Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 38
38 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi! Sími 462 3500 Þú færð 5 % endurgreitt í Borgarbíó Þú færð 5 % endurgreitt í Háskólabíó 650 kr. fyrir fullorðna - 550 kr. fyrir börn “ENN EIN SNILLDIN FRÁ COEN-BRÆÐRUM” -T.S.K., 24 STUNDIR „ SPRENGHLÆGILEGUR GAMANFARSI ÞAR SEM HEILT HLAÐBORÐ AFLEIKURUM FER Á KOSTUM“ -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS HÚN MUN UPPLIFA ÞAÐ SEM ENGIN PLAYBOY KANÍNA HEFUR UPPLIFAÐ ÁÐUR ... ... HÁSKÓLA! Steve Cogan fer á kostum sem leiklistakennari með stóra drauma um eigin feril í grínmynd sem sló í gegn á Sundance Frá höfundum SOUTH PARK ( BIGGER, LONGER, UNCUT ) og TEAM AMERICA „ Linnulaus hlátur! þú missir andann aftur og aftur!“ - Rolling Stone „ Hrikalega fyndin“ - Auddi Blöndal SÝND Í SMÁRABÍÓI OG HÁSKÓLABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI 650 KR. - ALLAR MYNDIR - ALLAR SÝNINGAR - Í ALLT SUMAR ÓDÝRT Í BÍÓ Í REGNBO GANUM Sími 551 9000Þú færð 5 % e n d u r g r e i t t í Regnboganum Burn after Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Pineapple Express kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Step Brothers kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára Babylon A.D. kl. 5:45 - 8 B.i. 16 ára Mirrors kl. 10:20 B.i. 16 ára Rafmögnuð Reykjavík kl. 5:30 - 6:45 LEYFÐ -T.S.K., 24 STUNDIR - S.V., MBL - Þ.Þ., DV -TOMMI, KVIKMYNDIR.IS 650k r. 650k r. 650k r. 650k r. FRAMTÍÐAR SPENNUTRYLLIR Í ANDA BLADE RUNNER 650k r. 650k r. FRÁ ÞEIM SEM FÆRÐU OKKUR LEGALLY BLONDE SÝND Í HÁSKÓLABÍÓI Þú færð 5% endurgreitt í Borgarbíói, Smárabíói og Regnboganum og Háskólabíói ef þú borga House Bunny kl. 5:45 - 8- 10:15 LEYFÐ Hamlet 2 kl. 6 - 8 - 10 B.i. 7 ára Reykjavík Rotterdam kl. 6 - 8:20 - 10:30 B.i. 14 ára Burn After Reading kl. 8 - 10:15 B.i. 16 ára Mamma Mia kl. 5:30 LEYFÐ SÝND SMÁRABÍÓI SÝND SMÁRABÍÓI, OG HÁSKÓLABÍÓI Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 - 10 B.i.14 ára House Bunny kl. 8 - 10 LEYFÐ Mamma Mia kl. 5:50 LEYFÐ ÞAÐ ER snúið að fjalla um geðveiki af viti í skáldsögu og oftar en ekki færa menn slíka frásögn í gamansaman búning, gera hinn sjúka að einskonar trúð sem sé eiginlega bara að gera þetta sér til gamans. Framan af þessari bók Miriam To- ews finnst manni sem álíka sé framundan, að systir söguhetjunnar Hattie, Min, sé „skemmtilega“ geðveik þegar Hattie berst sím- tal til Parísar frá dóttur Min vegna þeirra erfiðleika sem veikindi móðurinnar hafa skapað. Hattie heldur til Kanada frá París og tekur að sér börn Min, pilt og stúlku, og heldur akandi suður til Bandaríkjanna að leita að föður barnanna sem ekkert hefur spurst til í fjölda ára. Nú eru bækur legíó þar sem hópur fólks fer um Bandaríkin í leit að einhverju eða einhverjum en finnur sjálft sig á leiðinni og hér er sama á ferð; víst finna þau föð- urinn á endanum (sá hluti bókarinnar er reyndar ótrúverðugur). Á leiðinni finna þau þó fyrst og fremst fjölskylduböndin sem tengja þau saman, aukinheldur sem furðufuglar sem þau hitta á leiðinni duga vel til að þau átti sig á því að það eru fæst- ir eins og fólk er flest – og það er hið besta mál. Eftir því sem ferð þeirra vindur fram, sem er býsna ævintýraleg, kemur svo smám saman betur í ljós hve alvarleg veik- indi Min eru og hve þau hafa litað og spillt lífi fjölskyldunnar allrar. Eins áttar Hattie sig á því að í fjölda ára hefur hún flúið undan sannleikanum um systur sína, ekki getað horfst í augu við veikindin og því kosið að líta undan. Það er svo ekki fyrr en hún hætti að hlaupa að henni tókst að komast á leiðarenda, eins og í öllum góðum dæmisögum. Ferðin ferðalok The Flying Troutmans eftir Miriam Toews. Counterpoint gefur út. 275 bls. inb. Árni Matthíasson BÆKUR» METSÖLULISTAR» 1. The Lucky One - Nicholas Sparks 2. The Story of Edgar