Skinfaxi - 01.10.1931, Side 1
Skinfaxi VI—VII. 1931
Frá Saksun í Fœreyjum. Ljósm. A. S.
Fáein orð um móðurmálið.
í máli flestra þjóða er auðvelt að finna heiti hluta
og atriða, sem talin eru efnisrík og mikils virði og
lögð er álierzla á í einu cða öðru.
Hinsvegar er tungan enginn skýr vottur þess, livað
það í rauninni er, sem oftlega hefir hinar áhrifa-
mestu afleiðingar í för með sér fyrir þjóðarheildir eða
einstaklinga og veldur um mestu til tjóns eða vinnings.
Það getur sem sé oft átt sér stað, að þetta eða liitt
sé svo og svo mikils virði, þó að því sé enginn gaum-
ur gefinn og menn viti vart, livað það i rauninni er.
Og ástæðan getur verið sú, live erfitt er að festa á
því fang, eða áhrifum þess. Þannig liafa til dæmis
gerlar, súrefni, rafmagn o. s. frv., er reynst liafa
á ýmsan hátt skilyrði lífsins frá öndverðu, verið
mannkyninu hulinn leyndardómur og án orða og
heita langt í aldir fram. En þótt þögn málsins stafi
alloft af þessum eða líkum ástæðum, þá er tilefni
sama hljóðleika þessu fyrnefnda löngum gerólíkt.
Allmargt er það í lífi og náttúru, sem er okkur
að ómetanlegu gagni, án þess að .því sé veitt nein