Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 34
34 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ MENNING Ljósmynd/Hekla Dögg Jónsdóttir Litríkur Sirkus-barinn var óðum að taka á sig mynd á Frieze-sýningarsvæðinu í Regents Park í London í gær. Eftir Einar Fal Ingólfsson efi@mbl.is FRIEZE-listkaupstefnan hefst í Re- gents Park í London í dag, með for- opnun fyrir fjölmiðla og boðsgesti. Sýningarsvæðið verður síðan opið gestum alla helgina. 150 kunn gallerí taka þátt og kynna listamenn. Innan verkefnis sem kallast Frieze Projects setja 11 listamenn upp verk í boði kaupstefnunnar, og þá er form- legt samstarf við tvo hópa listamanna en annar þeirra er Kling & Bang ofan af Íslandi. Áttmenningarnir voru í gær að leggja lokahönd á endurreisn hins kunna Sirkus-bars af Klapp- arstígnum á sýningarsvæðinu. „Þetta er allt að verða tilbúið,“ sagði Hekla Dögg Jónsdóttir. „Mik- ilvægasta manneskjan, bareigandinn Sigga Boston, er mætt og farin að tengja bjórdælurnar, en við komum vitaskuld með íslenskan bjór. Við vinnum verkið í samstarfi við Siggu, hún kemur með rétta andann. Hér verður sama stemning og á Sirkus forðum. Fólk getur komið inn og horfið til Íslands á augabragði; fengið sér Thule-bjór og fylgst með listrænum uppákomum.“ Innviðir, þak, barborð og skilti Úlfur Grönvold hefur stýrt endur- byggingunni, sem hann segir hafa gengið vel, þrátt fyrir að barinn hafi verið sendur til Englands og reistur á umbrotatímum síðustu vikna. „Sirkusandinn er að lifna, þetta er nánast 100% kópía. Við erum með framhliðina og allt innvolsið, bar- borðið, þakið og ljósaskiltið. Smíðin hefur verið rosaleg vinna og mikið púsl. Við reynum að halda þessu eins raunverulegu og við getum.“ Úlfur segir að ef einhverjir úr Kling & Bang-hópnum hafi haft efa- semdir um gildi verksins, þá hafi þær horfið á liðnum dögum. „Verkið er farið að fá talsvert aðra merkingu, í ljósi atburða síðustu daga,“ segir hann. „Við fórum út með Sirkus áður en múrinn féll, og okkur fannst eins og við hefðum tekið tappann úr baðinu með því að flytja þessi menning- arverðmæti hingað,“ bætir Hekla Dögg við. „Við vorum að ræða hvort við þyrftum ekki að flytja barinn aft- ur heim, til að bjarga málunum.“ Vildu ræða efnahagspólitíkina Hekla Dögg segir fjármálakrepp- una greinilega mikið rædda innan listheimsins, en hún virðist þó ekki hafa sýnileg áhrif á Frieze, því engin gallerí hafi hætt við þátttöku. En þau hafa ekki notað tækifærið og boðið Gordon Brown forsætisráð- herra á Sirkus um helgina? „Nei. Við ákváðum að tengja verk- in ekki sjálf við ástandið sem ríkir, þótt verkefnið fjalli alveg hispurs- laust um verðmæti. Okkur þótti þessi bar vera mikil menningarverðmæti. Slíkar stofnanir geta verið í litlum húsum sem eru undir fallöxinni – eins og við í Kling & Bang þekkjum vel. Innihaldið skiptir mestu máli.“ „Fólk frá BBC kom og vildi ræða pólitíkina á Íslandi við okkur,“ segir Úlfur. „En við viljum ekki tala um neina pólitík, það er óþarfi. Menn geta þó lesið ýmislegt inn í verkið. Það verður forvitnilegt að heyra hvað menn segja um að Íslendingar séu mættir með heilan bar til London. Að hér haldi fylliríið áfram?“ Kling & Bang-hópurinn hefur endurbyggt bar af Klapparstíg á einni helstu listkaupstefnu Evrópu Sama stemning og á Sirkus forðum Í HNOTSKURN » Kling & Bang hefur end-urbyggt barinn Sirkus á Frieze-kaupstefnunni sem hefst í London í dag. » Ýmsar uppákomur verðaá Sirkus, m.a. Ghostdigi- tal, Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Gjörningaklúbburinn. SÖNGSVEITIN Fílharm- ónía heldur tónleika í kvöld klukkan átta í Neskirkju. Þar verður flutt klezmer- tónlist, þjóðlagatónlist gyð- inga frá Austur-Evrópu. Auk kórsins koma fram þau Ragnheiður Gröndal söngkona, Haukur Gröndal klarinettleikari og Matthías Stefánsson fiðluleikari. Systkinin Haukur og Ragn- heiður Gröndal hafa starfað saman í klezmer- sveitinni Schpilkas sem gefið hefur út tvær hljómplötur. Miðar fást hjá kórfélögum, í versluninni 12 tónum og við innganginn. Tónlist Söngraddir, klarinett og fiðla Ragnheiður og Haukur Gröndal ÚT ER komin hjá For- laginu bókin Orðspor – gildin í samfélaginu eftir Gunnar Hersvein. Þar fjallar hann um það hvernig einstaklingar geta lagt öðrum lið og tekið þátt í því að bæta samfélag sitt. Markmið bókarinnar er að sporna gegn kæruleysi og aðgerðarleysi með uppbyggilegri gagnrýni og athugun á sam- félagsmálum. Tekið er á