Sawtelle, - David Wroblewski 3. One Fifth Avenue, by Candace Bushnell 4. Heat Lightning - John Sandford 5. Tsar - Ted Bell 6. The Other Queen - Philippa Gregory 7. A Cedar Cove Christmas - Deb- bie Macomber 8. Hot Mahogany - Stuart Woods 9. The Given Day - Dennis Lehane 10. The Girl with the Dragon Tattoo - Stieg Larsson. New York Times 1. Azincourt - Bernard Cornwell 2. World without End - Ken Follett 3. A Thousand Splendid Suns - Khaled Hosseini 4. The Book Thief - Markus Zusak 5. The Reluctant Fundamentalist - Mohsin Hamid 6. A Most Wanted Man - John Le Carre 7. Heart and Soul - Maeve Binchy 8. The Kite Runner - Khaled Hos- seini 9. The Almost Moon - Alice Sebold 10. The Road Home - Rose Tremain Waterstone’s 1. Compulsion - Jonathan Kell- erman 2. Prisoner of Birth - Jeffrey Arc- her 3. Smoke Screen - Sandra Brown 4. Damnation Falls - Edward Wright 5. Whole Truth - David Baldacci 6. World Without End - Ken Fol- lett 7. Girl With the Dragon Tattoo - Stieg Larsson 8. Bleeding Kansas - Sara Pa- retsky 9. Amazing Grace - Danielle Steel 10. When Day Breaks - Mary Jane Clark Eymundsson Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is AGATHA Christie – An English Mystery eftir Lauru Thompson er nýjasta ævisaga sakamáladrottn- ingarinnar. Bókin er skrifuð með samþykki fjölskyldu Christie og höfundur hafði aðgang að bréfum og minnisblöðum rithöfundarins. Agatha Christie var hlédræg kona sem sótti ekki í sviðsljósið og ævi hennar var að mestu tíðindalítil fyrir utan ellefu örlagaríka daga sem fá vitanlega gott rými í hinni nýju ævisögu. Dularfullt hvarf Árið 1926 var Agatha Christie gift kona og taldi sig einkar ham- ingjusama með eiginmanni sínum Archie og dótturinni Rosemary. Eiginmaður hennar tilkynnti henni einn daginn að hann væri orðinn ástfanginn af annarri konu. Agatha elskaði mann sinn afar heitt og gat ekki afborið þessa vitneskju. Hún hélt frá heimili sínu án þess að kveðja nokkurn mann og ekkert spurðist til henn- ar dögum saman. Viðamikil leit fór fram og um tíma var málið rannsakað sem sakamál og eig- inmaður Agöthu grunaður um að hafa myrt konu sína. Fjölmiðlar fóru vitanlega hamförum í frétta- flutningi. Á ellefta degi fannst Agatha á hóteli. Höfundur hinnar nýju ævisögu gerir þessu dularfulla hvarfi ítar- leg skil. Sá stóri galli er þó á hluta þeirrar frásagnar að höfundur bregður sér í líki skáldsagnahöf- undar og skrifar eins og hann sé að lesa í huga Christie. Sá texti sýnir að Laura Thompson er af- leitur skáldsagnahöfundur. Hún bætir þó fyrir þessa slöppu og til- gerðarlegu kafla með því að draga niðurstöður sínar saman í skyn- samlegu máli og er þá aftur komin í hlutverk ævisagnahöfundar en hefði betur haldið sig þar allan tímann. Tíðindalítil ævi Christie hitti Archie aldrei eftir skilnað þeirra árið 1928 en hún geymdi ástarbréf hans og myndir af honum. Hann kvæntist ástkonu sinni og þegar hún lést úr krabba- meini árið 1958 skrifaði Agatha honum og vottaði honum samúð sína. Seinni eiginmaður Agöthu Christie var fornleifafræðingur- inn Max Mallowan, sem var fjór- tán árum yngri en hún, en hjóna- band þeirra byggðist á vináttu fremur en ást og entist þar til hún lést. Agatha gætti þess vandlega að fá borgað fyrir vinnu sína. Samt varð hún ekki vellauðug kona af skrifum sínum því bakskattar urðu henni dýrkeyptir. Hið örlagaríka ár 1926 markaði Agöthu. Hún vildi fá að vera í friði frá kastljósi fjölmiðla og því fræg- ari sem hún varð því meir hörfaði hún inn í sína einkaveröld. Þessi nýja ævisaga verður seint flokkuð sem æsispennandi lesning en er engu að síður áhugaverð fyrir hina fjölmörgu aðdáendur sakamáladrottningarinnar. Ný bók um sakamáladrottninguna Agöthu Christie Einkaveröld Agöthu Agatha Christie Var aldrei gefið fyrir kastljósið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.