Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 35 MENNING Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is ÉG kom fyrst til Íslands fyrir ná- kvæmlega 22 árum – daginn sem Ronald Reagan fór frá landinu eftir leiðtogafundin í Höfða. Þá stjórnaði ég flutningi hljómsveitarinnar á Ta- piola eftir Síbelíus. Síbelíus hefur iðulega verið á dagskránni hjá mér hér á mikilvægum augnablikum,“ segir Petri Sakari hljómsveit- arstjóri þegar við setjumst niður á Hótel Sögu, gegnt heimili hljóm- sveitarinnar í Háskólabíói. „Á fyrstu tónleikum, sem að- alstjórnandi hér, stjórnaði ég flutn- ingi á Fyrstu sinfóníu Síbelíusar. Þegar við hljóðrituðum fyrir Chandos árið 1991 tókum við m.a. upp áhrifatónlist eftir hann. Fimm árum síðar kom Naxos inn í mynd- ina og þá hljóðrituðum við allar sjö sinfóníurnar, og fleiri verk.“ Nánast einstök uppákoma Þegar ég spyr Sakari hvort hann hafi stjórnað flutningi á verkum eft- ir Síbelíus hér síðan, hugsar hann sig um, og segir síðan: „Nei, við höfum geymt það fyrir þessa uppá- komu núna, sem er nánast einstök. Að leika allar sinfóníurnar þrjú kvöld í röð. Ég veit bara til þess að þetta hafi verið gert tvisvar áður, og þá af finnskum hljómsveitum.“ – Hjálpar það þér við flutning á verkum Síbelíusar að vera finnsk- ur? Sakari hikar. „Síbelíus notaði aldrei neina þjóðlagatónlist í sínum verkum, hann samdi allt sjálfur, þótt hann hafi verið mjög áhuga- samur um þjóðlagatónlist,“ segir hann. Hugsar sig síðan betur um. „En það hjálpar að vera finnskur. Það er til dæmis mikilvægt að skilja finnska tungumálið, þar sem áherslan er á fyrsta atkvæðið, rétt eins og í íslensku. Það eru því fáir upptaktar í finnsku. Iðulega má heyra erlendar hljómsveitir og tón- listarmenn gera mistök hvað það varðar þegar þau flytja finnska tón- list. Á þann hátt græði ég á því að vera Finni – og svo hef ég alist upp með þeim. Nálgunin þarf þó að vera persónuleg; sem stjórnandi á ég að verja tónskáldið.“ Þessi lélegi salur Sakari talar um breytingar sem hafa orðið á Sinfóníuhljómsveitinni, til að mynda voru 72 hljóðfæraleik- arar þegar hann kom hingað fyrst, nú eru þeir yfir 80. „Það er góð breyting. En ég harma alltaf að hljómsveitin þurfi að æfa og leika fyrir áheyrendur í þessum lélega sal. Það er ánægjulegt að sjá bygg- ingarkranana sveiflast til við höfn- ina og nýja tónlistarhúsið rísa. Það lítur vel út. Við vonum bara að verkið tefjist ekki í þessum svipti- vindum. Þegar hljómsveitin flytur í nýja húsið getur hún loksins tekið flugið. Það má líkja því við hljóð- færi. Þú ert með verksmiðjusmíð- aða fiðlu en færð allt í einu Stradiv- aríusarfiðlu í hendurnar. Þegar leikið er í góðum tónleikasal er hljómsveitin eins og annað hljóð- færi.“ Þegar við Sakari ræddum saman stóð enn til að haldið yrði í tónleika- ferð um Japan í næstu viku, en hann segir afar mikilvægt að hljóm- sveitin fari í ferðalög. „Það er mik- ilvægt að hún sé borin saman við aðrar hljómsveitir heimsins, en það getur aðeins gerst með því að fara til annarra landa. Svo væri frábært ef góðar er- lendar hljómsveitir, sem eru á ferð yfir Atlantshafið, myndu stoppa hér og leika í nýja tónlistarhúsinu.