefna að flestar lokaritgerð- ir Háskólans á Akureyri og fyrrver- andi Kennaraháskóla Íslands eru aðgengilegar á netinu (skemm- an.khi.is). Stór spurning í fræðiútgáfu þessa dagana er hvort eigi að skylda höf- unda, sem hafa stundað rannsóknir kostaðar af opinberu fé, til að birta niðurstöður sínar í opnum aðgangi. Slíkt fyrirkomulag hefur færst í aukana undanfarið (bæði í Bandaríkj- unum og hjá Evrópusambandinu) en á Íslandi virðast engar formlegar ákvarðanir enn hafa verið teknar. Það er erfitt fyrir suma að við- urkenna að opinn aðgangur sé fram- tíðin. Allar breytingar eru erfiðar og trufla gamlar hefðir og venjur. En ef frá eru talin þau örfáu sem starfa við að selja aðgang að fræðilegri þekk- ingu er opinn aðgangur til mikilla bóta fyrir alla – nemendur, fræði- menn, og almenning. Opinn aðgangur að fræðigreinum Ian Watson skrifar um aðgang að fræði- greinum á netinu »Æ sjaldnar er ástæða til að birta fræðigreinar á pappír og reyna að selja þær. Ian Watson Höfundur er lektor við Háskólann á Bifröst og ritstjóri Tímarits um fé- lagsvísindi. Fréttir á SMS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.