Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 15.10.2008, Blaðsíða 6
6 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2008 MORGUNBLAÐIÐ HLUTHAFAFUNDUR Atorku group hf. Fimmtudaginn 23. október 2008kl. 14:00 turninn, 20. hæð Smáratorgi 3, 201 kópavogur dagskrá: 1. tillaga um að stjórn félagsins verði falið að óska eftir afskráningu hlutabréfa félagsins úr kauphöll oMX Nordic Exchange á Íslandi Atkvæðaseðlar afhendast á hluthafafundinum og verða einungis atkvæði þeirra hluthafa sem eru skráðir í hluthafaskrá kl. 11 þann 23. október talin með. Stjórn atorku group hf. Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is TÓNLEIKAFERÐ Sinfóníuhljóm- sveitar Íslands til Japans hefur ver- ið frestað um óákveðinn tíma að ósk japansks fyrirtækis sem skipulagði tónleika sveitarinnar í Japan. Í sam- tölum og tölvupóstum létu Japanar m.a. í það skína að vegna frétta af Íslandi undanfarna daga væri hljómsveitinni ekki treystandi. Undirbúningur fyrir ferðina hafði staðið yfir í um tvö ár og ætlaði hljómsveitin og starfsmenn, alls 85 manns, að leggja af stað á miðviku- daginn í næstu viku, að sögn Þrast- ar Ólafssonar, framkvæmdastjóra Sinfóníuhljómsveitarinnar. Tón- leikaferðin átti að standa í þrjár vik- ur. Erfitt að selja miða Að sögn Þrastar vísuðu Japanar til þess að ástandið á Íslandi væri það slæmt að hljómsveitinni væri ekki treystandi fjárhagslega, þeir hefðu í það minnsta gefið það óbeint í skyn. „En síðan held ég að aðal- ástæðan hafi nú verið sú að orðspor landsins er orðið svo lélegt, eftir að bönkunum var slátrað, að þeir hafi bara ekki getað selt miða eða að minnsta kosti ekki eins marga og þeir þurftu til að ná upp í kostnað. Þannig að það hjálpaðist allt að.“ Þröstur segir að fregnir frá Ís- landi um ástand fjármála, m.a. um að gjaldeyrir væri skammtaður, hafi haft áhrif. Auk þess líti út fyrir að Japanar hafi óttast að truflun yrði á samgöngum til Íslands og þeir myndu sitja uppi með okkur. Það hafi reyndar ekki verið auðvelt að fá þá til að tilgreina ástæðuna ná- kvæmlega. „En það er alveg ljóst að orðspor okkar er komið niður í kjall- ara,“ segir Þröstur. Boðsferð velunnara Samkvæmt samningi hljómsveit- arinnar við japönsku tónleikahald- arana áttu Japanar að borga hluta af dagpeningum hljómsveitarinnar og kostnað í Japan og ferðir að mestu leyti, að sögn Þrastar. Dag- peningana átti að greiða fyrirfram en það hafi verið greinilegt að þeir hafi ekki viljað greiða Íslending- unum fyrirfram. „Þeir hafa greini- lega óttast að við myndum ekki klára okkar hluta, þótt ég gæfi þeim fullvissu um að svo yrði.“ Líka ákveðinn léttir Ferðin átti að öðru leyti að mestu að vera í boði japansks velunnara sveitarinnar, Michio Nakajima, og hafði hljómsveitin því ekki lagt út í mikinn kostnað vegna hins fyrirhug- aða ferðalags. Undirbúningurinn hafði hins vegar verið mikill og tímafrekur. „Þetta er ákveðinn skellur en engu að síður er þetta líka léttir því óvissan er mikil á öll- um sviðum. Við vitum ekki hvort við erum komin í gegnum þetta eða hvort það kemur einhver skellur enn og lokar fyrir þann litla gjald- eyri sem til er,“ segir Þröstur. Missa styrki Tveir stærstu styrktaraðilar hljómsveitarinnar, þ.e. fyrir utan ríkissjóð, eru Stoðir og Landsbank- inn. Stoðir eru í greiðslustöðvun og Landsbankinn ekki lengur til í þeirri mynd sem hann var. Samtals höfðu þessi fyrirtæki heitið 25 millj- ónum í styrki og af þeirri fjárhæð hefur um helmingur skilað sér. Orðsporið