uppeldismálum, jafnréttismálum, umhverfismálum og trú- málum og rætt ítarlega um hlutverk fjöl- miðla. Bókmenntir Ný bók frá Gunnari Hersveini Orðspor – gildin í samfélaginu ANNAÐ kvöld klukkan 18 opnar ísraelsk/bandaríska myndlistarkonan Tamy Ben-Tor sýningu í sýning- arrýminu 101 Projects, Hverfisgötu 18b. Sýningin er hluti af myndlistarhátíð- inni Sequences sem stendur nú sem hæst. Ben-Tor vinnur aðallega með vídeó, en er jafnframt þekkt fyrir gjörninga sína, sem hún hefur flutt í leikhúsum, gjörn- ingahátíðum og næturklúbbum. Hún kemur sjálf fram í verkum sínum, bregður sér í ýmis gervi og leikur karaktera, sem hún byggir á þekktum erkitýpum. Myndlist Tamy Ben-Tor í 101 Projects Ben-Tor í einu verka sinna FYRSTU Háskólatónleik- arnir í haust verða haldnir í hátíðarsal Háskólans í dag. Það er Kvartett Sig- urðar Flosasonar sem ríð- ur á vaðið og flytur ný verk fyrir djasskvartett eftir Sigurð. Kvartettinn skipa Sigurður Flosason saxófónleikari, Eyþór Gunnarsson píanóleikari, Valdimar K. Sigurjónsson kontrabassaleikari og trommuleikarinn Einar Scheving. Tónleikarnir hefjast kl. 12.30. Almennur aðgangseyrir er 1.000 krónur, en ókeypis er fyrir nemendur Háskóla Íslands. Tónlist Fyrstu Háskóla- tónleikarnir Sigurður Flosason Rithöfundurinn Milan Kun-dera er sagður hafa ljóstraðupp um meintan njósnara árið 1950 þegar hann var 21 árs. Þetta kemur fram í grein, sem birt- ist í tékkneska tímaritinu Respekt eftir Adam Hradilek, sem starfar hjá stofnun, sem rannsakar alræðisríki, USTR.    Í greininni er því haldið fram aðKundera hafi sagt lögreglunni frá gesti, Miroslav Dvorácek, á stúd- entagarðinum, sem hann bjó á. Sönnunargagnið er lögregluskjal, dagsett 14. mars 1950 þar sem segir að klukkan 16 hafi Milan Kundera komið á lögreglustöð í Prag og sagt að Dvorácek væri væntanlegur. Lögreglan handtók Dvorácek, sem hafði flúið til Þýskalands 1948 og sagt var að tékkneskir útlagar þar í landi studdir Bandaríkjamönnum hefðu fengið hann til að njósna um tékknesk stjórnvöld. Ákæruvaldið krafðist þess að Dvorácek yrði dæmdur til dauða, en hann var dæmdur til 22 ára fangelsisvistar og afplánaði 14 ár, meðal annars í úr- aníumnámu.    Kundera hefur brugðist hart viðþessum skrifum og sagði í yf- irlýsingu, sem kom frá útgefanda hans, Gallimard, að þær væru „hreinar lygar“. Í viðtali við tékk- nesku fréttastofuna CTK sakaði Kundera fjölmiðla um að fremja „morðtilræði við rithöfund“ og bætti við: „Minnið er ekki að leika á mig. Ég vann ekki fyrir leynilögregluna.“ Kundera var á sjöunda áratugn- um áberandi talsmaður umbóta- kommúnismans. Hann féll hins veg- ar í ónáð eftir að Sovétmenn kæfðu vorið í Prag. Árið 1970 var honum bannað að skrifa. Hann fór til Frakklands, var sviptur ríkisborg- ararétti og tók sér franskt ríkisfang. Í verkum sínum hefur hann meðal annars fjallað um þær siðferð- isþrengingar sem geta fylgt því að búa í ráðstjórnarríki. Það er ekki að furða að Kundera taki þessu illa. Í raun hefur þegar fallið blettur á höfundinn þótt sekt hans sé ekki sönnuð. „Nýr kafli hef- ur bæst í bókina um svik á tímum kommúnismans,“ segir í upphafi greinar um málið í þýska blaðinu Frankfurter Allgemeine Zeitung í gær og er til marks um þann skaða, sem þetta mál getur valdið Kundera.    Milan Kundera fjallar í bók sinniÓdauðleikinn um orðsporið. Hann greinir á milli litla ódauðleik- ans, „minningu í huga þeirra sem þekktu manninn“, og mikla ódauð- leikans, „minningu í huga þeirra sem ekki þekktu manninn“. Hann tekur dæmi um Jimmy Carter, sem fékk vægt hjartaslag þegar hann boðaði fjölmiðla að mynda sig að skokka. Í stað hins hrausta og heil- brigða leiðtoga sat aðeins sárs- aukagrettan á andliti hans eftir. „Maðurinn þráir ódauðleikann, og dag einn sýnir kvikmyndavélin okk- ur munninn á honum afmyndaðan í dapurlegri grettu, það eina sem við munum eftir honum, og grettan um- myndast í dæmisögu um allt líf hans; hann fær inngöngu í hinn svonefnda hlálega ódauðleika.“ Síðan segir hann að „þótt hagræða megi ódauð- leikanum, móta hann fyrirfram, hafa áhrif á hann […] fer hann aldr- ei samkvæmt áætlun“.    Áætlun Kundera er farin úrskorðum. kbl@mbl.is Kundera segir ásakanir hreinar lygar AF LISTUM Karl Blöndal » þótt hagræða megi ódauðleikanum, mótahann fyrirfram, hafa áhrif á hann […] fer hann aldrei samkvæmt áætlun AP Uppljóstranir Rithöfundurinn Mil- an Kundera í Prag árið 1967.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.