Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1927, Page 17

Skinfaxi - 01.04.1927, Page 17
SKINFAXI 49 öðrum. Aldrei skilst lífsskoðunin og lifsstefnan eins vel. Væri þá ekki gott að geta sagt vini sínum eittlivað það, er yrði honum styrkur í lífsstríðinu og hjálp til þess, að lifa kristnu lífi. Á þann hátt mundi félagið okk- ar breiðast út og ná til fleiri og fleiri, þvi að þeir yrðu einnig með, er sami ásetningurinn vaknaði hjá. Félög mynduðust víðsvegar og ættu mikinn lífskraft, þó þau kynnu að vera fámenn. par sem tveir eða þrír eru sam- an komnir í Jesú nafni, þar vill liann sjálfur vera mitt á meðal þeirra. Færist Eiðasambandið þá nær þeirri hug- sjón, er blasir við framundan því, að sameina sem flesta unga menn undir merki kristindómsins i þvi trausti, að svo reynist þeir guði og ættjörð sinni best. Eg sé í anda þá tíð koma, þó við lifum það ef til vill ekki hér, að kristið ungmennafélag verði i hverri sveit og hverjum bæ þessa lands, ungir menn velji sér hvervetna Krist að konungi og leiðtoga, tali hverjir við aðra um kenn- ingu hans og kappkosti að fylgja henni í hreytni sinni, eftir þvi sem þeim auðnast að skilja hana. Að þessu eigum við að keppa, reyna að láta starf okkar verða spor í áttina. Annars eru leiðirnar til þess, að vekja þennan ásetning hjá öðrum, að lifa kristilegu lífi, ótelj- andi og verður hver um sig að láta reynsluna kenna sér, læra að skilja skapgerð þeirra, sem liann er með, og yfirleitt kringumstæðurnar. J?á gelur oft eitt orð í tíma talað eða bend'ng búið yfir undramætti til góðs. Af sérstökum störfum, sem þó er stundum minna um vert, mætti nefna t. d. sunnudagaskólaliald fyrir börn, ■endurvakning húslestra á heimilunum, hvatning til k’rkjurækni og lestrar góðra bóka eftir kristna menn. En hvaða leiðir sem eru farnar, þá er það víst, að gott dæmi má sín mest. M.’r kemur til liugar það, sem sagt var forðum um þorlák liinn helga, og vildi benda yþk- ur á mynd til efkrbreytni, sem orðin bregða á loft: Meir kostgæfir hann að gera sem best en mæla sem flest. Slíkum manni hlýtur að verða mikið ágengt. Æf-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.