Skinfaxi - 01.10.1931, Qupperneq 17
SKINFAXI
145
Vigfús var félagi i U.M.F. Dr. allan starfstíma þess,
og álti drjúgan þátt í félagsskapnum. Hann studdi
bindindisstarfsemina og hvatti til þess, að félagið
gengi í samband við U. M. F. 1., og forustu merk-
asta málsins, sem félagið Jiar fram til sigurs, liafði
liann. Þetta mál var um fyrirhleðslu Markarfljóts hjá
Seljalandsmúla.
Markarfljót hafði lierjað mikinn hluta Vestur-Eyja-
fjallasveitar um áratugi og jafnvel aldir. Jafnlengi
höfðu 1‘orystumenn sveitarinnar haft þetta vandræða-
mál til meðferðar, án þess að sjá líkur fyrir heppi-
legri úrlausn þess. Oft voru allir búendur sveitar-
innar kallaðir saman, til þess að veita Fljótinu frá
býlum og bjargræði, en þó tækist að „tep])a í“, í bili,
var það aðeins stundarfriður, um sumartimann. Á
vetrum var sjaldan mögulegt að stennna stigu þessa
vágests. Allt láglendi frá Seljalandsmúla austur undir
Holtshverfi, lagðist undir vatn og ís. Bar við að ófært
varð i fénaðarliús á sumum bæjum og vatn fór inn
í nokkur þeirra. Vegir um þennan hluta sveitarinu-
ar urðu oft al-ófærir.
Á fundi félagsins, 31. október 1909, kom Markar-
fljótsfyrirbleðslan fyrst til umræðu. Hélt Vigfús á
Brúnum langa og afar vel bugsaða inngangsræðu
að því máli og lagði eindregið til, að félagið beitti
sér fyrir framgangi þess. Urðu langar umræður, bæði
með og móti, þvi ekki þótti álillegl fyrir litinn hóp
æskumanna að sjá færar leiðir, þar sem margar eldri
kynslóðir höfðu orðið að bverfa frá. En þannig end-
aði þessi fundur, — eftir meira en dægurlangar um-
ræður, — að allur undirbúningur málsins var ákveð-
inn og sldpulagður, sérstaklega samkvæmt tillögum
Vigfúsar. Lofaði ungmennafélagið að leggja 100 dags-
vcrk til fyrirhleðslunnar, án endurgjalds. Kosiu var
þriggja manna nefnd til þess að jafna fyrirfram 600
dagsverkum á öll heimili sveitarinnar, aðallega eftir