Skinfaxi - 01.10.1931, Side 8
136
SKINFAXI
Þrjú færeysk kvæði.
(Sjá Songbók Föroya fólks nr. 127, 132 og 147).
Færeyingar gætu nefnzl kvæðaþjóð meö líkum rétti og ís-
lendingar heita söguþjóð. Um svipað leyti eða skömmu eftir
að íslendingar skráðu sögurit sín á skinn, ortu Færeyingar
kvæði út af sömu sögunum. Iívæðin skráðu þeir ekki, enda
var ekki ritað á færeyska tungu fyr en á s.I. öld. En þau
hafa lifað í minni og á vörum þjóðarinnar fram á þenna
tíma. Voru þau kveðin undir færeyska dansinum, en það hefir
hjálpað til að geyma þau og gera þau alþjóðar eign.
Um færeysku þjóðina má með sanni segja, að tungan og
kvæðakunnáttan hafi verið „hennar ljós í lágu lireysi, langra
kvelda jólaeldur“, og hefir margur ornað sér við lélegri glæð-
ur. Þetta hefir gert þjóðina óvenju hneigða til kveðskapar
og næma og geymna á rimað mál. Færeyingar hafa átt og
eiga nú ótrúlega mikið af skáldum, miðað við þjóðarstærð.
Flestir menntamenn og áberandi áhugamenn eyjanna leggja
meiri eða minni stund á kveðskap.
Til skamms tíma hefir færeysk ljóðagerð verið nokkuð fá-
breytt og einhliða. Einkum ort söguljóð og kvæði i þjóðkvæða-
slíl og bragarhættir fáskruðugir — kvæðin oftast miðuð við
það, sjálfrátt eða óviliandi, að vera sungin á dansgólfi. Gagn-
gerð breyting varð á þessu með J. H. O. Djurhuus (f. 1881), en
segja má, að nýtt tímabil í færeyskri ljóðagerð hefjist með
fyrsta kvæði hans, er á prent kom (í Tingakrossi 1901).
Skinfaxi birtir hér sýnishorn af ljóðum þriggja færeyskra
þjóðskálda, núlifandi, i islenzkri þýðingu. .1. II. O. Djurhuus
lögfræðingur er fyrir ýmsra hluta sakir öndvegisskáld eyj-
anna, ljóðrænn, frumlegur og víðfeðmur, svo að eftir hon-
um mundi tekið með hverri þjóð, sem vau-i. Ljóðabók hans
(Yrkingar) hefir komið út í tveimur útgáfum, og sýnir það
geisilegar vinsældir með 25 þúsunda þjóð. — Bróðir hans,
Hans A. Djurhuus gagnfræðaskólakennari, liefir orl Ijóð og
skrifað skáldsögur, æfintýri og leikrit. Hann er mestur af-
kastamaður færeyskra skálda, liefir gefið út margar bækur,
en varla kemst hann jafnliátt og J. H. O. D. — Mikkjal á Ryggi
kennari er ágætavel sjálfmenntaður maður og prýðilegt skáld.
Hann hefir eigi gefið út Ijóðabók. Kvæði hans uin ísland, sem
hér er þýtt, er fruinort með stuðlum og höfuðstöfum, en stafa-
rim er annars lítl notað í færeyskum ljóðum.