Skinfaxi - 01.10.1931, Qupperneq 18
146
SKINFAXI
vinnukrafti þeirra. Einum manni var falið að lieim-
sækja alla búendur sveitarinnar og fá þá til að lofa
því skriflega, að leggja fram hina ákveðnu dags-
verkatölu endurgj aldslaust. — Það skal tekið fram,
að dagsverkin urðu nokkuð fleiri, er til framkvæmda
kom, en hér segir.
Fyrirsjáanlegt þótti það, að ef lireppsbúar legðu
þessa dagsverkatölu fram, myndu fást styrkir ann-
arsstaðar að, svo að verkið kæmist í framkvæmd.
Yoru bændur síðan „húsvitjaðir“ og tóku þeir þessu
máli yfirleitt mjög sómasamlega.
Á næsta vori var byrjað á verkinu og því haldið
áfram, þar til þeim hluta sveitarinnar, er hér ræðir
um, var borgið. Má nú sumstaðar sjá grænar grundir,
þar sem áður var svartur aur og farvegir eftir Fljót-
ið, og nú eru vegir sveitarinnar á þessum slóðum
aldrei ófærir af völdum þess. Á sveitin og allir er
um hana ferðast, vetur og sumar, nokkuð að þakka
U.M.F. Drífanda, en þó fyrst og fremst formælanda
þessa merkismáls: bóndanum Vigfúsi Bergsteinssyni
frá Brúnum.
Annað vatnsfall Holtsá, fór á sama hátt að við
Holtshverfið, og hinar hlómlegu engjar þess, sem
Markarfljót við nefndan hluta sveitarinnar, og ár-
lega var dögum saman staðið i að veita henni frá,
en jafnan án fulls árangurs.
Þegar sýnt varð, að Markarfljótsgarðurinn kom að
notum, var einnig farið að hlaða fyrir Holtsá á sama
liátt. Hafa bæði verkin komið að fullum notum, með
fremur litlum endurbótum til þessa tíma.
Búast má við því, að æfiágrip Vigfúsar á Brúnum
verði ritað af einum eða fleirum, svo margs góðs er
að minnast um hann; en einnig má húasl við því,
að þar verði gengið fram hjá framanrituðu atriði,
en eg tel það þess vert, að þvi verði forðað frá