Skinfaxi - 01.06.1925, Síða 32
80
SKINFAXI
þá væri hægt að selja iþað svo ódýrt, að það yrði með
allra ódýruslu ritum, sem gefin eru út hér á landi. Ef
ungmennafélögin bregðast ekki þeirri skyldu sinni að
sýna blaðinu góð skil, þá á Skinfaxi að geta borið sig
fjárhagslega, þrátt fyrir aukinn útgáfukostnað.
Ef vér viljum teljast lifandi ungmennafélagar, þá
verðum vér að styðja málgagn vort. Vér eigum að senda
því fréttir og umfram alt lesa það rækilega, iþegar það
kemur í hendur vorar.
Blaðið á að vera mótstaður hugsana vorra, þar á að
ræða þau mál, sem okkur öll varðar. Skinfaxi á að
binda félagana saman í fasta heild. Benda á örðugleika,
sem þarf að yfirstíga. Sýna fram á það, að lífið er fá-
nýtt án barátlu. Leiða öss að vaxandi lifi og hækk-
andi sól.
pannig getum vér hjálpað hvert öðru, fundið hand-
tökin hvert hjá öðru og sýnt hvað vér viljum gera fyr-
ir þennan félagsskap. ]?að nægir hvergi að lirópa: „í s-
1 a n d i a 11“, ef vér viljum svo ekkert veita, þegar
með þarf.
Eg leyfi mér því að skora fastlega á öll ungmenna-
félög innan U. M. F. í., að þau sýni þann manndóm
hjá sér, að gera Skinfaxa góð skil. Bregðist þetta, þá
verður þröngt í búi Skinfaxa, því að fáir veita honum
aðrir en vér.
Formenn ungmennafélaga verða að sjá um að blað-
gjaldið verði sent til héraðsstjórna, ekki scinna en i
október ár hvert. Héraðsstjórnum er svo skylt að gera
sem fyrst skil fyrir þessu til gjaldkera U. M. F. I. eða
til ritstjóra og afgreiðslu Skinfaxa í Reykjavík.
F. h. U. M. F. í.
S. Greipsson.
FKLAGSPRENTSMIDJAN