Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1927, Page 21

Skinfaxi - 01.04.1927, Page 21
SKINFAXI 53 ir, sem rísa munu á fót í framtíðinni, þurfa að vera sjálfkjörnir gróðrarreitir ungmennafélaga. Skólastjór- inn á Eiðum hefir betri aðstöðu en nokkur annar mað- ur á Austurlandi til þess að verða ungmennafélögun- um auslur þar að miklu liði. Skóli hans á að verða mið- stöð félaganna. Eiðasamband heitir félag eldri og yngri nemenda, sem verið hafa á Eiðum. Heldur það mót einu sinni á ári á Eiðahólma. — Erindi það, sem hér birtist, hélt skólastjórinn við stofnun samb. þessa. — Skólastjóri hefir boðið ungmennafélögum að lialda vormót i Eiða- hólma, ef þau vildu mynda samband sín í milli, og' boðist til að lána þeim samkomutjöld, bát o. fl., sem nauðsynlegt er á slíkum samkomum. Einnig liefir hann hvatt félögin til að halda íþróttanámskeið á vorin að Eiðum. Nýlega hefir leikfimissalur verið reistur að Eið- um, íþróttakennari verið ráðinn til að starfa þar og iþróttaáhöld keypt til að nota við námið. Tjörn, vel fallin til sundnáms, liggur við túnið. Aðstaðan við Eiðaskóla og áhugi skólastjóra fyrir ungmennafélagsmálum hlýtur að gefa ungmennafélög- um austur þar byr í seglin. U. M. F. f. má ekki liggja á liði sínu. Bráðlega þarf að senda menn austur til þess að vinna að málefnum ungmennafélaga. G. B. Látum ljósin skína. Látum ljósin sldna, langnóttina stytta; næturdrungann dvína, daginn börn sín hitta.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.