Skinfaxi - 01.10.1931, Side 19
SKINFAXI
147
gleymsku og hið því Skinfaxa hér með um rúm fyr-
ir þessar línur.
Mið-Skála, 18. janúar 1931.
Árni lngvarsson.
Skemmtanir í U. M. F.
„Þetta er ungt og leikur sér“. Æskumenn, sem af-
neita vilja leik og gamni, ættu fremur að nefnast gam-
almenni. Heilbrigðri æsku fylgir gleðiþrá og skemmti-
])örf, og er ekki nema gott um það að segja. Skelli-
hlátur getur lengt æfi manna. Glaðir menn eru hraust-
ari og fúllyndir, og auk þess hugkvæmari og starfhæf-
ari. Fjör og gleði á að rikja þar, sem æska er að verki.
Eitt hlutverk U. M. F. er það, að sjá ungu fólki fyr-
ir fullnægingu skemmliþrár sinnar. Félögin eiga að
vera skemmtifélög, jafnframt því sem þau eru hug-
sjónafélög og framtaksfélög á verklega vísu. Auðvit-
að verður skemmtununum að vera svo i lióf stillt, að
vegna þeirra sé engin skyldustörf niður felld. Þær eiga
að koma að samskonar notum og krvddið í matnum.
Enginn lifir á einu saman kryddi. U. M. F., sem lifir
vegna skemmtana einna saman, á sér naumast tilveru-
rétt. Félag, sem lætur sig skemmtanir engu skifta,
kemur varla að meira en liálfum notum.
U. M. F. eiga a'ð vera vandlát í vali skennntiefna
— nota þau ein, er þroski fylgir og vöxtur, andlegur
eða líkamlegur. Þau eiga að kenna æskufólki að
skemmta sér á liolla vísu og mannbætandi; draga hugi
æskumanna að slíkum gleðiefnum, frá óhollu gamni,
innantómu, grófu eða spillandi. Eiga U. M. F. hér mik-
ið verk að vinna.