komið ofan í kjallara Japanar vildu ekki fá Sinfóníuhljóm- sveitina í tónleika- ferð vegna ástands fjármála á Íslandi Morgunblaðið/G.Rúnar Heima Sinfóníuhljómsveitin hefur frestað tónleikaferð til Japans að beiðni þarlends fyrirtækis sem treystir því ekki að sveitin geti staðið við sinn hluta samningsins auk þess sem fréttir af landinu valda því að miðar seljast illa. RÍKISSTJÓRNIN hefur ákveðið í ljósi efnahagsástandsins að beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlits- ins, fyrir hönd skilanefndar Glitnis hf. og Kaupþings hf., og til stjórna Nýja Landsbankans hf. og Nýja Glitnis hf., að afborganir skuldara á myntkörfulánum verði frystar, sér- staklega vegna húsnæðislána, þar til ró kemst á gjaldeyrismarkaðinn. Einnig er þeim tilmælum beint til sömu aðila að fólki í greiðsluerfið- leikum verði boðin sömu úrræði og til staðar eru hjá Íbúðalánasjóði vegna greiðsluerfiðleika. Auk þess er óskum beint til ann- arra fjármálafyrirtækja um að veita sömu fyrirgreiðslu. Tekið er fram í tilkynningu við- skiptaráðuneytisins um þessi tilmæli ríkisstjórnarinnar, að þessi framan- greindu tilmæli og óskir hafi ekki áhrif á heimild til handa Íbúðalána- sjóði til að taka yfir húsnæðislán sem veitt hafi verið af öðrum fjármálafyr- irtækjum og gildi á meðan unnið er að yfirfærslu húsnæðislána til Íbúða- lánasjóðs. Afborganir verði frystar Afborganir af myntkörfulánum bíði Hinn mikli undirbúningur sem sveitin lagði í fyrir Japansförina er alls ekki unninn fyrir gýg. Í þessari viku heldur Sinfón- íuhljómsveit Íslands þrenna tón- leika, þar af eru tvennir ókeypis; á föstudagskvöld klukkan 19:30 og klukkan 17:00 á laugardag. Tónleikarnir áttu að vera liður í undirbúningi sveitarinnar fyrir tónleikaferðina til Japans. „Á erfiðum tímum er fátt betra fyrir andann en góð tón- list. Sinfóníur Sibeliusar þykja einhver merkilegustu tónverk sem samin hafa verið á Norð- urlöndum. Það er því Sinfón- íuhljómsveitinni mikil ánægja að opna dyr sínar á þennan hátt og bjóða þjóðinni á tónleika endur- gjaldslaust,“ segir á vef sveit- arinnar. Á fyrri tónleikunum verða fluttar sinfóníur nr. 2 og 4 en á þeim síðari er komið að nr. 5, 6 og 7. Stjórnandi verður Petri Sakari. Ókeypis tónleikar Jean sibelius INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir ut- anríkisráðherra og formaður Sam- fylkingarinnar segir að stjórn Seðla- banka beri að stíga til hliðar til að veita forsætisráðherra svigrúm til endurskipulagningar í þjóðfélaginu og að mikilvægt sé að lækka stýri- vexti. Í kvöldfréttum RÚV sagði Ingi- björg Sólrún að kerfið væri botn- frosið, engar lánveitingar í gangi og engin þensla og því yrði að reyna að örva hjól atvinnulífsins með því að lækka vexti. Sagði hún, að þar sem verið væri að endurskipuleggja allt fjármálakerfið ætti að hafa Seðla- bankann þar undir líka. Skynsam- legast væri, að forysta hans skapaði forsætisráðherra það svigrúm sem hann þyrfti til þess með því að stíga til hliðar. Í ríkiseigu að hluta Fram kom hjá Björgvin G. Sig- urðssyni viðskiptaráðherra í gær- kvöld, að hann teldi koma til greina að ríkið ætti í framtíðinni varanlegan hlut í viðskiptabönkum hér á landi, líkt og gerist í Noregi. Þá útilokaði hann ekki sameiningu íslensku bankanna. Stjórn Seðlabank- ans stígi til hliðar Yki svigrúm til endurskipulagningar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Björgvin G. Sigurðsson Bankakreppa

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.