Skinfaxi - 01.06.1925, Qupperneq 12
60
SKINFAXI
og málinu ósltað framgangs, en þó er enginn rekspölur
enn á J>að kominn, og þess er ekki að vænta fyr en
menn um land alt hafa sannfærst um gildi þess. pað
er mest um vert að málið sé vel undirbúið, en það getur
það aldrei orðið, nema sveitir landsins vinni fyrir því.
Nú skýt eg því til yðar, góðir ungmennafélagar, að
þér takið mál þetta til meðferðar í félögum yðar um
land alt og felið síðan kjörnum mönnum úr yðar flokki
að leita samvinnu við önnur félög um að hrinda málinu
í framkvæmd.
Yér megum ekki halda að oss höndum lil 1930 og
kasta allri áhyggju á herðar stjórnarvöldunum, því að
þótt hátíðin þá eigi að vera þjóðhátið, þá er þó til
liennar stofnað af því að þá er 1000 ára a f m æ 1 i Al-
þingis. En það er svo margt, sem vinna þarf áður. Vér
þyrftum að halda þjóðfund, þóðhátíð, á pingvöllum til
undirbúnings, Virðist árið 1927 vel til þess fallið. pað
er hæfilega löngu áður en liin mikla hátið skal lialdin.
Á því ári eru og af sumum talin 1000 ár liðin frá stofn-
un Alþingis og ennfremur er það pólitískt merkisár,
því að þá fara fram almennar kosningar til Alþingis,
þess, er vér væntanlega höfum í fylkingarbrjósti 1930.
Vér höfum sannarlega ærin verkefni 1927; þar á meðal
að semja grundvallarlög fyrir þjóðhátíðir framvegis.
Á þann hátt munum vér best heiðra minning feðra
vorra og verk og halda uppi helgi þingstaðarins forna,
að vér sækjum staðinn heim og sýnum lotningu vora
í starfi fyrir framtíð þessa lands, að vér eigum þar
þ i n g á háborginni, háborg íslands, en höfum í huga
hoðorðið, „drag skó þína af fótum þér“.
Ihugið, hvort ekki er vert að vinna að því, að þing-
staðurinn f'orni verði aftur allsherjarþingstaður.
Björn pórðarson.