Skinfaxi - 01.06.1925, Síða 8
56
SKINI'AXI
Sú kynslóð, sem nú vex upp í landinu, kemur inn i
lífið á límamótum Iveggja lífsskoðana, þar sem ann-
að er einatt játað með vörunum, en hið gagnstæða látið
leiðbeina um verk og breytni — og hún kemur inn í
islenskt þjóðlif á tímamótum í atvinnumálum og stjórn-
málum, menningu og siðum vors eigin lands. Hlutvcrk
hennar er að skapa sér nýja og trausta skoðun á til-
verunni, sem miðar bæði við föðurland vort á himni
og jörðu, og er starfandi og skapandi kraftur, en ekki
orðin tóm. Úr ]rvi heilbrigðasta, sannasta og djarfasta,
sem samtíð vor hefir liugsað og reynt í andlegum mál-
um, og þvi sem saga og reynsla sjálfra vor kennir um
framtíð vora og framtíðarkosti, eigum vér að mynda
í s 1 e n s k t r ú a r b r ö g ð, sem vér getum lifað og
dáið fyrir. Eg veit, að þau muni vísa oss til sveitanna,
til þess að rækta iþar bæði land og lýð. Eg veit, að
þau muni benda oss á tungu vora og bókmentir sem
lilverurétt vorn út á við — heimilismentun og sjálf-
mentun sem notadrýgstu aðferðina heima fyrir.
pessi trúarhrögð ætti tímarit ungmennafélaganna að
efla og kenna. pau á að boða á samkomum þeirra og
fyrirlestrum. Máttur hugsana og skoðana er mikill.
pær eru til alls fyrstar, og endurtekning getur gert þær
sterkari en hersveitir. Fyrr eða síðar kemur sú stund,
að mönnum, sem farnir eru að vita vcl og vita betur,
verður það óhærilegt að stefna sífelt i öfuga átt. pá
verður sú viðreisn að verki, sem hófst í hugsun l'árra
manna. Hér er nóg áf viti, kröftum og góðum vilja til
; þess að færa sér i nyt þá kosti, sem framtíðin býður
þjóðinni. pað vanla ekki annað en að þeir menn, sem
hugsa og vilja það sama, taki höndum saman. Og ung-
mennafélög fslands gæti tekið þá stefnu, að alt það
besta með þjóðinni skipaði sér smám saman undir
merki þeirra. Sigurður Nordal.