Skinfaxi - 01.04.1927, Side 26
58
SKINFAXI
Hátíðasalurinn er skreyttur íslenskum málverkum af
ýmsum helstu sögustöðum landsins. pað er alvara í
hverjum drætti og myndirnar tala máli sögunnar. —
Borðsalurinn er blátt áfram og látlaus, fyrir alla, því
að allir borða við sama borð, bæði kennarar og nem-
endur. Herbergi nemenda eru hlý og þægileg, og iþrótta-
skálinn og sundskálinn eins góðir og framast má verða.
Og leikvellinum og skrúðgarðinum má ekki gleyma,
sem hvorttveggja er þýðingarmikið atriði við slíka skóla.
Og nú skulum við skygnast þarna inn um starfs-
tímann.
Hver dagur byrjar með söng. Nemendur og kennar-
ar safnast saman á einn stað og syngja eitthvert ætt-
jarðarkvæði, og svo hefst kenslan. Tunga og bókmentir
þjóðarinnar skipa þar æðsta sess, þar næst saga og fé-
lagsmál, og svo ýmsar almennar námsgreinar.
Nokkrum sinnum i viku eru fyrirlestrar og samtöl
um trúmál, uppeldismál og ýmsa hagnýta, sálræna
þekkingu, sem öllum má að gagni koma i lífinu.
Yfir kenslunni er L'tt og bjart, engar strangar yfir-
beyrslur, og kennarinn liefir það glöggt í huga, að hann
er þarna vegna nemendanna en þeir ekki vegna bans,
að hann er þar sem leiðtogi, fyrst og fremst, en elcki
sem fræðari eingöngu, og á milli lians og nemendanna
er ynnilegt trausts-samband, eins og á milli barns og
föðurs.
pá er samlíf nemendanna eigi þýðingarminsti þátt-
urinn í starfi þessara skóla. ]?ar læra æskumennirnir
að beita kröftum sínum og þekkja sjálfa sig betur og
hæfileika sina, læra að umgangast hver annan eins og
sannir menn og skilja hver annars hugsjónir, veita hver
öðrum samhjálp og samhygð. Og þar íæra þeir einnig
að skemta sér á hollan og eðlilegan hátt, við söng og
íþróttir og glaðan saklausan leik.
Kenslan og samlífið miða mjög að þessu þrennu: að
vekja viljalífið, tilfinningalífið og trúarlífið.