“ Einstakt tækifæri – Aftur að Síbelíusi. Hvað munu áheyrendur upplifa? Hljómsveit sem er tilbúin að gera sitt besta? „Það vona ég svo sannarlega. Þetta er einstakt tækifæri til að upplifa Síbelíus. Hann var svo sannarlega eitt mesta sinfón- íutónskáld tónlistarsögunnar. Síð- asta mesta sinfóníutónskáldið. Og ég segi þetta ekki sem Finni. Allar sinfóníur hans eru ólíkar. Þær standa fyrir ólík stílbrigði og í þeim má glögglega heyra þróun hans. Sú fyrsta er rómantísk, nán- ast „tsjækovskísk“, og síðan liggur leiðin í gegnum hina ískyggilegu og að sumra mati skrýtnu fjórðu sin- fóníu, alla leið að þeirri sjöundu sem er í einum þætti. Þar skapar Síbelíus nýja leið, hvað varðar form og að móta efnið. Því miður eigum við ekki Sinfóníu númer átta. Það er mögulegt að hún hafi verið til en hann hafi eytt henni.“ – Hvers vegna? „Tapiola, síðasta stóra verkið hans, er frá 1927. Þá var Vorblót Stravinskís löngu samið, 1913, og Schönberg var kominn fram með sínar hugmyndir. Tónlistin var á leið í aðra átt og Síbelíusi fannst hann líklega vera síðasta risaeðlan. Að hann væri gamaldags.“ - Var hann það? „Nei. Það finnst mér ekki.“ – Áttu þér eftirlætis sinfóníu eftir Síbelíus? Sakari brosir. „Í raun eru allar sinfóníurnar í uppáhaldi en ég dregst að þeim undarlegu sem eru ekki leiknar oft, eins og númer fjögur og sex. Ég veit ekki af hverju. Flestum finnst sú fjórða skrýtin. Mér finnst hún mjög finnsk. Og í henni er stórkostlegur og einstakur hægur kafli. Mér finnst fyrsti þátturinn í þeirri sjöttu vísa mjög ákveðið í finnska náttúru. En þetta er alþjóðleg tónlist sem allir geta notið.“ „Dregst að þeim undarlegu“  Petri Sakari stjórnar flutningi Sinfóníuhljómsveitar Íslands á öllum sjö sinfóníum Síbelíusar  Hljómsveitin býður þjóðinni á tónleika  „Eitt mesta sinfóníutónskáld tónlistarsögunnar“ Morgunblaðið/Einar Falur Stjórnandinn „Þetta er einstakt tækifæri til að upplifa Síbelíus. Hann var svo sannarlega eitt mesta sinfón- íutónskáld tónlistarsögunnar,“ segir Petri Sakari, sem stýrir flutningi Sinfóníuhljómsveitarinnar. Í HNOTSKURN » Sinfóníuhljómsveit Ís-lands, undir stjórn Petri Sakari, leikur allar sjö sin- fóníur Jeans Síbelíusar, auk fiðlukonserts hans, á þrenn- um tónleikum í vikunni. » Sigrún Eðvaldsdóttirleikur einleik í fiðlukons- ertinum. »Tónleikarnir verða kl.19.30 á fimmtudags- og föstudagskvöld og kl. 17 á laugardag. » Til stóð að leika allar sin-fóníurnar í Japan, en hætt var við ferðina í gær. » Sinfóníuhljómsveitin býð-ur íslensku þjóðinni end- urgjaldslaust á tónleikana á föstudag og laugardag. » Petri Sakari var aðal-stjórnandi hljómsveitar- innar í sjö ár og aðal gesta- stjórnandi hennar i þrjú ár. Í REYKJAVÍK art gallery sýnir Guðmunda Kristinsdóttir 24 mál- verk undir yfirheitinu „Hvaðan koma þær – Hvert fara þær?“ sem vísar væntanlega til vangaveltna um ímyndirnar sem listakonan sækir úr eigin fantasíu en er um leið tilvitnun í frægasta málverk Pauls Gauguins, „Hvaðan komum við – Hver erum við – Hvert stefnum við?“ Konur eru í fyrirrúmi í mál- verkum Guðmundu, andlits- og ein- kennalausar í draumkenndu líki í framandlegu útópísku ríki (önnur tenging við Gauguin?). Í þessum handanveruleika er allt rautt svo að myndflöturinn virkar eins og mónókróm, nema hvað efnið er hlaðið (impasto) og undir glittir í aðra liti. Yfirráð rauða litarins kunna að sýnast einhæf þegar á heildina er litið. En það fer þó eftir því með hvaða gleraugum menn horfa og fyrir mitt leyti rammar hann sýn- ingarsalinn ágætlega inn og gerir hugarheim listakonunnar nokkuð stóran að sjá. Hins vegar er hann átakalítill í málverki, helst til sætur og huggulegur. Rauðleit útópían MYNDLIST Reykjavík art gallery Opið alla daga nema mánudaga frá 14- 17. Sýningu lýkur 18. október. Aðgangur ókeypis Guðmunda Kristinsdóttir bbmnn Morgunblaðið/Brynjar Gauti Ímyndir „Konur eru í fyrirrúmi í málverkum Guðmundu...