Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 39 eeee - Ó.H.T, Rás 2 eee - L.I.B, Topp5.is/FBL Tekjuhæsta mynd allra tíma á Íslandi! S.V. MBL Sími 564 0000 Þú færð 5 % endurgreitt í Smárabíó “AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND (EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.” -B.S., FRÉTTABLAÐIÐ “MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN” -S.M.E., MANNLÍF“REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN UPP Á ÚRVALSSKEMMTUN” -DÓRI DNA, DV “REYKJAVÍK - ROTTERDAM ER EIN BESTA ÍSLENSKA MYNDIN EVER. SKOTHELDUR ÍSLENSKUR KRIMMI” -T.S.K., 24 STUNDIR -IcelandReview “REYKJAVÍK ROTTERDAM ER ÁVÍSUN UPP Á ÚRVALSSKEMMTUN” -DÓRI DNA, DV “MÖGNUÐ MYND SEM HELDUR ÁHORFENDUM ALLANTÍMANN” -S.M.E., MANNLÍF “REYKJAVÍK - ROTTERDAM ER EIN BESTA ÍSLENSKA MYNDIN EVER. SKOTHELDUR ÍSLENSKUR KRIMMI” -T.S.K., 24 STUNDIR “AFRAKSTURINN ER MÖGNUÐ MYND Í ALLT ÖÐRUM GÆÐAFLOKKI EN NOKKUR ÍSLENSK SPENNUMYND (EÐA ÞÁTTARÖÐ) HINGAÐTIL.” -B.S., FRÉTTABLAÐIÐ -IcelandReview -bara lúxus Sími 553 2075 Sýnd kl. 6, 8 og 10 SÝND Í SMÁRABÍÓI SÝND Í SMÁRABÍÓI, HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI HÁSKÓLABÍÓI OG BORGARBÍÓI SÝND SMÁRABÍÓI, S.V. MBL Sýnd kl. 6, 8 og 10 Sýnd kl. 8 og 10Sýnd kl. 6 www.laugarasbio.is Þú færð 5 % endurgreitt í Laugarásbíó ef þú greiðir með kreditkorti tengdu Aukakrónum 50 kr. afsláttur ef þú kaupir bíómiðann á ar bíómiðann með Kreditkorti tengdu Aukakrónum! House Bunny kl. 5:45 - 8 - 10:15 LEYFÐ Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Reykjavík Rotterdam kl. 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Burn After Reading kl. 5:45 - 8 - 10:15 B.i. 16 ára Pinapple Express kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Mamma Mia kl. 5:30 LEYFÐ Grísirnir þrír kl. 3:45 LEYFÐ Lukku Láki kl. 4 LEYFD Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is LEIKHÓPUR Vesturports þreytir frumraun sína í Bandaríkjunum í kvöld þegar Woyzeck fer á svið BAM-leikhússins í New York. „Við erum með þrjár sýningar hér, 15., 17. og 18. október, í How- ard Gilman-óperuhúsinu sem er rosalega fallegt og tekur 2.200 manns í sal,“ segir Gísli Örn Garð- arsson sem var staddur í New York er blaðamaður náði tali af honum. BAM stendur fyrir Brooklyn Academy of Music og er Woyzeck sýnt á Next Wave-hátíðinni sem leikhúsið stendur fyrir. „Það virðist vera gífurleg eftir- vænting hér fyrir Woyzeck og nán- ast uppselt á allar sýningarnar held ég,“ segir Gísli en þorir ekk- ert að fullyrða um hvernig viðtök- urnar verða. „Í raun hef ég ekki hugmynd um hvernig þetta mun leggjast í Bandaríkjamenn því maður hefur aldrei komið hingað áður, þess vegna er ég rosalega spenntur, með fiðring í maganum af eftirvæntingu.“ Ástæða er þó til bjartsýni hjá Gísla því The New York Times birti viðtal við hann og Nick Cave, sem sér um tónlistina í verkinu, í gær. Halaði inn tvo leikara Gísli segir að sami hópur komi að verkinu í BAM-leikhúsinu og setti það upp í Borgarleikhúsinu. „Þetta er allt upprunalega liðið. Ég náði reyndar að hala mér inn tvo leikara í viðbót í kórinn, Atla Rafn og Rúnar Frey. En það eru hátt í fimmtíu íslendingar hérna núna.“ Á föstudaginn tekur Gísli þátt í listamannaspjalli um sýninguna og Elinor Fuchs, gagnrýnandi, leik- ritaskáld og prófessor yfir leik- húsfræðum og leikhúsgagnrýni í Yale-leiklistarskólanum, mun stjórna umræðunum. Halda ótrauð áfram Þótt útrásarævintýrinu sé lokið hjá mörgum hérlendis í bili svarar Gísli neitandi er hann er spurður hvort efnahagsástandið á Íslandi hafi áhrif á útrás Vesturports. „Landsbankinn var styrktaraðili okkar en samningurinn um það samstarf rann út fyrir nokkru. Þegar við erum að fara til útlanda er kostunaraðilinn yfirleitt leik- húsið sem er að bjóða okkur. En auðvitað á allt eftir að koma í ljós, þetta er heimskreppa og t.d. þetta BAM-leikhús sem við erum í núna er háð styrkjum frá einkaaðilum í Bandaríkjunum, kannski það fari að breytast, það veit enginn neitt. En hér erum við komin og förum til Hong Kong í febrúar, svo Tas- maníu og Ástralíu. Við höldum ótrauð áfram,“ segir Gísli að lok- um. Með fiðring í maganum  Vesturport sýnir Woyzeck í Gilman-óperuhúsinu í New York í kvöld  Halda áfram að sýna um allan heim þrátt fyrir bankakreppu Á fjölunum Sigurjón Brink, Atli Rafn, Gísli Örn, Kalli Sig. og Rúnar Freyr kanna aðstæður í leikhúsinu. MAN Booker verðlaunahafinn í ár er hinn indversk-ættaði Aravind Adiga fyrir bókina White Tiger (ísl. Hvíta tígrisdýrið). Adiga er yngsti höfundurinn sem tilnefndur var í ár, 33 ára gamall. Tilkynnt var um úrslit þessara virtu bresku bók- menntaverðlauna í gærkvöldi. Hvíta tígrisdýrið fjallar um Bal- ram sem vinnur við að draga létti- vagn á Indlandi, einn þeirra fjöl- mörgu sem nýlegur efnahags- uppgangur í landinu hefur ekki náð til. „Þessi skáldsaga er að mestu leyti fullkomin,“ sagði Michael Por- tillo formaður dómnefndar. „Það er mjög erfitt að finna nokkra galla í byggingu hennar.“ Bókin er fyrsta skáldsaga Adiga, en hann hefur skrifað pistla í In- dependent, Sunday Times og Time. Þetta er í þriðja sinn í sögu verð- launanna sem nýliði í rithöfunda- stétt hlýtur þau, en Arundhati Roy og DBC Pierre hafa áður fengið verðlaunin fyrir frumraunir sínar. Nýliði Aravind Adiga. Adiga hlaut Man Booker- verðlaunin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.