“ sýndi svo berlega að tónlistin var ekki af þessum heimi, hún var hugleiðing, hugarflug, fantasía um eitthvað sem ekki er hægt að koma orðum að. Svipaða sögu er að segja um són- ötuna eftir Saint-Saens. Þar lék Dmitri svo ótrúlega fallega, af sjald- heyrðri vandvirkni en líka djúpri inn- lifun að maður hreinlega tapaði sér. Ég held að ég hafi aldrei heyrt þessa sónötu eins vel leikna. Með Dmitri lék Alexander Schmalcz á píanó. Ásláttur hans var dásamlega mjúkur og litríkur, og hann fylgdi klarínettunni af stakri prýði. Leikur píanóleikarans var samt enn áhrifameiri með söngkonunni Þóru Einarsdóttur, en hún flutti Söngva Ellenar eftir Schubert, Gleymdu söngvana eftir Debussy og lög eftir Schumann. Söngurinn var tær og hljómmikill, og túlkunin gædd viðeigandi ákefð og tilfinningu. Lög Schuberts voru að vísu ögn síðri en hin, það var eins og röddin hefði að- eins kólnað á meðan Þóra beið eftir að Dmitri lyki við að spila Saint- Saens, en að öðru leyti er ekki hægt að finna að frammistöðunni. Gaman að heyra í svona frábæru listafólki! ÉG hef sjaldan heyrt eins vel spilað á klarínettu og á tónleikum í Lang- holtskirkju á sunnudagskvöldið. Þar lék Dmitri Ashkenazy Fantas- iestücke op. 73 eftir Schumann og Sónötu op. 167 eftir Saint-Saens. Ekki aðeins var hver tónn unaðslega fallega mótaður og hröð hlaup full- komlega af hendi leyst, heldur var túlkunin svo hástemmd og skáldleg að það var alveg einstakt. Fyrra verkið var reyndar óvanalega inn- hverft, og í upphafi setti ég spurning- armerki við það; Schumann var jú maður tilfinningaöfga. En hann var líka draumóramaður og sú tónamynd sem Dmitri bar fyrir áheyrendur Hugleiðing, hugarflug, fantasía TÓNLIST Langholtskirkja Þóra Einarsdóttir, Dmitri Ashkenazy og Alexander Schmalcz fluttu tónlist eftir Schubert, Schumann, Debussy og Saint- Saens. Sunnudagur 12. október. Söng- og kammertónleikarbbbbm Jónas Sen SIGRÚN Eðvaldsdóttir leikur ein- leik með Sinfóníuhljómsveit Ís- lands í Fiðlukonsert Jeans Síbelí- usar annað kvöld, þar sem fyrstu tvær sinfóníur tónskáldsins eru einnig á efnisskránni. Sigrún seg- ist hafa leikið konsertinn í fyrsta sinn hér heima fyrir 20 árum. „Það sem maður lærir og hrífst af ungur er alltaf í blóðinu,“ seg- ir hún. „Þessi konsert hefur verið með mér svo lengi. Ég heyrði hann fyrst sem unglingur, þegar úrslit- um Síbelíusarkeppninnar var út- varpað og Viktoria Mullova sigr- aði. Ég var alltaf hálfhrædd við konsertinn en þegar ég fór út að læra við Curt- is-tónlist- arháskólann byrjaði ég að æfa hann og læra undir handleiðslu frábærra kenn- arra. Það er alltaf jafn gaman að spila þennan konsert, hann er yndislegur; blóð- heitur og fallegur. Eitt af þessum verkum sem standa alltaf upp úr.“ Síðast lék Sigrún Fiðlukonsert- inn opinberlega í Englandi fyrir tveimur árum. Blóðheitur og fallegur Sigrún Eðvaldsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.